Dagur - 23.11.1989, Blaðsíða 10

Dagur - 23.11.1989, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Fimmtudagur 23. nóvember 1989 myndasögur dags ÁRLAND ANDRÉS ÖND HERSIR Efnaverksmiöja sem framleiðir eiturefni má^ búast viö vandræðum vegna losun þeirra. I/ÍJá. Viö erum aö eyðileggja umhverfiö| í nafni framfara. Stundum velti ég fyrir Hættu aö hugsa, Ted. Um 40% af allri uppskeru í Bandaríkjunum er hent í I ruslið. Hugsaöu um allar milljónirnar sem ^svelta ...____ Aöal vandamáliö eru þrjótarnir í verk- smiöjunni sem hlægja aö öllu eftirliti. Og dreþa ef meö þarf, eins og þeir qerðu við Carter-svsturnar. # Ferðasögur Margir hafa lent í hrakning- um á feröalögum á gömlum bílum. Síðasta sumar fór maður frá Akureyri til Reykjavíkur á áratugagöml- um jeppa. Ferðin sóttist frekar seint, enda farar- skjótinn tæplega fær um meiri hraða en 60 til 70 kíló- metra á klukkustund. Ekkert markvert gerðist á leiðinni til Reykjavíkur, og þótti mörgum það mesta furða að jeppinn skyldi þola akstur svo langa leið. Hann hafði staðið óhreyfður í 9 ár, og eftir allmikla vinnu hafði tekist að blása lífi í mótor- inn og fleiri hluti. # Sá gamli bilar Eftir nokkra dvöl í höfuð- borginni var haldið til Akur- eyrar á ný. Ekkert gerðist fyrstu 200 kílómetrana, en þá fór tvennt, segulrofi bil- aði í rafkerfinu og sömuleið- is gaf „startpungurinn“ upp öndina. Ekki horfði byrlega með áframhaldið, en bráða- birgðaviðgerð tókst með skrúfjárni þannig að hægt var að aka áleiðis. Skyndi- lega slokknuðu öll Ijós á bílnum: rafallinn var búinn að syngja sitt síðasta, og um leið fór að sjóða á vél- inni því vatnsdælan varð ónýt. Nú voru góð ráð dýr. Ný vatnsdæla var pöntuð í hvelli með rútunni frá Reykjavík, og kom hún að vörmu spori morguninn eftir. Þá var að finna nýjan rafal. í verkstæðisbyggingu nokkurri í Húnavatnssýslu var gamall jeppamótor, sömu gerðar og í umrædd- um farkosti, og þar með var málið næstum því leyst. # Eru tvær flöskur nóg? Sá galli var á gjöf Njarðar að eigandi gamla mótorsins var fjarstaddur, en þó náðist í manninn í síma. Var hann spurður um verð fyrir rafal- inn, en hann gat tæplega nefnt nokkra tölu. Datt þá ökumanni jeppans í hug að bjóða tvær rommflöskur fyr- ir rafalinn, og var því tilboði umsvifalaust tekið. Er þetta í eina skiptið sem ritara S&S er kunnugt um að skipt hafi verið á rommflöskum og rafal í 30 ára gamlan jeppa. dagskrá fjölmiðla Sjónvarpið Fimmtudagur 23. nóvember 17.00 Fræðsluvarp. 1. Ritun. - Ritgerðir. (8 mín.) 2. Algebra 5. þáttur. - Margliður. (10 mín.) 3. Umræðan. - Umræðuþáttur um þróun framhalds- skóla. 17.50 Stundin okkar. 18.25 Sögur uxans. 18.50 Táknmálsfréttir. 18.55 Hver á að ráða? 19.20 Benny Hill. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Fuglar landsins. 5. þáttur - Lundi. 20.50 Hin rámu regindjúp. Fyrsti þáttur. Ný þáttaröð sem fjallar um eldsumbrot á jörðinni og þróun jarðarinnar. 21.20 Samherjar. (Jake and the Fat Man.) 22.10 íþróttasyrpa. 22.35 „En þú varst ævintýr." Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Egill Ólafs- son flytja lög eftir Jóhann Helgason við ljóð Kristjáns frá Djúpalæk og Dávíðs Stefánssonar. 