Dagur - 05.12.1989, Blaðsíða 9

Dagur - 05.12.1989, Blaðsíða 9
8 - DAGUR - Þriðjudagur 5. desember 1989 Þriðjudagur 5. desember 1989 - DAGUR - 9 fþróttir skaut. Stólarnir skiptu nú um vörn og pressuðu allan völlinn. Það setti KR-inga úr skorð- um og smám saman minnkaði bilið, alveg niður í 7 stig, 74:81. En þá náðu gestimir að rétta sinn hlut og þeir sigruðu að lokum 78:90. Fyrri hálfleikinn léku heima- menn afbragðsvel, sérstaklega í vörn. Mikil barátta einkenndi leik liðsins og t.d. sást varla til Kovtoums í liði KR þar sem hann var í strangri gæslu Ólafs Adolfs- sonar. Þessi slæmi kafli í upphafi seinni hálfleiks er nær óútskýran- legur. Virtist sem svo að leik- menn færu gjörsamlega úr sam- bandi. Ekkert gekk upp í sókn- inni og vömin var lek sem gata- sigti og gestirnir löbbuðu hrein- lega í gegn um hana. En þegar Stólamir tóku upp pressuvömina, náðist aftur upp þessi baráttuandi sem einkenndi liðið í fyrri hálf- leik. En þessi kafli kom of seint og KR-ingar rönkuðu við sér áður en þeirra mál vom í óefni komin. Bestur Tindstælinga var Valur en hann átti hvað stærstan þátt í þeim góða kafla sem liðið náði í seinni hálfleik. Hann átti þó nokkuð mikið af ótímabærum skotum. Sturla hitti illa framan af en hann barðist samt eins og ljón í vörninni samkvæmt venju. Pét- ur Vopni átti sinn besta leik í vet- ur og hann ,á greinilega framtíð- ina fyrir sér. Björn var óheppinn með villurnar sem hann fékk en hann var kominn með fjórar áður en flautað var til leikhlés. Hann lék þó með mest allan seinni hálf- leikinn og stóð sig vel. Sverrir lék vömina lengst af vel og hafði hann góðar gætur á Páli Kol- beinssyni. Guðni Guðnason og Birgir Mikaelsson vora bestir í liði KR. Einnig átti Matthías Einarsson góðan sprett í fyrri hálfleik. Þá var Axel sterkur að vanda. Kovtoum gerði ekki mikið en var þó sterkur í vörninni. Stig Tindastóls: Valur 28, Sturla 17, Pétur 9, Bjöm 8, Sverrir 7, Stefán 5, Ólafur 2 og Kári 2. Stig KR: Guðni 22, Birgir 18, Matthías 14, Axel 12, Kovtoum 11, Gauti 6, Lárus 5 og Páll 2. kj Eftir ágætan fyrri hálfleik hjá KA gegn IR í 1. deildinni í handknattleik fór allt í baklás hjá Akureyrarliðinu í byrjun síðari hálfleiks og ÍR-ingar breyttu stöðunni úr 10:11 í 15:11. Þennan mun tókst KA- mönnum aldrei að vinna upp þrátt fyrir að litlu munaði í lok- in 22:21. Dómarar leiksins, Gunnar Viðarsson og Gunnlaugur Hjálm- arsson, gerðu afdrifaríka skyssu undir lok leiksins er KA-menn komust í hraðaupphlaup þegar 10 sekúndur voru til leiksloka. Brotið var á Friðjón Jónssyni og Guðmundi Pórðarsyni var vísað af leikvelli. Þá voru 6 sekúndur eftir af leiknum en í stað þess að stöðva leikinn á meðan ÍR-ingur- inn var að fara út af létu þeir tím- ann renna út. Reyndar skoraði Pétur Bjarnason úr aukakastinu en Gunnlaugur dæmdi markið ólöglegt þar sem Pétur hefði fært löppina úr stað. Það voru því ÍR- ingar sem fögnuðu sigri 22:21. Ef við hlaupum aðeins yfir gang mála í leiknum þá voru KA- menn alltaf fyrri til að skora en tókst aldrei að hrista ÍR-ingana af sér. KA komst í 5:3 en ÍR jafn- aði 8:8. Síðan var jafnt á öllum tölum fram að hálfleik en gestirn- ir náðu að skora síðasta markið og staðan