Dagur - 13.07.1989, Page 12
TEKJUBRÉF• KJARABRÉF
FJARMAL ÞIN - SÉRGREIN OKKAR
rFJÁRFESTINGARFÉlAGP
Ráðhustorgi 3, Akureyri
Fiskeldi Eyjafjarðar:
40 þúsund lirfur
á kviðpokastígi
- viðkvæm og erfið tilraun
Hjá Fiskeldi Eyjafjarðar hf. á
Hjalteyri er nú fengist við afar
viðkvæma og erfiða tilraun til
þess að koma upp fyrsta ár-
ganginum af hiðuseiðum.
Þriðja og síðasta skammtinum
af fyrstu hrognum var nýlega
klakið út en alls er um að ræða
um 40 þúsund lirfur sem fylgj-
ast þarf mjög náið með.
Sem kunnugt er voru lúð-
ur til stöðvarinnar veiddar í
Breiðafirði vestra á síðasta ári.
Um er að ræða 34 stórar lúður og
í maímánuði voru þær kreistar.
Ekki ríkti mikil bjartsýni um að
hrogn fengjust úr lúðunum nú í
vor þar sent talið var að þær
þyrftu að minnsta kosti eins árs
aðlögunartíma.
Lirfurnar eru geymdar í sér-
stökum kerjum sem flutt voru inn
frá Noregi. Þær eru nú á svoköll-
uðu kviðpokastigi sem varir í urn
tvo rnánuði. Að sögn Ólafs Hall-
dórssonar forstöðumanns Fisk-
eldisins er hér um að ræða mjög
viðkvæmt tímabil. Mesta hættan
á afföllum er þó talin þegar start-
fóðrun hefst, uppúr miðjum
ágúst. Ætlunin er að fyrst um
sinn verði lirfurnar fóðraðar á
dýrasvifi sem veitt verður við
Hjalteyri en síðan verði gerð til-
raun með nýtt fóður frá Skretting
AS í Noregi.
Nokkru eftir að startfóðrunin
hefst tekur við svokölluð mynd-
breyting og þá taka lirfurnar á sig
mynd foreldra sinna. Lirfurnar
verða flatar og augun leita bæði á
sömu hlið, svo nokkuð sé nefnt.
Fyrst þegar hér er komið sögu er
taiað um lúðuseiði.
„Enn sem komið er hefur
mönnum ekki tekist að ala lúðu-
seiði í stóruni stíl og við gerum
okkur því grein fyrir að hér er um
rnjög erfitt ferli að ræða,“ sagði
Ólafur. ET
Mynd: IM
Dælt verður 15 þúsund rúmiuetrum af efni úr höfninni yfir í lón norðan Norðurgarðs.
Húsavík:
Dýpkun ha&iariimar að ljúka
Öngulsstaðahreppur:
Bifreið steyptíst
í Þverárgljúfur
Klukkan 21.36 á þriðjudags-
kvöld var lögreglunni á Akur-
eyri tilkynnt um umferðar-
óhapp við Þverárgljúfur í Öng-
ulsstaðahreppi. Þar hafði
bifreið lent út af veginum við
brúna og hrapað niður í gilið,
en ökumaður kömst af eigin
rammleik út úr bílnum og leit-
aði hjálpar á bænum Þverá.
Að sögn lögreglunnar virðist
sem ökumaður, sem var á leið í
suðurátt, hafi misst stjórn á bif-
reið sinni þegar hann kom að
brúnni við Þverá og skipti engum
togum að bifreiðin steyptist niður
í gljúfrið. Lítt meiddur, en nokk-
uð þrekaður, komst ökumaður-
inn út úr flakinu, upp úrgljúfrinu
og að bænum Þverá skammt frá
slysstað.
Ökumaðurinn var fluttur á
slysadeild Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri en hann reyndist
aðeins skrámaður og hér fór því
betur en á horfðist. Að sögn lög-
reglunnar barst bifreiðin unt 300
metra niður eftir Þverá og stöðv-
aðist við árósinn þar sem henni
var náð upp, mikið skemmdri,
þetta sama kvöld. SS
Dýpkunarfélagiö hf. hefur
undanfarnar fimm vikur unniö
að dýpkun í Húsavíkurhöfn og
er reiknað með að verkinu
Ijúki nú í vikunni. Alls á að
dæla 15 þúsund rúmmetrum af
efni úr höfninni yfir í ión norð-
an Norðurgarðs, sem myndað-
ist í fyrrasumar er unnið var að
fyrsta áfanga við breikkun
garðsins.
Dýpkun hafnarinnar var ekki á
áætlun í sumar, en í ljós kom að
hagkvæmara var að nýta efni úr
botni hafnarinnar til uppfyllingar
í lónið, í stað þess að keyra þang-
að efni í sumar og þurfa síðan að
losna við efnið úr hafnarbotnin-
um nokkrum misserum síðar.
Efnið úr grjótnáminu, sem fyrir-
hugað var að nota til uppfylíing-
arinnar er einnig afbragðsefni til
annarra nota, t.d. til að mylja í
slitlag.
