Dagur - 05.12.1989, Blaðsíða 13

Dagur - 05.12.1989, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 5. desember 1989 - DAGUR - 13 Menntamálaráðherra skipar nýtt Iðnfræðsluráð: Ráðið ekki lengur sjálfstæð stofii- un undir menntamalaráðuneytmu Heimamerki til að auðkenna ökutæki Menntamálaráðherra hefur skip- að Iðnfræðsluráð til næstu fjög- urra ára skv. nýjunt lögum um framhaldsskóla. Sú breyting hef- ur verið gerð, að Iðnfræðsluráð er ekki lengur sjálfstæð stofnun undir menntamálaráðuneytinu, heldur færist verkefni þess inn í ráðuneytið. Iðnfræðsluráð verð- ur nú samstarfsvettvangur skóla, atvinnulífs og menntamálaráðu- neytisins. Á vegum þess munu starfa fræðslunefndir sem í eiga sæti fulltrúar iðngreinanna. í ráðinu sitja: Halldór Grön- vold skrifstofustjóri, Guðmundur Gunnarsson rafvirki, og Haf- „Ungt sjálfstæðisfólk á Norður- landi vestra telur nauðsynlegt að núverandi ríkisstjórn fari frá hið fyrsta og efnt verði til kosninga. Á skömmum valdatíma hefur ríkisstjóm Steingríms Hermanns- sonar sýnt fram á ókosti fjöl- flokkastjórna og algert úrræða- leysi vinstri aflanna. Innantóm slagorða- og sýndarmennsku- pólitík í fjölmiðlum getur ekki komið í stað raunhæfra aðgerða. Öllum ætti nú að vera ljóst að atvinnulíf þjóðarinnar, sérstak- lega á landsbyggðinni, þolir ekki vinstri stjórnina öllu lengur. Því er óhjákvæmilegt að hefja þegar markvisst endurreisnarstarf. Ef slíkt endurreisnarstarf á að takast verður að stjórna landinu sterk og samhent ríkisstjórn, sem viðurkennir staðreyndir efna- hagslífsins. Eftir mjög vandað málefna- starf, fyrir og á landsfundi, hefur Sjálfstæðisflokkurinn nú eina sterkustu málefnastöðu sem hann hefur nokkru sinni haft. Sérstak- lega ber að fagna hinni nýju stefnu í byggðamálum og yfirlýs- ingu þingflokksins um frjálslynda Leikfélag Akureyrar: Gömul föt óskast Leikfélag Akureyrar æfir um þessar mundir barnaleikritið Eyrnalangir og annað fólk eftir Kristínu og Iðunni Steinsdæt- ur. Fjölmargir leikendur eru í verkinu, börn og fullorðnir, og að sjálfsögðu þarf þetta ágæta fólk föt við hæfi. Af þeim sök- um vill Leikfélagið koma eftir- töldum óskum á framfæri: „Okkur vantar barnaskó, karl- mannaskó, kvenskó, fallega skó, druslulega skó og alla hugsanlega skó sem þú vilt losna við í tiltekt- inni fyrir jólin. Ef börn þín eru vaxin upp úr fötunum sínum er það hið besta mál því við getum gjarnan notað fötin handa börn- unum í leikritinu. Ekki væri verra að fá lopapeysu, ekta íslending. Þá vantar okkur lítið og gamalt símaborð.“ Þeir sem geta séð af gömlum fatnaði eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við Nönnu eða Rósberg í síma Leikfélags Akur- eyrar sem allra fyrst, en leikritið Eyrnalangir og annað fólk verður frumsýnt 26. desember. SS steinn Eggertsson húsasmíða-1 meistari, tilnefndir af Alþýðu- sambandi íslands. Varamenn þeirra eru Ármann Helgason varaformaður Iðju, Akureyri, Einar Gunnarsson blikksmiður, og Úlla Harðardóttir hárgreiðslu- meistari. Bjarni Þór Jónsson skrifstofu- stjóri, tilnefndur af Félagi ísl. iðnrekenda. Varamaður hans er Ólafur Kjartansson, verkfr. Pálmar Halldórsson fram- kv.stj. INSÍ, tilnefndur af Iðn- neinasambandi íslands. Vara- maður hans er Ingólfur Þórsson, framkvæmdastjóri INSÍ. og víðsýna umbótastefnu í atvinnumálum. Fái Sjálfstæðisflokkurinn nægt fylgi í næstu kosningum mun hann geta hrint endurreisnar- áformum sínum í framkvæmd, án þeirra málamiðlunarvafninga, sem einkennt hafa ríkisstjórnir á íslandi. Því er mikilvægt að kjós- endur íhugi kosti þess að efla Gunnar S. Björnsson húsa- smíðameistari, og Jóhannes Jóhannesson bifvélameistari, til- nefndir af Landssambandi iðnað- armanna. V'aramenn þeirra eru Ingvar Guðmundsson málara- meistari, og Björn Lárusson hús- gagnasm.meistari. Ingvar Ásmundsson, skóla- stjóri, tilnefndur af Sambandi iðnfræðsluskóla. Varamaður hans er Þór Vigfússon, skóla- meistari. Formaður er Kristrún ísaks- dóttir, deildarsérfræðingur, til- nefnd af menntamálaráðherra. Varamaður hennar er Þuríður Magnúsdóttir, fil.cand. einn flokk til ábyrgðar á ríkis- stjórn landsins. Fjölflokka- kraðakið hefur reynst þjóðinni dýrt spaug. Hver mánuður sem ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar tefur fyrir endurreisnarstarfinu er dýr- mætur. Þess vegna skorar ungt sjálfstæðisfólk á ríkisstjómina að segja af sér og efna til kosninga.