Dagur - 11.11.1989, Síða 4

Dagur - 11.11.1989, Síða 4
4 - DAGUR - Laugardagur 11. nóvember 1989 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREVRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 1000 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 90 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 660 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: EGILL H. BRAGASON UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), KARL JÓNSSON (Sauöárkróki vs. 95-35960), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARI: KRISTJÁN LOGASON PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN ÚTLITSHÖNNUN: RlKARÐUR B. JÓNASSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRfMANN FRlMANNSSON DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Merkasta byggða- mál á íslandi Haraldur Bessason, rektor Háskólans á Akureyri, sendi öllum sveitarstjórnarmönnum á Norðurlandi bréf á miðvikudaginn. Tilefnið er að samkvæmt fyrirliggj- andi fjárlagafrumvarpi eru stofnuninni aðeins ætlaðar 78 milljónir króna, en fjárlagabeiðni háskólans hljóð- aði upp á 210 milljónir króna. Ef fjárlagafrumvarpinu verður ekki breytt er greinilegt að fjárveiting til skól- ans verður rúmum 130 milljónum krónum lægri en rök- studd beiðni stofnunarinnar miðast við. Það alvarlega við þessi tíðindi er að hér er vegið að þeirri stofnun sem mestar vonir eru bundnar við utan höfuðborgarsvæðisins. Beiðni Háskólans miðast við nauðsynlega uppbyggingu sjávarútvegsdeildarinnar nýju; fé til tækja- og húsnæðisöflunar. Haraldur Bessason segir í bréfi sínu: „í samræmi við ríkisstjórnarsamþykkt frá síðastliðnu vori hefur háskólinn stefnt að opnun sjávarútvegsdeildar um næstkomandi áramót. Hefur verið unnið að undirbún- ingi hennar um langt skeið og ekki of djúpt í árinni tekið að við þá deild, sem og háskólann í heild, séu miklar vonir bundnar enda um algjöra nýjung í æðri menntun að ræða á íslandi. Allmiklar umræður hafa orðið um Háskólann á Akureyri og þá ekki hvað síst um fyrirhugaða sjávarútvegsdeild hans. í orði hefur háskóhnn notið stuðnings viturra manna sem hafa fylgst með vexti hans af áhuga. Hafa þeir hinir sömu glaðst vegna stóráfanga á þróunarbraut skólans svo sem áðurnefndrar ríkisstjórnarsamþykktar og opnun- ar hins glæsilega stúdentagarðs Útsteins fyrr á þessu hausti. Ohikað má segja að allir sem einn líti velunnarar háskólans þannig á málin að hann verði framar öllu heilladrjúgt mótvægi gegn yfirvofandi landauðn utan Reykjavíkursvæðisins. Hefur einn skeleggasti stuðn- ingsmaður skólans gengið svo langt að staðhæfa í fjöl- miðlum að Háskólinn á Akureyri sé merkasta byggða- málið sem nú sé uppi á íslandi. Þessa stundina er þó augljóst að háskólinn á svo mjög í vök að verjast að ekki einungis leikur vafi á að unnt verði að stofna fyrrnefnda sjávarútvegsdeild heldur er ekki annað sýnna en að þær deildir sem þeg- ar eru starfandi við skólann séu í bráðri hættu . . . Háskóhnn leitar nú trausts og halds hjá öhum þeim sem láta sér skiljast að ekki einungis á ÖU byggð utan suðvesturhorns landsins framtíð sína undir því komna að æðri menntun flytjist út á landsbyggðina, heldur mujiu deUdir Háskólans á Akureyri verða íslensku þjóðinni allri tU hinnar mestu gagnsemdar. Er hér með skorað á alla ráðamenn þjóðarinnar og þá ekki síst alþingismenn og ráðherra að veita háskólanum fuUtingi sitt í