því 11:10 fyrir KA. Knattspyrna: Eyjólfur með atvinnusaimmig Eyjólfur Sverrisson kom til landsins um helgina frá V-Þýskalandi með samning við Stuttgart upp á vasann. Samningurinn var undirritaður á föstudaginn og gildir til IV2 árs, frá og með 1. janúar 1990. „Ég er mjög ánægður með þennan samning. Hann er mjög hagstæður fyrir mig og er viðameiri en ég bjóst við,“ sagði Eyjólfur í samtali við Dag eftir að hann kom tO landsins. Með Eyjólfi í för til Þýskalands voru heldur út eftir áramótin Bjarni Jóhannesson þjálfari Tindastóls og Stefán Logi Haraldsson formaður knattspyrnudeildarinnar. Ásgeir Sigur- vinsson var þeim félögum innan hand- ar við undirskrift samningsins og á meðan á dvölinni stóð hjá Stuttgart. Það þarf vart að taka það fram hvaða þýðingu þessi félagaskipti hafa fyrir Eyjólf og einnig fyrir Tindastól. Stuttgart er eitt af þekktustu félagslið- um Evrópu og það að gera samning við leikmann til VA árs er afar sjaldgjæft. Það var létt yfir þeim Bjama Jóhannessyni, Eyjólfi Sverrissyni og Stefáni Loga Haraldssyni eftir undirskrift samningsins. Mynd: -bjb Eins og kunnugt er vildi Stuttgart gera samning við Eyjólf til 3 ára en hann kom með kröfu á móti að hafa samn- inginn ekki lengri en til Vá árs. Stuttgart féllst á það og sýnir það að félagið hefur séð eitthvað við knatt- spyrnukappann úr Skagafirðinum! Atvinnumannasamningur fyrir Eyjólf þýðir að hann hlýtur flest þau fríðindi sem aðrir leikmenn félagsins fá. Hann mun æfa með aðalliðinu en spila með varaliðinu til að byrja með. „Ég reikna ekki með að komast í A- liðið fyrr en næsta haust. Ég þarf minn tíma til að aðlagast aðstæðum en þessi samningur hvetur mig til þess að ná sæti í aðalliðinu,“ sagði Eyjólfur. í Bundesligunni er leyfilegt að nota þrjá erlenda leikmenn hjá hverju liði. Einungis tveir þeirra mega vera inn á í einu en sá þriðji má vera á bekknum. Eyjólfur er fjórði erlendi leikmaðurinn hjá Stuttgart. Hinir eru Ásgeir Sigur- vinsson, Argentínumaðurinn Basualdo og svo Daninn Rasmusen. Svo sem kunnugt er rennur samningur Ásgeirs út í vor og hefur hann lýst því yfir að hann muni hætta eftir þetta tímabil, hvað svo sem verður. Einnig er rétt að geta þess að hugmyndir eru uppi að leyfa liðum að hafa fjóra erlenda leikmenn í hverju liði. í Évrópukeppni má hins vegar nota fjóra erlenda leikmenn en það ræðst í kvöld hvort Stuttgart kemst áfram í keppninni að þessu sinrii. Eyjólfur segir allar aðstæður hjá Stuttgart vera til fyrirmyndar. Félagið útvegar honum húsnæði og bíl til afnota. Hann fer utan um áramótin og byrjar á því að fara með Stuttgart í tveggja vikna æfingaferð til Costa Rica og Argentínu. Þar fær hann gott tæki- færi til að kynnast leikmönnum liðsins áður en út í alvöruna er haldið. Fríðjón Jónsson skoraði falleg mðrk undir lok leiksins gegn ÍR en það dugði ekki til og KA tapaði 22:21. Sævar Árnason var bestur Þórsara gegn Haukum. Mynd: KL Handknattleikur/2. deild: Ævintýralegt jöfnunarmark Páls gegn Frömtirum tap hins vegar gegn Haukum Þórsstrákarnir í handboltanum fóru suður um helgina og kepptu við tvö efstu liðin í 2. deildinni, Fram og Hauka. Jafntefli varð í fyrri leiknum gegn Fram, 20:20, og var þetta fyrsta