Dagur - 02.09.1989, Síða 11
dagskrá fjölmiðla
17.00 Fyrirmyndarfólk.
lítur inn hjá Lísu Pálsdóttur.
19.00 Kvöldfréttir.
19.31 Áfram ísland.
Dægurlög með íslenskum flytjendum.
20.30 Kvöldtónar.
22.07 Síbyljan.
Sjóðheitt dúndurpopp beint í græjurnar.
00.10 Út á lífið.
02.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
Fréttir kl. 7, 8, 9, 10, 12.20, 16, 19, 22 og
24.
Næturútvarpið
2.00 Fréttir.
2.05 Eftirlætislögin.
3.00 Róbótarokk.
4.00 Fréttir.
4.30 Veðurfregnir.
4.35 Næturnótur.
5.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum.
5.01 Áfram ísland.
6.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum.
6.01 Úr gömlum belgjum.
7.00 Morgunpopp.
7.30 Fréttir á ensku.
Rás 2
Sunnudagur 3. september
8.10 Áfram ísland.
9.03 Sunnudagsmorgunn með Svavari
Gests.
11.00 Úrval.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Tónlist • Auglýsingar.
13.00 Eric Clapton og tónlist hans.
14.00 í sólskinsskapi.
Iþróttafréttamenn fylgjast með síðari
hálfleik í leik Fram og KR á íslandsmótinu
í knattspyrnu, 1. deild karla.
Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir.
16.05 Bob Dylan.
17.00 Tengja.
Kristján Sigurjónsson tengir saman lög úr
ýmsum áttum. (Frá Akureyri)
19.00 Kvöldfréttir.
19.31 Áfram ísland.
Dægurlög með íslenskum flytjendum.
20.30 í fjósinu.
Bandarísk sveitatónlist.
21.30 Kvöldtónar.
22.07 Á elleftu stundu.
- Anna Björk Birgisdóttir í helgarlok.
01.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
Næturútvarpið
1.00 „Blítt og létt...“
2.00 Fréttir.
2.05 Djassþáttur.
3.00 Næturnótur.
4.00 Fréttir.
4.05 Næturnótur.
4.30 Veðurfregnir.
4.40 Á vettvangi.
5.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum.
5.01 Áfram ísland.
6.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum.
6.01 „Blítt og létt...“
Rás 2
Mánudagur 4. september
7.03 Morgunútvarpið: Vaknaö til lífsins!.
Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson
hefja daginn með hlustendum.
9.03 Morgunsyrpa.
Óskar Páll Sveinsson.
Neytendahorn kl. 10.05.
Afmæliskveðjur kl. 10.30.
Þarfaþing með Jóhönnu Harðardóttur kl.
11.03.
Gluggað í heimsblöðin kl. 11.55.
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið á áttatíu
með Margréti Blöndal.
14.05 Milli mála.
Magnús Einarsson á útkíkki og leikur
nýju lögin.
16.03 Dagskrá.
Dægurmálaútvarp.
Stefán Jón Hafstein, Sigurður Þór Salvars-
son, Lísa Pálsdóttir og Sigurður G. Tóm-
asson.
- Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00.
- Kristinn R. Ólafsson talar frá Spáni.
- Stórmál dagsins á sjötta tímanum.
18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni
útsendingu, sími 91-38500.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Áfram ísland.
Dægurlög með íslenskum flytjendum.
20.30 Útvarp unga fólksins.
Við hljóðnemann eru Hlynur Hallsson og
norðlenskir unglingar.
22.07 Rokk og nýbylgja.
Skúli Helgason kynnir.
01.10 Næturútvarp á báðum rásum til
mörguns.
Fréttir kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12,
12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24. 1
Næturútvarpið
1.00 „Blítt og létt...“
2.00 Fréttir.
2.05 Lögun.
3.00 Næturnótur.
4.00 Fréttir.
4.05 Glefsur.
4.30 Veðurfregnir.
4.40 Á vettvangi.
5.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum.
5.01 Áfram ísland.
6.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum.
6.01 Blítt og létt..
Ríkisútvarpið Akureyri
Mánudagur 4. september
8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Bylgjan
Laugardagur 2. september
09.00 Pétur Steinn Guðmundsson
Athyglisverðir og vel unnir þættir um allt
á milli himins og jarðar, viðtöl við merki-
legt fólk sem vert er að hlusta á.
