Dagur - 13.07.1989, Qupperneq 11
Fimmtudagur 13. júlí 1989 - DAGUR - 11
fþrótfir
i
Akureyrarfélögin mættust í 2. flokki í fyrrakvöld:
PáH Gíslason með þrennu
Þór og KA léku í fyrrakvöld í
2. flokki íslandsmótsins í
knattspyrnu. Leiknum lauk
með sigri Þórs, 3:2, en Þórsar-
ar voru mun sterkari í fyrri
hálfleik og komust í 2:1 fyrir
leikhlé. Páll Gíslason skoraði
öll mörk Þórs.
Ekki voru búnar nema 12
mínútur af leiknum þegar Páll
Gíslason tók boltann í mikilli
þvögu í teig KA og sendi í netið.
Um miðjan hálfleikinn bætti Páll
síðan aftur við marki eftir víta-
spyrnu. Brotið var á Árna Þór
Árnasyni en Ægir Dagsson,
markvörður KA, náði að verja
skot Páls Gíslasonar, hélt hins
vegar ekki boltanum og Páll
fylgdi á eftir og skoraði. KA
minnkaði muninn stuttu fyrir
leikhlé þegar markvörður Pórs
og einn leikmaður liðsins hlupu
saman í vítateignum. Við þetta
misstu þeir boltann framhjá sér
og Pétur Friðriksson lét ekki
tækifærið framhjá sér fara og
sendi boltann í opið markið.
Þórsarar komust í 3:1 á 10.
mínútu síðari hálfleiks þegar Páll
Gíslason tók aukaspyrnu rétt
utan vítateigs. Páll sendi þrumu-
fleyg alveg út við stöng og inn-
siglaði þar með sigurinn. KA-
menn lifnuðu talsvert við í síðari
hálfleiknum og fengu þeir meiri
frið á vellinum eftir að Þórsarar
drógu sig aftur. Skömmu fyrir
leikslokin minnkuðu þeir muninn
þegar Björn Pálmason skoraði.
Leikurinn var ekki mjög vel
spilaður og hafa viðureignir
Ákureyrarfélaganna oft verið
harðari. Pórsarar höfðu yfirburð-
ina í fyrri hálfleiknum en duttu
nokkuð niður þegar líða tók á
leikinn, töldu enda sigurinn gull-
tryggan. Sigur þeirra telst þó
sanngjarn.
í fyrrakvöld léku einnig Völs-
ungar og Fylkismenn í 2. flokki
karla á Húsavíkurvelli og lyktaði
viðureigninni með 4:1 sigri Fylkis
í skemmtilegum leik þar sem oft
var sýnd góð knattspyrna. JÓH
Um síðustu helgi fóru fram meistaramót golfklúbbanna á landinu. Á
myndinni hér að ofan eru þær sem borðust um meistaratitilinn í kvenna-
flokki á Húsavík, frá vinstri Þóra Sigmundsdóttir, sem hafnaði í 2. sæti,
þá Húsavíkurmeistarinn Sigríður Birna Ólafsdóttir og loks Þóra Rós-
mundsdóttir sem hreppti 3. sætið.
Þrír knattspyrnuleikir í 3. deild í fyrrakvöld:
Siglfirðingar standa
með pálmann í höndum
Golf:
Opna Sauðárkróks
mótið um næstu helgi
Opna Sauðárkróksmótið í golfl
verður haldið um helgina á
Hlíðarendavelli Golfklúbbs
Sauðárkróks. Mótið hefst kl.
10 að morgni laugardags og
leiknar verða 36 holur í karla-,
kvenna- og unglingaflokkum.
Glæsileg verðlaun eru í boði,
m.a. forláta golfsett fyrir að
fara holu í höggi. Hlíðarenda-
völlur er í mjög góðu ástandi
Halldór Halldórsson, varn-
armaðurinn úr KA, getur ekki
leikið knattspyrnu næstu vik-
urnar en hann handarbrotnaði
í bikarleiknum við Fram á
dögunum og gat því ekki leikið
gegn Val í deildinni síðastlið-
inn sunnudag.
Halldór sagði í samtali við
blaðið í gær að hann mætti ekki
um þessar mundir og búist er
við góðri þátttöku á mótið.