stigið sem Fram tapar í vetur. Hins vegar gekk ekki eins vel gegn Haukum og urðu Þórsararnir að játa sig sigraða 27:21. Það var ævintýralegt jöfnunar- mark Þórsara gegn Fram. Fram skoraði úr vítakasti 20:19 þegar 30 sekúndur vom til leiksloka. Þórsarar brunuðu í sókn og þegar tvær sekúndur voru eftir skaut Páll Gíslason í stöngina, þaðan í bakhluta markvarðar Fram og í markið. Framararnir voru sterkari í fyrri hálfleik og þá náðu Þórsar- arnir sér ekki almennilega á strik. Staðan í leikhléi var 13:10 fyrir Fram. í síðari hálfleik sýndu Þórsarar mikinn styrk er þeir náðu að jafna leikinn 14:14 og svo aftur þegar 4 mínútur voru eftir af leiknum er staðan var 19:16 fyrir Fram. Með mikilli baráttu tókst Þór að jafna 19:19 og lokamark- inu hefur þegar verið lýst. Mörk Fram: Jason Ólafsson 6, Her- mann Björnsson 4, Gunnar Andrésson 3, Björn Eirfksson 2, Gunnar Kvaran 2, Tryggi Tryggvason 1, Egill Jóhannesson 1 og Andri Sigurðsson 1. j Mörk Þórs: Páll Gíslason 7, Sigurður Pálsson 5, Sævar Árnason 3, Ingólfur Samúelsson 3, Ólafur Hilmarsson 1 og Kristinn Hreinsson 1. Öruggur sigur Hauka Það gekk ekki jafn vel hjá Þór gegn Haukum eins og gegn Fram. Hafnarfjarðarliðið hafði frumkvæðið í fyrri hálfleik en Þórsarar héldu alltaf í við heima- piltana. Haukar voru alltaf þetta einu eða tveimur mörkum yfir, 4:2, 6:4, 8:6, 10:8, en Þórsarar skoruðu tvö síðustu mörkin og því var jafnt f leihléi 10:10. Síðari hálfleikur þróaðist mjög svipað og sá fyrri. Haukarnir voru sterkari aðilinn en tókst ekki að hrista Þórsarana af sér. Jafnt var 12:12, 14:14 og 17: 17. Það var síðan undir lok hálf- leiksins að heimastrákarnir settu í annan gír og tókst Þórsurum ekki að halda í við Haukana. Mikið var um ótímabær skot hjá Þórsurunum og Haukarnir nýttu sér það til fullnustu og sigruðu 27:21. Þetta fór nokkuð í taugarnar á Þórsurunum og var rri.a. Ólafi Hilmarssyni sýnt rauða spjaldið. En þeir geta ekki nema sjálfum sér um kennt fyrir þetta tap og lék liðið langt undir getu. Mátt- arstólpar liðsins náðu sér ekki á strik en það var helst Sævar Árnason sem sýndi skemmtilega tilburði í sókninni enda var hann markahæstur gestanna. Mörk Hauka: Sveinberg Gíslason 6/3, Jón Örn Stefánsson 4, Bragi Jóhannsson 4, Sigurður Örn Árnason 4, Ámi Her- mannsson 4/2, Láms Karl Ingason 3, Óskar Sigurðsson 2. Mörk Þórs: Sævar Árnason 6, Páll Gíslason 5/2, Ólafur Hilmarsson 4, Jóhann Jóhannsson 2, Sigurður Pálsson 2, Kristinn Hreinsson 1. Hermann Karls- son 11/2 varin skot. — mWn. Staðan 2. deild Fram 7 6-1-0 170:143 11 llaukar 7 5-0-2 181:156 10 Valur-b 7 4-0-3 161:153 8 Þór 7 3-2-2 172:164 8 FH-b 7 4-0-3 164:176 8 ÍBK 7 3-1-3 147:138 7 Selfoss 7 2-2-3 150:150 6 UMFN 7 2-0-5 156:186 4 UBK 7 2-0-5 140:156 4 Ármann 7 1-0-6 147:166 2 Önnur úrslit: Ármann-Selfoss 21:25 Knattspyrna: Dómurum fækkað Ákveðið hefar verið að fækka þeim dómurum sem dæma í 1. deildinni í knatt- spyrnu úr 20 í 15. Þetta kem- ur fram í ársskýrslu Knatt- spyrnusambands íslands, sem lögð var fram á ársþingi KSÍ um helgina. Þessi niðurskurður vekur nokkra athygli því hann var ekki ræddur á Ársþingi KDSÍ fyrir viku. Það má því búast við fjömgum umræðum um þessi mál meðal