13.00 íþróttadeildin
með nýjustu fréttir úr sportinu.
16.00 Páll Þorsteins.
Nýjustu sveitalögin frá Bandaríkjunum
leikin og eflaust heyrast þessi sígildu líka
með.
18.00 Ómannað ennþá.
22.00 Hafþór Freyr Sigmundsson.
Strákurinn er búinn að dusta rykið af
bestu diskósmellum síðustu ára og spilar
þá ásamt því að skila kveðjum milli hlust-
enda. Síminn 611111.
03.00 Næturvakt Bylgjunnar.
Sunnudagur 3. september
09.00 Haraldur Gíslason.
Hlustendur vaktir með ljúfum tónum og
Halli spilar örugglega óskalagið þitt,
611111 hringdu bara.
13.00 Óákveðið ennþá.
19.00 Snjólfur Teitsson.
Sérvalin tónlist með grillinu.
20.00 Pia Hanson.
Þá er vinnuvikan framunda og stressið en
Pia Hanson undirbýr ykkur með góðri
tónlist.
24.00 Næturvakt Bylgjunnar.
Mánudagur 4. september
07.00 Páll Þorsteinsson.
Morgunþáttur fyrir fólk sem vill fylgjast
með því sem er að gerast í þjóðlífinu.
10.00 Valdís Gunnarsdóttir.
Með rómantíkina á hreinu og ljúfu lögin
sem þú vilt heyra.
14.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson.
Gömlu lögin, nýju lögin og allt þar á milli.
Óskalög og amæliskveðjur.
17.00 Hallgrimur Thorsteinsson - Reykja-
vik siðdegis.
Fréttir og fréttatengd málefni.
Hér er tekið á málefnum sem varða okkur
öll, leggðu þína skoðun fram og taktu
þátt í umræðunni. Síminn er 611111.
19.00 Snjólfur Teitsson.
Þægileg tónlist í klukkustund.
20.00 Þorsteinn Ásgeirsson.
íþróttadeildin kemur við sögu, talmálslið-
ir og tónlist eru á sínum stað hjá Dodda.
24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.
Fréttir kl. 8, 9, 10, 11, 12, 13, 14, 15, 16,
17 og 18.
Hljóðbylgjan
Mánudagur 4. september
17.00-19.00 M.a. er visbendingargetraun.
Stjórnandi útsendingar er Pálmi Guð-
mundsson.
Fréttir kl. 18.00.
Ijósvakarýni
Ekki neitt stólpaklám!
Stöö 2 ætlar aö fara aö bjóða áhorfendum sínum
upp á klám. Þá verður nú aldeilis nóg aö gera hjá
okkur við að taka á móti lesendabréfum því
væntanlega rhunu allir horfa á þessar myndir,
hneykslast og skrifa í blöðin. Stóra stundin renn-
ur upp laugardaginn 23. september, eöa réttara
sagt klukkan hálf tvö aðfaranótt sunnudagsins.
Þá nótt munu margir verða andvaka. Myndin
sem ríður á vaðið flokkast reyndar ekki undir
neitt stólpaklám, enda ætlar Stöð 2 ekki að sýna
neinn hroða. Þetta er hin góðkunna danska
mynd „í tvíburamerkinu" (I tvillingernes tegn)
með sjálfum Ole Söltoft í aðalhlutverki. Hann var
iðinn við kolann í þessum stjörnumerkjamyndum
og einnig í rúmstokksmyndunum (... paa
sengekanten) sem margir muna eftir. Ef ég man
rétt eru þetta fremur sakleysisiegar og Ijósbláar
myndir, en kryddaðar skemmtilegum dönskum
húmor. Þetta eru eiginlega gamanmyndir fyrir
fullorðna og bráðskemmtilegar sem slíkar. Við
minnum bara óharðnaða unglinga og hneykslun-
argjarnt fólk á að fara snemma í rúmið þetta
kvöld.