orði og verki, þannig að hann geti óhikað axlað þá miklu ábyrgð sem honum hefur verið falin og haldið áfram störfum með fullri reisn. “ Þessi orð háskólarektors eru í tíma töluð. Ráðamenn þjóðarinnar verða að sameinast um að láta endur- skoða fjárveitingar til skólans, svo hann geti uppfyllt hlutverk sitt: að verða hornsteinn mennta, menningar og atvinnueflingar á landsbyggðinni. EHB Krabbameinsskoðun að ljúka á FSA: A fimmta hundrað konur ekki svarað boðunarbréfi Eins og kunnugt er hefur leit- arstöð Heilsugæslustöðvar Ak- ureyrar í samvinnu við K.Í., gengist fyrir skipulagðri leit að krabbameini í brjóstum kvenna með brjóstamynda- töku, sem farið hefur fram á vegum röntgendeildar FSA. Nú er hópskoðun þessa árs senn að ljúka. Búið er að senda út um 1100 boðunarbréf á árinu en á fimmta hundrað konur hafa því miður ekki svarað boðun. Því eru þær konur sem ekki hafa svarað áðurnefndum boðunar- bréfum, hvattar til þess að panta nú þegar tíma fyrir brjósta- myndatöku. Áætlað er að skoðun ljúki fyrir mánaðamótin nóv./ des., á röntgendeild FSA. Tíma- pantanir eru í síma 22100 virka daga á tímabilinu 13. nóv. til 23. nóv., frá kl. 08.00 til kl. 15.30. Þá eru þær konur 40 ára og eldri sem ekki hafa komið í skoðun, hvattar til þess að panta tíma, þó svo að þær hafi ekki fengið boðunarbréf. -KK Norðurlandskjördæmi eystra: 34. kjördæmisþing KFNE á Hótel KEA 34. kjördæmisþing framsókn- armanna í Norðurlandskjör- dæmi eystra verður haldið í dag á Hótel KEA. Þingið hefst kl. 9.00 með setn- ingu og skýrslu stjórnar. Kl. 10.00 flytja þingmenn ræður sínar, lögð verður fram stjórn- málaályktun og almennar um- ræður verða um hana. Matarhlé er í hádeginu, en þá efnir Félag ungra framsóknar- manna á Akureyri og nágrenni til hádegisfundar á Hótel KEA. Gestur fundarins verður Gissur Pétursson, formaður SUF. Eftir hádegisverðarhlé fara fram kosningar. Að því búnu er sérmál þingsins á dagskrá, umhverfis- og náttúruvernd. Framsögumenn eru Jón Sveins- son, aðstoðarmaður forsætisráð- herra, og Hermann Sveinbjörns-' Kópasker: 15 manns á námskeiði í fyrradag var haldið á Kópa- skeri, námskeið á vegum Lands- sambands iðnaðarmanna, um „Bókhaldið og ársreikning- inn.“ Mikill áhugi var fyrir þessu námskeiði, því alls sóttu það 15 manns, bændur, sjómenn, iðnaðarmenn, sveit- arstjórnarmenn og 11. Námskeiðið stóð frá morgni til kvölds og á því var farið yfir fjöl- marga þætti í sambandi við bók- hald og ársreikninga og þær breytingar sem verða um áramót, þegar tekinn verður upp virðis- aukaskattur í stað söluskatts. Leiðbeinandi á námskeiðinu var Gunnar Ingi Hjartarson. -KK son, aðstoðarmaður sjávarút- vegsráðherra. Sérstakir gestir þingsins eru Sigurður Geirdal, framkvæmda- stjóri Framsóknarflokksins, Giss- ur Pétursson, formaður SUF, og Helga Helgadóttir frá Lands- Nýlokið Fiskiþing lagði til í ályktun sinni um hvalarann- sóknir að áfram verði unnið að þeim þannig að raunhæft mat fáist sem fyrst um nýtanleika allra hvalastofna hér við land. Þingið lagði einnig til að hrefnuveiðar verði teknar upp hér við land á næsta ári. í greinargerð með þessari til- lögu segir að eingöngu með eðli- legri nýtingu sjávarspendýra verði viðhaldið nauðsynlegu jafn- vægi í lífríki sjávar. Eftir talningu á hvölum í Norður-Atlantshafi hafi komið í ljós að hrefnustofn- inn sé til muna stærri en áður hafi „Samkvæmt níu mánaða upp- gjöri er