dómara á næstunni. Þeir sem voru á listanum sl. sumar en falla nú út, em: Ágúst Guðmundsson, Fram; Guð- mundur Sigurðsson, Fylki; Gunnar Ingvarsson, Þrótti Rvk.; Magnús Jónatansson og Þóroddur Hjaltalín, Þór Akur- eyri. Þess má geta að Þóroddur dró sig í hlé á miðju sumri. Þessir dæma í 1. deildinni á næsta ári: Bragi Bergmann Umf. Árroðanum Eyjólfur Olafsson Víkingi Friðgeir Hallgrímsson KR Guðmundur Haraldsson KR Gylfi Orrason Fram Ólafur Sveinsson Fram Sveinn Sveinsson Fram Egill M. Markússon Gróttu Friðjón Eðvarðsson Fylki Gfsli Guðmundsson Val Guðmundur St. Maríasson Leikni Ólafur Lámsson KR Óli P. Ólsen Þrótti Sæmundur Víglundsson ÍA Þorvarður Björnsson Þrótti. Til vara: Ágúst Guðmundsson Fram Ólafur Ragnarsson Hveragerði Gísli Björgvinsson ÍK. Úrvalsdeildin í körfuknattleik: KR-sigur á Króknum - Tindastóll án Bo Heiden KR-ingar komu sáu og sigruðu Bo-lausa Tindastólsmenn í Úrvalsdeildinni í körfuknatt- leik á sunnudaginn var. Fyrri hálfleikur var mjög jafn en sá síðari að sama skapi mjög ójafn, ef undan eru skildar 5 síðustu inínúturnar. KR-ingar höfðu sigur úr þessari viður- eign 78:90. Leikurinn byrjaði frekar rólega og mikið jafnræði var með liðunum. Þau skiptust á að hafa forystu, yfirleitt 4-7 stig. Gestirn- ir náðu m.a. 7 stiga forystu 17:24 um miðjan hálfleikinn en með góðum leikkafla jöfnuðu Stólam- ir og komust yfir. í leikhléi var staðan svo jöfn 38:38. Seinni hálfleikur byrjaði væg- ast sagt hörmulega hjá heima- mönnum. Þeir röndóttu komust í 48:57 og síðan alla leið í 50:74. Á þeirri stundu var það orðið ljóst hverjum sigurinn myndi falla í Handknattleikur/3. deild: Völsungar í basli með Ögramenn Völsungar unnu sinn fjórða sigur í röð í 3. deildinni í hand- knattleik á laugardaginn er þeir lögðu Ögra 25:16. Þrátt fyrir níu marka sigur þurftu Húsvíkingarnir að hafa tölu- vert fyrir sigrinum og héldu Ögramenn í við þá framan af leiknum. Leikurinn var ekki beint fyrir augað og var engu líkara en heimamenn vanmætu andstæð- ingana. Ögramenn spiluðu skynsam- lega, héngu á boltanum og skutu ekki fyrr en í ömggum færum. Þeir náðu því að hanga í Völs- ungum allt þar til rétt fyrir leikhlé að þeir grænklæddu náðu þriggja marka forskoti, 12:9. Þessi þriggja marka forysta hélst framan af síðari hálfleikn- um en það var ekki fyrr en undir lokin að Reykvíkingarnir spmngu og Húsvíkingarnir tryggðu sér níu marka sigur, 25:16. Mörk Völsunga: Ásmundur Amarsson 6, Helgi Helgason 4, Jóhann Pálsson 3, Tryggvi Þór Guðmundsson 3, Haraldur Haraldsson 3, Vilhjálmur Sigmundsson 2, Jónas Grani Garðarsson 2, Jónas Emilsson 1 og Örvar Sveinsson 1. Markverðimir Ólafur Börkur Þor- valdsson og Eiríkur Guðmundsson vörðu ágætlega. Blak: Tvöfaldur KA-sigur á Þrótti - strákaleikurinn tók ekki nema 38 mínútur KA vann tvöfaldan sigur á Þrótti frá Neskaupstað í leik liðanna í 1. deildinni í blaki á Akureyri á laugardaginn. Karlalið KA sigraði 3:0 en stúlkurnar þurftu að hafa meira fyrir hiutunum en lögðu Norðfjarðarstúlkurnar að lok- um 3:2. Það var smá skrekkur í KA- strákunum fyrir leikinn því oft hefur gengið erfiðlega með Norð- firðingana. Skemmst er að minnast viðureignar liðanna á Norðfirði fyrr í haust