Dagur - 13.01.1990, Side 7

Dagur - 13.01.1990, Side 7
Laugardagur 13. janúar 1990 - DAGUR - 7 plötusöfnun Þrettán ára gamall fór hann út í plötubúð og festi kaup á hljómplötu með hinum skrautlega tónlistarmanni Alice Cooper. Platan sú heitir Killer. Allt frá þeim „örlagaríka“ degi hefur Cooper verið í miklu uppáhaldi og plötur hans skipa veglegan sess í plötusafni sem telur 1057 stykki á því herrans ári 1990. Boltinn fór að rúlla þegar pilturinn komst á táningsaldur og nú bera plötukaupin keim af söfnunaráráttu. Safnarinn sem um ræðir heitir Árni Henrikssen, trommari og bensínafgreiðslumaður á Akureyri. Hann og plötusafnið hans er undir smásjá helgarblaðsins að þessu sinni. Bróðurpartur plötusafns Árna er á loftskörinni. Safnið er vel flokkað og aðgengilegt og er engu líkara en maður sé staddur inn í meðalstórri hljómplötuverslun!!! Árni Henrikssen keypti Killer með Alice Cooper 13 ára gamall en síðan hafa 1056 plötur bæst í safnið: Þungarokkari af guðs náð „Ég hafði ekki hugsað mér að safna plötum þegar ég keypti þessa plötu með Alice Cooper. Það eina sem ég hafði ákveðið var að kaupa góð hljómflutnings- tæki og þau eignaðist ég fjórum árum síðar. í þá daga hafði ég áhuga á þungarokkinu. Bítlarnir og Roll- ing Stones heilluðu mig líka og ég keypti plötur þeirra um leið og þær komu út. Plötukaupin byrjuðu rólega hjá mér. Það má eiginlega segja að kaup á hljómflutningstækjun- um hafi komið plötusöfnun af stað hjá mér.“ Nauðsynlegt að hafa áhuga á tónlist Öll þessi ár hefur safnarinn Árni keypt skífur í safnið í hljóm- plötuverslunum á Akureyri, hjá Kgupfélagi Eyfirðinga og í Hljómveri. Pétur Hallgrímsson, afgreiðslumaður í Hljómveri, hefur á síðari árum séð um að svala þungarokksþorsta Árna, enda sjálfur mikill áhugamaður um þá tegund tónlistar. Árni seg- ist aldrei hafa komist upp á lag með að kaupa plötur í gegnum hljómplötuklúbba erlendis. „Ég hef reyndar hugsað mér að reyna það,“ segir hann. Árni telur að plötusöfnun sé að ýmsu leyti frábrugðin annarri söfnun. Nauðsynlegt sé að hafa brennandi áhuga á tónlist. Á það skortir ekki hjá Árna. Hann hef- ur lengi barið húðir og m.a. spil- að í tveim vel þekktum hljóm- sveitum, Baraflokknum sáluga og Rokkbandinu. Á undanförn- um tveim árum hafa trommu- kjuðarnir hins vegar legið ósnert- ir niðri í skúffu en Árni viður- kennir að hann kitli að byrja aft- ur og hafi hug á að festa kaup á trommusetti. „Ég hef mjög gaman af músík og hlusta mikið á hana. Pegar ég kem heim úr vinnunni fer ég yfir- leitt beint að fóninum og set plötu á fóninn. Þungarokkið er mín tónlist, en í seinni tíð hef ég keypt meira af ýmsu léttmeti." Fer í plötuverslun í hverri viku En hvað skyldi ákvarða hvaða plötur eru keyptar inn í safnið? Árni svarar því þannig til að hann hafi ekkert ákveðið „kerfi" við plötukaupin. „Ef ég sé ein- 10-15 þúsund krónur á mánuði Þungarokkið er sem fyrr segir sú tegund tónlistar sem oftast snýst á fóninum hjá Árna. Aiice Coop- er stendur alltaf fyrir sínu og sama má segja um þá gömlu góðu Thin Lizzy. Hljómleikaplatan með þeirri hljómsveit, sem út kom árið 1978, segir Árni að sé hans uppáhalds skífa í yfir 1000 platna safni. Plötur eru dýrar þótt óneitan- lega hafi verð á þeim lækkað að hlutfalli á síðustu árunt. Árni segir að ekki sé óvarlegt að ætla Trommarinn Árni setur „heddfón- ið“ á sig og hlustar íbygginn á fyrstu plötu Baraflokksins á Akureyri, en á þeirri plötu barði Árni húðir. „Jú, ég er vel sáttur við þessa plötu og tel að tónlistin á henni hafi verið sér á báti.