Pátttaka á „Sauðárkrókur
open“ tilkynnist í Golfskálann að
Hlíðarenda í dag, fimmtudag,
milli kl. 15 og 15.30 og á morgun,
föstudag, kl. 15-15.30 og kl. 20-
22.00. Síminn í skálanum er 95-
35075. Einnig er hægt að tilkynna
þátttöku til stjórnar klúbbsins
eða nefndarformanna.
spila knattspyrnu næstu tvær vik-
urnar en þennan tíma verður
hann með gipsumbúðir. Hann
mun því missa af a.m.k. tveimur
deildarleikjum KA en verður
hugsanlega orðinn leikhæfur þeg-
ar KA mætir Fram í 11. umferð,
þann 26. júlí. Hann hefur spilað
alla leiki KA í sumar, ef undan er
skilinn leikurinn við Val. JÓH
KS á Siglufírði hefur nú mjög
vænlega stöðu í b-riðii 3. deild-
ar íslandsmótsins í knatt-
spyrnu eftir sigur á Þrótti frá
Neskaupsstað í fyrrakvöld á
Siglufírði. Heimamenn fengu
óskabyrjun, skoruðu eftir 5
mínútur og fyrir leikhlé bættu
þeir öðru marki við. Lokatölur
urðu hins vegar 3:1.
Þróttarar sýndu ágæta knatt-
spyrnu í leiknum og veittu KS
harða mótspyrnu. Mark þeirra
kom um miðjan seinni hálfleik-
inn þegar Þorlákur Árnason
skoraði en Siglfirðingar höfðu þá
haldið marki sínu hreinu í rúmar
600 mínútur, eða allt frá því í
fyrstu umferð. Óli Agnarsson
gerði fyrst mark KS í leiknum.
Félagi hans, Baldur Benónýsson,
Staðan
3. deild
KS 8 7-1-0 33: 2 22
Þróttur N. 8 6-1-1 23:10 19
Dalvík 8 4-2-2 16:1114
Huginn 8 4-1-3 15:14 13
Reynir Á. 8 3-2-3 13:1111
Kormákur 8 2-2-4 14:24 8
Magni 7 2-1-4 9:16 7
Austri 7 0-2-5 3:18 2
Valur Rf. 8 0-2-6 3:25 2
skoraði annað markið og Óli inn-
siglaði síðan sigur KS með góðu
marki skömmu fyrir leikslok. KS
situr nú í efsta sæti riðilsins með
þriggja stiga forskot á Þrótt.
Á Árskógsstönd léku heima-
menn í Reyni við Dalvík í sama
riðli. Leikurinn var baráttuleikur
og mjög kaflaskiptur. Dalvíking-
ar voru sterkari í fyrri hálfleik og
skoruðu eitt mark en Reynis-
menn pressuðu í þeim síðari og
Anas Hellmann, vinstri-
handarskytta úr liði Nuuk á
Grænlandi, hel'ur mikinn hug á
að ganga í raðir handknatt-
leiksmanna KA fyrir næsta
tímabil og mun hann koma til
Akureyrar á morgun til að
skoða aðstæður og ræða við
KA-menn.
Hellmann er kominn í sam-
band við KA fyrir milligöngu
Jakobs Jónssonar, fyrrum KA-
leikmanns sem þjálfaði lið á
Grænlandi í vor. Jakob hefur séð
til þessa leikmanns og sagðist
hann, í samtali við blaðið í gær,
jöfnuðu. Mark Dalvíkinga skor-
aði Sigfús Kárason en Haraldur
Haraldsson skoraði fyrir Reyni.
Þriðji leikurinn í riðlinum var á
Reyðarfirði þar sem Magni og
Valur gerðu jafntefli, 2:2.
Magnamenn voru fyrri til að
skora en Valur jafnaði í tvígang,
í seinna skiptið rétt fyrir leikslok.
Magni varð fyrir áfalli í upphafi
leiksins þegar Ingólfur Ásgeirs-
son fótbrotnaði. JÓH
telja að KA hafi not fyrir þennan
leikmann.
Erlingur Kristjánsson, þjálfari
handknattleiksliðs KA, sagði í
gær að stutt væri síðan Hellmann
komst í samband við KA. „Ef
hann hefur mikinn áhuga á að
koma þá er hann velkominn í
okkar raðir, við sjáum síðan til
hvernig þetta gengur,“ sagði Erl-
ingur.
Anas Hellmann verður vænt-
anlega í viðræðum við KA-menn
um helgina og dvelur hann á
Akureyri í viku eða hálfan mán-
uð og tekur á þeim tíma þátt í
æfingum með KA. JÓH
Meiðsli hjá KA:
Halldór handarbrotinn
Handknattleikur:
Grænlensk stórskytta
í raðir KA-manna?
