Dagur - 08.03.1990, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 8. mars 1990 - DAGUR - 3
fréttir
Framlög til björgunarsveitanna
á Akureyri hækkuð um hebning
Frá aðalfundinum síðastliðinn föstudag. Frá hægri: Friðrik Friöriksson
sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Svarfdæla, Þorsteinn Þorvaldsson sparisjóðs-
stjóri Sparisjóðs Olafsfjarðar, Arni Magnússon fulltrúi KEA í stjórn, Jón
Hallur Pétursson framkvæmdastjóri Kaupþings Norðurlands, Pétur Blöndal
stjórnarformaður, Sigfús Jónsson bæjarstjóri á Akureyri og fulltrúi bæjarins
i stjórn og Róbcrt Agnarsson framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar í Mývatns-
sveit og fulltrúi Kaupþings hf. ■ Reykjavík í stjórn. Mynd: jóh
Á síðasta fundi Bæjarstjórnar
Akureyrar var samþykkt til-
laga fulltrúa Framsóknar-
flnkksins um að hækka fram-
lög til Flugbjörgunarsveitar-
innar á Akureyri og Hjálpar-
sveitar skáta um helming.
Þetta gerðist við síðari
umræðu um fjárhagsáætlun.
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir,
bæjarfulltrúi Framsóknarflokks-
ins, flutti breytingartillögu um
fjárveitingu til björgunarsveit-
anna. Lagði hún til að hvor sveit
um sig fengi 200 þúsund króna
framlag til viðbótar því sem áætl-
að hafði verið, en samkvæmt
frumvarpi að fjárhagsáætlun
meirihluta bæjarstjórnar var gert
ráð fyrir að hvor björgunarsveit
fengi 200 þúsund.
Flugbjörgunarsvcitin fær því
400 þúsund krónur frá Ak'ureyr-
arbæ og Fljálparsveit skáta sömu
upphæð, vegna tillögu Fram-
Hagnaður Kaupþings Norðurlands á árinu 1989 um 10% afveltu:
„Fetta var samkvæmt okkar áætlunum“
- segir Pétur Blöndal, stjórnarformaður
„Síðasta ár var fyrsta árið með
hagnaði hjá félaginu og þetta
var samkvæmt því sem við
höfðum reiknað með. Við ætl-
uðum í upphafi að tvö ár tæki
að ná upp markaði og síðan
yrði hagnaður," segir Pétur
Blöndal, stjórnarformaður
Kaupþings Norðurlands hf.,
en aðalfundur félagsins var
haldinn síðastliöinn föstudag.
Pétur segir að hagnaður félags-
ins á árinu 1989 hafi verið um
10% af tekjum sem sé samkvæmt
þeim áætlunum sem gerðar hafi
verið. Kaupþing Norðurlands
hefur starfað í rösklega tvö ár.
Kaupþing hf. í Reykjavík á
55% í Kaupþingi Norðurlands,
KEA á 15%, Akureyrarbær 15%
og jafn stór hlutur er í eigu sjö
sparisjóða á svæðinu frá Siglu-
firði til Akureyrar.
Pétur segir að tengsl Kaup-
þings Norðurlands við Kaupþing
í Reykjavík séu óneitanlega mikil
þó hið fyrrnefnda teljist sjálfstætt
fyrirtæki. Þessara samskipta njóti
báðir.
„En hvað varðar þá umræðu
að mikið fjármagn fari frá lands-
byggðinni til Reykjavíkur þá hef-
ur það sýnt sig að eftir að Kaup-
þing Norðurlands hóf starfsemi
þá hefur það frekar flutt peninga
norður yfir heiöar en hitt,“ segir
Pétur.
Kaupþing Norðurlands er eina
sjálfstætt rekna verðbréfafyrir-
tækið á landsbyggðinni. Pétur
segir að fyrirtækið verði rekið
áfram með svipuðu sniði, þó
breyting kunni að verða hvað
varðar hlutabréfamarkaðinn.
„Eg spái því að innan skamnts
tíma fari fyrirtæki í auknum mæli
að leita út á hlutabréfamarkað-
inn. Nú þegar er farið að örla á
tilhneigingu í þessa átt hjá fyrir-
tækjum úti á landi,“ segir Pétur.
