Dagur - 04.11.1989, Side 5
Laugardagur 4. nóvember 1989 - DAGUR - 5
-J
fréttir
Pingeyjarsýslur:
Minkar upp um Qöll og firnindi
- minkaveiðimenn verða varir við brevtta hegðun
Fjöldi veiddra minka í Þing-
eyjarsýslum í ár virðist vera
svipaður og undanfarin ár
hvað heildina varðar, fækki
mink á sumum stöðum fjölgar
honum á öðrum. Minkaveiði-
menn virðast vera sammála um
breytta hegðan minka, á þann
veg að þeir séu farnir að sækja
inn til landsins, burt frá sjó,
ám og vötnum, þar sem yfir-
leitt hefur mátt ganga að grenj-
um þeirra vísum.
Vilhjálmur Jónasson á Sílalæk
í Aðaldal hefur banað 278 mink-
um frá áramótum. Minkar þessir
eru ekki allir veiddir á einni þúfu
því hann er ráðinn til minkaveiða
fyrir mörg sveitarfélög á svæðinu
frá Öxarfirði til Ólafsfjarðar. Vil-
hjálmur segir að þetta sé áþekkur
fjöldi og veiðst hafi á undanförn-
um árum, minknum virðist þó
fækka á sumum stöðum en fjölga
á öðrum. Hann segist mjög hafa
orðið var við breytta hegðun hjá
minknum sem fari meira frá vatni
en áður og hafi ekki endilega
fasta búsetu við læki og vötn,
heldur fari langt inn í land. Sagð-
ist Vilhjálmur hafa fundið minka-
slóð í Peistareykjabruna, um
15-20 km frá vatni sem veiði er í.
Ingi Yngvason í Skjólbrekku,
sem sér um minkaveiðar í
Mývatnssveit, sagðist einnig hafa
orðið var við breytingar á lifnað-
arháttum minksins, sem nú virtist
vera farinn að flækjast upp um
Smásagnakeppni Dags og MENOR:
„Viðbrögðin hafa
verið mjög góð“
- segir Haukur Ágústsson,
formaður MENOR
Nú þegar hafa átta smásögur
borist í samkeppni Dags og
Menningarsamtaka Norðlend-
inga um frumsamda smásögu.
Skilafrestur er til 24. nóvem-
ber næstkomandi, sem er síð-
asti póstlagningardagur.
Haukur Ágústsson, formaður
MENOR, tekur á móti sögun-
um í samkeppninni og í samtali
við Dag sagðist hann eiga von
á að fá margar sögur á borð til
sín áður en skilafrestur rynni
út.
„Ég fékk tvær sögur strax dag-
inn eftir að samkeppnin var aug-
lýst þannig að sumir luma greini-
lega á smásögum. Aðrir hafa ver-
ið að semja og síðustu daga hef
ég verið að fá eitt handrit á dag.
Það tekur drjúgan tíma að skrifa
góða smásögu og ég á von á að
margir nýti sér skilafrestinn til
hins ítrasta og að sögurnar
streymi inn síðustu dagana, en
viðbrögðjn hafa verið mjög góð
til þessa,“ sagði Haukur.
Höfundur bestu smásögunnar
að mati dómnefndar fær 60 þús-
und króna verðlaun og þá verður
veitt 20 þúsund króna viðurkenn-
ing fyrir næstbestu söguna. For-
maður dómnefndar er Sverrir
Páll Erlendsson, menntaskóla-
kennari, en aðrir í dómnefnd eru
Bragi V. Bergmann, ritstjóri
Dags, og Hjalti Pálsson, bóka-
vörður á Sauðárkróki.
Verðlaunasagan mun birtast í
jólablaði Dags og einnig áskilur
Fréttabréf MENOR sér rétt til
birtingar. Haukur Ágústsson
sagði það einnig koma til greina
að gefa bestu sögurnar út í vasa-
brotsbók og jafnvel að halda
slíka samkeppni oftar og safna
bestu sögunum saman í bók.
Hann sagði jafnframt að þessi
smásagnasamkeppni gæti orðið
mikil lyftistöng fyrir ritfæra ein-
staklinga og menningarauki fyrir
Norðlendinga. SS
fjöll og firnindi. Sagðist hann
hafa orðið var við mink við
Reykjahlíðarfjall og einnig í
Búrfellshrauni, sem er langt frá
vatni.
Ingi hefur veitt 65 minka það
sem af er árinu, þar af 15 í októ-
ber. Er þetta mjög svipuð tala og
virtist vera af mink, hversu mikið
sem veitt væri en þó héldi hann
minknum niðri með skipulögðum
veiðum. Ingi hefur ekki orðið var
við alimink í Mývatnssveit en þar
hafa veiðst tveir alirefir, einn var
skotinn fyrir ári síðan og í vor
náðist læða með 11 hvolpa í
greni.