“ Heimamerkin svokölluðu sem setja má á skráningarnúmer bíla eru nú til sölu hjá Bifreiðaskoðun íslands hf. og á bensínstöðvum. Þessi merki eru skjaldarmerki kaupstaðar eða sýslu og eru límd á þar til gerðan reit fremst á núm- eraspjaldinu. Karl Ragnars for- stjóri Bifreiðaskoðunar íslands segir að áhugi sé fyrir notkun þessara merkja enda séu þau fal- leg og fólk vilji gjarnan kenna bíla sína við byggðarlag sitt. Þegar nýja skráningarkerfið tók gildi hvarf um leið auðkenn- ing bíla eftir sýslum og kaupstöð- um. í reglugerð dómsmálaráðu- neytisins segir að heimilt sé að auðkenna skráð ökutæki með skjaldarmerki kaupstaðar eða sýslu og til þess eru heimamerkin enda er gert sérstaklega ráð fyrir þeim á nýju númeraspjöldunum. Því má nú þekkja hvaðan bílar koma á merki byggðarlagsins en auk þess er nafnið einnig prentað á límmiðann. Alls eru um 50 gerðir merkja og hefur Bifreiða- skoðun íslands séð um fram- leiðslu þeirra. Þau kosta 100 krónur og eru sem fyrr segir fáan- leg hjá Bifreiðaskoðun íslands um land allt og á nokkrum bensín- stöðvum. Um áramótin flytur Bifreiða- skoðun íslands aðalaðsetur sitt frá Bíldshöfða að Hesthálsi í Reykjavík og verður þá tekin í notkun ný skoðunarstöð sem er vel tækjum búin. Starfsfólk óskast til starfa á flæðilínu fyrirtækisins eftir áramót. Verbúðir á staðnum. Upplýsingar í síma 33120. Kaldbakur hf. Grenivík. Umboðsmann og blaðbera vantar á Kópaskeri. Ljósmæður takið eftir! Staða deildarstjóra mæðraeftirlits við Heilsugæslustöðina á Akureyri er laus til umsóknar. Þú verður að vera Ijósmóðir og mjög gott ef þú ert einnig með hjúkrunarfræðimenntun. Þú þarft að geta haft umsjón með fræðslu fyrir verð- andi foreldra. Við bjóðum þér mjög góða vinnuaðstöðu og gott samstarf við; sérfræðinga í fæðingarhjálp, Ijósmæður, heimilislækna, fjölskylduráðgjafa og ungbarnaeftirlitið Staðan veitist frá 1. mars 1990, fyrr eða seinna eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til 31. desember 1989. Starfshlutfall og vinnutími eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri virka daga kl. 11-12 í síma 96-22311. Leiðalýsing St. Georgsgildið stendur fyrir leiðalýsingu í kirkjugarðin- um eins og undanfarin ár. Tekið á móti pöntunum í síma 22517 og 21093 fram til föstudagsins 8. desember. Verð á krossi er kr. 1000 krónur. Þeir sem vilja hætta tilkynni það í sömu símum. - Móöir okkar, ÞORGERÐUR ÓLAFSDÓTTIR, fyrrum húsfreyja að Torfum, Eyjafirði, lést að Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 3. desember. Aðalgeir Axelsson, Öriygur Axelsson, Ólafur Axelsson. Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, MARZELÍNA KJARTANSDÓTTIR, Rauðumýri 15, Akureyri, verður jarðsett frá Akureyrarkirkju föstudaginn 8. desember kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna. Helgi H. Haraldsson. Eiginmaður minn, ARI ÞÓRÐARSON, Norðurgötu 38, Akureyri, lést á Gjörgæsludeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri 1. desember. Hann verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 11. desember kl. 13.30.. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Vistheimilið Sólborg. Fyrir hönd fjölskyldunnar. Páltna Jónsdóttir. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför, KRISTÍNAR ELÍNAR STEFÁNSDÓTTUR, Stórasvæði 3, Grenivík. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki Fjórðungssjúkrahúss- ins á Akureyri. Guð blessi ykkur öll. Jakob Þórðarson, Björg Sigurbjörnsdóttir, Stefán Þórðarson, Hafdís Björk Hermannsdóttir, barnabörn og fjölskyldur þeirra. „Aldrei aftur vinstri stjóm“ - Ályktun Kjördæmissamtaka ungra sjálfstæðismanna á Norðurlandi vestra

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.