Dagur - 04.11.1989, Qupperneq 7
Laugardagur 4. nóvember 1989 - DAGUR - 7
Andlega martröðin er
- Hrikaleg lífsreynsla stúlku sem mátti sæta kynferðislegu ofbeldi
í dag eru 9 ár liðin síðan hinni líkamlegu martröð lauk. Sú andlega er hins
vegar enn til staðar og verður það ef til vill ævilangt. í greininni sem hér fer á
eftir lýsir 18 ára gömul stúlka hrikalegri lífsreynslu sinni. Hún segir sögu
einstaklings sem lenti í því að vera notaður kynferðislega frá tveggja ára aldrr
til níu ára aldurs. Faðirinn var gerandinn - hún sjálf, dóttirin, var þolandinn.
Stúlkan hefur tekið þann kostinn að breyta nöfnum og staðháttum, vegna
öryggis fjölskyldu og vina. Stúlkan hefur, að vandlega yfirveguðu máli
ákveðið að birta brot af reynslu sinni. Hún vonar að frásögn hennar geti veitt
öðrum styrk í þeirra raunum. Ekki síður á reynsla hennar að vekja lesendur til
umhugsunar um sifjaspell og kynferðislega misnotkun á börnum. Síðast
en ekki síst gæti óhugnanleg lífsreynsla hennar ef til vill orðið einhverjum víti
til varnaðar. f»á væri vissulega betur af stað farið en heima setið.
Stúlkan er að vinna að bók um reynslu sína af kynferðislegu ofbeldi og
afleiðingum þess á líf hennar. Frásögnin sem hér fer á eftir gefur lesendum
Dags hugmynd um hvílíka martröð - andlega og líkamlega - stúlkan og önnur
þau börn, sem verða fyrir slíku ofbeldi, hafa upplifað á fyrstu árum ævi sinnar.
Ef til vill kann einhverjum að þykja saga stúlkunnar ótrúleg. Hún er engu síð-
ur sönn; samansafn napurra staðreynda. Fyrir því hef ég óyggjandi sannanir,
sem ég þó hvorki vil né get lagt fram hér, eðli málsins vegna. Ritstjóri.
18. október 1989
„Ég er 18 ára og kýs að kalla mig
Hönnu. Faðir minn er 38 ára og ég
kalla hann Guðmund. Móðir mín er
37 ára og ég kalla hana Jónu. Ég tek
það skýrt fram að hún vissi ekkert af
þessu fyrr en nú í sumar.
Ég man fyrst eftir mér þegar ég var
svona 2ja ára. Ég vaknaði upp um
miðja nótt við það að pabbi var undir
sænginni hjá mér. Ég vissi ekkert
hvað hann var að gera, því ég var
bara barn. Hann sagði ekki orð við
mig og ég ekki heldur við hann. Ég
var hrædd því hann er óskaplega
skapstór og ég vildi ekki eiga það á
hættu að hann yrði reiður. Daginn
eftir var eins og ekkert hefði í skorist
og ég lokaði þetta inni í mér og sagði
ekkert. En hann hélt uppteknum
hætti: Ég býst við að hann hafi verið
kærulaus, því þegar mamma fór í
fjós á morgnana, tók hann mig upp í
rúm til sín. Oft sendi hann mig út í
glugga til að athuga hvort mamma
væri áð koma. Stundum sagði hann:
„Nú pissa ég inn í þig og þú verður
að fara fram og losa þig við það.“ Ef
ég gerði honum eitthvað á móti
skapi, henti hann mér inn í herbergi
og lokaði mig inni. Jafnvel þegar ég
var á fyrsta ári þá henti hann mér inn
í vöggu og lokaði herberginu og
meinaði mömmu inngöngu. Par fékk
ég svo að skæla mig í svefn.
Mamma og pabbi skilja
Mamma réði ekkert við hann. Þau
skildu þegar ég var 4ra ára. Það var
mikill léttir, bæði fyrir mig og
mömmu. Hélt ég. En hann átti nátt-
úrlega sinn yfirráðarétt og notaði
hann óspart. Hann fékk mig í heim-
sókn og ég var varla komin inn þegar
hann fór að hátta mig. Mamma skildi
aldrei í því að ég veiktist alltaf þegar
ég var hjá honum; hún hélt að mér
leiddist svona þar.
Svo náði pabbi sér í konu, frá-
skilda, og fluttu þau út á land. En
það stóð ekki í vegi fyrir honum.
Pessi kona átti annað barn fyrir,
stúlku, tveim árum yngri en ég.
