Dagur - 23.11.1989, Qupperneq 11
Fimmtudagur 23. nóvember 1989 - DAGUR - 11
fþróttir
í-
Lyftingar:
Akureyrmgarnir allir á pail
Akureyringar áttu þrjá menn á
Bikarmóti Kraftlyftingasam-
bands Isiands sem fram fór í
Garðabæ á iaugardaginn og
komust þeir allir á verðlauna-
pall. Kári Elíson sigraði í 75 kg
flokki, Jóhann Guðmannsson
lenti í öðru sæti í 67,5 kg flokki
og Flosi Jónsson fékk silfrið í
100 kg flokki.
Kári Elíson sigraði örugglega í
75 kg flokknum. Hann lyfti 252,5
kg í hnébeygju og er það nýtt
Akureyrarmet. Síðan fór hann
upp með 165 kg í bekkpressu og
250 kg í réttstöðulyftu, samanlagt
667,5 kg.
Jóhann Guðmannsson sýni það
og sannaði að hann er einn efni-
legasti kraftlyftingamaður
landsins. Hann lyfti 135 kg í
hnébeygju, 85 kg í bekkpressu og
145 kg í réttstöðulyftu. Saman-
- Kári að vanda með gullið
Jóhann Guðmannsson (efri mynd)
náði í silfur í 67,5 kg flokki á Bikar-
móti KRAFT um helgina og sýndi
að hann er kraftlyftingamaður fram-
tíðarinnar. Kári Elíson (neðri
mynd) sigraði að vanda í sínum
þyngdarflokki og setti Akureyrar-
met í hnébeygju.
Karfa:
Stjömuleikur á Króknum
- Jonathan Bow sigraði í troðslukeppni
Það var sannkallaður stjörnu-
leikur sem áhorfendur fengu
að sjá í íþróttahúsinu á Sauðár-
króki á þriðjudaginn var. Þá
komu í heimsókn flestir
útlendingarnir sem leika í
Úrvalsdeildinni og öttu kappi
við heimamenn.
Stólarnir höfðu undirtökin
framan af en gestirnir jöfnuðu
um miðjan hálfleikinn og komust
yfir. í hálfleik var staðan 45:50.
Seinni hálfleikur var nær
algjörlega eign gestanna og
sýndu þeir oft tilþrif sent ekki
hafa sést áður á fjölum íþrótta-
hússins. Léttleikinn var í fyrir-
rúmi og greinilegt var að þessi
VETRARSKOÐUN
NISSAN
Það margborgar sig að fara í vetrarskoð-
un því allt þetta er innifalið:
1. Skipt um kerti.
2. Skipt um bensínsíu.
3. Vélarstilling.
4. Ástand loftsíu athugað.
5. Viftureim strekkt.
6. Kúpling stillt.
7. Olía mæld á vél og gír-
kassa.
8. Rafgeymir mældur og
rafpólar hreinsaðir.
9. Frostþol kælivökva vél-
ar mælt. Frostlegi bætt
á ef með þarf.
10. Ástand pústkerfis
athugað.
11. Bremsur reyndar.
12. ísvara bætt á rúðu-
sprautur.
13. Hurðalæsingar og lamir
smurðar.
14. Silikonbornir þéttikant-
ar á hurðum.
15. Loftþrýstingur hjól-
barða mældur.
16. Stýrisbúnaður kannað-
ur.
17. Hjólalegur athugaðar.
18. Ástand rúðuþurrkna
skoðað.
19. Ljósastilling.
20. Reynsluakstur.
21. Öryggisbelti prófuð.
Bjóðum hjólastillingu í bestu láanlegu tækjum.
Verð aðeins krónur 5.800
Efni innifalið (Betur verður vart boðið.)
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 22520 - Akureyri.
leikur var leikinn fyrir áhorfend-
ur sem voru rúmlega 600! Það fór
svo að erlendu leikmennirnir
sigruðu örugglega 93:116.