23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok. Stöð 2 Fimmtudagur 23. nóvember 15.30 Með afa. 17.00 Santa Barbara. 17.45 Benji. 18.10 Dægradvöl. (ABC's World Sportsman.) 19.19 19.19. 20.30 Evrópa 1992. Átakamikið eða áreynslulaust? 20.40 Áfangar. Eskifjörður og Gamla búð. 21.00 Sérsveitin. (Mission: Impossible.) Nýr bandarískur framhaldsþáttur um Phelps og njósnarana í Mission Imposs- ible sveitinni. Aðalhlutverk: Peter Graves, Tony Ham- ilton, Phil Morris, Thaao Penghlis og Terry Markwell. 21.55 Kynin kljást. 22.25 Mannaveiðar. (Jagdrevier.) Brodschella á aðeins eftir að afplána fá- eina daga innan fangelsisins þegar hann strýkur. Ætlun hans er að hafa hendur í hári „konungs" Niederau. Konungurinná hér um bil allt það sem hönd á festir í Schleswig-Holstein þorpinu og ræður þar lögum og lofum. Aðalhlutverk: Klaus Schwarzkopf, Wolf Roth, Jurgen Prochnow, John Tery. Bönnuð börnum. 00.00 Svo bregðast krosstré ... (Infidelity.) Ung hjón fjarlægjast hvort annað og ann- að þeirra á í ástarsambandi utan hjóna- bands. Þau skilja og reyna hvort um sig að hefja lífið upp á nýtt á eigin spýtur. Aðalhlutverk: Kirstie Aliey, Lee Horsley, Laurie O’Brien og Robert Englung. 01.35 Dagskrárlok. Rás 1 Fimmtudagur 23. nóvember 6.45 Veðurfregnir • Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 í morgunsárið. - Erna Guðmundsdóttir. Fréttayfiriit kl. 7.30 og 8.30, fréttir Ú. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Augiýsingar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00. 9.00 Fróttir • Auglýsingar. 9.03 Neytendapunktar. 9.20 Morgunleikfimi. 9.30 Landpósturinn - Frá Austurlandi. Umsjón: Haraldur Bjarnason. 10.00 Fréttir. 10.03 Þingfréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ég man þá tíð. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. 11.53 Á dagskrá. 12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar. 12.10 Evrópufréttir. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Veðurfregnir • Dánarfregnir • Aug- lýsingar. 13.00 í dagsins önn - Upp á kant. 13.30 Miðdegissagan: „Turninn útá heimsenda" eftir William Heinesen. Þorgeir Þorgeirsson les þýðingu sína (8). 14.00 Fróttir. 14.03 Snjóalög. Snorri Guðvarðarson blandar. 15.00 Fróttir. 15.03 Leikrit vikunnar: „Meðþigað veði", framhaldsleikrit eftir Graham Greene. Þriðji og síðasti þáttur. 16.00 Fréttir. 16.03 Dagbókin. 16.08 Á dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fróttir. 17.03 Tónlist á síðdegi. 18.00 Fróttir. 18.03 Að utan. 18.10 Á vettvangi. 18.30 Tónlist • Auglýsingar ■ Dánarfregnir. 18.45 Veðurfregnir • Auglýsingar. 19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Auglýsingar. 19.32 Kviksjá. 20.00 Litli barnatíminn: „Ólánsmerki", smásaga eftir Líneyju Jóhannsdóttur. Sigríður Eyþórsdóttir les fyrri hluta sög- unnar. 20.15 Tónlistarkvöld Útvarpsins - í minn- ingu Vladimirs Horovits. 22.00 Fréttir. 22.07 Að utan. 22.15 Veðurfregnir • Orð kvöldsins • Dagskrá morgundagsins. 22.30 Stefnumót við Jerzy Kosinsky. Dagskrá um höfundinn. 23.10 Uglan hennar Mínervu. Arthúr Björgvin Bollason ræðir við Jón Björnsson félagsmálastjóra um forlög og forlagatrú. 