Dagur - 13.01.1990, Síða 5
Laugardagur 13. janúar 1990 - DAGUR - 5
íþróttir
Úrvalsdeildin í körfu:
Tindastóll lagði Haukana
Tindastóll sigraði Hauka verð-
skuldað í íþróttahúsinu á Sauð-
árkróki á fimmtudaginn.
Lokatölurnar urðu 80:77 og
eru stólarnir nú komnir upp
fyrir Hauka í A-riðli.
Strax í upphafi náðu Stólarnir
forskoti sem þeir létu ekki af
hendi fyrir hlé. Það vakti athygli
hve margar sendingar misfórust
hjá Tindastóli. ívar Webster hélt
Haukum á floti í hálfleiknum
með firna góðum leik bæði í sókn
og vörn. Staðan í leikhléi var
48:37.
Seinni hálfleikur byrjaði afleit-
lega hjá heimamönnum, vörnin
léleg og hittnin nánast engin. Það
fór reyndar svo að Haukarnir
jöfnuðu leikinn 54:54 en þá
misstu þeir Jonathan Bow út af
með 5 villur.
Stólarnir brutu ísinn með
körfu frá Sturlu og þá var eins og
allar flóðgáttir opnuðust og
heimamenn rúlluðu yfir Hauk-
ana. Á lokamínútunni hefðu
fiaukar með smá heppni reyndar
Knattspyrna:
Nýtt félag
áKróknum
- hlaut nafnið Þrymur
Nýtt knattspyrnulið var stofn-
að á Sauðárkróki á fimmtudag-
inn var. Hlaut það nafnið
Þrymur og er ætlunin að senda
það til keppni í fjórðu deild
næsta sumar.
Mikið fjölmenni var á stofn-
fundinum óg alls skráðu sig um
30 manns í félagið. Mikill áhugi
hefur verið á því að stofna svona
lið undanfarin ár en mönnum
ekki tekist það fyrr en nú.
í stjórn félagsins voru kosnir
Svanur Jóhannsson formaður,
Ásmundur Baldvinsson varafor-
maður, Kristján Baldvinsson
gjaldkeri, Páll Friðriksson ritari
og Björn Ingimarsson og Harald-
ur Leifsson meðstjórnendur.
Unnið er nú að því að ráða
þjálfara og eru líkur á því að til
þess verði valinn Alfreð Guð-
mundsson íþróttakennari á
Króknum. kj
getað jafnað og tryggt sér fram-
lengingu, því er um 10 sekúndur
voru eftir skaut Bo Heiden ansi
tvíræðu skoti sem geigaði en
heppnin var með í þetta skiptið
og ívar Ásgrímsson brenndi af
þriggja stiga skoti.
Bestur heimamanna var án efa
Sturla Örlygsson sem sýndi frá-
bæran varnarleik að venju og
kom svo liðinu af stað í seinni
hálfleik. Bo lék oftast vel í sókn,
sérstaklega í fyrri hálfleik. Pá lék
Ólafur Adolfsson frábærlega í
vörn og hefur ekki sést annar eins
„frákastari" á Sauðárkróki lengi.
Hjá Haukunum áttu þeir nafn-
ar Webster og Ásgrímsson góðan
leik og hefur Webster ekki sést
áður svona léttur á sér. Þá átti
Henning góða spretti.
Stig UMFT: Bo 36, Sturla 18, Valur
110, Olafur, Sverrir og Pétur 4 hver,
Björn og Sverrir 2 hvor.
Stig Hauka: Webster 22, ívar Ás. 20,
Bow 10, Pálmar 9, Henning og Reynir 6
og Jón Arnar 2.
Dómarar voru Kristján Möller
og Jón Bender og dæmdu þeir vel
en voru full strangir á brot í
teignum. kj
Sturla Örlygsson skoraði 18 stig fyrir Tindastól.
Blak:
KA og HSK í dag
- keppt í Glerárskóla
Einn leikur verður í 1. deild
karla í blaki í dag. Þá keppa lið
KA og HSK í íþróttahúsi Gler-
árskóla og hefst leikurinn kl.
14.00. KA lenti í nokkrum erf-
iðleikum með lið HSK á úti-
velli þannig að búast má við
spennandi Ieik í dag.
Lið HSK er að mestu skipað
nemendum úr íþróttakennara-
skólanum en þar eru einnig
frjálsíþróttamennirnir sterku,
Pétur og Andrés Guðmundssyn-
ir.
Vert er að minnna á leik KA
og Vals í 1. deildinni í handknatt-
leik í dag kl. 16.30 í íþróttahöll-
inni.
gruim
★ Ritvinnslu
★ Töflureikni
★ Gagnagrunr
★ Forritun
Allir velkotnnir -
Veitingar.
Tökufræðslan Akureyri h£
Glerárgötu 34, 4. hæð, sími 27899.
Gleymið ekki
að gefa smáfuglunum.
Fundarboð
Samtök jafnréttis og félagshyggju boða til fundar
í Blómaskálanum Vín þriðjudaginn 16. janúar kl.
21.00.
HVAÐ VILTU GERA TIL AÐ
BÆTA ÁSTAND ÞJÓDMÁLA?
Fundarstjóri: Auður Eiríksdóttir.
Frummælendur: Bjarni Guðleifsson, Stefán Halldórsson,
Eiríkur Hreiðarsson og Stefán Valgeirsson.
Viö viljum afnema lánskjaravísitölu án tafar.
Við viljum önnur bjargráð en álver við Eyjafjörð.
Ráðum ráðum okkar sjálf en treystum
ekki á erlenda aðila.
Höfum irið ekki fengið nóg af sjónhverf-
ingum og síauknu misrétti?
Samtök jafnréttis og félagshyggju.
óskar eftir að ráða fólk til starfa til að skrifa
fasta þætti í blaðið. Tilskilin er góð íslensku- og
vélritunarkunnátta og góð almenn menntun.
Um eftirtalda efnisþætti er að ræða, auk þess
sem ábendingar um fleiri eru vel þegnar:
★ Unglingar
★ Tónlist
★ Tómstundir
★ Neytendamál
Ennfremur óskar blaðið eftir fólki til að skrifa
fasta þætti um sjálfvalið efni.
Skriflegar umsóknir berist ritstjóra fyrir 1.
febrúar nk.
Strandgötu 31, Akureyri, sími 24222.