Dagur - 05.12.1989, Blaðsíða 2

Dagur - 05.12.1989, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 5. desember 1989 Aðventukvöld á Akureyri: Á annað þúsund manns í Akureyrar- og Glerárkirkju Áætlað er að hátt í 1400 manns I hafi sótt aðventukvöld í Akur- eyrar- og Glerárkirkju í fyrra- kvöld, að kvöldi fyrsta sunnudags í aðventu. Setið var í öllum sæt- um í kirkjunum og á fjölda aukastóla og þá stóð fjöldi manns. Það var mál manna að aldrei hefðu jafn margir sótt aðventukvöld í Akureyrarkirkju og sr. Pétur Þórarinsson, sóknar- prestur í Glerársókn, sagði í sam- tali við Dag í gær að kirkjusókn hefði farið fram úr björtustu vonum. Ólafur H. Oddsson, hér- aðslæknir, var ræðumaður á aðventukvöldi í Akureyrarkirkju en Margrét Jónsdóttir á Löngu- mýri í Skagafirði talaði á aðventu- kvöldi í Glerárkirkju. Andrés Pétursson tók meðfylgjandi myndir í Akureyrarkirkju. Önn- ur þeirra sýnir hluta af Kór Barnaskóla Akureyrar og Kór Akureyrarkirkju, en þeir sungu saman „Hátíð fer að höndum ein“ og „Guðs kristni í heirni." Á hinni myndinni sést er ung stúlka gengur með kertaljós fram í kirkjuna til að kveikja á kertum sem kirkjugestir héldu á. óþh Viðburðarík helgi á Króknum: Piltur fannst meðvitunarlaus - málið að fullu upplýst Smásagnasamkeppni Dags og MENOR: Gjaldþrot og dauði algeng viðfangsefiii - verðlaunaafhendingu frestað til 15. desember Síðasta helgi var nokkuð anna- söm hjá lögreglunni á Sauðár- króki. Á föstudagskvöldið fór fram dansleikur á vegum Fjöl- brautaskólans og var hann tals- vert róstursamur. Eftir hádegi á föstudag var hins vegar tilkynnt um hlöðu- bruna á bænum Dalsmynni í Hólahreppi. Þar mun hey hafa ofhitnað og orsakað brunann. Bæjarstjórn Akureyrar mun í dag fjalla um mál vegna prentvélar sem staðsett er í fyrirtækinu Prentlundi. Lögð hefur verið fram tillaga frá formanni atvinnumálanefnd- ar bæjarins um að samþykkt verði að fella niður veð Fram- kvæmdasjóðs í vélinni, að uppfylltum ákveðnum skil- yrðum. Forsaga málsins er allflókin. Umrædd vél var keypt af prent- smiðjunni Fonti. Þó var vélin skráð eign Prentsmiðju G. Benediktssonar. Fontur varð seinna gjaldþrota, eins og kunn- ugt er, en prentvélin var þó ekki talin til eigna búsins og kom því ekki til skipta. Eigendur Fonts sóttu á sínum tíma um lán hjá Framkvæmda- sjóði Akureyrar til að kaupa vélina. Umsóknin var sam- þykkt, tekið var veð í húsinu Skjaldborg og vélinni sjálfri auk persónulegrar ábyrgðar aðaleig- enda Fonts. Þegar Skjaldborg var manni m.a. ógnað með hnífi. Það mál er nú í rannsókn. Um kl. hálf sex á laugardagsmorguninn fannst svo piltur meðvitundarlaus skammt frá Bifröst. Hafði hann hlotið andlitsáverka og einhver önnur meiðsli. Það mál er nú að fullu upplýst. i var boðin upp fékkst ekkert greitt upp í andvirði vélarinnar. Þar með var fyrsta tryggingin fallin. Þá var eftir ábyrgð eig- endanna og veðið í sjálfri vél- inni. Bæjarstjórn Akureyrar ákvað í sumar að falla frá þeirri trygg- ingu sem var í prentvélinni, gegn því að umrædd prent- smiðja þar sem vélin er notuð yrði endurskipulögð. Aldrei var þó gengið í slíka endurskipu- lagningu, samkvæmt heimildum innan bæjarkerfisins, en hins vegar fékkst skuldbreyting við kaupleigufyrirtækið Glitni. Þessi skuldbreyting þýddi að lán sem hvíldu á vélinni hjá Iðn- lánasjóði voru yfirtekin, en þau voru á nafni G. Benediktsson. Eigendur prentsmiðjunnar fengu prentvélina þannig á kaupleigu. Álitu eigendurnir að við þessa breytingu hefði veð Framkvæmdasjóðs fallið brott, en svo var ekki að dómi bæjar- ins. Glitnir heldur því fram að Hin óvæntu viðbrögð við bærinn hafi ekki Iengur um- rædda tryggingu í vélinni. Sam- kvæmt heimildum Dags vakir það fyrir aðilum innan bæjar- kerfisins að halda prentvélinni áfram í bænum, en Glitnir hefur selt Ásprenti kröfu sína í vél- inni, gegn því að Akureyrarbær falli frá sínum kröfum og veð- rétti. Eftir sem áður heldur bær- inn til streitu kröfum á ábyrgð- armennina, þar sem lánið úr Framkvæmdasjóði er ennþá ógreitt. Skilyrði atvinnumálanefndar eru þau að að fjármögnunarfyr- irtækið Glitnir falli frá kostnaði vegna kaupleigusamnings og dráttarvaxta að upphæð kr. 375.000.