24.00 Fréttir. 00.10 Samhljómur. 01.00 Veðurfregnir. Rás 2 Fimmtudagur 23. nóvember 7.03 Morgunútvarpið - Úr myrkrinu, inn í ljósið. Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson hefja daginn með hlustendum. 08.00 Morgunfréttir. - Spaugstofan. 9.03 Morgunsyrpa. Eva Ásrún Albertsdóttir og Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir. Neytendahom kl. 10.03 og afmæliskveðj- urkl. 10.30. Spaugstofan kl. 10.55. Þarfa- þing með Jóhönnu Harðardóttur kl. 11.03 og gluggað í heimsblöðin kl. 11.55. 12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar. 12.20 Hádegisfréttir. 12.45 Umhverfis landið á áttatíu með Gesti Einari Jónassyni. (Frá Akur- eyri.) 14.03 Hvað er að gerast? Lísa Pálsdóttir kynnir allt það helsta sem er að gerast í menningu, félagslífi og fjöl- miðlum. 14.06 Milli mála. Árni Magnússon leikur nýju lögin. Stóra spurningin. Spurningakeppni vinnustaða, stjórnandi og dómari Flosi Eiríksson kl. 15.03. 16.03 Dagskrá. Dægurmálaút varp. Stefán Jón Hafstein, Guðrún Gunnars- dóttir, Sigurður Þór Salvarsson, Þorsteinn J. Vilhjálmsson og Sigurður G. Tómasson. Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00. Stórmál dagsins á sjötta tímanum. 17.30 Meinhornið: Óðurinn til gremjunn- ar. 18.03 Þjóðarsálin - Þjóðfundur í beinni útsendingu sími 9138500. 19.00 Kvöldfréttir. 19.32 „Blítt og létt.. Gyða Dröfn Tryggvadóttir rabbar við sjó- menn og leikur óskalög. 20.30 Útvarp unga fólksins: 21.30 Fræðsluvarp: „Lyt og lær". Sjötti þáttur dönskukennslu á vegum Bréfaskólans. 22.07 Rokksmiðjan. Sigurður Sverrisson. 00.10 í háttinn. 01.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns. Fréttir kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9, 10, 11, 12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22 og 24. Næturútvarpið 1.00 Áfram ísland. 2.00 Fréttir. 2.05 Smoky Robinson og tónlist hans. 3.00 „Blítt og létt..." 4.00 Fréttir. 4.05 Glefsur. 4.30 Veðurfregnir. 4.40 Á vettvangi. 5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam- göngum. 5.01 A djasstónleikum. 6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam- göngum. 6.01 í fjósinu. Ríkisútvarpið á Akureyri Fimmtudagur 23. nóvember 8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands. 18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands. Bylgjan Fimmtudagur 23. nóvember 07.00 Haraldur Kristjánsson og Sigur- steinn Másson. Fréttatengdur morgunþáttur, veður, færð og samgöngur á landi og láði. Slegið á þráðinn, jólabækurnar teknar til umfjöllunar, kíkt í blöðin. 09.00 Páll Þorsteinsson. Vinir og vandamenn kl. 9.30. 12.00 Hádegisfréttir. 12.15 Kjötmiðstöðvardagurinn. 15.00 Bjarni Ólafur Guðmundsson og allt það helsta úr tónlistarlífinu. Kvöldfréttir frá kl. 18-18.15. 19.00 Snjólfur Teitsson í kvöldmatnum. 20.00 Hafþór Freyr Sigmundsson. Bíókvöld á Bylgjunni. Fjallað um kvik- mynd vikunnar og kíkt í kvikmyndahúsin. 24.00 Á næturrölti með Freymóði T. Sigurðssyni. Hljóðbylgjan Fimmtudagur 23. nóvember 17.00-19.00 Létt síðdegistónlist. Óskalaga- síminn opinn. Stjórnandi: Pálmi Guðmundsson. Fróttir kl. 18.00.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.