Dagur - 13.01.1990, Side 16

Dagur - 13.01.1990, Side 16
Akureyri, laugardagur 13. janúar 1990 Opið alla daga vikunnar frá kl. 08-23.30 Hjá okkur er gott að versla oggóð þjónusta Verslunin ÞDEPIB Móasíðu 1 • Sími 27755. Opið alla daga vikunnar frá kl. 8-23.30. Heimsendingar- þjónusta. Útgerðarfélag Norður-Þingeyinga: Aflaverðmæti Stakfeflsins 210 mflljónir á flðnu ári - greiðslustöðvun rennur út um mánaðamótin Stakfell ÞH-360, frystitogari Útgerðarfélags Norður-Þing- eyinga á Þórshöfn, veiddi 2.500 tonn á árinu 1989. Afla- verðmæti var 210 milljónir brúttó og úthaldsdagar 197. Á árinu 1988 veiddi Stakfellið 3.386 tonn, en þá fékk togar- inn hluta af kvóta Súlnafells- ins. Úthaldsdagar voru þá 248 og brúttóverðmæti aflans svip- að og á síðasta ári, eða um 210 Verkefnastaða Slippstöðvarinnar: Möguleiki á endurbótum á Suðureyrartogara „í versta falli gætu þessir starfsmenn misst vinnuna en við berjumst fyrir að svo verði ekki,“ sagði Sigurður Ring- sted, forstjóri Slippstöðvarinn- ar á Akureyri aðspurður um hvort þeir 70-80 starfsmenn sem ekki hafa fengið endur- ráðningu hjá fyrirtækinu missi vinnuna um næstu mánaða- mót. Sigurður staðfesti að viðræður hafi farið fram milli Slippstöðvar- innar og útgerðar togarans Elínar Þorbjarnardóttur á Suðureyri um endurbætur á skipinu en á þessari stundu sé óljóst hvort af þeim verði. „Það er ýmislegt í athugun hjá okkur og þetta er eitt af þeim verkum,“ sagði Sigurður. Hann sagði einnig að ekki sé loku fyrir það skotið að af sölu raðsmíðaskipsins til Meleyrar á Hvammstanga verði þrátt fyrir að Fiskveiðasjóður íslands veiti Meleyri ekki fyrirgreiðslu. Sig- urður vildi hins vegar ekkert um það segja hvaða aðili gæti hugs- anlega veitt fyrirtækinu lánafyrir- greiðslu í stað Fiskveiðasjóðs. JÓH milljónir króna. Rekstur Stakfellsins hefur ver- ið erfiður á undanförnum mán- uðum og mikil veð hvíla á skip- inu. Útgerðarfélag Norður-Þing- eyinga fékk greiðslustöðvun síðla árs og rennur hún út í lok janúar. Búist er við að stjórn ÚNÞ fari fram á framlengingu greiðslu- stöðvunar. Grétar Friðriksson hjá ÚNÞ sagði í samtali við Dag að allri vinnu í sambandi við hjálpar- beiðnir væri lokið. Fyrirtækið hefði sent umsóknir til Fllutafjár- sjóðs og Byggðasjóðs og nú væru menn að bíða eftir svari. „Við leggjum mikla áherslu á að fá svör um þessa hluti fljót- lega. Það sem menn binda mestar vonir við er að Hlutafjársjóður komi inn í fyrirtækið með hlutafé og eigendur ÚNÞ leggi fram auk- ið hlutafé á móti. En síðan verð- ur rekstrargrundvöllurinn að batna í kjölfar slíkra aðgerða til að þær skili árangri,“ sagði Grétar. SS ,Oh þessir Ijósmyndarar!“ Mynd: KL Framtíð rækjuvinnslu á Siglufirði: Ríkið á eftir að höggva á hnútmn Framtíö rækjuvinnslu á Siglu- flröi er óráðin enn og ekki vit- að hvað ríkið hyggst gera í málinu. Rætt er um þrjá möguleika, að ríkissjóður leigi eða selji öðrum hvorum aðil- Útgerðarfélag Akureyringa hf.: Afli togaranna dróst saman um þúsund tonn milli ára Afli togara Útgerðarfélags Akureyringa hf. var 1.034.273 kg minni í fyrra en árið 1988. Brúttóverðmæti aflans var 839,7 milljónir króna saman- borið við 732,3 milljónir árið áður. Framleiðsla freðfísks í hraðfrystihúsinu jókst um 496 tonn milli ára en saltfískfram- leiðsla minnkaði um 327 tonn. 1 nýútkominni skýrslu um framleiðsluverðmæti og afla á vegum Ú.A. í fyrra sést að Kald- bakur er aflahæstur ísfisktogar- anna, eins og áður hefur komið fram. Aflaverðmæti Kaldbaks var 130,9 milljónir króna í fyrra. Aflaverðmæti frystitogarans Sléttbaks var 291,7 milljón kr. Harðbakur var hinsvegar sá tog- Húsvísk matvæli hf.: Rækjusölusaimungur gerður við Frakka - 200 þúsund dósir afgreiddar í sumar Húsvísk matvæli hf. hafa náð samningum um sölu á 200 þúsund dósum af niðurlagðri rækju á Frakklandsmarkað, og voru samningarnir stað- festir í gær. Afgreiðslutími rækjunnar er frá maí til októ- ber. Rúmlega mánuð tekur að vinna þetta magn hjá fyrir- tækinu, en þar starfa nú 12 manns. Franski aðilinn sem kaupir