Dagur - 23.11.1989, Page 9
Fimmtudagur 23. nóvember 1989 - DAGUR - 9
Minning:
X Agnar Bragi Guðmundsson
Sólheimum, Blönduósi
Fæddur 17. ágúst 1919 - Dáinn 5. nóvember 1989
Agnar Bragi fagnaði sjötíu ára
afmæli á liðnu sumri. Var þá
hress og kátur og frískari en oft
hin síðari ár. Hann notaði
afmælisdaginn til þess að fara
ásamt konu sinni, börnum og
venslafólki í ferðalag um norð-
lenskar byggðir til þess að njóta
sýnar til hafs og heiða, því hann
var náttúrunnar barn, sem naut
dýrðar sköpunarverksins. Nú er
hann allur.
Agnar dó snögglega á heimili
sínu á Blönduósi 5. nóv. sl. Útför
hans var gerð frá Blönduóskirkju
11. s.m. að viðstöddu miklu fjöl-
menni. Kona Agnars var Lilja
Þorgeirsdóttir frá Hólmavík og
lifir hún mann sinn.
Þau hjönin eignuðust fjögur
börn, Guðmund Unnar meina-
tækni á Blönduósi, Magnús Rún-
ar starfsm. hjá Kaupfél. A-Hún-
vetninga, Sigurunni læknafull-
trúa á Akureyri og Agnesi Huldu
hjúkrunarfræðing búsetta á
Sauðárkróki. Áður en Agnar
kvongaðist eignaðist hann eina
dóttur, Bryndísi húsfreyju á
Mosfelli í Svínavatnshreppi.
Barnabörnin eru orðin ellefu. Því
nefni ég barnabörnin að þau voru
ekkert aukaatriði í lífi afa síns,
Agnars Braga.
Það er ekki ncma rúmur ára-
tugur síðan ég kynntist þeim
hjónum, Agnari og Lilju. Ég get
því ekki rakið æviferil Agnars af
eigin raun. Mér er þó kunnugt
um að hann var lengst af búsettur
á Blönduósi og vann fram eftir
árum sent smiður á trésmíða-
verkstæðum og við ýmsar bygg-
ingar. Ég hef það fyrir satt að
hann hafi í þeim störfum verið
bæði harðduglegur, hagsýnn og
útsjónarsamur verkamaður, vel
metinn og vinsæll félagi.
Vegna sjúkleika sem greip
hann á miðjum aldri hætti hann
störfum við trésmíðar og snéri sér
að búskap í auknum mæli. Kom
þá í ljós að á þeim vettvangi átti
hann ekki síður heima en á hin-
um fyrri. Hann yrkti jörðina,
ræktaði ágætt fé og eignaðist
afbragðs fjárstofn og eftirsóttan
er árin liðu, og þó voru hross og
hrossarækt hans aðal hugðarefni.
Hann var skynugur hestamaður
og ágætur tamningarmaður svo
sem hann átti kyn til, sonur hins
þekkta hestamanns Guðmundar
Agnarssonar.
Þegar við hjónin kynntumst
þeim Agnari og Lilju vegna sam-
búðar og hjónabands sonar okk-
ar og dóttur þeirra, var okkur
auðvitað nokkur spurn í huga.
Mér þótti að sjálfsögðu ekki
Minjasafnið á Akureyri.
Opið á sunnudögum frá kl. 14.00-
16.00.
Náttúrugripasafnið Hafnarstræti 81.
Sýningasalurinn er opinn á sunnu-
dögum kl. 1-4. Opnað fyrir hópa
eftir samkomulagi í síma 22983 eða
27395.
Takið eftir__________________
Al-Anon fjölskyldudeildirnar eru
félagsskapur ættingja og vina
alkoholista, sem samhæfa reynslu
sína, styrk og vonir svo að þau megi
leysa sameiginleg vandamál sín.
Við trúum að alkoholismi sé fjöl-
skyldusjúkdómur og að breytt við-
horf geti stuðlað að heilbrigði.
