Dagur - 13.01.1990, Blaðsíða 1
73. árgangur
Akureyri, laugardagur 13. janúar 1990
9. tölublað
Filman þm
a skiliö þaö
besta1
Nýja Filmuhúsið
Hafnarstræti 106 Sími 27422 • Pósthólf 196
H-Lóx
gæðaframköllun
Hrað•
framköllun
Opiö á
laugardögum
frá kl. 9-12.
Frostblóm,
Ferja fyrir
Hrísey og Grímsey:
Aflient í síðasta
lagí 9. mars
Á næstu dögum verður skrifað
undir kaupsamninga vegna
norsku ferjunnar Bremnes sem
verður notuð til siglinga á
Eyjafjarðarsvæðinu, þ.e. milli
lands, Grímseyjar og Hríseyj-
ar. Yfirvöld í Noregi hafa ekki
staðfcst kaupin en slíkt er nán-
ast formsatriði þar sem aðilar
eru fullkomlega sammála um
öll atriði varðandi kaupin.
Norska ferjan er nú í siglingum
milli Bergen og Stavanger í Nor-
egi. Hún verður tekin úr notkun í
lok febrúar og fer þá strax í slipp
í Bergen. Samkvæmt samkomu-
lagi aðila verður skipið afhent
nýju eigendunum í byrjun mars-
mánaðar, í síðasta lagi þann 9.
mars. Búast má því við að skipið
verði komið í siglingar á Eyja-
firði upp úr miðjum mánuðinum.
í áhöfn skipsins verða fjórir
menn. JÓH
Krossanesverksmiðjan hf./Fóðurverksmiðja ístess hf.:
Menn hafa rætt um sameiningu
en mörg erfið ljón í vegmum
- Skretting má ekki eiga hlut í Krossanesverksmiðjunni
Sigfús Jónsson, bæjarstjóri og
formaður stjórnar Krossanes-
verksmiðjunnar hf., segir að
vegna ákvæðis um að erlend-
um fyrirtækjum sé ekki heimilt
að eiga hlut í sjávarútvegsfyrir-
tækjum hér á landi séu ýmis
tormerki á sameiningu verk-
smiðjunnar og ístess hf. Um-
ræða um sameiningu verk-
smiðjanna hefur oft komið upp
á yfirborðið en að sögn Sigfús-
ar ætíð strandað á sama atrið-
inu, eignaraðild norska fyrir-
tækisins Skretting í Istess hf.
„Öðru hverju frá því að ístess
hf. var stofnað hefur þetta verið í
umræðunni vegna þess að menn
sjá í því ákveðna rekstrarhagræð-
ingu. Hins vegar eru mörg ljón í
veginum. Erlendir aðilar mega
t.d. ekki eiga hlut í fyrirtækjum í
sjávarútvegi, lögum samkvæmt.
Samkvæmt því mega Norðmenn-
irnir ekki eiga hlut í Krossanesi.
Fleira kemur til. Krossanes selur
sem sjálfstæður aðili á erlendum
mörkuðum. Ef Skretting ætti
orðið hlut í Krossanesi myndu
samkeppnisaðilar Skretting er-
lendis setja fyrir sig að kaupa
mjöl frá Krossanesverksmiðj-
unni.
Menn hafa alltaf vitað að með
sameiningu verksmiðjanna væri
hægt að ná verulegri rekstrarhag-
ræðingu en þarna virðast vera svo
erfið ljón á veginum að þetta
gangi ekki,“ segir Sigfús.
Að sögn Sigurðar J. Sigurðs-
sonar, forseta bæjarstjórnar
Akureyrar, hafa hugmyndir um
sameiningu verksmiðjanna ekki
komið á borð bæjarráðs eða
bæjarstjórnar. Hann sagðist hins
vegar vita af að þessi mál hafi á
ný komið í umræðuna í haust
vegna rekstrarerfiðleika beggja
verksmiðja.
Eins og fram hefur komið ligg-
ur ekki fyrir mat á tjóninu í
Krossanesverksmiðjunni og óvíst
hvenær það verður. Stjórnarfor-
maður verksmiðjunnar segir
liggja fyrir að loðna verði ekki
brædd í verksmiðjunni á þessari
vertíð. Menn beini sjónum að
uppbyggingu verksmiðjunnar
fyrir haustvertíð 1990.
Sigfús segir að í meginatriðum
verði verksmiðjan byggð upp
svipuð og hún var en hins vegar
hljóti menn að nota tækifærið til
að lagfæra þá hluti sem talið er að
betur megi fara. „Það hafa verið
vandamál með afköst verksmiðj-
unnar. Spurningin er hvort ekki
er hægt að laga þau. Það er auð-
vitað ljóst að menn verða að
skoða það,“ segir Sigfús Jónsson.
óþh
Verður Vestmannaeyjaferja smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri?
„Ég er bjartsýnn ad eðlisfari,"
- segir Sigurður Ringsted, forstjóri
„Ég er bjartsýnn að eðlisfari,
en hvað verður veit maður
ekki,“ sagði Sigurður Ring-
sted, forstjóri Slippstöðvarinn-
ar hf. á Akureyri, um þá
ákvörðun ríkisstjórnarinnar að
ráðast í smíði 68-70 m ferju
fyrir Yestmannaeyinga. Skip-
uð verður nefnd þriggja ráðu-
neyta og fulltrúa Herjólfs hf.
sem kanna mun hvort ekki sé
möguleiki á að ferjan verði
smíðuð innanlands og þá vænt-
anlega í Slippstöðinni á Akur-
Helgarveðrið:
DáJítil mugga,
milt og bKtt
Skíðasnjórinn cr loks á leiðinni
til landsins. I gær var snjó-
koma á Norðurlandi og í dag
spáir Veðurstofa íslands norð-
vestan kalda, og smáéljum á
miðum og annesjum.
Horfur á sunnudag fyrir landið
allt: Breytileg átt, 2-3 vindstig,
skýjað en líklega úrkomulítið.
Hiti um frostmark. Horfur á
mánudag: Norðan- og norðvest-
anátt, víða él eða slydduél norð-
an- og vestanlands, úrkomu-
minna eða úrkomulaust annars
staðar. Frost 1-4 stig.
Sem sagt, ekkert útileguveður
en þó bærilegasta janúarmugga.
SS
eyri en Sigurðu telur stöðina
eina aðilann hér innanlands
sem gæti tekið slíkt verk að
sér.
„Þetta gæti orðið mjög svo
spennandi verkefni næsta vetur.
Pað er raunhæft að tala um að
hægt verði að byrja á þessu skipi
í haust. Smíði á ferjunni gæti
óbeint leyst okkar verkefnavanda
því það að hafa langtímaverkefni
gerir hlutina örðuvísi. Maður
getur tekið aðrar ákvarðanir ef
maður hefur einhverja framtíðar-
sýn,“ segir Sigurður.
Halldór S. Kristjánsson, skrif-
stofustjóri í samgönguráðuneyt-
inu, segir að í ríkisstjórn hafi ver-
ið rætt um að teikningar af 79 m
ferju fyrir Vestmannaeyinga,
sem þegar liggja fyrir, verði
minnkaðar niður og smíðað sams
konar skip. Halldór vildi ekkert
segja um hvort líkur vaxi nú á því
að ferjan verði smíðuð í Slipp-
stöðinni á Akureyri en bætti þó
við að menn væru bjartsýnir fyrir
ihönd Akureyringa. JÓH