er KA vann 3:2 í hörkuleik. En uppspilaralausir Þróttarar sáu ekki til sólar gegn frísku liði KA. Aðaluppspilari liðsins átti Haukur Valtýsson og Amgrímur Amgrímsson og félagar áttu ekki í erfið- leikum með að ieggja Þróttara að velli. Mynd: ap ekki heimangengt vegna vinnu og ætlaði Marteinn Guðgeirsson, sem gerði garðinn frægan með knattspyrnuliði Tindastóls síð- asta sumar, að koma með llvél- inni að sunnan til að spila upp fyrir gamla félagið sitt. Én Flug- leiðir felldu niður það flug og urðu því Þróttarar að setja Ólaf stórsmassara í uppspilið. Þar með var broddurinn farinn úr sóknarleik gestanna og KA- drengirnir áttu því náðugan dag. Hrinurnar fóru 15:7,15:5 og 15:5 og tók það aðeins 38 mínútur að klára þann leik. Hörkuleikur hjá stúlkunum KA-stúlkumar þurftu hins vegar að hafa heilmikið fyrir hlutunum því Þróttarstúlkurnar ætluðu sér að hefna fyrir ófarir strákanna. Gestirnir byrjuðu leikinn af mikl- um krafti og hreinlega rúlluðu yfir heimastúlkurnar í fyrstu hrinunni, 2:15. KA vaknaði til lífsins í annarri hrinunni og náði að jafna metin eftir mikla baráttu, 15:10. Mjög jafnt var í þriðju hrinunni en stúlkurnar frá Neskaupstað mörðu sigur 13:15. Nú las Fei þjálfari vel yfir KA- stúlkunum og þær komu fullar baráttuanda til leiks. Þá sást greinilega hvort liðið var betra og sigruðu heimastúlkurnar örugg- lega í tveimur næstu hrinum, 15:7 og 15:12, og tryggðu sér þar með sigur í leiknum. Hasar á lokasekúndum: ÍR-ingar mörðu sigur á KA - umdeilt atvik undir lok leiksins Það gekk hvorki né rak hjá KA í fyrri hluta síðari hálfleiks en þá varði líka Hallgrímur Jónasson eins og berserkur í marki ÍR. Á sama tíma réðu KA-menn ekkert við þá Róbert Rafnsson og Sigfús Orra Bollason í sókninni og ÍR- ingar náðu því forskoti sem dugði þeim til leiksloka. Staðan var 22:19 fyrir ÍR en KA náði að saxa á forskotið en herslumuninn vantaði og KA er því enn óþægilega nálægt botni deildarinnar. Það má því búast við hörkuleik þegar Grótta kem- ur í heimsókn hingað norður um næstu helgi. KA-liðið lék ágætlega í fyrri hálfleik en slakar 10-15 mínútur í byrjun síðari hálfleiks gerðu út- slagið hjá liðinu. Sóknarleikur liðsins var ekki nógu fjölbreyttur að þessu sinni og nýttust horna- og línumenn liðsins ekki nægjan- lega vel. Ekki er hægt að hrósa neinum ieikmanni fremur öðrum. Þó má geta þess að Pétur Bjarnason var frískur í fyrri hálf- leik og þá varði Axel Stefánsson einnig ágætlega á sama tíma. 1 síðari hálfleik var eins og einbeit- inguna vantaði og var liðinu þá refsað grimmilega. Dómarar leiksins voru þeir Gunnlaugur Hjálmarsson og Gunnar Viðarsson og dæmdu þeir ágætlega fyrir utan þessi afdrifaríku mistök undir lok leiksins sem þegar hefur verið fjailað um. Mörk ÍR: Sigfús Orri Bollason 7/1, Róbert Rafnsson 7. Frosti Guðlaugsson 6, Magnús Ólafsson 1 og Jóhann Ásgeirs- son 1. Hallgrímur Jónasson varin skot 15. Mörk KA: Pétur Bjamason 5, Erling- ur Kristjánsson 5, Sigurpáll Á. Aðal- steinsson 4/3, Karl Karlsson 2, Guð- mundur Guðmundsson 2, Friðjón Jóns- son 2 og Jóhannes Bjarnason 1. Axel Stefánsson 10/1 varin skot og Björn Björnsson 2. bjb/AP

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.