Hann tók okkur báðar með sér upp á
loft eða eitthvað afsíðis og notaði
okkur báðar. Konan hans, sem ég
kalla Árnýju, varð ófrísk og eignað-
ist stúlkubarn. Pað fæddist þegar ég
var 6 ára. Afi og amma búa úti á
landi og fór pabbi stundum með mig
þangað. En hann lét mig ekki í friði
þar heldur. Ég var látin sofa í her-
bergi með afa. Heimtaði pabbi alltaf
að fá að sofa hjá mér. Pótt afi svæfi
einnig í herberginu lét pabbi það
ekki á sig fá. Hann skreið undir
sængina mína og var að langt fram á
nótt. Ég veit ekki hvort afi varð var
við að eitthvað óvenjulegt væri á
seyði, en ég býst ekki við því. Alla-
vega var engin hjálp í honum. Ekki
gat ég sagt ömmu neitt, því hún hefði
aldrei trúað þessu upp á elsku dreng-
inn sinn. Nei, ég gat engum treyst.
Enn eitt sambandið
Nokkrum árum síðar skildu þau
pabbi og Árný - sem betur fer fvrir
eldri stelpuna. Ég veit ekki um þá
yngri, þ.e. hvort hann gerði henni
eitthvað. En hrædd er ég um það.
Þegar hér var komið tók pabbi sam-
an við þá þriðju. Hún átti þá tvö
börn, strák og stelpu. Ég er næstum
því viss um að stelpan fékk að kenna
á honum. Hún hefur þá verið 7 eða 8
ára gömul. Maður þorði aldrei að
segja neitt, ekki einu sinni til að
bjarga hinum stelpunum frá Guð-
mundi.
Þegar ég svo varð 9 ára, hætti
pabbi að skipta sér nokkuð af mér.
Þá fór hann á sjó og var u.þ.b. mán-
uð úti í einu. Hann stoppaði einungis
í nokkra daga í landi á ntilli. Ég var
svo heppin að ég þurfti aldrei að fara
þangað sem hann bjó á þessu tíma-
bili.
Eg fór - en aldrei ein
Svo þegar ég var orðin 12-13 ára,
vildi hann að ég færi að koma í heim-
Dómhildur Antonsdóttir.
Konur mjög duglegar að sauma
- segir Dómhildur Antonsdóttir eigandi verslunarinnar
Vandla hf., ný vefnaðarvöru-
verslun var opnuð nýlega að
Garðarsbraut 26 á Húsavík.
Eigendur verslunarinnar eru
Dómhildur Antonsdóttir og
Aðalbjörg Kristbjörnsdóttir.
A boðstólnum er vefnaðarvara
og ýmsar smávörur til sauma.
Nafn verslunarinnar, Vandla,
hefur vafist fyrir mörgum og hafa
getgátur verið uppi um að það
Vandla hf. á Húsavík
væri dregið af orðinu vöndull,
Dómhildur sagði svo ekki vera
heldur hefðu eigendur fundið
orðið vandla í orðabók, og það
þýddi vandlega eða vel. Sagði
hún að leitað hefði verið lengi að
orði tengdu vefnaðarvöru en þau
væru öll orðin svo notuð.
Saumakona verður í verslun-
inni á fimmtudögum kl. 17-18 og
tekur að sér saumaskap fyrir við-
skiptavini. Dómhildur sagði að ef
svo færi sem horfði yrði hún að
hætta að taka á móti verkefnum,
sem skila á fyrir jól, í síðari hluta
nóvember.
Dómhildur sagði að sér litist
vel á verslunarreksturinn, versl-
uninni hefði verið vel tekið og
allir væru jákvæðir. Konur á
Húsavík og í nágrenni væru mjög
duglegar að sauma, sérstaklega
ungar konur sem væru mjög hug-
myndaríkar. IM
enn til staðar
af hálfu föður síns frá 2ja til 9 ára aldurs
sókn. Ég fór - en aldrei ein. Yfirleitt
fór vinkona mín með niér eða frændi
ininn og ég gaf aldrei tækifæri á mér.
Ég var aldrei ein, því ég vissi að hann
beið alltaf eftir því að ná mér ein-
hvers staðar einni. Og það niátti ekki
gerast.
En svo ég hverfi nú aftur til barn-
æskunnar, þá vorunt við mamma ein-
ar í tvö ár. Það eru einu ár æsku
minnar sent mér fannst ég vera ham-
ingjusöm (að sjálfsögðu þegar frá eru
dregin þau skipti á því tímabili sem
ég þurfti að fara til pabba). Mamma
var bóndi og átti kýr og kindur. Und-
um við okkur daglangt við búskapinn
og áttum bara hvora aðra. En svo
kom niaður og hóf búskap með
mömmu. Og þá átti ég ekkert eftir
nema sjálfa mig.
Stíflan brestur
Þessi maður, sem ég kýs að kalla
Sigurð, var ágætis maður út af fyrir
sig. En hann var karlmaður og það
var nóg. Ég hélt honum alla tíð frá
mér og var ætíð kuldaleg og kannski
ekki nema von því ég hafði slæma
reynslu af mönnum. Sérstaklega
þoldi ég ekki menn sern tóku mig
upp og þóttust vera ferlega sætir.
Þegar ég svo varð 12 ára varð ég aga-
lega þunglynd. Mamma kenndi ungl-
ingaskeiðinu um en það lá fleira að
baki. I 8. bekk brotnaði ég svo niður,
í kennslustund hjá skólastjóranum. í
framhaldi af því komst ég í kynni við
sálfræðing sem hjálpaði mér mikið.