afkoma fyrirtækisins fyrir vexti talsvert betri en árið 1987. Þegar hins vegar vaxta- gjöldin eru tekin með í dæmið verður útkoman einhver halli, þó mun minni en í fyrra,“ segir Runólfur Birgisson, skrifstofu- stjóri Þormóðs Ramma á Siglufirði. „Afkoman í frystingu og sölt- un er þokkaleg en hins vegar er staða útgerðar heldur verri. sambandi framsóknarkvenna. Að loknum ávörpum gesta er afgreiðsla mála á dagskrá, úrslit kosninga, umræða um önnur mál og þingslit kl. 18.30. Kl. 20.00 hefst kvöldskemmt- un á Hótel KEA. EHB verið taiið. „Þess vegna leggur Fiskiþing til að nýta beri vannýtta stofna sjávarspendýra svo eigi verði raskað æskilegu jafnvægi í lífríki sjávar. Jafnframt má benda á að í þeim aflasamdrætti sem verður á næsta ári er nauð- synlegt að fullnýta öll tækifæri til að fjölga atvinnumöguleikum fyrir fiskimenn og auka jafnframt tekjur þjóðarbúsins svo sem framast er kostur," segir í grein- argerðinni. Af 500 veiddum hrefnum hér við land á ári fengjust um 1250 tonn af kjöti. Útflutningsverð- mæti þess yrði um 700-800 millj- ónir. JÓH Vextirnir hafa skekkt afkomu- dæmið verulega. Staðreyndin er sú að þó svo að komi bati í fram- legð er sá bati rifinn af okkur í hærri vöxtum. Það er eins og fyrirtækjum líðist ekki að bæta afkomu sína,“ segir Runólfur. Sýnt þykir að hægt verði að halda uppi fullri átta tíma vinnu hjá Þormóði Ramma til áramóta, að sögn Runólfs. Hann segir að kvóti skipa fyrirtækisins muni nægja vinnslunni út árið. óþh Fiskiþing: Vill hrefiiuveiðar á næsta ári Þormóður rammi á Siglufirði: Kvótinn nægir út á við Flugleiðir: Steftit að stofiiun nýs flugfélags með þátttöku landshlutafélaga Stjórn Flugleiða ákvað á fundi sínum í vikunni að stefna að stofnun nýs flugfélags sem hefði með höndum flug á innanlands- leiðum. Rætt er um að fá flugfé- lög á landsbyggðinni til samstarfs um stofnun fyrirtækisins, sem myndi þjóna stórum byggðum og smáum vítt og breitt um land. Þessi ákvörðun var tekin í fram- haldi af stefnubreytingu við út- hlutun flugleyfa á innanlandsleið- um. Flugleiðir munu að sjálf- sögðu laga sig að þessum breyt- ingum og telja að það verði best gert með þeim hætti sem hér er lýst. Fiugleiðir og landshlutafélögin hafa byggt upp víðtækt sam- göngunet innanlands í samvinnu við nokkur fyrirtæki, sem reka fólksflutningabifreiðir. Það nær til um 40 þéttbýlisstaða á land- inu. Nú er fyrirhafnarlítið og á nokkrum klukkustundum hægt að komast milli staða í þessu neti. Með breytingum þeim sem boðaðar voru við úthlutun sér- leyfa á áætlunarleiðum innan- lands og koma að hluta til fram- kvæmda um áramót má búast við nokkru umróti í flugþjónustu. Flugleiðir telja því að með stofn- un sérstaks fyrirtækis um innan- landsflug í samvinnu við lands- hlutaflugfélögin verði samgöngu- netið styrkt í sessi og hlutur landsbyggðarinnar í flugrekstri innanlands betur tryggður. Að auki er vonast til að stofnun nýs flugfélags til innanlandsflugs með þátttöku þessara aðila muni leiða til hagræðingar. Það er áfram stefna stjórnar Flugleiða að sem mestur hluti flugs á innanlandsleiðum verði á þrýstijöfnuðum flugvélum sem geta flogið yfir veður. Ef til stofn- unar nýs innlandslandsflugfélags kemur verður flugfloti þess vænt- anlega blandaður, en áhersla lögð á að þjóna sem flestum við- komustöðum með þrýstijöfnuð- um flugvélum.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.