Dagur


Dagur - 13.09.1989, Qupperneq 10

Dagur - 13.09.1989, Qupperneq 10
10 - DAGUR - Miðvikudagur 13. september 1989 f/ myndasögur dags ÁRLAND HERSIR BJARGVÆTTIRNIR # Þér var gefið vín Nú nýverið fór fram mikil herferð i fjölmiðlum gegn áfengisneyslu og þóttu sumar auglýsingarnar frek- ar klúðurslegar og ekki til þess fallnar að hamla gegn Bakkusi. Aðrar voru mjög sterkar og vöktu töluverða athygli en þær urðu nú samt fyrir barðinu á háðfuglunum og var þeim snúið á alla vegu. Ein sú besta í þessum auglýsingaflokki var út- varpsauglýsingin: „Þér var gefið vit, ekki drekka það frá þér.“ Þegar grínistarnir voru búnir að misþyrma henni hljóðaði hún þannig: „Þér var gefið vín, ekki láta drekka það frá þér.“ # Jóhannesfer á kostum Jóhannes Sigurjónsson rit- stjóri Víkurblaðsins er einn liprasti penni landsins og hefur oft verið vísað í hann ( þessum pistli. í nýjasta hefti Iþróttablaðsins fer hann á kostum en þar rifjar Jó- hannes upp afrek sín á íþróttasviðinu. Eftir að hafa fært nokkuð fjörleg rök fyrir því að það sé honum að þakka að Arnór Guðjohnsen og Ásgeir Sigurvinsson hafi haldið t atvinnumennskuna, rifjar hann upp sín fyrstu kynni af Jóhannesi Eðvalds- syni en Jóhannes S. var þá í 3. flokki Völsungs og átti að dekka Ðúbba í leik. „Ég skyldi sko stoppa þennan sjoppustrák úr Reykjavik," segir Jóhannes Húsvíking- ur í blaðinu. „Við Völsungar vorum aldir upp á harðfiski og hákarlalýsi og látum sko engar primadonnur úr Reykjavík rúlla yfir okkur,“ En það var ekki svo létt eins og Jóhannes komst að: „ég kastaði mér af fítons- krafti beint í belginn á Búbba..ég kastaðist þá eins og ég hefði lent á lóðréttri trambolínu, sveif eina 4 metra, skall niður og lá þar og stóð á öndinni. Búbbi hélt áfram og lagði upp sigurmark Vals.“ Já, það er vandlifað fyrir Þingeyinga þegar sjoppudrengirnir að sunnan taka þá í nefið. dogskrá fjölmiðla Sjónvarpið Midvikudagur 13. september 17.50 Sumarglugginn. Endursýndur þáttur frá sl. sunnudegi. 18.50 Táknmálsfréttir. 18.55 Yngismær. 19.20 Poppkorn. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Árið 2048. (Aret 2048.) Fyrri hluti. Norsk heimildamynd um ósonlagið og rannsóknir á því. 21.20 Frá Listahátíð 1988. - Jorma Hynninen. Finnski barítonsöngvarinn Jorma Hynn- inen syngur með Sinfóníuhljómsveit íslands undir stjóm Petri Sakari. 21.40 Leiðin á tindinn. (Room at the Top.) Bresk bíómynd frá 1959. Aðalhlutverk: Simone Signoret, Laurence Harvey og Heathre Sears. Ungur og framagjarn maður flytur í smábæ og stofnar til kynna við dóttur ríkasta manns bæjarins. 23.00 Seinni fréttir. 23.10 Leiðin á tindinn frh. 23.40 Dagskrárlok. Stöð 2 Miðvikudagur 13. september 16.45 Santa Earbara. 17.30 Sá á fund sem finnur. (Found Money.) Tölvusnillingurinn Max hefur gegnt starfi sínu í bankanum óaðfinnanlega í þrjátíu og fimm ár. Þegar hann er svo settur á eftirlaun, löngu áður en hans tími er kominn, finnst honum forlögin heldur grimm. Aðalhlutverk: Dick Van Dyke, Sid Caesar, Shelly Hack og William Prince. 19.19 19:19. 20.00 Sögur úr Andabæ. (Ducktales.) 20.30 Falcon Crest. 21.25 Bjargvætturinn. (Equalizer.) 22.15 Tíska. (Videofashion.) 22.45 Bílaþáttur Stöðvar 2. 23.15 Sakfelld: Saga móður. (Convicted: A Mother’s Story.) Leikkonan góðkunna Ann Jillian fer með hlutverk Billie Nickerson, tveggja bama móður sem lendir í fangelsi. Unnusti hennar telur hana á að stela tíu þúsund dollurum frá fyrirtækinu sem hún vinnur hjá. Þessa peninga notar hún svo til að fjárfesta í viðskiptum hans eftir fögur lof- orð um að hún fái þessa upphæð marg- falda til baka. Hún er sótt til saka og fundin sek um þjófnaðinn. Fangelsi þýðir fyrir hana aðskilnað frá börnunum hennar tveimur. Aðalhlutverk: Ann Jillian, Kiel Martin, Gloria Loring og Fred Savage. Stranglega bönnuð börnum. 00.50 Dagskrárlok. Rásl Miðvikudagur 13. september 6.45 Veðurfregnir • Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið með Sólveigu Thorarensen. Fréttir á ensku að loknu fréttayfirliti kl. 7.30. Lesið úr fomstugreinum dagblað- anna að loknu fréttayfirhti kl. 8.30. 9.00 Fréttir. 9.03 Litli barnatíminn: „ Júlíus Blom veit sínu viti" eftir Bo Carpelan. Gunnar Stefánsson les þýðingu sína (12). 9.20 Morgunleikfimi. 9.30 Landpósturinn - Frá Norðurlandi. Umsjón: Þorkell Björnsson. 