Ég var hjá honum í um það bil tvö
ár. En það var ekki fyrr en ég hafði
verið hjá honum í hálft ár að ég þorði
að segja honum frá pabba. Þá brast
stíflan sem ég hafði inni í mér öll
þessi ár.
Umræðan mikla
Á þessum tíma gerðist margt í lífi
mínu. Ég reyndi einu sinni að fremja
sjálfsmorð en sem betur fer tókst það
ekki. „Sem betur fer,“ segi ég núna,
en ég sagði það ekki þá. Á þeim tíma
fannst mér lífið ekki þess virði að lifa
því. Ég fór að drekka og reykja og
reyna að vera með strákum. Flestir
þeirra vildu sofa hjá mér en ég vildi
það ekki. Það var sárt að vita að ekk-
ert annað virtist komast inn í hausinn
á þessum fíflum. En tíminn leið. Alls
staðar var mér ógnað með kynlífi: Á
vinnustöðum (skipti ég því oft um
vinnu og töldu allir að ég væri aum-
ingi og nennti ekki að vinna), í
skólanunt; í þjóðfélaginu sjálfu. Svo
kom umræðan mikla. Urn misnotkun
á börnum. Allir fjölmiðlar æptu
þetta upp. Þeir hneyksluðust á að
þetta gæti gerst í fallega landinu
þeirra. Þeir blésu þetta upp. í hverju
horni var hvíslað um þetta og því
varð erfiðara fyrir mann að sætta sig
við orðinn hlut. En mér datt aldrei í
hug að kæra. Það var einhvern veg-
inn út úr myndinni.
Svona hluti er ekki
hægt að skilja . . .
Þar kom að ég kynntist strák sem ég
treysti. Hann ýtti mér ekkert áfram
en leyfði mér að ráða ferðinni. í dag
erum við trúlofuð. En ennþá vaknar
öðru hverju svo mikil reiði innra með
mér, svo mikil beiskja, að allt ætlar
að bresta. Unnusti minn reynir að
skilja mig og hugga en ég veit að
þetta er hryllilega erfitt fyrir hann.
Svona hluti er ekki hægt að skilja
nerna hafa reynt þá sjálfur.
Mamrna og Sigurður slitu samvist-
um fyrir sköntmu og þá sagði ég hon-
um frá pabba. Ég gerði það til að
reyna að fá hann til að skilja hvers
vegna ég barðist alltaf gegn honum.
Ég held að það hafi tekist. En ég hef
aldrei séð honum svo brugðið né svo
reiðan út í nokkurn mann eins og
pabba þá. í sumar sagði ég svo
mömmu frá þessu. Henni varð mjög
brugðið og ég reyndi að koma henni
í skilning um að hún hefði ekki
brugðist mér á nokkurn hátt. Hún
vissi ekki að pabbi væri svona og datt
þetta aldrei í hug. Ég ásaka hana
ekki á neinn hátt.
Börn gleyma ekki
Einhverjir hafa haldið því fram að
barnið gefi tilefni til þess að það sé
misnotað. Það er tómt rugl. Barn
veit ekki hvað kynlíf er né hefur það
nokkra löngun til að kynnast því.
Það eina sem barnið sækist eftir er
hlýja og ástúð og það er virkilega sárt
þegar menn misnota og mistúlka
þessa þörf barnsins.
EF VIÐ ÞEGJUM UM OFBELD-
IÐ TEKUR ÞAÐ ALDREI ENDA.“
Fyrirsögn og millifyrirsagnir eru blaðsins.
Helgi Vápni í Vín:
Snertilistin
vekur athygli
Sýningu Helga Vápna í Vín lýkur
um helgina en síðasti sýningar-
dagur er á sunnudaginn. Helgi
sýnir 23 verk, vatnslita- og
olíumyndir og auk þess snertilist
sem er nýjung í myndlist á
Norðurlöndunum og jafnvel þótt
víðar væri leitað. Snertilistin er
jafnt fyrir sjóndapra sem sjáandi.
Sjóndaprir geta þreifað á þessum
verkum og þau eru merkt með
blindraletri en þeir sem hafa fulla
sjón geta notið þeirra úr
fjarlægð.
Helgi Vápni hefur vakið mikla
athygli fyrir snertilist sfna, jafnt
erlendis sem hérlendis. í Færeyj-
um fékk hann t.a.m. frábærar
viðtökur og fékk snertilist hans
gott rými á forsíðu tveggja dag-
blaða auk þess sem sjónvarpið
gerði verkum hans skil. Það er
því full ástæða til að vekja athygli
Norðlendinga á þessari nýjung og
minna á sýninguna í Vín.
Rjúpnaveiði-
bann
Að gefnu tiiefni er hér með tekið
fram að öll rjúpnaveiði í löndum
Kóngsstaða, Hverhóls og Kross-
hóls í Skíðadal er bönnuð.
Landeigendur.