Sandy Anderson var sá maður
sem vakti mesta hrifningu áhorf-
enda. Hann er greinilega mikill
sprellikarl og notfærði hann sér
það í tíma og ótíma. Patrick
Releford átti einnig góðan leik
og skoraði m.a. fallegustu körfu
leiksins, með aðstoð Andersons.
Jónathan Bow sýndi einnig að
hann er frábær leikmaður og
sama má segja um Chris
Behrends sem hitti ótrúlega vel.
Bestur heimamanna var án efa
Sturla Örlygsson. Bo Heiden átti
ágæta spretti en hefði mátt skila
varnarhlutverkinu betur.
Stigahæstir Stólanna voru Bo
nteð 30 og Sturla nteð 23.
Chris Behrends skoraði 28 fyr-
ir útlendingana og Anderson
24. kj
lagt gerði þetta 365 kg og dugði
það honum í 2. sætið í sínum
þyngdarflokki. Það þarf varla að
taka það fram að Jóhann setti
Akureyrarmet í öllum greinun-
um.
Flosi Jónsson lenti í hörku-
keppni við Guðna Sigurjónsson í
100 kg flokki. Flosi hafði nokkra
yfirburði eftir tvær fyrstu grein-
arnar, hann lyfti 290 kg í hné-
beygju og 167,5 kg í bekkpressu.
Guðni gerði sér þá lítið fyrir og
sló íslandsmetið glæsilega í þess-
um flokki í réttstöðulyftu og lyfti
327,5 kg. Það dugði honum til
sigurs og Flosi varð að sætta sig
við annað sætið á mótinu.
Keppendur á mótinu voru
rúmlega fjörtíu og hafa þeir
aldrei verið svo margir. Jón
Gunnarsson sigraði glæsilega í 90
kg flokki og segja kunnugir að
hann hafi alla burði til þess að
vera í fremstu röð í Evrópu í sín-
um flokki. Magnús Ver Magnús-
son var eini keppandinn í yfir-
þungavigt og lyfti mestu þyngd
sem íslendingur hefur lyft í bekk-
pressu, 245,5 kg. Hann var
nálægt því að lyfta 250 kg en rétt
missti þá þyngd niður. Það er
greinilegt að Seyðfirðingurinn er
í miklum ham um þessar rnundir.
Ársþing KSÍ:
Verður 3. deildinni
skipt upp á ný?
- tillaga þess efnis
að öllum líkindum lögð fram
Tillaga þess efnis að 3. deildin
í knattspyrnu verði áfram leik-
in í tveimur riðlum verður að
öllum líkindum lögð fram á
Arsþingi KSÍ sem fram fer í
Reykjavík um aðra helgi.
Það eru nokkur lið á Suð-Vest-
urlandi úr 3. og 4. deild, sem
leggja þessa tillögu fram því
fyrirsjáánlegt er að ferða- og
dómarakostnaður verður mjög
hár í þessari deild. Samkvæmt
heimildum Dags er töluvert fylgi
við þessa hugmynd því gera má
ráð fyrir því að kostnaður hjá
einstaka liðum hækki um rúm-
lega 700 þúsund krónur við það
að spila í einni 3. deild.
Snorri Finnlaugsson formaður
knattspyrnudeildar Dalvíkur
staðfesti að haft hefði verið sam-
band við þá og þessi mál rædd.
Snorri sagði að Dalvíkingar
hefðu nú ekki markað sér stefnu í
þessu máli en hann vildi ekki af-
skrifa þessa tillögu.
Að sögn Vilhjálms Sigurhjart-
arsonar hjá Ungmennafélaginu
Víkverja í Reykjavík, en þeir
Víkverjamenn hafa haft for-
göngu um þetta mál ásamt
Gróttu, Leikni og Leikni Fá-
skrúðsfirði, er hugmyndin að
strax næsta sumar verði leikið
samkvæmt gömlu reglunum sem
giltu um 3. deildina. Að vísu yrði
fjölgað þannig að 10 lið spiluðu í
hvorum riðli. Síðan færu tvö
efstu liðin í hvorum riðli í úrslit
og tvö þeirra síðan upp í 2. deild.
