Dagur - 17.01.1990, Blaðsíða 3

Dagur - 17.01.1990, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 17. janúar 1990 - DAGUR - 3 fréttir Frá fyrsta fundi Þjónustusambands íslands á Akureyri í fyrradag. Sex stéttarfélög standa að stofnun sambandsins í byrjun en búast má við að aðildarfélögum fjölgi. Akureyri: Fyrsti fundur aðildarfélaga Þjónustusambands íslands „Að þessu standa í byrjun sex stéttarfélög en ætlunin er að þetta verði samtök þeirra sem starfa í þjónustu. Fleiri stéttar- félögum var boðin þátttaka að þessu og búast má því við að aðildarfélögum eigi eftir að fjölga meira,“ segir Haraldur Sigurðsson, starfsmaður í Sæluhúsinu á Dalvík, um fyrsta fund nýstofnaðs Þjón- ustusambands íslands sem haldinn var á Akureyri í fyrra- dag. Að stofnun sambandsins standa Félag framreiðslumanna, Félag matreiðslumanna, Félag kjötiðnaðarmanna, Félag bak- Leikfélag Akureyrar: Þráðlausum hljóðnemum stolið úr Samkomuhósinu - nýtast aðeins LA og þjófurinn hvattur til að skila þeim Brotist var inn í Samkomuhús- ið á Akureyri í kringum ára- mótin og stolið þaðan þremur þráðlausum hljóðnemum, sem eru mjög verðmætir fyrir Leik- félag Akureyrar en hins vegar gagnslausir fyrir þjófinn. Þess- ir hljóðnemar eru hluti af viða- miklu hljóðkerfi Leikfélagsins og þeir eru ónothæfir án mót- tökubúnaðarins sem er kyrfi- lega fastur í Samkomuhúsinu. Innbrotið hefur að öllum lík- indum verið framið á gamlársdag eða nýársdag. Þjófurinn braut rúður til að komast inn um glugga á Samkomuhúsinu og einnig rúðu í miðasölunni í leit að peningum, en peningar eru aldrei geymdir í húsinu. Leið hans lá þá í klefa ljósameistara og hljóðmanns og þaðan voru teknir þrír þráðlausir hljóðnemar og tveir hefðbundnir. Ékki voru aðrar skemmdir unnar á húsinu. Sigurður Hróarsson, leikhús- stjóri, sagði að hljóðnemarnir kæntu engum að gagni nema Leikfélaginu og þeir væru auk þess auðþekktir vegna sérstakrar tíðni. Hann taldi því farsælast fyrir báða aðila að hljóðnemun- um yrði hreinlega skilað. „Við skorum á þann eða þá sem hlut eiga að máli að skila þessu til Leikfélagsins. Við för- um ekki fram á að viðkomandi komi með þetta til okkar en hann má senda hljóðnemana til okkar í pósti eða koma skilaboðum á framfæri. Þá látum við málið nið- ur falla,“ sagði Sigurður. Nokkuð hefur borið á innbrot- um í Samkomuhúsið á undan- förnum árum en yfirleitt hafa þar verið krakkar á ferð í leit að sæl- gæti. Þessi heimsókn var af öðr- um toga og segir Sigurður að varla verði hjá því komist að setja upp þjófavarnakerfi í hús- inu. SS Húsavík: Sex tilboð í Fosshúsin Sala á Fosshúsunum að Garð- arsbraut 48 á Húsavík er ekki frágengin, að sögn Arna Sveinssonar, útibússtjóra Landsbankans á Húsavík. Þó liggur Ijóst fyrir að samið verð- ur um kaup á þeim við fjóra af tilboðshöfum, en í síðustu viku fékk bankinn sex tilboð frá fimm aðilum í eignirnar, en eignunum verður skipt í fjóra hluta. Bankinn eignaðist húsin á upp- boði í fyrra eftir að Vélaverk- stæðis Foss hf. varð gjaldþrota. Þrjú fyrirtæki eru með rekstur í húsunum; Málmur hf., BK bíla- verkstæði og Trésmíðaverkstæði Jónasar Gestssonar og Eggerts Jóhannssonar. Það mun skýrast um mánaða- mót við hverja verður samið um húsakaupin, en ljóst er að um heimaaðila er að ræða. IM arasveina, Hárgreiðslu- og rak- arasveinafélagið og Félag starfs- fólks í veitingahúsum. „Þetta var aðallega gert til að samræma launakröfur og lífeyris- sjóðsmál. Öll þessi félög eru inn- an Alþýðusambands íslands og ætlunin er að hér eftir komi þetta samband fram fyrir þjónustugeir- ann. Jafnframt er verið að vinna að því að koma á fót fræðslu- nefnd sem vinnur að skólamálum fyrir þessi samtök og fleira slíkt er í athugun,“ segir Haraldur. Haraldur segir jafnframt að búast megi við að ef til verkfalla komi hjá einu eða fleiri félögum innan sambandsins muni hin að- ildarfélögin sýna samstöðu, jafn- vel með samúðarverkföllum. „Félög