- Bæjarlögmanni verði falið að innheimta skuld hjá ábyrgðarmönnum. Heimir Ingimarsson sat hjá við atkvæðagreiðslu í atvinnu- málanefnd, er nefndin sam- þykkti tillöguna. Björn Jósef Arnviðarson lagði til að veði Framkvæmdasjóðs verði aflýst án skilyrða. EHB föstudaginn 15. desember kl. 16 I Gamla Lundi, en upphaf- lega var gert ráð fyrir að nefndin myndi Ijúka störfum nk.sunnudag. Sverrir Páll Erlendsson, menntaskólakennari, er formað- ur dómnefndarinnar. Hann sagði að aðstandendur samkeppninnar hefðu gert ráð fyrir að fá í kring- um 30 sögur og miðað tilhögun við þann fjölda, en sú staðreynd að rúmlega 100 sögur komu á borð dómnefndar hefði óneitan- lega sett strik í reikninginn. Aðspurður sagði Sverrir Páll að í grófum dráttum mætti skipta smásögunum í tvennt, annars vegar eiginlegar sögur og hins vegar frásagnir. En hvað liggur höfundum helst á hjarta? „Þær fjalla afskaplega margar um dauða með ýmsu móti. Býsna margar fjalla um gjaldþrot, ýmist veraldleg gjaldþrot fyrirtækja eða gjaldþrot í mannlegri tilveru. Skammdegið er mjög áberandi í sögunum," sagði Sverrir Páll. Áframhaldandi annríki verður hjá dómnefndarmönnum á næst- unni. Þeir eiga eftir að finna söguna sem þeir geta komið sér saman um að sé betri en hinar og bjóst Sverrir Páll við að það gæti orðið erfitt verk því þrátt fyrir að sögurnar hafi verið flokkaðar eft- ir gæðum koma enn margar til greina. SS dagblaðið ykkar UailMClKllUlIl UCIII IdldU Vdl um í upphafi var fjöldi manns saman kominn á hinum árlega 1. desemberfagnaði N.F.á S. Mikil ölvun var meðal ballgesta og brutust út talsverð læti er ballinu lauk. í einum af þessum látum Undanfarið hafa ungir drengir sprautað allslags ókvæðisorð á ýmsa staði í bænum m.a. biðskýli skólabílsins. Lögreglan er nú komin á spor þeirra sem gerðu þetta og búast má við því að mál- ið upplýsist fljótlega. f gærmorgun kviknaði svo í feitipotti í sjoppu en tjón varð ekki mikið að sögn lögreglu. kj siiiasagiiu&iuiiiKeppiii uags og MENOR hafa sett dómnefnd- ina í nokkurn vanda og hefur hún nú ákveðið að fresta til- kynningu úrslita og afhendingu verðlauna. Nefndin mun gera grein fyrir niðurstöðum sínum Bæjarstjórn og Atvinnumálanefnd Akureyrar: Sáttatilboð vegna bæjar- ábyrgðar á prentvel fréttir Akureyri: Bæjarmála- punktar ■ Formaður Starfsmanna- félags Akureyrarbæjar hef- ur með bréfi til bæjarráðs, tilkynnt uppsögn á gildandi kjarasamningi á milli STAK og Akureyrarbæjar, frá og með 31. desember að telja. ■ Hafnarstjóri lagði fram á fundi hafnarstjórnar nýlega, kaupsamning milli Hafnar- sjóðs Akureyrar og Lands- banka íslands, um kaup Hafnarsjóðs á húseigninni við Strandgötu 61 á Akur- eyri,*ásamt tilheyrandi lóð- arréttindum, þar með talin eignarlóð. Kaupverðið er 18,4 milljónir og hefur hafn- arstjórn samþykkt samning- inn. ■ Skólanefnd Verkmennta- skólans á Akureyri, hefur með tilvísun til 32. greinar laga nr. 57/1988 með inn- felldum breytingum laga nr. 107/1988 nr. 72/1989 um framhaldsskóla, óskað eftir við menntamálaráðuneytið að gerður verði samningur um fjármál VMA, er taki gildi hinn 1. janúar 1990. ■ Með tilvísunar til sömu lagagreinar, er einnig óskað eftir því að VMA verði heimilað að ráða fjármála- stjóra frá 1. janúar 1990, með sömu launakjörum og gilda fyrir slíkt starf við Fjölbrautaskólann í Breið- holti. ■ í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 1990, er gert ráð fyrir 40,2 milljónum króna til nýbygginga Verkmennta- skólans á Akureyri. Stjórn VMA hefur óskað eftir því til fjárveitinganefndar, að hún beiti sér fyrir því að til- laga byggingadeildar mennta- málaráðuneytisins um fram- lag til byggingaframkvæmda við VMA árið 1990, að upp- hæð 52,6 milljónir króna, nái fram að ganga. ■ Á fundi félagsmálaráðs nýlega, voru lagðir fram biðlistar dagvista frá 1. nóvember sl. en þá voru 311 börn á biðlista. ■ Umhverfisnefnd hefur samþykkt uppdrátt sem lagð- ur var fram á fundi nýlega, af Leirutjörn, plani yfir upp- fyllingu og landmótun við austurbakka tjarnarinnar. Nefndin hefur falið umhverfisstjóra að kynna uppdráttinn fyrir skipulags- nefnd og jafnframt að láta fullvinna deiliskipulag af umhverfi Leirutjarnar. ■ Á fundi umhverfisnefnd- ar nýlega, lagði umhverfis- stjóri fram uppdrátt af óshólmum Eyjafjarðarár, þar sem fram koma landa- merki. í framhaldi af því ræddu nefndarmenn hug- myndir um að gera svæðið að fólkvangi. ■ Atvinnumálanefnd barst nýlega erindi frá Raftákn hf., þar sem vakin er athygli á í hversu stórum stíl er leit- að til þjónustuaðila utan Akureyrar með verkefni (vinnu).

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.