Dagur - 11.11.1989, Blaðsíða 7

Dagur - 11.11.1989, Blaðsíða 7
Laugardagur 11. nóvember 1989 - DAGUR - 7 Jón Hjaltason Kyntáknið Theresa RusseD Nú á dögunum var kvikmyndin Physical Evidence sýnd í Borgar- bíó. Því miður hefur hún reynst enn ein sönnunin fyrir dvínandi vinsældum Burt Reynolds, af ein- hverjum ástæðum virðast bíófar- ar ekki lengur hafa neinn áhuga á honum. Jafnvel orðrómur um að leikarinn kunni að vera smitaður af eyðni hefur ekki haft nein áhrif hér á. Mótleikari Reynolds í þessari mynd var hin 32 ára Theresa Russell en öndvert við Reynolds virðist frægðarstjarna hennar frekar vera á uppleið. Kjörin af Playboytímaritinu Ritstjórar Playboytímaritsins gera ýmislegt til að vekja athygli á blaðinu. Til dæmis hafa þeir fyrir sið að velja árlega þann kvenmann sem þeir telja höfða mest til gáfu- og menntamanna. í fyrra varð Russell fyrir valinu og furðar víst fáa sem séð hafa hana í Black Widow. Sjálf kveðst hún vera fremur hreykin af þessum titli; hann gefi í skyn að hún sé eitthvað annað og meira en með- færilegur rekkjunautur. Kynþokki Russell er henni nánast meðfæddur. Hún var ekki nema tólf ára þegar hún var byrj- uð að sitja fyrir hjá „gröðum ljósmyndara“, eins og hún orðaði það sjálf í viðtali við bandaríska tímaritið American Film nýlega. Ekki verð þó um kynferðislegt samband að ræða milli ljósmynd- arans og stúlkubarnsins. Þess var þó ekki langt að bíða að Russell fengi að kynnast kyn- lífinu af eigin raun. 15 ára að aldri komst hún í kynni við nálega þrítugan karlmann, hætti í gagnfræðaskóla árið eftir og flutti inn til hans skömmu síðar. Allar götur síðan hefur ástalíf Russell einkennst af löngun hennar eftir sér töluvert eldri mönnum. Sál- fræðingar vilja rekja þetta til þeirrar staðreyndar að faðir hennar yfirgaf þær mæðgur þegar hún var aðeins sex ára gömul. Leiklistarferillinn hófst þegar Russell byrjaði að koma fram sem sýningardama. Hún sótti leiklistartíma og fékk hlutverk í kvikmyndum. Sú fyrsta var The Last Tycon með Robert De Niro, í kjölfarið fylgdi Straight Time með Dustin Hoffman og síðan Bad Timing: A Sensual Obsession en þar lék hún aðalhlutverkið á móti Art Garfunkel. Þessi þriðja mynd Russell gaf henni jafnframt tækifæri til að halda uppteknum hætti í ástamál- um; leikstjóri Bad Timing, Nicolas Roeg, er nú eiginmaður Russell, saman eiga þau tvo syni en hann er nálega helmingi eldri en hún. Að notfæra sér kynþokkann Það er stundum sagt að frama- braut karla í Hollywood sé tölu- vert ólík þeirri sem kvenmenn verða að troða. Karlarnir þurfi lítið að láta reyna á hæfileika sína í rúminu en konurnar aftur held- ur meira. Og hvernig skyldi þetta vera með jafn kynþokkafulla konu og Theresu Russell? Leikkonan fer ekki í neina launkofa með að hún hafi fært sér í nyt þau áhrif sem hún hefur á karla. Þetta kemur af sjálfu sér segir hún. Þegar á barnsaldri fá stúlkur tilfinningu fyrir því að meðölin hrífa ekki jafnt á mömmu og pabba. Maður nálg- ast hlutina ólíkt eftir því hvort þeirra á í hlut og á fullorðinsár- um beitir maður ekki sömu aðferð gagnvart konum og körlum. Eg hef vissulega notað kynþokka minn á karla til að fá Theresa Russell, 32 ára kyntákn og tveggja barna móðir. Næsta hlut- verk hennar mun verða í Impulse sem Clint Eastwood og Sondra Locke leikstýra. þá til að sjá hlutina frá mínum bæjardyrum, þó ekki endilega á þann hátt að fara í rúmið með þeim. Mér hefur nægt að fara út með þeim, skopast, hlusta og dást svolítið að þeim í leiðinni. Svarta ekkjan Þessi huglæga aðferð Russell til að forfæra karlmenn hefur gefið heldur góða raun. Hún er á góðri leið með að verða þekkt nafn í kvikmyndaheiminum. Hún hefur að undanförnu jeikið í fimm kvikmyndum undir stjórn eigin- manns síns. I Insignificance birt- ist hún til dæmis sem ónafngreind leikkona sem engum duldist þó að ætti að vera Marylin Monroe. Þessi mynd hafði í fíeiri en einum skilningi mikil áhrif á Russell. Hún fann til sterkrar santkenndar með Monroe og um leið mikilla vonbrigða með afstöðu karla til kvenna: Ég held að karlmenn vilji helst líta á kvenfólk sem hlut, það sé öruggasti mátinn. Brúða er alveg hættulaus, þú þarft ekki að leggja á hana neinar tilfinningar eða gefa henni loforð. Engar skuldbindingar eru nauðsynlegar. Þú þarft aðeins að ná honum upp, stinga inn og síðan, þegar allt er búið, segja: Bless bless elskan. Það er kannski svolítið kald- hæðnislegt að hlutverkið sem Russell hefur fengið hvað besta I Black Widow leikur Russell glæsi- kvendið sem giftist til fjár og myrðir eiginmenn sína. Sami Frey er í því öfundsverða hlutverki á myndinni að nudda axlir morðkvendisins en hann er næsta fórnarlamb hcnnar. dóma fyrir er svolítið í sama dúr og hún lýsir karlntönnum hér að framan. Hér ræðir um Black Widow en þar leikur Russell kaldrifjað glæsikvendi sem giftist auðugum körlurn og myrðir þá síðan. í þessari stórgóðu mynd koma þeir ákaflega vel fram eig- inleikarnir sem urðu þess vald- andi að Playboyarnir kusu hana leikfang gáfumenna í fyrra. Þar er þó svolítill hlykkur á bæninni sem er samband Russell við Debra Winger, alríkislögreglu- manninn er að lokum snýr á glæsikvendið. Ekki er alveg laust við að bryddi á kynvillu í tengsl- um þeirra. ÞU SKIPULEGGUR reksturinn á þínu heimili Þegar kemur að afborgunum lána er það í þínum höndum að borga á réttum tíma. t 2- var gjalddagi húsnæðislána. Þar með sparar þú óþarfa útgjöld vegna dráttarvaxta, svo ekki sé minnst á ínnheímtukostnað. 16. nóv. leggjast dráttarvextir á lán með lánskjaravísitölu. 1. des. leg'gjast dráttarvextir á lán með byggingarvísitölu. Greiðsluseðlar fVrir 1. nóv. hafa verið sendir gjaldendum og greiðslur má inna af hendi í öllum bönkum og sparisjóðum landsins. Sparaðu þér óþarfa útgjöld af dráttarvöxtum. Ún HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVÍK • SlMI 696900

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.