Dagur - 11.11.1989, Qupperneq 20
Askriftarsíminn
96-24222
Akureyri, laugardagur 11. nóvember 1989
Saudárkrókur
95-35960
Húsavík
96-41585
95
Tekur Silfurstjarnan við rekstri Árlax hf.?
Það hefur ekki komið
til tals hjá okkur“
„Þetta hefur ekki komið til tals
hjá okkur en ég hef heyrt
þær sögur að við séu að fara að
taka við rekstri Árlax. Við
myndum að sjálfsögðu skoða
þennan möguleika ef á okkur
yrði þrýst en þetta er ekki
áhugavert fyrir okkur, það er á
hreinu,“ segir Guðmundur
Valur Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri fískeldisstöðvar-
segir Guðmundur Valur Stefánsson,
framkvæmdastjóri Silfurstjörnunnar
innar Silfurstjörnunnar þegar
hann var spurður hvort áhugi
fyrir hendi hjá Silfur-
stjörnumönnum á yfírtöku
væn
á yfírtöku á
rekstri Árlax hf. sem úrskurð-
aður hefur verið gjaldþrota.
Guðmundur segir að þetta mál
hafi ekki komið á borð stjórn-
enda Silfurstjörnunnar né stjórn-
ar fyrirtækisins. Slíkt yrði alfarið
að vera ákvörðun stjórnarinnar,
Húsavík:
Órofa samstaða um
mjólkursamlagið
„Það er órofa samstaöa um
það að hér ætlum við að hafa
samlag, hvað sem öllum skýrsl-
um Iíður,“ sagði Hlífar
Karlsson, mjólkursamlags-
stjóri hjá MSKÞ að loknum
fundi stjórnar MSKÞ, samlags-
ráðs og starfsmanna sl. mið-
vikudag.
Á fundinum voru framtíðar-
málin til umræðu og skýrsla af-
urðastöðvanefndar. í skýrslunni
kemur fram tillaga um að leggja
Mjólkusamlag Kaupfélags Þing-
eyinga niður, en nefnd þessa
skipaði Jón Helgason, þáverandi
landbúnaðarráðherra, fyrir
rúmum tveimur árum.
Stjórn og starfsmenn MSKÞ
eru alls ekki samþykkir þeirri til-
lögu að loka samlaginu. Sagðist
Hlífar einnig vita að í farvatninu
ÚS á Sauðárkróki:
Góð sala Skafta
erlendis
- hallinn fer minnkandi
Skafti SK 3, einn togara Út-
gerðarfélags Skagfírðinga,
gerði góða sölu á karfa í
Frakklandi og Þýskalandi á
fímmtudaginn var. Meðalverð-
ið í Frakklandi var um 85 krón-
ur en um 96 í Þýskalandi.
Heildarsalan nam því um fímm
og hálfri milljón króna.
Að sögn Ágústs Guðmunds-
sonar framkvæmdastjóra ÚS, er
lítið eftir af kvóta skipanna. Þau
hafa verið mest á karfaveiðum en
þó landaði Skagfirðingur
blönduðum afla í síðustu viku og
von er á Hegranesi í næstu viku
til löndunar. Ágúst bjóst við að
kvótinn entist ekki út árið og des-
ember gæti orðið erfiður. Rekst-
ur ÚS er allur í áttina en samt
slæmur. „Við skulum segja að
hallinn hafi minkað," sagði
Ágúst en hann hættir störfum um
mánaða'mótin nóv.-des. Enn
hefur ekki verið ráðið í stöðuna
en fljótlega má búast við að það
verði gert. kj
væru tillögur frá Bæjarstjórn
Húsavíkur og Verkalýðsfélagi
Húsavíkur til að mótmæla tillög-
unni um lokun samlagins. IM
ef til þess kæmi.
Uppbygging fiskeldisstöðvar
Silfurstjörnunnar er nú á lokastigi.
Áætlað er að ljúka öllum fram-
kvæmdum fyrir jól en nú er verið
að ganga frá lögnum að kerjum.
Fljótlega verður því vatni hleypt
á kerfið.
Áætlun er um að slátra 300
tonnum af fiski í stöðinni á næsta
ári. Guðmundur Valur segir að
framleiðslan á fyrstu árunum ráði
miklu um framtíð stöðvarinnar,
mikilvægt sé að standast áætlanir
um framleiðslumagn strax í upp-
hafi. „Maður er auðvitað kvíð-
inn, mitt í þessum gjaldþrotum
fiskeldisstöðva. Útlitið er hins
vegar gott hjá okkur, fyrsta
skrefið er að komast yfir fram-
kvæmdirnar og þar höfum við
staðið okkar áætlanir. Næsta
skref er að geta framleitt það sem
áætlanir segja og það á eftir að
koma í ljós,“ segir Guðmundur
Valur. JÓH
KA-menn leika seinni leik sinn í Evrópukeppni meistaraliða í blaki í dag.