Við hittumst í Strandgötu 21:
Mánud. kl. 21.00, uppi.
Miðvikud. kl. 21.00, niðri.
Miðvikud. kl. 20.00, Alateen (ungi-
ingar).
Laugard. kl. 14.00, uppi.
Vertu velkomin(n)!
verra að vita það að Lilja var ætt-
uð af Ströndum, við áttum þá
það að minnsta kosti sameigin-
legt. Ekki er að orðlengja það að
okkar kynni urðu bæði skjót og
góð og höfum við hjónin síðan
verið tíðir gestir á heimili þeirra,.
Sólheimum. Þar hefur okkur ver-
ið tekið fagnandi sem góðum
gestum og veisluborð tilreitt
hverju sinni, eins og gestirnir
kæmu af erfiðum fjallvegi, hrakt-
ir og svangir. Hlýlegt viðmót
þeirra hjóna var á þann veg að
við höfum hlakkað til að koma
þar við á ferðum okkar, enda
sjaldan farið þar hjá garði.
Það varð ekki hjá þvf komist
að veita því athygli að Agnar
fylgdist vel með gangi mála á
heimavettvangi jafnt sem lands-
vísu og með veraldarviðburðum.
Kom þá ósjaldan upp glettni hans
og blik í augum þegar talað var
um skrýtna hluti og spaugilega.
Það var grunnt á grínistanum í
honurn.
Agnar var einstaklega barn-
góður og vildi allt fyrir þau gera.
1 einu vorum við keppinautar,
það var um hylli afadætranna
þriggja, sem við áttum sameigin-
lega. Og þó ég hefði síðasta árið
betri aðstöðu vegna nálægðar við
þær held ég að mér hafi verið
skammtaður smærri hlutur en
honum og orðið að láta í minni
pokann. Hann hafði líka eitt
tromp á hendi framyfir mig, það
var hesturinn Uggi gamli, hinn
heillandi félagi. Hann gat boðið
dótturdætrunum í hnakkinn og
reitt þær um kunna götuslóða. Ég
er þess fullviss að þær Lilja,
Sunna og Arna munu í hjarta
sínu sakna afa síns mjög og hans
hlýju handa. Þær senda honum
miklar þakkir fyrir allar samveru-
stundir fyrstu æviárin og hið ljúfa
og glettna atlæti hans í þeirra
garð alla tíð. Ég veit raunar að
öll hans barnabörn hafa sömu
sögu að segja og sakna hans í
samræmi við aldur sinn og
þroska.
Við hjónin þökkunt öll sam-
skipti við fjölskylduna á Sólheim-
um á Blönduósi síðan kynni okk-
ar hófust. Við söknum húsbónd-
ans á heimilinu, en vitum að eftir
lát hans njótum við sem áður vin-
áttu og hlýleika í því húsi og
munum þangað leita þegar við
verðum á leið um Blönduós,
hvort heldur ferðinni er einungis
heitið þangað, á Strandir eða
suðlægari slóðir.
Við sendum Lilju og fjölskyld-
unt hennar okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Guðjón Ingimundarson.
Ttíanu'slvi’cy(iiu>ai’
Sanngjamt verð
Glerárgötu 28, síml 22551, Akureyri.
Lífeyrissjóður Trésmiða
Skipagötu 14
Framhaldsaðalfundur
Stjórn Lífeyrissjóðs trésmiða, Akureyri boðar til
framhaldsaðalfundarfimmtud. 30. 11. 1989 kl. 18.00
í Alþýðuhúsinu, 4. hæð.
Dagskrá:
1. Rekstrarfyrirkomulag sjóðsins.
Fundarboð
Neytendafélag Akureyrar og nágrennis og Kaup-
mannafélag Akureyrar boða til fræðslufundar laug-
ardaginn 25. nóvember n.k. kl. 14.00 í Alþýðuhúsinu
Skipagötu 14, 4. hæð.
