Dagur - 04.11.1989, Qupperneq 1
72. árgangur Akureyri, laugardagur 4. nóvember 1989 212. tölublað
Flugrekstrarleyfm veitt í gær:
Flugfélag Norðurlands fékk sérleyfi
til áætlunarflugs til Keflavíkur
- sérleyfi Flugleiða á flugi frá Reykjavík til Húsavíkur gildir í eitt ár
Steingrímur J. Sigfússon, sam-
gönguráðherra veitti í gær 5
flugfélögum leyfí til áætlunar-
flugs innanlands. Þessi félög
eru Arnarflug innanlands,
Ernir á Isafírði, Flugfélag
Austurlands, Flugleiðir og
Flugfélag Norðurlands. At-
hygli vekur að Arnarflug fær
ekki leyfi til áætlunarflugs milli
Reykjavíkur og Húsavíkur en
fær hins vegar flug milli Vest-
mannaeyja og Reykjavíkur í
samkeppni við Flugleiðir. Hins
vegar fær Flugfélag Norður-
lands leyfl á þremur nýjum
leiðum, þ.e. Akureyri-Kefla-
vík, Akureyri-Vestmannaeyjar
og Akureyri-Stykkishólmur.
Sérleyfi Flugleiða frá Reykja-
vík til Húsavíkur gildir í eitt ár en
þá breytist það í almennt áætlun-
arleyfi til ársloka 1997. Þar með
opnast sá möguleiki að veita fleiri
en einu flugfélagi leyfi til að
fljúga á leiðinni Reykjavík-Húsa-
vík. Önnur sérleyfi sem nú eru
veitt munu renna út að þremur
árum liðnum og breytast þá í
áætlunarleyfi til ársloka 1997. Þó
gilda áfram sérleyfi til þeirra
áætlunarstaða þar sem árlegur
farþegafjöldi er undir 12 þúsund-
um. Sérleyfi verða því afnumin á
fjölförnustu leiðunum um ára-
mótin 1992/1993 en á móli kemur
að leyfisveitingin gildir nú til 8
ára.
Flugfélag Norðurlands hefur
nú sérleyfi til áætlunarflugs á 11
leiðum og vekur þar mesta at-
hygli flugleiðin Akureyri-Kefla-
vík-Akureyri. Leyfi félagsins án
sérleyfis eru sjö talsins, þar á
I fyrrinótt var undirritaður nýr
kjarasamningur milli vinnu-
veitenda og starfsmanna á
virkjunarsvæði Blönduvirkj-
unar en eins og blaðið hefur
skýrt frá felldu starfsmennirnir
fyrri samning. Aðeins þurfti
Eitthvað virðist vera að lifna
yfir loðnuveiðunum. Flotinn
hélt sig í gær við Kolbeinsey og
náði þar þokkalegum köstum.
Að vísu stendur Ioðnan djúpt
og því erfitt að ná henni.
Albert GK landaði í gær 500
tonnum á Siglufirði og Kap II VE
landaði 500 tonnum í Vest-
meðal leyfi á leiðunum Akureyri-
Stykkishólmur og Akureyri-
Vestmannaeyjar.
Flugleiðir fá níu sérleyfisleiðir,
en sóttu um tíu. Flugfélag Aust-
einn fund til að ganga frá nýj-
um samningi og stóð fundurinn
í 11 klst.
í fyrri samningi var kveðið á
um hver ættu að vera lágmarks-
laun en nú var bætt inn í samn-
inginn að tímalaun hvers starfs-
mannaeyjum.
Að sögn Þórhalls Jónassonar,
rekstrarstjóra Síldarverksmiðja
ríkisins á Siglufirði, er loðnan
smá með fituinnihald um 13%.
„Það er ekkert vandamál að
bræða loðnuna. Málið er að það
fæst minna lýsi úr henni en ella.“
óþh
jurlands fær sérleyfi á sex leiðum
og tvær nýjar leiðir án sérleyfis,
þ.e. Egilstaðir-Vestmannaeyjar
og Höfn-Vestmannaeyjar. Sér-
leyfi Arnarflugs eru sjö talsins og
manns hækki að lágmarki um 5%
en almenna hækkunin var 13%.
Þessi liður samningsins gildir frá
16. október sl.
Einnig var deilt um 25% álag á
ferðatíma sem í fyrri samningi
var sett á þrjá mánuði en í nýja
samningnum var sæst á álags-
greiðslur í fjóra mánuði á vetri,
þ.e. desember-mars.
Þriðja atriðið í viðræðunum í
fyrradag snerist um bónusgreiðsl-
ur. Samið var nú um að viðmið-
unarmörk bónusgreiðslna miðist
við margfeldi meðaldagvinnu-
taxta og allra unninna tíma,
m.ö.o. er þetta árétting á að bón-
usinn tekur ekki á sig yfirvinnu-
álag en starfsmönnum cr tryggt
að bónusinn kemur á alla unna
tíma.
Loks var hækkun á einni
greiðslu til starfsmanna, sem í
fyrri samningi var 17.500 kr. en
er skv. nýja samningnum 25.000
kr. Þessi greiðsla kemur að fullu
til þeirra sem við undirskrift
auk framangreinds leyfis til flugs
til Vestmannaeyja.
Flugtak í Reykjavík, sem er í
eigu Höldurs sf. á Akureyri fær
ekki leyfi en sótt var um Reykja-
vík-Rif og Reykjavík-Stykkis-
hólmur. JÓH
Hafspil laust úr
greiðslustöðvun
Fyrirtækið Hafspil hf. á Akur-
eyri er nú laust úr greiðslu-
stöðvun og hefur tekist að
endurskipuleggja fjárhag þess.
Hreinn Elliðason, frani-
kvæmdastjóri, segir að mikil
verkefni séu framundan og
pantanir streymi inn, og ekki
sé ástæða til annars en líta
björtum augum til framtíðar-
innar.
„Við erum lausir út úr greiðslu-
stöðvuninni sem Hafspil var í, og
vorum að vinna að okkar málum.
Við báðum um eins til tveggja
daga frest en fengum hann ekki,
og því var fyrirtækið lokað vegna
innsiglunar í einn dag,“ sagði
Hreinn.
Engin framleiðsla var því hjá
Hafspili á miðvikudaginn, en
opnað var á nýjan leik í gær-
morgun. „Ég var ekki fyrr kom-
inn inn úr dyrunum í morgun
þegar línuspil var pantað ásamt
fleiri tækjum. Það er fullt að gera
við að koma framleiðsluvörunum
út,“ segir Hreinn Elliðason.
samnings hafa starfað á virkjun-
arsvæðinu í 3 mánuði en hlut-
fallslega til þeirra sem starfað
hafa skemur.
Starfsmenn í Blönduvirkjun
munu fjalla um nýja samninginn
um helgina. JÓH
Norðurland:
Kalt helgarveður
Kalt verður á Norðurlandi um
helgina, og samkvæmt uppiýs-
ingum frá Veðurstofunni er
gert ráð fyrir kuldakasti fram á
mánudag.
f dag, laugardag, er spáð kóln-
andi veðri og hvassri norðanátt,
allt að sjö vindstigum á miðunum
en hægari til landsins. Hitastig
verður um frostmark. Á sunnu-
dag er spáð svipuðu veðri og élja-
gangi á Norðurlandi eystra. Á
mánudag birtir upp og vind lægir.
EHB
Blönduvirkjun:
Nýr kjarasamningur eftir 11 stunda fund
Albert GK landaði á Sigló í gær:
Loðnan smá og fitu-
innihald um 13 prósent