Jafnvel eru uppi hugmyndir að
Aðalfundur KRA:
Nýr formaður kosirni
Rúnar ekki lengur gjaldgengur
láta þriðja neðsta liðið í 2. deild
leika til úrslita við þriðja efsta
liðiö í 3. deild um laust sæti.
Aöalfundur Knattspyrnuráðs
Akureyrar verður haldinn í
kvöld í fundarherbergi ÍBA í
íþróttahúsinu við Laugagötu.
Rúnar Steingrímsson sem
gegnt hefur sæti formanns
KRA undanfarin ár er ekki
lengur gjaldgengur í það sæti
vegna þess að félögin skiptast
um á að tilnefna formann til
tveggja ára. Næsti formaður
kemur því úr röðum KA-
manna því Rúnar var fulltrúi
Þórs í ráðinu.
Þeir sem hafa rétt til setu á
þessu þingi er fulltrúar KA, Þórs
og Vasks. Einnig hafa áheyrnar-
fulltrúar frá Knattspyrnudómara-
félagi Akureyrar, ÍBA, KSÍ,
TBA og íþróttayfirvöldum í bæn-
um rétt til setu á þinginu.
Helstu mál þingsins verða
umræður um innanhússmót á
vegum KRA og almennar
untræður um stöðu knattspyrn-
unnar á Akureyri og svo auðvitað
venjulega aðalfundarstörf.
Búist er við að knattspyrnu-
deild TBA verði samþykkt inn í
KRA á þinginu en sú deild var
stofnuð síðastlið vor.
Staðan
Blak 1. deild karla:
ís 6 6-0 18:4 12
KA 4 3-1 10:5 6
Þróttur R. 4 2-2 8:8 4
Þróttur N. 6 2-4 4:7 4
HSK 3 1-2 4:7 2
HK 4 1-3 5:9 2
Fram 3 0-3 1:9 0
Blak 1. deild kvenna:
Víkingur 4 4-0 12: 3 8
ÍS 5 4-1 13: 6 8
UBK 3 3-0 13: 6 6
KA 4 3-111: 3 6
Þróttur R. 5 1-4 3:13 2
Þróttur N. 5 1-4 5:16 2
HK 5 0-5 3:15 0
Handbolti 2. deild:
Fram 6 6-0-0 149:123 10
Valur-b 6 4-0-2 141:126 8
Haukar 5 3-0-2 128:115 6
Þór 4 2-1-1 105: 97 5
ÍBK 5 2-1-2 107:100 5
FH-b 5 2-0-3 110:129 4
Njarðvík 5 2-0-3 109:128 4
Selfoss 6 1-2-3 125:129 4
UBK 5 1-0-4 100:114 2
Ármann 5 1-0-4 108:121 2
3 deild
A-riöill
Víkingur-b 6 5-0-1 179:156 10
Haukar-b 5 4-0-1 132:113 8
UMFA 4 4-0-0 95: 76 6
ÍS 4 2-1-1 98: 85 5
ÍR-b 5 1-2-2112:119 4
UFHÖ 5 1-1-3 108:116 3
Stjarnan-b 6 1-0-5 140:150 2
KR-b 5 1-04 114:142 2
ÍBÍ 2 0-0-2 41: 62 0
B-riðilI
Fram-b 4 4-0-0 123:110 8
UBK-b 5 4-0-1 123:110 8
ÍH 5 3-1-1 140:113 7
Völsungur 5 3-1-1 138:113 7
Fylkir 4 2-0-2 90:108 4
Grótta-b 4 1-1-2 90: 99 3
Armann-b 5 1-1-3 122:141 3
Ögri 4 0-04 100:128 0
Reynir 4 0-04 74:120 0