Dagur - 01.11.1989, Síða 6
6 - DAGUR - Miðvikudagur 1. nóvember 1989
Eyfirðingar vígðu glæsileg íþróttamannvirki á Hrafnagili síðastliðinn laugardag:
Þegar stórum áfanga er náð
- kostnaður við íþróttamannvirki við skólann um 150 milljónir króna
„Þetta er stór dagur fyrir okkur íbúa í þessum sveitarfélögum, og þá ekki síst fyrir
þau ungmenni sem stunda nám í grunnskólum hér á svæðinu sem nú loks fá nýja og
fullkomna íþróttaaðstöðu. Húsið þjónar grunnskólanemum í fimm skólum, þ.e.
grunnskóla Svalbarðsstrandarhrepps, Laugalandsskóla Öngulsstaðahrepps, grunn-
skóla Saurbæjarhrepps, grunnskóla Hrafnagilshrepps og Hrafnagilsskóla og auk
þess öllum íbúum í þessum sveitarfélögum, Ungmennasambandi Eyjafjarðar o.fl.
Ég vil samt minna á að þó að við séum hér í dag að fagna sigri þá höfum við samt
ekki náð settu marki því enn er eftir að ganga frá hluta af þeirri aðstöðu sem vera
á í þessum byggingum. Kjallarinn er ófrágenginn en hann á að hýsa alla verknáms-
aðstöðu við Hrafnagilsskóla og auk þess tvær almennar kennslustofur. Við megum
því að svo komnu máli ekki leggja hendur í skaut og dotta, áfram verður að halda
og ljúka þessum framkvæmdum á sem stystum tíma. Það er svo erfitt að búa við
hálfnað verk. Kannski blöskrar ykkur þessi fjárfesting. Það er satt, hún er inikil en
við vonum öll að þessi framkvæmd stuðli að heill þessa byggðarlags og þá fáum við
nokkuð fyrir peningana okkar,“ sagði Sigurður Aðalgeirsson, skólastjóri Hrafna-
gilsskóla við vígslu íþróttamannvirkja á Hrafnagili síðastliðinn laugardag.
íþróttamannvirkin í
byggingu í 13 ár
Alls mættu um 700 manns til
vígsluhátíðarinnar í hinu nýja og
glæsilega íþróttahúsi að Hrafna-
gili á laugardaginn. Boðið var til
vígslunnar öllum íbúum áður-
nefndra fjögurra hreppa, þ.m.t.
þeim 270 nemendum sem koma
til með að nota hið nýja íþrótta-
hús á vetri komanda.
Birgir Þórðarson, formaður
bygginganefndar, rakti bygginga-
sögu íþróttamannvirkjanna að
Hrafnagili og sagði hann í ávarpi
sínu að bygging þessara mann-
virkja hefði hafist fyrir um 13
árum.
„Þessa haustdaga fyrir 13 árum
var byrjað á grunni búningsklefa
fyrir sundlaug sem jafnframt eru
búningsklefar fyrir íþróttahúsið.
Þá lá þegar fyrir teikning af
íþróttahúsinu og á fundi í bygg-
inganefnd Hrafnagilsskóla þann
1. nóvember 1976 var ákveðið, af
oddvitum hreppanna fjögurra
sem standa að rekstri skólans, að
stærð íþróttasalarins skyldi vera
18x33 metrar og stærð annars
rýmis hússins miðuð við það.
Þann 21. nóvember 1974 hafði
sameiginlegur fundur hrepps-
nefndanna fjögurra gert sam-
þykkt um að stefnt skyldi að
byggingu húss af þessari stærð.
Umræða um stærð fyrirhugaðs
íþróttahúss hafði raunar verið í
gangi manna á meðal í nokkur ár
en samkvæmt þeim reglum er
giltu um íþróttamannvirki skóla
sem ríkissjóður tekur þátt í
kostnaði við var sú salarstærð
sem svaraði til fjölda nemenda
við Hrafnagilsskóla alls 202 fm.
Heimild fékkst síðan fyrir 50%
þátttöku ríkisí öðrum 202 fm í
húsinu eða alls 404 fm en það er
um 2A af endanlegri salarstærð.
Það er ljóst að þessi salarstærð,
sem þátttaka ríkis var bundin
við, var allsendis ófullnægjandi
þegar litið var til almennrar
íþróttaiðkunar annarar en leik-
fimikennslu skólans. Áhugi
heimamanna fyrir því að byggt
yrði stærra íþróttahúss var mikill,
ekki síst hjá ungmennafélögum
aðildarhreppanna og forráða-
mönnum UMSE. Það var því
ekki síst fyrir áhuga þessara aðila
sem sú djarfa ákvörðun var tekin
að stærð íþróttasalarins skyldi
vera 18x33 m. Þetta hafði í för
með sér verulega kostnaðaraukn-
ingu fyrir sveitarfélögin þar sem
ríkissjóður tekur engan þátt í
kdstnaði við það rými sem er
umfram áðurnefnda reglu,“ sagði
Birgir Þórðarson í ávarpi sínu.
Kostnaður um 150
milljónir króna
Sundlaug var tekin í notkun árið
1979 ásamt búningsklefum. Um
mitt ár 1984 var hafist handa við
grunn íþróttahússins og gólfplata
steypt síðla árs 1985. Ári síðar
var kjallarinn steyptur upp og
árið 1987 voru steyptir upp
veggir. Um mitt sumar 1988 hófst
vinna við þak hússins og síðan
hefur verið unnið sleitulaust að
byggingunni.
Öhætt er að fullyrða að við fáa
skóla í dreifbýli séu jafn glæsileg
íþróttamannvirki en heildargólf-
flötur íþróttaaðstöðunnar er tæp-
lega 1400 fm.
Kostnaður við fyrri áfanga
íþróttaaðstöðunnar, þ.e. sund-
laug og búningsklefa var 72,8
Sigurður Aðalgeirsson, skólastjóri Hrafnagils- Jóhannes Geir Sigurgeirsson, formaður skólanefndar Hrafna ________________________,____
skóla, setur vígsluhátíðina á laugardaginn. gilsskóla, afhendir Sigurði Aðalgeirssyni, skólastjóra, lyklana ráðherra, ávarpar vígslugesti
Myndir: JÓH að íþróttaaðstöðunni á Hrafnagili.
Guðmundur Bjarnason, heilbrigðis- Birgir Þórðarson, formaður bygg-
----- ‘----- ' ‘ " inganefndar, rekur byggingasögu
íþróttamannvirkjanna á Hrafnagili.
Bygginganefndin og verktaki við íþróttahúsið heiðruð. Frá hægri: Bjarni Hólmgrímsson oddviti Svalbarðsstrandar-
hrepps, Birgir Þórðarson oddviti Ongulsstaðahrepps, Þorgils Jóhannesson verktaki, Auður Eiríksdóttir oddviti
Saurbæjarhrepps og Haraldur Hannesson oddviti Hrafnagilshrepps. í ræðustól er Sigurður Aðalgeirsson.
Nemendur skólanna í hreppunum Upprennandi fimleikastjörnur í
fjórum sýndu listir sínar í nýja gólfæfingum.
íþróttahúsinu. Hér er það knattfím-
in sem gildir.