Dagur - 03.11.1989, Side 4

Dagur - 03.11.1989, Side 4
4 - DAGUR - Föstudagur 3. nóvember 1989 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 90 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), KARL JÓNSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRIMANN FRfMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Verkeftiaskortur skipasmíðastöðva Þau ummæli Jóns Sigurðssonar iðnaðarráðherra, að vanda Slippstöðvarinnar á Akureyri megi fyrst og fremst rekja til þess að hjá stöðinni sé í smíðum skip, sem ekki hafi tekist að selja, hafa vakið nokkra furðu. Vissulega er það rétt hjá iðnaðarráðherra að lausafjárstaða Slipp- stöðvarinnar er m.a. erfið vegna þess að ekki hefur tekist að selja umrætt skip. En vandi stöðvarinnar er miklu djúpstæðari en svo, að hægt sé að afgreiða hann með svo „billegum" hætti. Vandi Slippstöðvarinnar á Akureyri er hinn sami og innlends skipasmíðaiðnaðar í heild: Verkefnaskortur. Það er fyrst og fremst vegna verkefnaskorts sem öllum starfs- mönnum Slippstöðvarinnar á Akureyri var sagt upp störf- um um síðustu mánaðamót. Það er einnig vegna verk- efnaskorts sem öllum starfsmönnum Skipasmíðastöðvar- innar Skipavíkur í Stykkishólmi var sagt upp störfum frá sama tíma. Og það er vegna verkefnaskorts sem engin starfsemi hefur farið fram í skipasmíðastöð Stálvíkur í Garðabæ um margra mánaða skeið. Og loks er það verk- efnaskortur sem veldur því að aðrar skipasmíðastöðvar landsins eru að þrotum komnar. Sigurður Ringsted, forstjóri Slippstöðvarinnar á Akur- eyri, hefur bent á að einungis á þessu ári eru í smíðum í útlöndum skip, sem samsvara um 10 ára afkastagetu Slippstöðvarinnar. Á sama tíma eru íslenskar skipasmíða- stöðvar því sem næst verkefnalausar. Þetta segir allt sem segja þarf urn þá óheillaþróun sem átt hefur sér stað í innlendum skipasmíðaiðnaði. Forstjóri Slippstöðvarinnar hefur jafnframt bent á að ef fyrirtækið hefði ekki ráðist í að smíða það skip, sem iðnaðarráðherra telur undirrótina að vanda Slippstöðvarinnar, hefði sú staða, sem nú er uppi, komið til tveimur árum fyrr. Að ráðast í smíði á skipi án þess að hafa að því kaupendur var neyðarúrræði hjá stjórnendum fyrirtækisins og telst einungis virðingarverð sj álfsbj argarviðleitni. Ríkisstjórninni ber skylda til að að láta málefni skipa- smíðaiðnaðarins til sín taka. Hún þarf að koma hlutunum þannig fyrir að íslenskar skipasmíðastöðva hafi betri möguleika á að hljóta nýsmíða- og viðhaldsverkefni en erlendar stöðvar. Fyrsta skrefið í þá átt er tvímælalaust að breyta gildandi reglum um lán úr Fiskveiðasjóði til slíkra verkefna. Eins og er lánar Fiskveiðasjóður 65% til smíða innanlands en 60% til smíða erlendis. Þessi munur er allt of lítill og var reyndar mun meiri, eða um 15%, fyrir fáum árum. Þennan mun þarf í það minnsta að auka á ný. Þá hugmynd, sem Júlíus Sólnes, Hagstofuráðherra, hreyfði í Degi sl. laugardag, að opinberir sjóðir hætti alveg að taka þátt í smíðum skipa erlendis, ber einnig að skoða gaumgæfilega. Ef stjórnvöld grípa ekki til tafarlausra aðgerða til hjálp- ar innlendum skipasmíðaiðnaði er ljóst hvert framhaldið verður. Þá mun þessi mikilvæga atvinnugrein brátt heyra sögunni til hér á landi. Slíkt myndi ekki einungis verða hrikalegt áfall fyrir atvinnulífið í landinu, heldur myndi það jafnframt hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för með sér fyrir íslenskan sjávarútveg um alla framtíð. BB. I hvað er að gerast Leikfélag Akureyrar: Hús Bemörðu Alba Um helgina, föstudaginn 3. og laugardaginn 4. nóvember verða 6. og 7. sýning á Húsi Bernörðu Alba hjá Leikfélagi Akureyrar. Forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, verður sérstakur gestur sýningarinnar í kvöld, föstudagskvöld. Sýningin hefur fengið mjög góðar viðtökur, hún hlaut há- stemmt lof gagnrýnenda og aðsókn hefur verið mikil og vax- andi. Sýningar á leikritinu verða aðeins 12 og er áætlað að síðasta sýning verði laugardaginn 2. des- ember. Sýningarnar hefjast ávallt kl. 20.30. Leikstjóri er Þórunn Sigurðar- dóttir, leiktexta þýddi Einar Blakdeild KA með kaffl á sunnudag Á sunnudaginn kl. 14.00 verður þriðja kaffihlaðborð vetrarins haldið í KA heimilinu við Dal- braut. Að þessu sinni er það blak- deild félagsins sem stendur fyrir bakstrinum og á það vel við því einmitt um helgina keppir meistaraflokkur