Leikurinn fer fram í Höllinni á Akureyri og hefst kl. 15.30. Óhætt er að
hvetja fólk til þess að mæta í HöUina, því það er ekki á hverjum degi sem leikir
í Evrópukeppni fara fram hér norðan heiða. KA-menn hafa auglýst leikinn
á skiltum víðs vegar um bæinn en eins og sést á myndinni hefur einhver þurft
á að fá útrás og lagt á það hendur eða fætur. Mynd: kl
Húsnæðismál sjávarútvegsbrautar Háskólans á Akureyri:
Hekluhúsið talimi óálitlegur kostur
yfirlýsing íjármálaráðherra á Alþingi kom mönnum mjög á óvart
Nefnd sem fjallað hefur um innar er þessi afstaða Háskólans
húsnæðismál Háskólans á á Akureyri ítrekuð, samkvæmt
Akureyri hefur lokið störfum heimildum Dags. í skýrslunni eru
reifaðir nokkrir möguleikar í
húsnæðismálunum. í fyrsta lagi
leiga á húsnæði, í öðru lagi bygg-
ing framtíðar- eða bráðabirgða-
húsnæðis við háskólahúsið við
og frá hennar hendi liggur fyrir
skýrsla um valkosti til að ráða
bót á húsnæðismálum sjávar-
útvegsbrautar. Fyrir liggur að
ekki er unnt að hefja markvisst
nám í sjávarútvegsfræðum fyrr
en komið hefur verið upp
rannsóknaraðstöðu fyrir raun-
greinakennslu við brautina.
Til húsnæðismála eru einungis
ætlaðar 10 milljónir króna og 5
milljónir til tækjakaupa í fyrir-
liggjandi fjárlagafrumvarpi eins
og Dagur greindi frá í gær. For-
svarsmenn Háskólans á Akureyri
lýsa furðu sinni á þessum tillög-
um fjárveitingavaldsins og benda
á að teknir hafi verið inn nem-
endur á fyrsta ár sjávarútvegs-
brautar með þau loforð stjórn-
valda í vasanum að komið yrði
upp viðunandi rannsóknarað-
stöðu í tæka tíð.
Á Alþingi á dögunum gaf Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, fjármála-
ráðherra, út þá yfirlýsingu að
Hekluhúsið svokallaða, sem rík-
ið keypti fyrr á þessu ári fyrir 59
milljónir króna, yrði nýtt fyrir
sjávarútvegsbraut Háskólans.
Heimildir Dags herma að þessi
yfirlýsing ráðherra hafi komið
forráðamönnum Háskólans á
Akureyri í opna skjöldu og í
þeirra augum hafi aldrei komið
til greina að byggja þar upp rann-
sóknaraðstöðu. Þessi afstaða
segja forráðamenn Háskólans að
hafi verið ráðherra ljós fyrir
löngu.
í áðurnefndri skýrslu um hús-
næðismál sjávarútvegsbrautar-
Þórunnarstræti. Gert er ráð fyrir
að kostnaður á fermeter í ný-
byggingu yrði á bilinu 60-70 þús-
und krónur, kostnaður á fer-
metra við endurbætur á Heklu-
húsi yrði 58 þúsund krónur og 50
þúsund á fermetra við bráða-
birgðahúsnæði við hús háskólans.
Hekluhúsið svokallaða mun
vera mjög illa farið og á það hef-
ur verið skotið af fróðum mönn-
um að þurfi hátt í 200 milljónir
króna til þess að gera við það svo
vel væri. Burðarvirki hússins er
illa farið og er talin nauðsyn á að
bæta það. óþh
Sj ávarútvegsfr æ ði:
Kannski ágreiningur um
leiðir en ekki markmið
- segir Sigmundur Guðbjarnason, rektor Háskóla íslands
„Markmiöið hlýtur að vera að
efla menntun á sviði sjávarút-
vegs. Ef um einhvern ágrein-
ing er að ræða tel ég hann vera
um leiðir en ekki markmið,“
sagði Sigmundur Guðbjarna-
son, rektor Háskóla Islands,
þegar hann var inntur eftir því
hvort nýstofnaðri Sjávarút-
vegsstofnun Háskólans væri
stefnt gegn fyrirhugaðri sjávar-
útvegsbraut við Háskólann á
Akureyri.
„Sjávarútvegsstofnun er eins-
konar rannsóknarvettvangur og
alveg óháð fyrirhugaðri starfsemi
á Akureyri," segir Sigmundur.
Rektor segist fallast á að fyrir
hendi sé ákveðin togstreita milli
skólanna sem birtist í ágreiningi
um leiðir í kennslu sjávarútvegs-
fræða. „Ég hef rætt við forsvars-
menn Háskólans á Akureyri og
sjávarútvegsbrautar skólans og
þar kom fram vilji til samvinnu
og með hvaða hætti hún gæti
verið. Ég lít því svo á að um
þessa hluti geti tekist jafn góð
samvinna eins og um kennslu í
hjúkrunarfræði,“ segir Sigmund-
ur Guðbjarnason. óþh
Húsnæðismál HA:
Réttir aðilar munu
íjalla um málið
- segir aðstoðarmaður prmálaráðherra
„Spurningin snýst um að menn
verða að klára sig af með
ákvörðun vegna fjárlaga fyrir
næsta ár,“ segir Svanfríður
Jónasdóttir, aðstoðarmaður
Qármálaráðherra, þegar hún
var innt eftir stöðu mála í
fjármálaráðuneytinu vegna
húsnæðismála Háskólans á
Akureyri.
Svanfríður segir að fyrir liggi
valkostir í skýrslu nefndar sem
fjallað hefur um húsnæðismál
HA og nú muni „réttir aðilar",
þ.e. ráðherrar fjármála og
menntamála setjast niður og taka
ákvörðun um hvaða leið verður
valin með húsnæði fyrir rann-
sóknaraðstöðu sjávarútvegs-
brautar HA.
„Það liggur fyrir að sjávarút-
vegsbrautin fer af stað eins og
ætlað var. Spurningin er hins veg-
ar sú með hvaða hætti,“ segir
Svanfríður. óþh