Dagur - 05.12.1989, Blaðsíða 10

Dagur - 05.12.1989, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 5. desember 1989 íþróttir Enska knattspyrnan: Chelsea steinlá á „Bnnmi“ Liverpool áfram efst - Aston Villa óstöðvandi Leikmenn Wimbledon höfðu svo sannarlega ástæðu til að fagna á laugardag eftir að hafa burstað Chelsea. Það var ekki mikið um óvænt úrslit í ensku knattspyrnunni á laugardaginn, en þó urðu mjög svo óvænt úrslit í einum leik í 1. deild. Sama var uppi á ten- ingnum í leikjum 2. deildar og því varð ekki mikil breyting á stigatöflunum. Chelsea var eitt fjögurra liða á toppi 1. deildar fyrir leiki helgar- innar og átti heimaleik gegn Wimbledon. Það bjuggust því flestir við því að liðið bætti við sig þrem stigum, en annað kom á daginn. Wimbledon fékk fimm marktækifæri í leiknum og nýtti þau öll, Chelsea hins vegar mis- notaði megnið af sínum færum og varnarleikur liðsins var slakur. Kerry Dixon náði forystu fyrir Chelsea strax á fyrstu mín. leiks- ins með mjög góðu marki og flestir bjuggust við að heimaliðið David Platt skoraði glæsilegt úr- slitamark fyrir Aston Villa gegn Nottingham For. Stí 1. iðan deild Liverpool 16 9-3-4 33:15 30 Arsenal 16 9-3-4 28:17 30 Aston Villa 16 9-3-4 27:17 30 Chelsea 16 7-6-3 24:16 27 Norwich 16 6-7-3 23:18 25 Southampton 16 6-6-4 33:27 24 Everton 16 7-3-6 23:22 24 Derby 16 7-3-6 21:13 24 Coventry 16 7-2-7 13:21 23 Nott. Forest. 16 6-4-6 21:16 22 Tottenham 15 6-4-5 22:22 22 Man. Utd. 15 6-3-6 23:21 21 Wimbledon 16 4-7-5 17:19 19 QPR 16 4-6-6 16:16 18 Luton 16 4-6-6 17:20 18 Millwall 16 4-5-7 23:24 17 Crystal Palace 16 4-4-8 18:34 16 Sheff. Wed. 17 4-4-9 11:26 16 Charlton 16 3-6-7 12:18 15 Man. City 16 4-3-9 21:32 15 2. deild Sheff.Utd. 20 12- 6- 2 34:20 42 Leeds Utd. 20 12- 5- 3 34:21 41 Newcastle 20 10- 6- 4 36:21 36 Sunderland 20 10- 6- 4 35:28 36 Oldham 20 9- 7- 4 27:20 34 Ipswich 20 9- 6- 5 32:26 33 Blackbum 20 7-10- 3 36:28 31 West Ham 20 8- 7- 5 31:23 31 Swindon 19 8- 6- 5 34:23 30 Plymouth 20 8- 3- 9 34:27 27 Wolves 20 7- 6- 7 29:26 27 Brighton 20 8- 2-10 30:29 26 Port Vale 20 6- 8- 6 24:24 26 W.B.A. 20 6- 6- 8 34:33 24 Oxford 20 6- 5- 9 27:31 23 Watford 20 6- 5- 9 22:26 23 Bournemouth 19 6- 4- 925:31 22 Middlesbr. 20 5- 6- 9 25:32 21 Leicester 20 5- 6- 9 22:30 21 Bradford 20 4- 8- 8 23:23 20 Barnsley 20 5- 5-10 22:41 20 Portsmouth 20 3- 8- 9 22:31 19 Stoke 20 2-9-9 17:3115 Hull 20 1-11- 8 19:28 14 færi með auðveldan sigur af hólmi. Leikmenn Wimbledon voru ekki á sama máli og Terry Gibson jafnaði strax á 2. mín., Dennis Wise kom síðan Wimble- don yfir og Gibson með sínu öðru marki kom Wimbledon í 3:1. Graham Roberts lagaði stöðuna fyrir Chelsea með marki úr vítaspyrnu fyrir hlé, en Wise með glæsilegu marki og síðan Alan Cork sem skoraði auðveld- lega fimmta mark Wimbledon tryggðu liði sínu óvæntan sigur. Niðurlæging leikmanna Chelsea var mikil, en markverði þeirra Dave Beasant hefur örugglega liðið verst gegn sínum gömlu félögum sem hann varð bikar- meistari með er Wimbledon sigr- aði Liverpool 1988 á Wembley. Liverpool hefur átt misjafna leiki að undanförnu, en liðið vann góðan sigur á útivelli gegn Man. City sem nú er án framkvæmda- stjóra. Markatalan gefur þó ekki rétta mynd af gangi leiksins, leik- menn City hefðu átt að fá meira út úr leik sínum. Liverpool lék án þeirra Alan Hansen, Steve Nicol og John Barnes sem eru meiddir og Gary Gillespie og