karla í Evrópu- keppni meistaraliða í blaki í Luxemburg. Seinni leikur lið- anna er að viku liðinni á Akur- eyri. Blakdeildin þarf á öllum stuðn- ing að halda nú og hvetur því stuðningsmenn til að koma í kaffi á sunnudaginn. Sigríður Hagalín í hlutverki Bernörðu Alba og Sunna Borg í hlutverki Ponc- íu griðkonu hennar hafa fengið mikið lof fyrir leik sinn í sýningunni. Bragi, leikmynd og búninga hannaði Charlotte Clason, Ingv- ar Björnsson hannaði lýsinguna og Pétur Jónasson flytur spænska gítartónlist. Með aðalhlutverk í Húsi Bern- örðu Alba fara leikkonurnar Sig- ríður Hagalín, Sunna Borg, Kristjana Jónsdóttir, María Sig- urðardóttir, Ingunn Jensdóttir, Guðbjörg Thoroddsen, Elva Ósk Ólafsdóttir, Steinunn Ólafsdóttir og Sóley Elíasdóttir. Húsavík: Jón Laxdal og Kristján Pétur sýna í Safiiahúsinu - sýningunni lýkur annað kvöld I kvöld kl. 21.00 opna Jón Laxdal Halldórsson og Kristján Pétur Sigurðsson myndlistarsýningu í Sjallinn: Komdu í kvöld - sýnt í kvöld í kvöld verður dægurlagahátíðin „Komdu í kvöld“ sýnd í Sjallan- um. Sýning þessi er til heiðurs Jóni Sigurðssyni bankamanni sem staðið hefur í sviðsljósi íslenskrar dægurlagatónlistar í fimmtíu ár. Lög hans og textar hafa lifað með þjóðinni svo ára- tugum skiptir og mörg verið á hvers manns vörum. Flestir muna eftir lögum Jóns og textum, t.d. Komdu í kvöld, Einsi kaldi úr Eyjunum, Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig og fleirum. Fremstu dægurlagasöngvarar þjóðarinnar hafa verið kallaðir til leiks í þessari sýningu svo sem Ellý Vilhjálms, Þuríður Sigurðar- dóttir, Pálmi Gunnarsson, Þor- valdur Halldórsson, Hjördís Geirsdóttir og Trausti Jónsson. Kynnir á hátíðinni er Bjarni Dag- ur Jónsson og Hljómsveit Ingi- mars Eydal sér um undirleik í sýningunni og danstónlist á eftir. Norðlendingum og nærsveit- ungum er boðið upp á tilboð með gistingu í tvær nætur á Hótel Akureyri, kvöldverð og aðgöngu- miða á dægurlagahátíðina á 5000 krónur. Safnahúsinu á Húsavík. Við opnunina munu þeir félag- ar flytja kvæða- og söngdagskrá sína, Lög og ljóð, sem þeir hafa flutt víða og felst í flutningi Jóns á eigin kvæðum og söng og gít- arslætti Kristjáns Péturs. Sem fyrr segir verður sýningin opnuð í kvöld og er athygli vakin á því að sýningin stendur aðeins í tvo daga vegna anna þeirra félaga. Henni lýkur sem sagt á morgun, laugardaginn 4. nóv- ember en þá er hún opin frá kl. 14.00 til 22.00. Engin boðskort verða send út vegna sýningarinnar en allir eru hjartanlega velkomnir. Sauðárkrókskirkja: Kór Akureyrarkirkju syngur við messu á suimudagmn Kór Akureyrarkirkju verður um helgina í æfingabúðum að Löngumýri í Skagafirði. Æft verður vel og dyggilega undir stjórn Björns Steinars Sólbergs- sonar m.a. fyrir árlegt aðventu- kvöld í Akureyrarkirkju í byrjun desember. Að afloknum ströngum æfing- urn um helgina mun kórinn fara til Sauðárkróks á sunnudag og syngja þar við messu kl. 14. Með Kristniboðs- og Æskulýðs- sanikomur í sal KFUM og K Nú um helgina kemur séra Kjart- an Jónsson kristniboði í heim- sókn til Akureyrar. Frá föstudegi og fram á sunnu- dag mun hann vera þátttakandi í Æskulýðsmóti á Hólavatni, en þar munu dvelja um 30-40 ung- menni við andlega uppbyggingu, Síðan mun Kjartan taka þátt f samkomum í sal KFUM og K í Sunnuhlíð. Mun hann prédika og kynna með myndböndum og myndskyggnum starfsemi ís- lenskra kristniboða í Kenyu og Eþíópíu. Samkomurnar verða á sunnu- dags-, mánudags- og þriðjudags- kvöld og hefjast kl. 20.30. Allir velkomnir. Síðari hluta vikunnar mun annar kristniboði, Skúli Svavars- son, koma og taka þátt í sam- komum á föstudag og laugardag. þessari heimsókn mun Kór Akur- eyrarkirkju endurgjalda heim- sókn Kórs Sauðárkrókskirkju til Akureyrar fyrir nokkrum árum. Smiðjan með villibráðarkvöld: „Sælkerakvöld veiðimannsins“ Um helgina verður boðið upp á villibráðarkvöld í Smiðjunni á Akureyri. Kvöldin hafa verið kölluð „Sælkerakvöld veiði- mannsins“ og standa dagana 3.-5. nóvember. Á sælkerakvöldunum verður boðið upp á villibráðarrétti t.d. hreindýrakjöt, rjúpu, lunda, gæsa- og fjallagrasapaté og fleira. Á sunnudaginn 5. nóvember gefst fjölskyldum síðan kostur á að koma í villibráðarhlaðborð á Bautanum. Sælkerakvöld verður aftur haldið í Smiðjunni helgina ■ 10.-12. nóvember nk.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.