Tryggvi Harðarsson, minka-
veiðimaður í Svartárkoti í Bárð-
ardal, sagðist hafa veitt 21 mink í
vor og hefði það verið óvenjulít-
ið. Tryggvi ætlar til minkaveiða
næstu daga, ef veður leyfir, en
sagðist litlar fréttir hafa haft af
mink og sagðist reikna með að
betur hefði verið unnið að leit, og
meira veitt af mink annars
staðar. Tryggvi hefur einnig orð-
ið var við breytta hegðun
minksins, hefur hann fundið
greni með níu hvolpum talsvert
frá vatni. Finnst honum minkur-
inn vera að færa sig frá vatni,
kannski af því að þar er mest leit-
að. Sagðist Tryggvi vona að
minknum færi að fækka. IM
Blaðamaður Dags rakst á Arnkel Þórólfsson bónda í Hraunkoti 2 í Aðaldal
í S-Þing, fyrir skömmu en hann var þá að koma frá því að vitja um minka-
gildrur sem hann lagði í kvísl skammt frá bænum en á því svæði hefur árlega
orðið vart við mink síðustu þrjá áratugi. Arnkell hafði fengið þennan mink
sem hann heldur á í gildru sína og skömrnu áður hafi hann einnig fengið
minkalæðu í sömu gildru. Og það er greinilegt að tíkin Týra er ánægð með
frammistöðu bónda síns. Mytui: kk
Skólanefnd ræðir um íþróttahús í Lundahverfi:
Skiptar skoðanir uni
forgangsröð verkeftia
Skólanefnd Akureyrar hélt
fund í vikunni þar sem m.a.
var rætt um byggingu íþrótta-
húss í Lundahverfi. Ræddar
voru tillögur vinnuhóps sem
skipaður var af skólanefnd í
ágúst 1988, en að sögn Ingólfs
Ármannssonar skólafulltrúa
var engin ákvörðun tekin í
málinu önnur en sú að kynna
umræðurnar í bæjarráði.
Á síðasta ári kom erindi frá
Knattspyrnuféiagi Akureyrar til
Svæðisfundur SAF á Húsavík:
Menn með ýmsar nýjungar í pokahominu
- segir Tryggvi Finnsson, stjórnarformaður
SAF, eru samtök frystihúsa
sem selja sína vöru í gegn um
Sjávarafurðadeild Sambands-
ins, og þau héldu svæðisfund á
Húsavík sl. miðvikudag. í
fjölda ára hefur verið venja
félagsins að halda fund á
haustin, með verkstjórum og
framkvæmdastjórum, þar sem
m.a. eru rædd sölumál og
horfur. I ár var ákveðið að
breyta til og halda fjóra fundi,
hvern á sínu svæði, fyrsti fund-
urinn var á Egilsstöðum, annar
á Akranesi, síðan á Þingeyri
og fjóði fundurinn var á Húsa-
vík. Auk aðila frá frystihúsun-
um komu á fundina sölumenn
frá Sjávarafurðadeild og eftir-
litsmcnn, einnig fulltrúar fá
Iceland Seafood Corperation í
Bandaríkjunum og Iceland
Seafood Limited í Evrópu.
Tryggvi Finnsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskiðjusamlags
Húsavíkur er stjórnarformaður
SAF. Aðspurður frétta af fundin-
um sagði hann menn hóflega
bjartsýna á að markaðsmál og
sölumál væru frekar að styrkjast,
þá væri ekki verið að tala um
neinar teljandi verðhækkanir á
afurðum heldur styrkari markaði
og aukna eftirspurn. „Að mínu
mati er unnið nokkuð öflugt starf
á mörkuðunum núna og menn
eru með ýnisar nýjungar í poka-
horninu, sumt er orðið að veru-
leika en annað á leiðinni. Áhersl-
an á mörkuðunum núna er að
auka verðmætin, því með minnk-
andi kvóta þarf sjáanlega að
keyra á virðisauka en ekki
magni. Okkar þróunardeild og
söludeild eru að vinna að þessum
málum og ég er bjartsýnn á að
þar séu góðir hlutir að gerast,“
sagði Tryggvi.