JÓH
Lóðir í Giljahverfi dreifast á fáar hendur:
Faglega staðið að úthlutun
- segir Heimir Ingimarsson, fulltrúi í bygginganefnd
„Ég tel að nefndin hafi unnið á
faglegum grundvelli við þessa
lóðaúthlutun. Þarna var verið
að gefa stærri byggingaverk-
tökum kost á að ná fram auk-
inni hagkvæmni því hægt er að
lækka byggingarkostnað með
svo stórum áföngum. Auk þess
sótti aðeins einn verktaki fyrir
utan þessa tvo um fjölbýlishús,
hinir sóttu um lóðir fyrir
raðhús,“ sagði Heimir Ingi-
marsson, bæjarfulltrúi, en
hann á sæti í bygginganefnd
Akureyrarbæjar.
Eins og við höfum greint frá
fengu tveir stærstu bygginga-
verktar á Akureyri, Aðalgeir
Finnsson hf. og SS Byggir, bróð-
urpartinn af lóðunum sem bygg-
inganefnd úthlutaði í Giljahverfi.
Aðalgeir Finnsson fékk raðhúsa-
lóðir nr. 2-26 og fjölbýlishús nr.
28 við Drekagil. SS Byggir fékk
raðhúsalóðir nr. 1-19 og fjölbýlis-
hús nr. 21 við Drekagil og rað-
húsalóðir nr. 2-12 og fjölbýlishús
nr. 14 við Tröllagil. Heimir gerði
grein fyrir þessum lóðaúthlutun-
um á síðasta bæjarstjórnarfundi.
Eftir er að úthluta lóðum fyrir
þrjú raðhús, samtals 14 íbúðir,
og eitt fjölbýlishús með 20 íbúð-
um. Haraldur og Guðlaugur
sóttu m.a. um lóð fyrir fjölbýlis-
hús, en aðrir verktakar sóttu um
raðhúsalóðir.
Heimir sagði að bygginganefnd
hefði metið lóða- og verkefna-
stöðu allra verktaka sem sóttu
um þessar lóðir og kom þá í ljós (
að sumir verktakar eiga lóðir fyr-
ir tugi íbúða sem þeir eru ekki
byrjaðir á. Hann sagði að störf
nefndarinnar miðuðu að því að
koma verktökum í gegnum þetta
ár því strax næsta vor kemur
næsti áfangi í Giljahverfi til út-
hlutunar og þá verður séð fyrir
byggingaþörf á Akureyri næstu
þrjú til fjögur árin.
„Húsnæðisþörfin er hins vegar
annað mál. Verktakarnir segjast
ekki geta selt íbúðir á frjálsum
markaði nema í einnar hæðar
raðhúsum og að salan sé undir
félagslega kerfinu komin. Peir
eru allir að bítast um að selja 40-
50 íbúðir í félagslegu kerfi en
þeir eru að sækja urn lóðir fyrir
150 íbúðir í þessari lotu,“ sagði
Heimir.
Bygginganefnd mun taka frek-
ari úthlutun lóða í Giljahverfi
fyrir á næsta fundi. SS
sóknarmanna, sem var samþykkt
með fimm atkvæðum gegn
fjórum. Alþýðubandalagsfull-
trúarnir greiddu atkvæði með til-
lögunni, en fimmti bæjarfullrúinn
sem studdi hana var Pétur Torta-
son.
Úlfhildur sagði þegar hún flutti
tillöguna að Akureyrarbæ bæri
að sýna björgunarsveitunum
viðurkenningu í verki með því að
hækka framlög til þeirra. í björg-
unarsveitunum störfuðu sjálfboða-
liðar, sem krefðust einskis fyrir
vinnu sína, og sveitirnar væru til-
búnar til liðsinnis hvenær sem þörf
væri á, m.a. hefðu þær komið til
hjálpar í óveðurskafla um daginn
og flutt fólk um bæinn, m.a. bæj-
arstarfsmenn.
