Dagur - 13.01.1990, Blaðsíða 3
Laugardagur 13. janúar 1990 - DAGUR - 3
fréttir
Rannsóknarlögreglan á Akureyri:
Auðgunarbrotum fjölgaði mjög á síðasta árí
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri fékk alls 1858 mál til rann-
sóknar á síðasta ári sem er
aukning um 401 mál frá árinu á
undan. Að sögn Daníels Snorra-
sonar lögreglufulltrúa, er
skýringin sú að um mitt ár
fjölgaði um einn starfsmann
hjá Rannsóknarlögreglunni á
Akureyri og tók deildin um
leið að sér ákveðinn þátt mála
er varðar brot á umferðarlög-
um, en hann afgreiddi um 300
slík mál á árinu.
Stærsti flokkur mála sem til
rannsóknar kom á árinu eru
þjófnaðir. Tilkynnt var um 187 á
árinu en 141 árið 1988. Innbrot
voru 74 1989 og 30 árið áður,
kærur vegna tékkasvika, þ.e. ef
um er að ræða innistæðulausar
ávísanir voru 43 á árinu 1989 en
26 árið á undan. Kærur vegna
tékkafalsana voru árið 1989
samtals 90 en árið á undan voru
þær 31, minniháttar líkamsárásir
voru 62 árið 1989 en 41 árið 1988.
Meiriháttar líkamsárasir sem
rannsakaðar voru árið 1989 voru
9 talsins en 7 árið áður. Eins og
sjá má hefur auðgunarbrotum
Útflutningur S.H. 1989:
Veruleg sölu- og verðmætaaukiiing
í Bandaríkjunum og Vestur-Evrópu
- þriðja stærsta útflutningsárið í sögu SH
Árið 1989 reyndist þriðja
stærsta útflutningsár að magni
til í sögu Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna frá stofnun fyrir-
tækisins 1942. Hin metárin
voru 1979-80. Heildarútflutn-
ingur SH á síðasta ári nam 96
þúsund tonnum, sem er um
20% magnaukning miðað við
1988, að verðmæti tæplega 15
milljarðar íslenskra króna,
sem er 37% verðmætaaukning
í krónum. Framleiðsla frysti-
húsa SH árið 1989 varð liðlega
92 þúsund tonn á móti tæpum
92 þúsund tonnum árið áður.
Þetta kemur fram í fréttatil-
kynningu frá Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna. Útflutningur til
Bandaríkjanna, sem skilar að
staðaldri hæsta fiskverði fyrir
SH, jókst úr tæplega 24 þúsund
tonnum ’88 í rúmlega 27 þúsund
tonn ’89. Frystur fiskur seldist til
Bandaríkjanna fyrir 4.063 millj-
ónir króna ’88 en 5.885 milljónir
kr. ’89, sem þýðir 45% verð-
mætaaukningu.
Veruleg söluaukning náðist
einnig í Vestur-Evrópu, magnið
jókst úr 30 þúsund tonnum í 36
þúsund, verðmætin úr 3.341
milljón kr. í 4.766 milljónir, sem
er 43% aukning. Samdráttur
varð hins vegar á breska markað-
inum, sem rekja má til mikils út-
flutnings á óunnum fiski til Bret-
lands svo og versnandi efnahags-
ástands í landinu.
Fisksala dótturfyrirtækis SH í
París jókst verulega á árinu, úr
tæpum 9 þúsund tonnum ’88 í
tæp 14 þúsund tonn og verð-
mætaaukningin milli ára var
83%. Mikil söluaukning varð
einnig í Vestur-Þýskalandi, hjá
dótturfyrirtæki SH í Hamborg.
Verðmætaaukningin þar var 79%
og mesta söluaukningin í ufsa og
karfa.
Flutt voru út 24 þúsund tonn til
fjarlægra Asíulanda á sl. ári á
móti tæplega 18 þúsund tonnum
árið 1988. Verðmætaaukning
milli ára var 37%. Opnuð var
markaðsskrifstofa SH í Tókíó í
fyrra og hefur sú ráðstöfun haft
góð áhrif á markaðs- og sölumál-
in á þessum fjarlægu slóðum, eins
og segir í fréttatilkynningu SH.
Til Taiwan seldist mest af grá-
lúðu og til Suður-Kóreu fór mest
af heilfrystum karfa.
Fram kemur að í Japan eru
miklir framtíðarmöguleikar fyrir
íslenskar sjávarafurðir, enda Jap-
anir mestu fiskneytendur heims.