10.00 Fréttir • Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Tvær skáldkonur fyrri alda. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. 12.00 Fréttayfirlit • Tilkynningar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir Tilkynningar Tónlist. 13.05 í dagsins önn - í berjamó. Umsjón: Ásdís Loftsdóttir. (Frá Akur- eyri.) 13.35 Miðdegissagan: „Ein á ferð og með öðrum" eftir Mörthu Gellhorn. Sigrún Björnsdóttir les (16). 14.00 Fréttir • Tilkynningar. 14.05 Harmonikuþáttur. 14.45 íslenskir einsöngvarar og kórar. 15.00 Fréttir. 15.03 Bardagar á íslandi - „Hér máttu sjá ísleif son minn og Gró konu mína." 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónlist á síðdegi eftir Wolfgang Amadeus Mozart. 18.00 Fróttir. 18.03 Að utan. 18.10 Á vettvangi. Tónlist • Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir • Tilkynningar. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.32 Kviksjá. 20.00 Litli barnatíminn. 20.15 Nútímatónlist. 21.00 Úr byggðum vestra. Umsjón: Finnbogi Hermannsson. (Frá ísafirði.) 21.40 Frá trú til tortímingar. 22.00 Fréttir. 22.07 Að utan. 22.15 Veðurfregnir • Orð kvöldsins Dagskrá morgundagsins. 22.30 Hvert stefnir íslenska velferðarrík- ið? Þriðji þáttur af fimm um lífskjör á íslandi. Umsjón: Einar Kristjánsson. 23.10 Djassþáttur. - Jón Múh Árnason. 24.00 Fréttir. 00.10 Samhljómur. 01.00 Veðurfregnir. Rás 2 Miövikudagur 13. september 7.03 Morgunútvarpið: Vaknið til lífsins! Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson hefja daginn með hlutsendum. 9.03 Morgunsyrpa Eva Ásrún AhDertsdóttir. Neytendahorn kl. 10.05. Afmæliskveðjur kl. 10.30. Þarfaþing með Jóhönnu Harðardóttur kl. 11.03. Gluggað í heimsblöðin kl. 11.55. 12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Umhverfis landið á áttatíu með Margréti Blöndal. 14.03 Milli mála. Árni Magnússon á útkíkki og leikur nýju lögin. 16.03 Dagskrá. Dægurmálaútvarp. Stefán Jón Hafstein, Guðrún Gunnars- dóttir, Lísa Pálsdóttir og Sigurður G. Tómasson. - Kaffispjah og innht upp úr kl. 16.00. - Stórmál dagsins á sjötta tímanum. 18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni útsendingu, sími 38500. 18.30 íþróttarásin - Fyrsta umferð Evrópu- keppninnar í knattspyrnu. Lýst síðari hálfleik Vals og Dynamo Berhn í Evrópukeppni bikarhafa á Laugardals- veUi. 19.32 Áfram ísland. Dægurlög með íslenskum flytjendum. 20.30 Útvarp unga fólksins. Við hljóðnemann eru Sigrún Sigurðar- dóttir og Oddný Eir Ævarsdóttir. 22.07 Á rólinu með Önnu Björk Birgisdóttur. 01.00 Næturvakt á báðum rásum til morguns. Fréttir eru sagðar kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24. Næturútvarpið 1.00 „Blítt og létt..." 2.00 Fréttir. 2.05 Slægur fer gaur með gígju. Magnús Þór Jónsson rekur feril trúba- dúrsins rómaða, Bobs Dylans. 3.00 Næturnótur. 4.00 Fréttir. 4.05 Glefsur. 4.30 Veðurfregnir. 4.40 Á vettvangi. 5.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum. 5.01 Áfram ísland. 6.00 Fréttir af veðri og flugsamgöngum. 6.01 Blítt og létt..." Ríkisútvarpið á Akureyri Miðvikudagur 13. september 8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands. 18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands. Bylgjan Miðvikudagur 13. september 07.00 Páll Þorsteinsson. AUs kyns upplýsingar fyrir hlustendur sem vhja fylgjast með, fréttir og veður á sínum stað. 10.00 Valdís Gunnarsdóttir. Sérstaklega vel vahn og þægheg tónlist sem heldur öUum í góðu skapi. 14.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson. Leitaðu ekki langt yfir skammt. Allt á sín- um stað, tónhst og afmæhskveðjur. 17.00 Hallgrímur Thorsteinsson - Reykja- vík síðdegis. Fréttir og fréttatengd málefni. Finnst þér að eitthvað mætti fara betur í þjóðfélaginu í dag, þín skoðun kemst til skUa. Síminn er 611111. 19.00 Snjólfur Teitsson. Afslappandi tónhst í klukkustund. 20.00 Haraldur Gíslason. Halli er með óskalögin í pokahorninu og ávaUt í sambandi við íþróttadeUdina þeg- ar við á. 24.00 Næturvakt Bylgjunnar. Fréttir kl. 8, 9, 10, 11, 12, 13, 14, 15, 16, 17 og 18. Hljóðbylgjan Miðvikudagur 13. september 17.00-19.00 M.a. er „tími tækifæranna", þar sem hlustendur geta hringt inn ef þeir þurfa að selja eitthvað eða kaupa. Beinn sími er 27711. Fréttir kl. 18.00.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.