Efni fundarins:
Réttindi og skyldur kaupmanna og neytenda.
Stofnun kvörtunarnefndar NAN og kaupmanna.
Fyrirspurnir og umræður.
Fyrirlesarar verða Jóhannes Gunnarsson starfsmað-
ur verðlagsstofnunar og formaður neytendasamtak-
anna og Jón Magnússon lögmaður.
Allir þeir sem stunda verslun og þjónustu eru hvattir
til að mæta.
Neytendaféalg Akureyrar og nágrennis
Kaupmannafélag Akureyrar.
Til sölu
úr þrotabúi Híbýlis
Skrifstofuinnréttingar, svo sem skrifborð, stólar,
skápar, tölvur og peningaskápur.
Upplýsingar gefur Ólafur Ásgeirsson í símum 24825
og 21606.
AKUREYRARBÆR
Skemmtun
X-tríó heldur söngskemmtun í Húsi aldr-
aðra laugardaginn 25. nóv. kl. 20.30.
Kaffiveitingar og dans á eftir.
Fjölmennið og takið með ykkur gesti.
X-tríó og Félagsstarf aldraðra.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Rannsóknaaðstaða
við Atómvísindastofnun
Norðurlanda (NORDITA)
Við Atómvísindastofnun Norðurlanda (NORDITA)
í Kaupmannahðfn kann að verða völ á rann-
sóknaaðstöðu fyrir íslenskan eðlisfræðing á
næsta hausti. Rannsóknaaðstöðu fylgir styrkur til
eins árs dvalar við stofnunina. Auk fræöilegra
atómvísinda er við stofnunina unnt að. leggja
stund á stjarneðlisfræði og eðlisfræði fastra efna.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi í
fræðilegrj eðlisfræði og skal staðfest afrit próf-
skírteina fylgja umsókn ásamt ítarlegri greinar-
gerð um menntun, vísindaleg störf og ritsmíðar.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást í
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavík. Umsóknir skulu sendar í tvíriti til
NORDITA, Blegdamsvej 17, DK-2100 Köben-
havn Ö, Danmark, fyrir 1. desember n.k. Auk
þess skulu 2-3 meðmælabréf send beint til
Nordita.
Menntamálaráðuneytið,
14. nóvember 1989.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Laus staða
Staða sérfræðings við jarðfræðistofu Raunvís-
indastofnunar Háskólans er laus til umsóknar.
Æskilegt er að sérfræðingurinn starfi á sviði
aldursgreininga og tímatalsfræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsækjendur skulu hafa lokið meistaraprófi eða
tilsvarandi háskólanámi og starfað minnst eitt ár
við rannsóknir.
Starfsmaðurinn verður ráðinn til rannsókna-
starfa, en kennsla þeirra við Háskóla íslands er
háð samkomulagi milli deildaráðs raunvísinda-
deildar og stjórnar Raunvísindastofnunar Há-
skólans, og skal þá m.a. ákveðið, hvort kennsla
skuli teljast hluti starfsskyldu viðkomandi starfs-
manns.
Umsóknir, ásamt ítarlegri greinargerð og skilríkj-
um um menntun og vísindaleg störf, auk ítarlegr-
ar lýsingar á fyrirhuguðum rannsóknum skulu
hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
6, 150 Reykjavík, fyrir 15. desember nk.
Æskilegt er, að umsókn fylgi umsagnir frá 1-3
dómbærum mönnum á vísindasviði umsækj-
anda um menntun hans og vísindaleg störf.
Umsagnir þessar skulu vera í lokuðu umslagi
sem trúnaðarmál og má senda þær beint til
menntamálaráðuneytisins.
Menntaskólinn á Egilsstöðum. Kennara vantar
á vorönn til að kenna eftirtaldar greinar: Við-
skipta- og tölvugreinar og íþróttir og íélagsstörf.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfis-
götu 6, 150 Reykjavík fyrir 1. desember nk.
Menntamálaráðuneytið.