Steve Staunton urðu að yfirgefa völlinn á laugardag vegna meiðsla. Það verður því ekki annað sagt en Liverpool hafi unnið gott dagsverk. Vörn Liverpool var heldur óörugg, en sóknarleikur- inn í góðu lagi. lan Rush skoraði tvö af mörkum Liverpool, það fyrra á 9. mín. og síðan mín. fyrir leikslok. Peter Beardsley sem átti mjög góðan leik og Steve Mc- Mahon skoruðu sitt markið hvor, mark McMahon mikið sólómark þar sem hann lék á hvern varn- armann City af öðrum áður en hann sendi boltann í netið hjá Andy Dibble markverði City. Eina mark City skoraði Clive Allen úr vítaspyrnu í síðari hálf- leik eftir að Bruce Grobbelaar í marki Liverpool hafði brotið á Trevor Morley, en Liverpool hafði yfir 1:0 í hálfleik. Grobb- elaar varði oft vel í marki Liver- pool og Peter Beardsley átti skot í stöngina hjá City í fyrri hálfleik, Liverpool er því áfram í efsta sæti 1. deildar. Aston Villa fylgir Liverpool fast eftir og hefur nú sigrað í átta af síðustu níu leikjum sínum. Um helgina sigraði liðið Notting- ham For. 2:1 á heimavelli sínum. Sigurmark Villa skoraði David Platt mjög laglega í síðari hálfleik, en Forest átti ekki skilið að tapa leiknum og áttu þeir skot bæði í stöng og þverslá og áttu mun Perry Groves skoraði sigurmark Arsenal gegn Man. Utd. meira í leiknum en Platt skoraði sigurmarkið. Ian Olney kom Villa yfir snemma í leiknum, en Lee Chapman jafnaöi fyrir Forest á 20. mín., leikurinn var stór- skemmtilegur og vel leikinn. Q.P.R. rak framkvæmdastjóra sinn Trevor Francis í vikunni og réð í hans stað Don Howe. Leik- menn liðsins færðu sínum nýja stjóra góðan sigur á útivelli gegn Crystal Palace. Andy Sinton skoraði tvö mörk fyrir liðið eftir að Danny Maddix hafði skorað fyrsta markið. Sheffield Wed. vann frækinn sigur gegn Liverpool í vikunni og byrjaði leik sinn á útivelli gegn Norwich með miklum látum. David Hirst náði forystunni fyrir liðið, en Andy Townsend jafnaði úr vítaspyrnu fyrir Norwich og úrslit réðust síðan er Phil King varnarmaður Sheffield skoraði sjálfsmark. Öll mörkin voru skoruð í fyrri hálfleiknum, en Sheffield er þó komið af botnin- um, þökk sé stigunum frá Liver- pool. Everton sem aðeins hafði feng- ið 1 stig úr síðustu 4 leikjum sínum, tókst nú loks að vinna leik er liðið sigraði Coventry á heima- velli sínum. Stuart McCall kom liðinu yfir í fyrri hálfleik og í þeim síðari bætti Dave Watson örðu marki Everton við án þess að Coventry tækist að svara fyrir Á sunnudag mættust Englands- meistarar Arsenal og lið Manchester Utd. í London. Englendingar fengu þennan leik heim í stofu til sín þar sem honum var sjónvarpað beint á Bretlandseyjum. Eina mark leiksins skoraði Arsenal eftir 15 mín. leik og er því efst ásamt Liverpool og Aston Villa með 30 stig. Það var Perry Groves sem skoraði hið mikil- væga mark með viðstöðulausu skoti eftir að aukaspyrna hafði borist til hans. Arsenal átti sigur- inn skilinn, liðið lék mjög agaðan leik, en leikmenn Man. Utd. voru heldur ósamstilltir og hinum sig. Derby er á góðri siglingu um þessar mundir og vann sinn fjórða leik í röð á laugardag er þeir fengu lið Charlton í heim- sókn. Dean Saunders og Gary Micklewhite skoruðu mörk Derby í leiknum, bæði í fyrri hálfleik. Charlton er nú neðst í 1. deild ásamt Manchester City með 15 stig. Millwall og Southampton gerðu 2:2 jafntefli þar sem Paul Rideout náði forystu fyrir Sout- hampton, en Tony Cascarino jafn- aði fyrir Millwall áður en blásið var til hlés. Paul Stephenson skoraði síðan fyrir Millwall í síð- ari hálfleik, en Matthew Le Tissier tryggði Southampton stig með marki úr vítaspyrnu. Þá skyldu Luton og Tottenham jöfn í markalausum leik á gervi- grasinu í Luton. 