rækjuna er heildsali og dreifir hann vörunni til sölu í stór- mörkuðum. „Ég er mjög ánægður með að sjá þetta dæmi takast og geri ntér vonir um að áframhald verði á sölu til þessa kaupanda," sagði Jakob Bjarnason, framkvæmdastjóri Húsvískra matvæla hf, í samtali við Dag í gær. Hjá fyrirtækinu er nú verið að vinna rækju fyrir Tengel- mann í Vestur-Þýskalandi, en samningar um sölu á niðursoð- inni lifur til Rússlands ganga illa. IM ari Ú.A. sem var með mestan afla pr. veiðidag, 16.230 kg. Hrímbakur fór flestar veiði- ferðir í fyrra, 26, en Sólbakur fæstar, 13 veiðiferðir. Ráðstöfun aflans árið 1989 skiptist þannig að 17.659.992 kg voru losuð á Akureyri til Ú.A., 157.719 kg til annarra aðila á Akureyri en 4.255.261 kg afli fór í frystingu um borð. Afli alls var 22.072.972 kg. Framleiðsla frystihússins var sem hér segir árið 1989: Freðfisk- ur 6.884 tonn, skreið 10 t, salt- fiskur 622 tonn og hausar 183 t. EHB anum sem vilja hefja vinnslu, Siglunesi hf. eða Sunnu hf., verksmiðjuhús Sigló, eða að ríkið hefji sjálft rekstur. Að sögn framkvæmdastjóra Sunnu hf. hefur bráðabirgðasam- komulag verið gert milli félags- ins og fjármálaráðuneytisins um málið, en það er ófrágeng- ið. Ólafur Marteinsson fram- kvæmdastjóri Sunnu segir að ýmissa hluta vegna hafi ekki ver- ið hægt að ganga endanlega frá samkomulagi við ríkissjóð, en allir aðilar séu sammála um að mál þetta verði að leysa hið allra fyrsta. Siglunesi hf. hefur borist bréf frá ríkisskattstjóra þess efnis að félagið teljist almenningshluta- félag, að sögn stjórnarformanns þess, og munu hluthafar njóta skattfríðinda samkvæmt settum reglum fyrir árið í fyrra. Um ára- mótin höfðu 47 aðilar skráð sig fyrir 18,5 milljóna kr. hlutafé. Næsta laugardag verður hluthafa- fundur í Siglunesi hf. á Siglufirði. Þar verður gerð grein fyrir stöðu mála varðandi rækjuvinnsluna, en erindi fyrirtækisins til fjár- málaráðuneytisins frá 15. nóvember sl. um viðræður vegna reksturs í húsi verksmiðjunnar er ennþá ósvarað. Guðmundur Arnaldsson, stjórn- arformaður Sigluness, segir að persónulega finnist sér nauðsyn- legt fyrir bæjarfélagið að rekstur- inn hefjist sem fyrst á ný. „Ég styð auðvitað Siglunes en vil þó frekar að Sunna hefji vinnslu en að verksmiðjuhúsið standi autt og ónotað,“ segir hann. Samkvæmt heimildum Dags lögðu forsvarsmenn Sunnu áherslu á að félagið fengi einka- leyfi til rækjuvinnslu á Siglufirði, með sérstakri yfirlýsingu sjávar- útvegsráðherra. Sömu heimildir segja að Halldór Ásgrímsson hafi neitað þessari málaleitan. Líklegt er talið að Siglunes hafi meiri áhuga á að leigja Siglóhúsið en að kaupa það, en auk þess hefur félagið leitað að öðru hús- næði fyrir starfsemi sína, náist ekki samningar við ríkið. Ýmsar raddir á Siglufirði segja að ekki sé um annað að ræða en samein- ingu þeirra afla sem vilja hefja rækjuvinnslu í bænum, úr því sem komið er. EHB íþrótta- og kennsluaðstaða á Svalbarðseyri: Uppbyggiiigu haldið áfram næsta sumar í vor verður á ný hafíst handa við byggingu kennslu- og íþróttaaðstöðu á Svalbarðs- eyri. Ekki er Ijós á þessari stundu hvenær hægt verður að taka húsið í notkun en það ræðst m.a. af framlagi úr Jöfnunarsjóði sveitarfélag en reglur um úthlutanir breyttust nú um áramótin. Að sögn Bjarna Hólmgríms- sonar, oddvita Svalbarðsstrand- arhrepps, er ætlunin að ljúka uppsteypu á húsinu í sumar. Framkvæmdirnar hafa legið niðri frá árinu 1986 þar sem megin- áhersla hefur verið lögð á að ljúka byggingu íþróttahússins á Hrafnagili í Eyjafirði en að þeirri byggingu stóð hreppurinn ásamt hreppunum þremur í Eyjafirði. Þegar framkvæmdirnar fóru í bið á Svalbarðseyri árið 1986 var lokið tæplega þriðjungi bygging- arinnar. í þessu húsi verður íþróttasalur með tilheyrandi bún- ingsaðstöðu og verður hún einnig nýtt fyrir sundlaugina. Þessi íþróttaaðstaða verður notið fyrir kennslu í barnaskólanum, svo og fyrir hreppsbúa. Þá verður og í húsinu kennsluaðstaða fyrir barnaskólann. JÓH

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.