á þessu sviði hafa verið of mörg, smá og veikburða og því er mikil stoð að heildarsamtök- um sem þessum,“ segir Haraldur. JÓH Sauðárkrókur: „Lokunarmálið“ til umræðu í bæjarstjóm - greinargerð send til félagsmálaráðuneytisins Bæjarstjórn Sauðárkróks fjall- aði um „lokunarmálið“ svo- nefnda á fundi sínum fyrr í vik- unni. Þar var samþykkt grein- argerð sem send verður til Fé- lagsmálaráðuneytisins um ástæður fyrir lokun bæjar- stjórnarfundar þann 6. des- ember sl. í tuttugustu grein samþykktar um stjórnun Sauðárkróksbæjar segir m.a. að bæjarstjórn geti ákveðið að ræða einstök mál fyrir luktum dyrum, s.s. viðkvæm einkamál eða viðskiptamál, sem æskilegt er vegna hagsmuna bæjarins að rædd verði fyrir lukt- um dyrum. Eins og Dagur hefur skýrt frá sendi aðili á Sauðárkróki Félags- málaráðuneytinu bréf þar sem hann biður ráðuneytið um að athuga lögmæti þessarar lokunar. í framhaldi af því barst Bæjar- stjórn Sauðárkróks bréf þar sem beðið er um greinargerð vegna lokunarinnar og var hún einmitt samþykkt á fundinum nú í vik- unni. í greinargerð þessari kemur m.a. fram að sá sem óskaði eftir lokun fundarins, í þessu tilfelli formaður Hafnarstjórnar, taldi að þær upplýsingar sem skýrðu ástæðu þess að lægsta tilboði var ekki tekið, flokkuðust undir við- kvæm einkamál þar sem um var að ræða trúnaðarupplýsingar um fjárhagsstöðu viðkomandi og stöðu hans sem verktaka gagn- vart fyrri verkkaupum sem hann var að vinna fyrir. Þar kom einn- ig fram að rétt fyrir áramótin var verk sem þessi aðili hafði fyrir Vegagerð ríkisins tekið af honum. Þegar þessi tillaga var borin fram samþykktu 7 af 9 bæjarfull- trúum lokunina en tveir sátu hjá. Annar þeirra var Magnús Sigur- jórtsson sem lét bóka á nýliðnum fundi að hann tæki ekki afstöðu til þessarar greinargerðar þar sem hann sat hjá við atkvæða- greiðslu um lokun fundarins 6. desember. kj Vísitala framfærslukostnaðar: Hefiir hækkað um 4,2% síðustu þrjá mánuði Kauplagsnefnd hefur reiknað vísitölu framfærslukostnaðar miðað við verðlag í janúarbyrj- un 1990. Vísitalan í janúar reyndist vera 139,3 stig (maí 1988=100), eða 0,5% hærri en í desember 1989. Samsvarandi vísitala samkvæmt eldra grunni (febrúar 1984=100) er 341,5 stig. Upptaka virðisaukaskatts um síðustu áramót hafði í för með sér 0,7-0,8% beina lækkun á vísi- tölu framfærslukostnaðar, sem ella hefði hækkað um 1,2-1,3%. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala framfærslukostnaðar hækkað um 23,7%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 4,2% og jafngildir sú hækkun um 17,8% verðbólgu á heilu ári. Árið 1989 var vísitalan að meðaltali 21,1% hærri en árið áður en sambærileg meðalhækk- un 1987-1988 var 25,5% og 18,8% 1986-1987. ríkisins auglýsir styrki til rannsókna og tilrauna árið 1990 Umsóknarfrestur er til 1. mars nk. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu ráðsíns, Laugavegi 13, sími 21320. • Um styrk geta sótt fyrirtæki, stofnanir eða einstaklingar. • Styrktarfé skal varið til rannsókna og þróunar á nýrri tækni og afurðum, sem talin er þörf fyrir næsta áratug. • Mat á verkefnum, sem sótt er um styrk til, skal m.a. byggt á; - líklegri gagnsemi verkefnis, sérstaklega markaðsgildi niðurstaðna, sem sóst er eftir, - gildi fyrir eflingu tækniþekkingar eða þróunar atvinnugreina hér á landi, - hæfni umsækjenda/rannsóknamanna, • Forgangs skulu að öðru jöfnu njóta verkefni, sem svo háttar um að; - samvinna fyrirtækja og stofnana innanlands er mikilvægur þáttur í framkvæmd verkefnisins, - samstarf við erlend fyrirtæki og rannsókna- og þróunarstofnanir er mikilvægt, - fyrirtæki leggja umtalsvert framlag til verkefnisins, - líkindi eru á skjótum og umtalsverðum árangri. Heimilt er einnig að styrkja verkefni, sem miða að uppbyggingu þekking- ar og færni á tæknisviðum, sem talin eru mikilvæg fyrir atvinnuþróun hér á landi í framtíðinni.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.