“ hverja álitlega plötu fæ ég að hlusta á hana í plötuversluninni og kaupi hana síðan ef hún fellur mér í geð. Ég fer hverja einustu viku í plötuverslánir og athuga hvað er á boðstólum. Segja má að ég hlusti í botn á þær plötur sem ég kaupi. Eftir að hafa spilað þær út legg ég þær til hliðar og gríp í einhverjar gamlar og góðar.“ Erlendar plötur eru bróður- partur plötusafnsins. Samkvæmt bókhaldinu eru í því einungis 75 íslenskar plötur, allar hinar 982 eru erlendar. Bubbi er í uppá- haldi af innlendum flytjendum og þá hefur Árni mætur á hljóm- sveitinni Gildrunni. Lítið er um blúsplötur í safni Árna og það sama má segja um jazzinn og klassíkina. „En satt best að segja er ég allt að því alæta á músík og hef t.d. mjög gaman af blús.“ Með Alice Cooper á brjóstinu og umvaiinn öðrum góðum LP-skífum er gott að láta þreytuna líða úr sér. Að ekki sé nú minnst á ef Thin Lizzy er á fón- inum. Myndir: KL að hann kaupi plötur fyrir 10-15 þúsund krónur á mánuði. Eftir að geisladiskurinn kom til sögu- nnar hefur hann verið keyptur með,. en Árni er þess fullviss að hann muni aldrei skáka vínilplöt- unni. Athygli vekur þegar flett er í gegnum plötusafn Árna hversu vel með farnar plötur hans eru. Þær eru allar í plastumslögum og líta mjög vel út. „Það er lykil- atriði að fara vel með plöturnar, láta þær alltaf í umslögin að lok- inni spilun og krafla ekki inn á þær. Þá hefur rnikið að segja að hafa góða nál í plötuspilaranum. Það er nauðsynlegt að skipta um hana að minnsta kosti einu sinni á ári.“ Húsnæðið að springa Langt er síðan svefnherbergið rúmaði ekki plötusafn Árna. Þá þurfti að finna því stað og niður- staðan var að setja hluta þess á loftskörina við stigann. „Ætli ég verði ekki að fara að huga að nýj- unt stað í húsinu fyrir plöturnar,“ segir Árni og hlær. Á meðan blaðamaður flettir í gegnum þungarokksgeirann í plötusafni Árna er geisladiskur með Roy heitnum Orbinson sett- ur af stað og ljúfir tónar gamla goðsins flæða um allt herbergið. „Á þessurn diski er einstaklega gott sánd,“ segir Árni og útskýrir að hann leggi rnikið upp úr hljómgæðum. Hljómflutnings- tækin eru heldur ekki af verri endanum og mætti ugglaust lyfta þaki af meðalhúsi séu þau keyrð af fullum krafti. Árni segist hins vegar ekki leggja í það en viður- kennir þó að stundum sé skrúfað duglega frá flóðgáttum tónanna þegar þungarokksplötu er brugð- ið á fóninn. Það kennir ýmissa grasa í safn- inu. Sem dæmi má nefna plötur með Whitesnake, Eric Clapton, Chicago, Dragon, Deep Purple, The Beatles, Queen, Creem, Elt- on John, Men at Work, Peter Frampton, Rush, Dr Hook, Gamma, Fleetwood Mac, Aeorosmith, Boston, Phil Collins, Uriah Heep, Led Zepp- elin, Samantha Fox, Billy Joel, Dire Straits, Sykurmolum, Jó- hanni Helgasyni, Fóstbræðrum, Eik, Geirmundi Valtýssyni, Halla og Ladda, Logum, Ýr, Dúkkulísum, Stuðmönnum og Stúlknakór Selfoss. óþh

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.