Aðspurður urn stöðu fisk-
vinnslufyrirtækja almennt sagði
Tryggvi: „Þrátt fyrir það að hlut-
irnir séu ekki komnir eins og við
viljum hafa þá er ljóst að það er
reginmunur á stöðu fiskvinnslu-
fyrirtækjanna í dag eða eins og
hún var fyrir ári síðan. Vinnslu-
kerfum við fiskvinnsluna hefur
verið breytt og því hefur störfum
þar fækkað. Ymislegt bendir til
að sú þróun haldi áfram og henni
verður náttúrlega að svara í
hverju byggðarlagi með auknu
framboði á vinnu annars staðar."
Pátttakendur á svæðisfundin-
um skoðuðu Fiskiðjusamlagið á
fimmtudagsmorgun og leist vel á.
Þar hefur verið framkvæmt
ákveðið átak, sem er liður í að
gera húsið hæfara til að taka upp
breytta vinnsluhætti þar sem rík-
ari áhersla er lögð á neytenda-
pakkningar. Kröfuharðir, erlendir
aðilar hafa gert úttekt á aðstöðu
og vinnsluháttum.
Nokkur hús hafa haft sam-
vinnu um að hrinda í framkvæmd
verkefni sem nefnist: Góðir
umgengnishættir. Þá er t.d. búið
að herða kröfur til umhverfis
utanhúss og fatnaðs starfsfólks.
Framkvæmdin hefur gengið mjög
vel og gefur fyrirtækjunum vissa
andlitslyftingu. 1M
Akureyrarbæjar þess efnis, að
óskað var eftir samvinnu um
byggingu íþróttahúss í Lundar-
hverfi og vísaði bæjarráð því til
skólanefndar að koma á viðræð-
um við forsvarsmenn félagsins.
Skipaður var vinnuhópur sem
unnið hefur með hléum síðan og
skilaði af sér þeim valkostum
varðandi byggingu og rekstur
sem hópnum leist best á ef farið
verður út í þetta samstarf.
„Fulltrúum skólanefndar þótti
málið ekki á neinu afgreiðslustigi
svo því var vísað til bæjarráðs,“
sagði Ingólfur. Hann sagði
umræðurnar í skólanefnd hafa
snúist nokkuð um að líta á dæmið
í heild og að þá hafi komið upp
spurning um forgangsröð verk-
efna bæði á sviði íþrótta- og
skólamála. „Það komu mismun-
andi sjónarmið fram þó menn
hafi almennt verið sammála um
að það þurfi að skoða þetta mál í
heild.“
Samkvæmt framkvæmdaáætl-
un um skólamannvirki sem unnin
var 1986 og notuð hefur verið
sem viðmiðun bæjarstjórnar, er
gert ráð fyrir því sem forgangs-
verkefni að gera skóladag barna
samfelldan. Ef það á að vera
mögulegt verða íþróttamannvirki
að vera það nálægt skólanum að
hægt sé að fella íþróttir inn í
stundaskrá. í Lundarskóla og
Síðuskóla er þetta ekki hægt eins
og er, það er hægt annars staðar
með fyrirvara um Oddeyrarskóla
sem hefur bráðabirgðaaðstöðu í
Skemmunni.
í framkvæmdaáætlun er gert
ráð fyrir að framkvæmt verði við
Lundarskóla á undan Síðuskóla
þar sem Lundarskóli hafi í raun
beðið lengur. „Svo ntá segja að
þar vantar enn viðbótar kennslu-
húsnæði og það segir ekkert um
hvað þar eigi að hafa forgang.
Breytt lög um verkaskiptingu rík-
is og sveitafélaga fléttast inn í
þetta þvf nú eru þessar fram-
kvæmdir alfarið á vegum sveitar-
félaga svo það er í mörg horn að
líta,“ sagði Ingólfur. Næsta skref
í þessu máli er í höndum bæjar-
ráðs sem væntanlega tekur
ákvörðun þegar tillögurnar hafa
verið skoðaðar.
Sjallinn:
Komdu í kvöld
- sýnt alla laugardaga í nóvember
Sýningar á dægurlagahátíöinni
„Komdu í kvöld“ hefjast í
Sjallanum á Akureyri í kvöld
en hófust ekki í gærkvöld eins
og ranglega kom fram í Degi í
gær.
Sýning þessi er til heiðurs Jóni
Sigurðssyni bankamanni sem
staðið hefur í sviðljósi íslenskrar
dægurlagatónlistar í fimmtíu ár.
Fremstu dægurlagasöngvarar
landsins hafa verið kallaðir til
leiks í þessari sýningu en hljóm-
sveit Ingimars Eydal sér urn
undirleik og danstónlist á eftir.
Sýningar á dægurlagahátíðinni
„Komdu í kvöld“ verða síðan í
Sjallanunt alla laugardaga í nóv-
ember.