Yfir í aðra sálma. Bretar hafa löngum verið
iðnir við að framleiða langa, hæga og illskiljan-
lega framhaldsþætti. Sjónvarpið sýnir einn slik-
an á þriðjudagskvöldum, „Eyðing“ heitir hann og
skartar hann helstu aðalsmerkjum breskra fram-
haldsþátta. Söguþráðurinn er a.m.k. býsna tor-
skilinn því einhvers konar endurminningabrotum
er gjarnan blandað saman við hinn raunverulega
söguþráð. Vondir menn og góðir eru settir í einn
hrærigraut og persónusköpun er frekar rýr en
samt tekst furðanlega til með að byggja upp
spennu. Spennan er kannski fólgin í hinu
óþekkta, maður veit aldrei almennilega hvaö er
að gerast og bíður því spenntur eftir framhald-
inu.
Ég ætla að enda þennan pistil á sama hátt og
ég byrjaði hann, ekki þó á kláminu heldur umfjöll-
un um Stöð 2. Þótt ég hafi lítið setið við skjáinn
að undanförnu þá hef ég reynst að fylgjast með
Heimsbikarmótinu í skák sem haldið er í
Svíþjóð. Skötuhjúin Páll Magnússon og Marí-
anna Friðjónsdóttir eru með þætti frá mótinu sem
gaman er að horfa á. Þau hljóta að hafa getið sér
gott orð því Svíarnir hóuðu í þau til að annast
útsendingar frá mótinu. Vissulega er kyndugt að
heyra Palla tala ensku, enda er framburður hans
ekkert eyrnakonfekt og orðaforðinn einhæfur. En
við hliðina á sovésku stórmeisturunum er hann
snillingur í enskunni því þeir geta vart gert sig
skiljanlega. Þættirnir eru vel gerðir, mátulega
langir, skemmtilegir og sýna glöggt að það má
finna gott fagfólk á Stöð 2.
Stefán Sæmundsson
Laugardagur 2. september 1989 - DAGUR - 11
dagskrárkynning j
Bylgjan,
sunnudagur og mánudagur kl. 19:
Snjólfur Teitsson
Snjólfur Teitsson er nýbyrjaður á Bylgjunni. Það má eiginlega
segja að hann sé nýkominn til landsins, en hann hefur dvalið
um langan aldur erlendis við landbúnaðarstörf. Snólli, eins og
hann er kallaður, hefur einstaklega fjölbreyttan tónlistarsmekk
en þó er hann meira gefinn fyrir rólega og þægilega tónlist.
Snólli verður á Bylgjunni á sunnudag og mánudag kl. 19. Ekki
er hægt að hringja í Snjólf en hann vill gjarnan fá skemmtilega
skrifuð bréf með óskum um lög. Utanáskriftin er: Snjólfur Teits-
son, búfræðinemi, Sigtúni 7, 105 Reykjavík.
Stöð 2, laugardagur kl. 21.45:
Reykur og Bófi 3
Hér er á ferðinni þriðja myndin um fjandvinina Reyk og bófa
(Smokey and the Bandit). Buford lögreglustjóri hefur afráðið að
setjast í helgan stein en skiptir fljótlega um skoðun þegar félag-
ar hans, Paul og Pat, hvetja hann til að flytja fisk milli tveggja
staða fyrir álitlega fjárupphæð. Hann hefur ekki nema 24 tíma
og lendir hann í ótrúlegustu ævintýrum á leiðinni. Aðalhlutverk:
Burt Reynolds, Veronica Gamba, Jackie Gleason og Paul Wil-
liams.
Rás 1, laugardagur kl. 23:
Línudans
Þessi þáttur kemur frá Akureyri. Umsjónarmaður en hinn góö-
kunni útvarps- og myndlistarmaður Örn Ingi. í þættinum ræðir
hann við hjónin Þórunni Bergsdóttur og Helga Þorsteinsson á
Dalvík.
Sjónvarpið, laugardagur kl. 15:
íslandsmótið í
knattspyrnu
Knattspyman verður í sviðsljósinu í Sjónvarpinu á laugardaginn
en keppni í 1. deild karla er nú gríðarlega spennandi. Sjónvarp-
ið verður með beina útsendingu frá leik FH og ÍA, en það er leik-
ur sem skiptir miklu máli í toppbaráttunni. Fylgst veröur með
gangi mála i öðrum leikjum svo og leikjum í ensku knattspyrn-
unni. í íþróttaþættinum verður einnig sýnt frá rallkeppni og
keppni í frjálsum íþróttum.