Er lokið verður að dæla upp-
fyllingarefninu í lónið verður
gengið frá grjótgarðinum. Að
sögn Bjarna Þórs Einarssonar,
bæjarstjóra, lýkur því verki
sennilega ekki alveg á þessu ári,
þar sem fjárveiting dugar ekki til.
Reiknað er með að vinna allt það
grjót sem í garðinn þarf og keyra
því á nýju uppfyllinguna, en
ljúka síðan við að raða því á
garðinn næsta vor sem ekki klár-
ast í haust. IM
Stakfellið enn innsiglað:
Seinagangur í lánafyrir-
greiðslu lengir biðina
Stakfellið, frystitogari Útgerð-
arfélags Norður Þingeyinga,
hefur nú legið innsiglað við
Afleiðingar samdráttar í sjávarútvegi:
Skiptaráðandi veitir Plast-
einangrun greiðslustöðvun
Skiptaráöandinn á Akureyri
hefur orðið við beiðni fyrir-
tækisins Plasteinangrunar hf.
um þriggja mánaða greiðslu-
stöðvun frá og með 10. júlí.
Verulegur samdráttur varð í
sölu á vörum fyrirtækisins
seinni hluta síðastliðins árs og
fyrri hluta þessa árs vegna
versnandi afkomu sjávarútvegs
og fiskvinnslu.
Jafnframt hefur fyrirtækið
staðið í talsverðum fjárfestingum
við þróun nýrrar framleiðsluvöru
og hefur þetta leitt til tapreksturs
og greiðsluerfiðleika. Því taldi
stjórn Plasteinangrunar óhjá-
kvæmilegt að fara fram á greiðslu-
stöðvun svo ráðrúm gæfist til
endurskipulagningar tyrirtækis-
ins. Þorsteinn Kjartansson, lög-
giltur endurskoðandi, og Bene-
dikt Ólafsson, héraðsdómslög-
maður, hafa verið ráðnir aðstoð-
armenn fyrirtækisins á greiðslu-
stöðvunartímanum.
Þessar upplýsingar koma fram
í fréttatilkynningu frá stjórn
Plasteinangrunar hf. og þar segir
einnig orðrétt:
„Plasteinangrun hf. mun halda
áfram að þjóna viðskiptavinum
sínum og leggur áherslu á aukna
markaðsstarfsemi. Jafnframt
verður leitað leiða til að endur-
skipuleggja rekstur og fjárhag
fyrirtækisins þannig að tryggja
megi sem best framtíð þess svo
og hagsmuni starfsfólks og lána-
drottna."
Sigríður Jónsdóttir, fyrr-
verandi skrifstofustjóri Plast-
einangrunar, hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri fyrirtækisins
en fyrrverandi framkvæmda-
stjóri, Sigurður Jóhannsson, mun
snúa sér að sölu- og markaðsmál-
um.
Teknar hafa verið upp viðræð-
ur við innlenda og erlenda aðila
um aukna samvinnu og hugsan-
lega eignaraðild þeirra að fyrir-
tækinu. SS
bryggju á Þórshöfn í meira en
tvær vikur. Til stóð að skipið
færi á veiðar í gær en ekki varð
af því vegna scinagangs við
lánafyrirgreiðslu.
Stakfellið var kyrrsett vegna
ógreiddra staðgreiðsluskatta frá
síðasta ári. Rekstur beggja skipa
ÚNÞ gekk þá mjög brösuglega
vegna alvarlegra bilana. Að sögn
Grétars Friðrikssonar fram-
kvæmdastjóra urðu þessi áföll og
hár fjármagnskostnaður tií þess
að ekki tókst að standa í skilum.
Á þessu ári hefur útgerð skipsins
gengið vel og er aflaverðmæti
orðið hátt í 160 milljónir.
Sótt hefur verið um skamm-
tímalán hjá Landsbankanum til
greiðslu skuldarinnar við ríkis-
sjóð og eru taldar góðar líkur á
að það fáist. „Við ætlum okkur
að leysa þetta mál í eitt skipti fyr-
ir ölí en ekki þannig að skipið
verði stöðvað næst þegar það
kemur í höfn,“ sagði Grétar. í
raun er þó verið að vinna tíma
því í ágústmánuði verður hjá
Atvinnutryggingasjóði tekin fyrir
umsókn ÚNÞ um frekari fyrir-
greiðslu. Grétar sagðist hafa
góða von um að hún fengist
einmg.
Af einhverjum orsökum hefur
afgreiðsla bankalánsins tafist æ
ofan í æ og þau loforð sem gefin
eru virðast heldur lítils virði.
Skipið verður sent á veiðar um
leið og mál þetta leysist. Grétar
sagðist í gær vona að það gæti
orðið í dag. ET
2fe-
Á aldrinum frá tveggja ára til
sex ára geta börn lært aö
meöaltali átta ný orð á dag.
Fullorðnir hafa áhrifáhvaöa
orö það eru.
&