Dagur - 16.11.1989, Side 3
Fimmtudagur 16. nóvember 1989 - DAGUR - 3
-i
fréttir
F
Sérfræðingur frá norsku loffcgæðarannsóknarstofnuninni kannaði aðstæður fyrir álver í Eyjafirði:
Skoðaði Dysnes, Dagverðareyri og fleiri staði
- „Mengunarvarnir skipta mestu máli í allri umræðunni,“ segir Sigurður P. Sigmundsson
framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjaijarðar
Umræður um byggingu álvers
við Eyjafjörð gerast æ hávær-
ari og ekki síst í kjölfar þess
alvarlega atvinnuástands sem
íbúar svæðisins búa við um
þessar mundir. I síðustu viku
var staddur á Akureyri sér-
fræðingur frá norsku loftgæða-
rannsóknarstofnuninni og átti
hann m.a. fund með þeim Ingi-
mari Brynjólfssyni formanni
Héraðsnefndar Eyjafjarðar,
Sigúsi Jónssyni bæjarstjóra á
Akureyri og Sigurði P. Sig-
mundssyni framkvæmdastjóra
Iðnþróunarféiags Eyjafjarðar.
Auk þess sat Pétur Stefánsson
frá Almennu verkfræðistof-
unni fundinn en hann vann við
könnum á byggingu álvers í
Eyjafirði fyrir fimm árum.
Sigurður P. Sigmundsson sagði
að þessi norski sérfræðingur, sem
hér var staddur á vegum Iðnaðar-
Víðidalstungukirkja:
Minnst 100 ára vígsluaftnælis
kirkjunnar næstkomandi sunnudag
Mikið verður um dýrðir í Víði-
dalnum um næstu helgi. Á
sunnudag kl. 14 verður þess
minnst í sérstakri bátíðarmessu
í Víðidalstungukirkju að 100 ár
eru liðin frá vígslu kirkjunnar.
Kirkjan var vígð 17. nóvember
árið 1889 og á því 100 ára
afmæli á morgun, föstudag.
Búist er við miklu fjölmenni í
Víðidalstungukirkju á sunnudag.
Víst er að Víðdælingar og fólk úr
nágrannasveitum fjölmenna og
þá er vitað um marga brottflutta
Viðamikil frímerkjasýning AKKA
á Dalvík í apríl nk.:
Steftii að sérstakri átthaga-
sýningu um Kristján Eldjám
- segir Sveinn Jónsson,
frímerkjasafnari í Kálfsskinni
Dagana 20.-22. aprO nk. stend-
ur mikið til hjá ÁKKA, félagi
frímerkjasafnara á Dalvík og
nágrenni. Þá daga hefur verið
ákveðið að efna tii veglegrar
frímerkjasýningar á Dalvík,
sem ber yfirskrUtina DALSÝN.
Þetta er lang stærsta sýning
sem AKKA hefur staðið fyrir
til þessa. Um er að ræða verð-
launasýningu, samskonar sýn-
ingu og frímerkjasafnarar í
Reykjavík halda tíðum.
Að sögn Sveins Jónssonar,
frímerkjasafnara í Kálfsskinni á
Árskógsströnd, er stefnt að því
að vanda mjög til sýningarinnar.
Frímerkjasafnarar eru nokkuð
margir á svæðinu og eiga þeir
vegleg söfn. Sveinn segist hafa
áhuga á að setja upp sérstaka átt-
hagasýningu tileinkaða dr. Krist-
jáni Eldjárn, fyrrverandi forseta
íslands, sem eins og kunnugt er
var fæddur í Svarfaðardal. Hug-
mynd Sveins er að safna saman
sem flestum frímerktum umslög-
um skrifuðum af Kristjáni heitn-
um, sem fólk kann að hafa í fór-
um sínum. „Vegna þess að við
höldum sýninguna á Dalvík þykir
mér ástæða til að tengja hana
með þessum hætti við Svarfað-
ardal,“ segir Sveinn. Hann heitir
á alla sem kunna að eiga frímerkt
umslög frá dr. Kristjáni að láta
sig vita. Síminn hjá Sveini er 96-
61630. óþh
Víðdælinga sem af þessu tilefni
koma og gera sér glaðan dag með
sveitungum sínum.
Sóknarpresturinn, séra Kristján
Björnsson, þjónar fyrir altari og
Hólabiskup, Sigurður Guðmunds-
son, og Guðni Þór Ólafsson,
prófastur, taka þátt í messu-
gjörðinni. í upphafi messunnar
mun Ólafur B. Öskarsson, bóndi
í Víðidalstungu, gera stuttlega
grein fyrir sögu þessarar merku
kirkju.