Dagur kynnir keppendur um titilinn „Aflraunameistari íslands“:
Gidlsmíðuriim og „Loðfílliim" meðal keppenda
Dagur mun á næstu vikum
kynna sérstaklega keppendur
og keppnisgreinar í krafta-
keppninni „Aflraunameistari
íslands“ sem fram fer á
Akureyri um miðjan ágúst. í
dag verða kynntir tveir kepp-
endur og tvær greinar. Það
fer vel á því að hefja þessa
kynningu á tveimur af þekkt-
ari kraftamönnum Norðiend-
inga, þeim Flosa Jónssyni og
Torfa Ólafssyni.
Keppendur
Flosi Jónsson er 34 ára og út-
skrifaðist sem gullsmiður árið
1976. Flosi er 178 cm á hæð og
vegur 97 kg. Hann hóf að æfa
lyftingar árið 1969, þá aðeins 15
ára, en skipti yfir í kraftlyfting-
ar árið 1979 eftir að hafa hætt
æfingum í 8 ár. Flosi er marg-
hertur í allskyns aflraunastússi
og þykir hinn magnaðasti kepp-
nismaður. Hann sigraði í fyrstu
aflraunakeppninni á lands-
byggðinni, „Sterkasti maður
Norðurlands", sem fram fór á
Akureyri 1987 og sama ár var I
hann í kcppninni „Sterkasti
maður Íslands“. Hann varð svo
í 3. sæti í keppninni „Sterkasti
maður landsbyggðarinnar“ í
fyrra. Flosi hefur oft orðið
íslandsmeistari í lyftingum og
kraftlyftingum og einu sinni
Flosi Jónsson.
hlotið brons á NM í kraftlyft-
ingum. Helstu áhugamál hans
eru kraftlyftingar, laxveiði, ljós-
myndun og trjárækt. Fl.osi er
núverandi formaður Kraftlyft-
ingafélags Akureyrar.
Torfi Ólafsson er 24 ára nemi
og „vegavinnutröll" og gengur
venjulega undir nafninu „Loð-
fíllinn" sökum stærðar sinnar og
fyrirferðar, en Torfi er 200 cm á
hæð og vegur 150 kg. Torfi hóf
að æfa kraftlyftingar árið 1982
og náði fljótt frábærum árangri
í þeirri íþróttagrein. Ári seinna
hlaut hann brons á NM fullorð-
inna og árið 1985 varð hann
heimsmeistari unglinga og svo
aftur 1986 en 1988 rnissti hann
naumlega af gullinu. Torfi er
einnig vel sjóaður í aflrauna-
mótum. Hann tók fyrst þátt í
keppninni „Sterkasti maður
íslands“ árið 1985, varð annar
og 1987 varð hann fjórði í sömu
keppni. Torfi sigraði í keppn-
inni „Sterkasti maður lands-
byggðarinnar" í fyrra eftir mik-
ið einvígi við Magnús Ver og
síðar varð hann í 4. sæti á
alþjóðakeppninni „Kraftur 88“
og í 3. sæti í „Sterkasti maður
íslanös“ sem fram fór samhliða
þeirri keppni. Á þessu ári hefur
Torfi snúið sér meira að júdó og
er þekktur skelfir í þeirri grein.
Áhugamál Torfa eru kraftlyft-
Torfi Ólafsson.
ingar, júdó, mótorhjól og
barnapössun.
Torfi er núverandi varafor-
maður Kraftlyftingafélags
Akureyrar.
1. keppnisgrein:
Hjólböruakstur
20 metra hjólböruakstur með
800 kg hlass. Þarna verður tekið
á því með hinum frægu Hrís-
eyjarhjólbörur sem notaðar
voru í keppninni „Sterkasti
maður Norðurlands". Hjólbör-
ur þessar eru stórar og stæðileg-
ar og voru raunar fyrstu „leigu-
bílarnir" í Hrísey hér á árum
áður. Ætlunin er að tveir kepp-
endur reyni með sér í einu og
ræður tími úrslitum hjá þeim
sem komast alla leið.
2. keppnisgrein
Armlyfta heinum örmum
Keppandi stendur beinn og
heldur á ákveðinni þyngd (25 kg
hlut) með beinum útréttum
örmum. Þetta er alþjóðleg
keppnisgrein í kraftamótum og
reynir mjög á handleggi og
axlir. Tími ræður úrlitum.