Til Asíulanda selst mest af karfa,
ufsa, grálúðu, síld, skelfiski og
loðnuafurðum. Auk þess er
aukning í sölu á íslenskum eldis-
laxi. SS
Vaskurinn veldur heilabrotum:
Annríki á Skattstofinuii
menn óklárir á útgáfu reikninga
og skilum aðila í fiskvinnslu
Mikið annríki hefur verið hjá
virðisaukaskattsdeild Skatt-
stofunnar á Akureyri frá ára-
mótum. Spurningar hafa vakn-
að hjá forsvarsmönnum fyrir-
tækja og einstaklingum um
virðisaukaskattinn og til þess
að fá úrlausn sinna mála leitar
fólk til skattasérfræðinga.
Guðmundur Guðmundsson,
starfsmaður virðisaukaskatts-
deildar, telur þó að yfirleitt sé
fóik þokkalega upplýst um
skattkerfisbreytinguna og
margir hafi kynnt sér vel hvað í
henni felst.
Að sögn Guðmundar hafa fjöl-
margir spurt um hvernig virðis-
aukaskattur komi að útgáfu
reikninga. „í rauninni hefur ekki
orðið nein breyting á þessu en
menn virðast ekki hafa áttað sig á
því,“ segir Guðmundur.
Þá segir hann að í ljós hafi
komið að menn í fiskvinnslu séu
margir óvissir á reglum um
bráðabirgðaskil. „Þeir geta sótt
um allt niður í viku skil en
almenna reglan er að uppgjöri
!skuli skilað eftir tvo mánuði.
Bændur eru hins vegar á sex
mánaða skilum, þannig að þeir
skila inn uppgjöri tvisvar á ári,“
segir Guðmundur.
Með upptöku virðisaukaskatts-
ins um áramót var fjölgað fólki á
Skattstofunni og sérstök virðis-
aukaskattsdeild var þar sett á
stofn. Mikið hefur verið að gera
þessa fyrstu daga ársins, margir
hringt og leitað margvíslegra
upplýsinga. Guðmundur segir að
við því hafi fyrirfram verið búist,
en gert sé ráð fyrir að hægist um
þegar frá líði. óþh
hvers konar sem og líkamsárás-
um fjölgað áberandi á milli ára.
Að sögn Daníels er ekki hægt að
skýra fjölgunina öðruvísi en að
tíðarandinn hafi greinilega breyst
og skórinn kreppi nú að hjá
almenningi.
Af öðrum þáttum má nefna
108 kærur vegna skemmdarverka
á árinu, 85 árið áður. Rúðubrot
voru 71 árið 1989 en 98 árið áður.
Árekstrum fer sífellt fækkandi og
kemur þar m.a. til breytt fyrir-
komulag á skýrslugerð. Árið
1987 voru þeir 533, 1988 253 og í
fyrra 144 talsins. Umferðarslys-
um fækkar sömuleiðis, þau voru
63 árið 1988 en fækkaði í 49 í
fyrra. Vinnuslys sem komu til
rannsóknar hjá Rannsóknarlög-
reglunni á Akureyri voru 28 í
fyrra en 19 árið áður. Banaslys
voru 5 á árinu 1989 en í þeim lét-
ust 7 manns. VG
Vetrarstarfið í Líkamsræktarstöðinni á Bjargi á Akureyri, er að komast á fullt skrið og í vetur verður boðið upp
á fjölmargt fyrir þá sem vilja gera eitthvað skemmtilegt í skammdeginu og styrkja kroppinn um leið. Má þar
nefna líkamsrækt, dansleikfími, spunadans fyrir börn og unglinga og veggbolta. Aðstaðan á Bjargi er með því
besta sem gerist og flestir ættu að geta fundið þar eitthvað við sitt hæfí. Nánari upplýsingar og tímapantanir eru
í síma 26888. Á myndinni eru ungar stúlkur í spunadansi, undir stjórn Önnu Richardsdóttur. Mynd: kl
r
Utsalan hefst mánudaginn 15. janúar
að Hafnarstræti 88
Föt frá kr. 7.500 Peysur .. kr. 1.000
Jakkar kr. 3.500 Stakkar .. kr. 2.000
Buxur kr. 1.000 Gaflabuxur ... .. kr. 2.990
Frakkar (ull) . kr. 5.500 Dress .. kr. 3.000
Skyrtur . kr. 500
Ath. 15% afsláttur af öllum vörum
í versluninni Hafnarstræti 92
á meðan útsalan stendur
Komið og gerið góð kaup