Að lokinni hátíðarmessu býð-
ur sóknarnefnd til veglegs kaffi-
samsætis í Félagsheimilinu Víði-
hlíð. Þar verða flutt ávörp og
greint frá gjöfum sem Víðidals-
tungukirkju hafa borist á þessu
ári. Meðal annarra gjafa má
nefna flóðlýsingu við kirkjuna
sem kvenfélagskonur í Víðidal
hafa fjármagnað og höfðinglegar
gjafir til Víðidalstungukirkju til
minningar um Friðrik Karlsson
frá ættingjum hans.
óþh
Nemendur í Hafralækjarskóla:
Gefa út snældu með
lögum eftir nemendur
Á árshátíð Hafralækjarskóla,
þann 1. des. nk. verður tU sölu
snælda með söng og hljóðfæra-
leik nemenda skólans. Á
snældunni er fjölbreytt efni;
frumsamin lög eftir nemendur,
íslensk þjóðlög, popplög og
sígild verk. Snældan er fyrst og
fremst gefin út fyrir aðstand-
endur nemendanna en ekki
stendur til að selja hana á
almennum markaði.
Robert Faulkner, tónlistar-
kennari, hefur unnið við upptök-
urnar vegna útgáfu snældunnar.
Á henni eru nokkur lög sem sam-
in eru af börnunum sjálfum,
skólakórinn syngur 3-4 lög,
skólahljómsveitin, bæði lúðra- og
strengjasveit leikur, einnig leikur
tríó og ýmiskonar samspil og ein-
leikur nemenda verður á snæld-
unni auk söngs.
Mikil áhersla er lögð á tónlist-
arnám við Hafralækjarskóla og á
síðustu árum hafa nemendur sett
upp nokkra söngleiki. Er
skemmst að minnast uppsetning-
ar á Amal og næturgestunum,
sem þeir fluttu með aðstoð
kennara og foreldra um jólin í
fyrra. IM
MARKAÐUR
■ ■
FJOLNISGOTU 4b
áður Eyfirsk matvæli
ráðuneytisins, hafi verið að
skoða aðstæður við Straumsvík
og í Reyðarfirði og hann hefði
einnig verið fenginn til að skoða
aðstæður í Eyjafirði.
„Við fórum með hann út að
Dysnesi, sem er 14 km norður af
Akureyri og sýndum honum
aðstæður þar. Hann tók þar
myndir og skoðaði aðstöðuna og
þá lóð sem til greina kemur undir
álver. Einnig skoðaði hann
aðstæður á Dagverðareyri, sem
er 5-6 km norður af Akureyri en
sá staður þykir of nálægt bænum.
Auk þess fór hann víðar eftir
strandlengjunni. Hann mun svo
vinna úr þessum gögnum sínum
og er niðurstöðu að vænta um
næstu áramót."
Sigurður sagði einnig að þessi
norski sérfræðingur hafi verið
með ýmsar upplýsingar um norsk
álver og mengun af þeirra
völdum. „Þegar verið var að tala
um álver í Eyjafirði fyrir fimm
árum, var talað um 0,8 kg af flúor
á móti tonni af áli en nú eru nýju
norsku álverin komin niður í 0,4
kg af flúor á móti hverju tonni af
áli. Hvort þessi árangur næðist
hér er ekki hægt að segja um á
þessari stundu en það er þó ljóst
að mengunarvarnir verða sífellt
betri.
Það sem skiptir mestu máli í
allri umræðunni, eru mengunar-
varnir og því er mjög mikilvægt
að þessi könnun hafi farið fram.
Verði niðurstöðurnar jákvæðar
og menn treysta þeim niðurstöð-
um, ætti að verða enn breiðari
samstaða á meðal heimamanna,
um að vinna málinu framgang,“
sagði Sigurður
Von er á forsvarsmönnum ál-
fyrirtækja frá Svíþjóð og Hol-
landi til landsins á næstunni og
sagði Sigurður að reynt yrði að
ná tali af þeim. -KK
Akureyri:
Málverkasýning
í Félagsborg
Hólmfríður Dóra Sigurðar-
dóttir frá Hvammstanga, opn-
ar málverkasýningu í Félags-
borg á Akureyri í dag, fimmtu-
daginn 16. nóvember.
Sýningin sem er sölusýning
stendur til sunnudagsins 19
nóvember og er opin alla dagana
frá kl. 13-21. Sýnd verða olíumál-
verk, pastel, ljósmyndir og hand-
unnir skartgripir.
Skrifstofuherbergi
Tvö skrifstofuherbergi til leigu í
Gránufélagsgötu 4 (JMJ-húsinu).
Uppl. gefur Jón M. Jónsson, símar 24453 og 27630.
Haustfundur
••
Leikfélags Ongulsstaðahrepps
verður haldinn í Freyvangi 17. 11. kl. 20.30.
Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin.
Tilkynning til sölu-
_______skattsgreiðenda
VrcDiírjaa iobívAU'
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að gjalddagi
söluskatts fyrir októbermánuð er 15. nóvember.
Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna ríkissjóðs
ásamt söluskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
STlli