2. deild • Stórleikurinn í 2. deild fór fram á Elland Road í Leeds þar sem heimamenn tóku á móti Newcastle sem höfðu sigrað 5:2 í fyrri leik liðanna í haust. Nú náði Leeds Utd. fram hefndum í stór- góðum leik þar sem úrslit réðust á 71. mín. Eftir góða sókn Leeds Utd. upp hægri vænginn gaf David Batty góða sendingu fyrir mark Newcastle sem Ian Baird afgreiddi í netið og tryggði þar snjöllu leikmönnum liðsins geng- ur illa að vinna saman. Mark Hughes og Brian McClair börð- ust vel, en fengu ekki næga aðstoð frá öðrum leikmönnum liðsins. Nigel Winterburn og Brian Marwood voru mjög ógn- andi á vinstri væng Arsenal. Kevin Richardson, David Rocastle og Michael Thomas höfðu undirtökin á miðjunni og Alan Smith sem átti skot í þverslá unmdir lokin var ógnandi í framlínunni. Arsenal hefur því ekki sleppt taki sínu á Englands- bikarnum, en lið Man. Utd. á langt í land áður en félagið getur af alvöru blandað sér í baráttu þeirra bestu. Þ.L.A. með Leeds Utd. mjög mikilvæg- an sigur. • Sheffield Utd. heldur enn toppsætinu eftir öruggan sigur heima gegn W.B.A. Bob Booker skoraði tvö af mörkum Sheffield og Brian Deane það þriðja, en Gary Robson skoraði eina mark W.B.A. • Tony Humes skoraði sigur- mark Ipswich á útivelli gegn Barnsley. • Elton John sá frægi söngvari hefur nú ákveðið að selja hlut sinn í Watford, en liðið sigraði Portsmouth á útivelli 2:1. Paul Wilkinson og Gary Penrice skor- uðu fyrir Watford sem vann þarna sinn fyrsta útisigur í vetur. • Þá gerðu Sunderland og West Ham aðeins jafritefli í heima- leikjum sínum, Sunderland 2:2 gegn Swindon og West Ham 0:0 gegn Stoke City, slæm úrslit fyrir bæði þessi lið sem gera sér vonir um að komast í 1. deild. Þ.L.A. Úrslit 1. deild Arsenal-Manchester Utd. 1:0 Aston Villa-Nottingham For. 2:1 Chelsea-Wimbledon 2:5 Crystal Palace-Q.P.R. 0:3 Derby-Charlton 2:0 Everton-Coventry 2:0 Luton-Tottenham 0:0 Manchester City-Liverpool 1:4 Millwall-Southampton 2:2 Norwich-Sheffield Wed. 2:1 í vikunni. Sheffield Wed.-Liverpool 2:0 2. deild Oldham-Blackburn 2:0 Barnsley-Ipswich 0:1 Bournemouth-Brighton 0:2 Leeds Utd.-Newcastle 1:0 Leicester-Hull City 2:1 Oxford-Plymouth 3:2 Portsmouth-Watford 1:2 Port Valc-Bardford 3:2 Sheffield Utd.-W.B.A. 3:1 Sunderland-Swindon 2:2 West Ham-Stoke City 0:0 Wolves-Middlesbrough 2:0 3. deild Bolton-Northampton 0:3 Bristol City-Rotherham 0:0 Crewe-Cardiff City 1:1 Mansfleld-Huddersfíeld 1:2 Notts County-Fulham 2:0 Preston-Reading 1:0 Shrewsbury-Chester 2:0 Swansea-Blackpool 0:0 Tranmere-Bury 2:4 Walsall-Bristol Rovers 1:2 Wigan-Birmingham 1:0 Brentford-Leyton Orient 4:3 4. deild Aldershot-Halifax 2:0 Burnley-Grimsby 1:1 Cambridge-Rochdale 0:3 Carlisle-Peterborough 0:0 Colchester-Lincoln 0:1 Doncaster-Stockport 2:1 Ilartiepool-Hereford 1:2 Maidstone-Excter 1:0 Scunthorpe-Southend 1:1 Torquay-Scarborough 3:2 Wrexham-Chesterfield 0:2 Vork City-Gillingham frestað Deildabikarinn í vikunni. 4. umferð: Exeter-Sunderland 2:2 Swindon-Southampton 0:0 Endurtekinn jafnteflisleikur úr 4. umf. Tottenham-Tranmere 4:0 Öruggt hjá Arsenal gegn Man. Utd.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.