Dagur - 13.01.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 13. janúar 1990
Fall er fararheill
Hallfrcður fullyrti að hann væri fyrsta fórnarlamb Shanghæ-flensunnar hér á
landi. Hér er hann á sjúkrabeði og gráðugir ættingjar gína yfir honum.
Hallfreður
Örgumleiðason:
Góðan daginn og gleðilegt ár,
lesendur nær og ekki síður
fjær, ek em ær af gleði yfir því
að vera kominn í ykkar hóp á
nýjan leik. Fall er fararheill
segir máltækið og ég vona að
það eigi við um árið sem gekk
í garð um áramótin, ef ég man
rétt. Að vísu hafa loðnuveið-
arnar gengið ágætlega, en það
sama verður ekki sagt um
mig. Eilífar gangtruflanir,
eymd og armæða.
Varla hafði árið brennt sinn
fyrsta dag að baki er heilsu
minni fór að hraka af miklum
krafti. Forseti íslands líkti
íslensku þjóðinni við gróður
landsins í ávarpi sínu, með
öðrum orðum sagt þá erum við
eins og örfoka land og krækl-
óttar hríslur í fjallshlíðum.
Ekki mátti viðnámsþrek lík-
amans við slíkri sjúkdómslýs-
ingu enda fóru leikar svo að ég
gat mig vart hrært fyrir
kvölum. Augun ætluðu ýmist
inn í blýþungt höfuðið eða út
úr því, það söng og hvein í eyr-
unum, nefið stíflað, hálsinn
stokkbólginn, líkaminn mátt-
laus og skjálfandi, stingur í
brjósti.
Með undraverðum viljastyrk
(sem gjarnan er í hámarki í
ársbyrjun) tókst mér þó að
standa í lappirnar og sinna
skyjdum mínum. Reyndar leit
ég ut eins og róni á þriðja mán-
uði i drýkkju eða vaxtarrækt-
armaður sem er að'grenna sig,
munurinn er enginn. Líklegur
leið ég um í dásvefni veirusýk-
ingar sem náði hámarki þegar
útvarpið, boðberi válegra tíð-
inda, þröngvaði skilaboðum
sínum gegnum sárþjáðar hlust-
irnar: Sjanghæ-flensan hefur
dregið 20 vistmenn á elliheim-
ili í Noregi til dauða. Flensan
leggst þungt á gamalt og las-
burða fólk. Flelstu einkenni
hennar eru hálsbólga, eyrna-
bólga og ógleði . . .
„Heyrðirðu þetta?“ stundi
ég upp við konuna. Mér lá við
uppköstum og verkurinn í eyr-
um og hálsi blossaði upp.
„Ég er kominn með Sjang-
hæ-flensuna.“ Sú hugsun
ágerðist að þar sem ég var
hvorki ungur né hress þá hlyti
ég að vera garnall og lasburða
og því færi stundin að nálgast.
Konan virtist skynja þetta líka
því hún leit á mig með tor-
kennilegum glampa í augum.
Þulurinn í útvarpinu hélt
áfram að lýsa Sjanghæ-flens-
unni: Samkvæmt upplýsingum
frá aðstoðarlandlækni hefur
flensan ekki enn borist til
íslands . . .
„Huh! Þetta vissi ég. Það er
ekkert að þér frekar en fyrri
daginn,“ fussaði konan og
reyndi að dylja vonbrigði sín.
„Hvert þó í hoppandi,“
hrópaði ég og hlustaði ekki á
mótbárur konunnar. „Ég er þá
fyrsta fórnarlamb Sjanghæ-
flensunnar hér á landi. Þetta er
stórmerkilegt!“
Ég flýtti rpép í símann og
hringdi í heimilislækninn.
Hikstandi og óðamála, enda í
miklu uppnámi, tilkynnti ég
honúm að ég væri kominn með
hina banvænu Sjanghæ-flensu,
fyrstur íslendinga. Ekki virtist
læknirinn ýkja upprifinn.
Hann sagði að þetta væri bara
einhver vírus og bauðst til að
skrifa upp á pensilín. Ég vildi
ekkert með slíkar kerlinga-
bækur hafa og heimtaði að
hann skráði þetta fyrsta tilfelli
Sjanghæ-flensunnar á íslandi
og setti jafnframt fréttatil-
kynningu í blöðin. Það var
sama hvað ég orgaði á hann,
ekki vildi hann viðurkenna að
þetta væri flensan illræmda.
Þess í stað bauðst hann til að
gefa mér meira róandi til að
lina þjáningar fjölskyldunnar!
