Dagur - 17.01.1990, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 17. janúar 1990 - DAGUR - 5
4
fréttir
r-
Dalborg EA á Dalvík aflar rækju fyrir Söltunarfélag Dalvíkur:
Hjólin að byrja að snúast
- tók á móti 700 tonnum af rækju upp úr sjó í fyrra
en um 2000 tonnum 1986
Hjól rækjuvinnslu Söltunar-
félags Dalvíkur eru að byrja að
snúast þessa dagana. Vinnsla
hefur legið niðri í verksmiðj-
unni frá miðjum desember og
er starfsfólk á atvinnuleysis-
bótum frá áramótum. Dalborg
EA er á rækjuveiðum og er
þess vænst að hún sjái verk-
smiðjunni að mestu fyrir hrá-
efni næstu vikurnar.
Magn landaðrar rækju til Sölt-
unarfélagsins hefur farið stig-
ntinnkandi á undanförnum árum.
Að sögn Kristjáns Þórhallssonar,
verkstjóra, tók verksmiðjan á
móti um 2000 tonnum af rækju
upp úr sjó árið 1986. Árið eftir
Heildarafli smábáta í
íyrra um 50.000 tonn
- þar af um 42.000 tonn af þorski
Heildarafli smábáta á síðasta
ári, var í kringum 50.000 tonn
og þar af var þorskaflinn í
kringum 42 tonn, sem er um
12% af heildarþorksaflanum.
Þetta kemur fram í nýjasta
fréttabréfi Landssambands
smábátaeigenda og þar segir
einnig að mun fleiri hafi rekið
sig upp í aflahámörk en árið
1988.
Afkoma smábáta á síðasta ári
var víðast hvar slæm. Þó hefur
ágætt verð á fiskmörkuðum lagað
stöðuna hjá þeim sem hafa að-
stöðu til að selja aflann þannig.
Einnig hafa þeir sem sent hafa
fisk út í gámum einnig fengið
ágætt verð. Hjá þeim sem búa við
Verðlagsráðsverð fyrir aflann, er
staðan mjög erfið.
Tveir síðustu mánuðir ársins
voru víðast hvar ágætir og voru
þó nokkrir bátar sem fiskuðu á
annað hundrað tonn á línu á því
tímabili. Þá segir í fréttabréfinu,
að ekki sé hægt að hugsa sér
betra veganesti inn í nýtt ár,
Sundlaugin
í Glerárhverfi:
Stefnt að vígslu
umeða
eftir helgi
Sundlaugin í Glerárhverfi
verður vígð á næstunni, en iðn-
aðarmenn hafa átt annríkt við
lokafrágang undanfarnar
vikur.
Bæjarstjórinn á Akureyri, Sig-
fús Jónsson segist vonast til að unnt
verði að vígja laugina um helg-
ina, á laugardag eða sunnudag,
eða snemma í næstu viku. „Ég er
ekki búinn að fá það alveg á
hreint hvort laugin verður tilbúin
um helgina, en ef hún verður það
ekki þá hlýtur það að verða í
næstu viku,“ segir Sigfús.
Nýlega var lokið við að leggja
sérstakt gólfefni frá Sjöfn í sund-
laugarhúsinu. Eftir er að hleypa
vatni á sjálfa sundlaugina því þá
fyrst er hægt að kanna allan bún-
að við hana.
Sundlaugin verður opnuð með
sérstakri athöfn, m.a. mun akur-
eyrskt sundfólk stinga sér við
vígsluna, ávörp verða flutt
o.s.frv. EHB
heldur en góðan afla í lok þess
síðasta. -KK
var rækjan á bilinu 1600 og 1700
tonn og árið 1988 minnkaði hrá-
efnið enn niður í um 1300 tonn.
Síðastliðið ár sló þó öll met. Þá
tók Söltunarfélagið einungis á
móti um 700 tonnum af rækju,
sem er einungis um þriðjungur af
landaðri rækju 1986.
Kristján segir að það hafi gert
vinnslustöðvunum, ekki síst
Söltunarfélagi Dalvíkur, erfitt
fyrir á síðasta ári að óheimilt var
að færa óveiddan rækjukvóta yfir
á skuttogara. Hér á áruni áður
fóru togarar Útgerðarfélags Dal-
víkinga, Björgúlfur og Björgvin,
í einn og einn rækjutúr og veiddu
af rækjukvóta. Þessi kvótatil-
færsla var hins vegar ekki heimil
á síðasta ári og segir Kristján að
það hafi gert vinnslunni erfitt
fyrir, en vonir standi til að leið-
rétting fáist á þessu í ár. óþh
Nýttnám
ánj/ju árl
Starfsmenntunamánilð
Kenndar cm tölvu- og viðskipta-
Pú stendnx betur að vígi með slerif-
> í farteskinu.
LOKSINS - LOKSINS
Það sem allir hafa
beðið eftír!
Dagana 18.-28. janúar verður
STÓRVERKSMIÐJU-
ÚTSALA
í húsakynnum okkar að
Gleráreyrum, Akureyri
Skóverksmiðjan STRJKIÐ
Gleráreyrum, sími 96-26111, Akureyri.