Eftir kuldalegt viðmót skiln-
ingsvana heimilislæknis var
mér öllum lokið. Ég lagðist
niður sem sneyptur hundur og
gól við skanka konunnar. Hún
klóraði mér bak við eyrun og
spurði háðslega hvort ég væri
búinn að gera erfðaskrána.
Öskuvondur spratt ég á fætur
og hrein:
„Þú hefur aldrei hugsað um
annað en peninga. Ég skal láta
þig vita að eigur mínar færðu
aldrei. Þær munu renna óskipt-
ar til læknavísindanna með
von um framfarir á sviði lyfja-
gjafar gegn flensu. Ég ætla
hins vegar að ánafna þér lík-
ama minn, hann er hvort eð er
það eina sem hefur veitt þér
gleði í þessu hjónabandi.“
Með þessum lokaorðum hné
ég í ómegin með hjálp frá
knýttum hnefa konunnar. Reis
upp á þriðja degi og hér er ég
nú. Bless.
Blóðþrýstingur og
bijóstakrabbamein
Breytt mataræði virðist komast iangleiðina með að skila sama árangri og
lyfjameðferð í sumum tilfellum.
Nú hefur komið í ljós að mettuð
fita í fæðunni getur stuðlað að
brjóstakrabbameini auk þess sem
að dýraprótín virðist einnig eiga
sinn þátt í krabbameinsmyndun-
inni. ítalskir vísindamenn tóku
viðtal við 250 konur sem flestar
voru þegar orðnar fómarlömb
brjóstakrabbameins auk þess
sem þeir tóku einnig viðtal við
499 konur á svipuðu reki sem
ekki höfðu brjóstakrabbamein.
Þær sem höfðu krabbameinið
neyttu meira af mjólk, feitum
ostum, smjöri, kjöti og eggjum.
Það kom í ljós að þær konur sem
borðuðu mest af mettaðri fitu
eða dýraprótíni voru í tvisvar til
þrisvar sinnum meiri hættu á að
fá brjóstakrabbamein heldur en
þær sem voru á fituminna mat-
aræði. (Journal of the National
Cancer Institution, 15. febrúar,
1989.) Rannsakendurnir komust
að þeirri niðurstöðu út frá þessari
rannsókn að mataræði sem
samanstóð af fiturýrum mjólkur-
afurðum og prótíni sem fengið
var úr prótínafurðum svo sem
fiski og baunum en ekki kjöti,
virtist geta unnið gegn brjóst-
krabbameinsmyndun. Byrjið því
á að skipta yfir í undanrennu og
léttmjólk og að hætta að borða
meira en fimm sneiðar af feitum
osti á viku og nota minna af
smjöri sem og öðrum feitum
mjólkurafurðum.
Blóðþrýstingur
í nýlegum rannsóknum kom fram
að hugsanlega hefur breytt mat-
aræði vegna of hás blóðþrýstings
jafn góð áhrif á hjartað og lyfja-
meðferð. 1987 var gerð rannsókn
í læknaháskóla í Chicago, þar
sem fram kom að mataræði sem
dró úr offitu, salti, alkohóli, fitu
og kólesteróli lækkaði blóðþrýst-
inginn í sumum en þó ekki eins
mikið og hjá þeim sem voru á
lyfjameðferð. í fjögurra ára
rannsókn á 189 manns sem áttu
það sameiginlegt að vera of
þungir og með of háan blóðþrýst-
ing kom í ljós að þeir sem hættu á
lyfjameðferð og fóru yfir í breytt
mataræði var blóðþrýstingurinn
að meðaltali 133/84. En fólkið
sem hélt áfram á lyfjameðferð-
inni var að meðaltali 122/80 í
blóðþrýsting. (Journal of the
American Medical Association).
En visindamennimir vildu kom-
ast að því hvort mismunurinn á
blóðþrýstingnum kæmi einnig
fram í heilbrigði hjartans. Svo að
í annarri rannsókn könnuðu þeir
heilbrigði hjartans vandlega með
hjartamonitor, X-geislum og
hjartalínuriti. Þeir fundu engan
sjáanlegan mun á hjartanu í þeim
sem voru á lyfjameðferð og þeim
sem sném sér að betra mataræði.
Vísindamennirnir sögðu að hugs-
anlega hefði fitu og kólesterolrýrt
mataræði heilsusamleg áhrif á
hjartað óháð áhrifum þess á
blóðþrýstinginn. Ef þú ert með of
háann blóðþrýsting ættirðu að
ráðfæra þig við lækni áður en þú
ferð að breyta verulega til í mat-
aræði eða lyfjameðferð.
Heilsupósturinn
Umsjón: Siguröur Gestsson og Einar Guðmann