Pétur Torfason þakkaði hlýlcg
orð í garð björgunarsveitafólks
og kvaðst styðja þessa tillögu af
alhug. ' EHB
Ólafsflarðarvegur norðan við Hól:
Endurbygging frestast
um óákveðinn tíma
Orlofsferð verkalýðsfélaganna: Enn nokkur sæti laus
Mikill áhugi er á vetrarorlofs- ferð verkalýðsfélaganna sem farin verður í beinu flugi frá Akureyri þann 19. mars nk., að sögn Ásdísar Árnadóttur hjá Samvinnuferðum Landsýn sem sjá um að selja sæti í ferð- ina. „Það hefur mikið verið hringt til okkar og spurt svo áhuginn er mikill,“ sagði Ásdís. Hún sagði að enn væru nokkur sæti laus en þess misskilnings mun hafa gætt að þátttaka í ferðina væri bundin við ákveðinn hóp manna. Hið rétta er að þar til í gær gengu eftirlaunaþegar fyrir um sæti en nú geta allir sem áhuga hafa farið með. Að sögn Ásdísar var ferðin sem farin var í fyrra mjög vel heppnuð en nú hafi verið gerður samningur við mun betra hótel en þá. Þá segir hún verð í þessa ferð einstaklega hagstætt auk þeirra þæginda sem fylgir því að flogið verður í beinu leiguflugi til og frá Akureyri. VG
Allar líkur eru á aö endurbygg-
ing Ólafsfjarðarvegar frá Hóli
noröur að Múlagöngunum
frestist um eitt ár.
Að sögn Guðmundar Svafars-
sonar, umdæmisverkfræðings hjá
Vegagerð ríkisins, voru vonir
bundnar við að hægt yrði að
byggja þennan veg upp á árinu,
en vegna niðurskurðar og fjár-
skorts er Ijóst að af því getur ekki
orðið. Guðmundur segist hins
vegar binda vonir við að unnt
verði aö fara í umrædda vegagerð
sumarið 1991. Hins vegar sé ekk-
erl öruggt í þeim efnum.
Áætlanir miða að því að jarð-
göngin í Ólafsfjarðarmúla verði
opnuð fyrir umferð í október nk.
Á sl. surnri var lokiö við bygg-
ingu vegskála við vestari ganga-
munna og byrjaö á lagningu veg-
ar frá honum til Ólafsfjarðar. Við
hana verður lokið næsta surnar
og sömuleiðis verður ráðist í
byggingu vegskála og rúmlega
eins kílómetra vegkafla við eystri
gangamunna.
Segja má að síðasti hlekkur í
keðjunni sé uppbygging vegarins
til Dalvíkur.
Búið er að malbika veginn fyrir
norðan Dalvík norður að Hóli en
þaðan er malarvegur fyrir Múl-
ann til Ólafsfjarðar. Að sögn
Guðmundar Svafarssonar, er
umræddur vegspotti norður að
eystri gangamunna um 9 kíló-
metrar og hefur Vegagerðin nú
þegar hannað hann. Guðmundur
scgir að vegstæðið verði að mestu
leyti hið sama, en vegurinn fyrst
og frcmst hækkaður og lagður
bundnu slitlagi. óþh
Hótel Blönduós:
Staða hótel-
stjóra laus
Laus er til umsóknar staða
hótelstjóra á Hótel Blöndósi.
Núverandi hótelstjóri Guð-
mundur Egill Ragnarsson læt-
ur af störfum fyrsta maí. Fjöldi
fyrirspurna hefur borist um
stööuna að sögn Ragnars Inga
Guðmundssonar framkvæmda-
stjóra Hótel Blönduóss. Rekstur
hótelsins hefur gengið frekar
erfiðlega undanfarin ár.
Bókanir fyrir sumarið eru með
besta móti og binda menn vonir
við að rcksturinn gangi vel þetta
árið.
„Við erum náttúrulega í sam-
kcppni við Edduhótel hér á
staðnum og hótelin á stöðunum
hér í kring. Pó erunt við bara hóf-
lega bjartsýn á sumarið. Greini-
leg aukning í bókunum er alltaf
góðs viti,“ sagði Ragnar Ingi.
Hótel Blöndós er í meirihluta-
eign Sölufélags Austur-Húnvetn-
,inga. Arnarflug og Kaupfélag
Húnvetninga eiga einnig stóran
hluta. kg
Kirkjuvikan:
Leiklestur í
Akureyrarkirkju
I kvöld er leiklestur úr ritum
Kaj Munk á dagskrá kirkju-
viku í Akureyrarkirkju.
Lciklesturinn hefst klukkan
20.50. Ragnheiður Tryggvadóttir
tók efnið saman, en flytjendur
eru Arnar Jónsson, Sigurveig
Jónsdóttir, Þráinn Karlsson,
Sunna Borg og Jón Kristinsson.
Klukkan 17.15 í dag er fyrir-
bænaguðsþjónusta í kapellu
Akureyrarkirkju. EHB
Léttisfélagar!
LETTIH
.1*.
\iio«Yia/
Áður auglýstur aðalfundur Léttis verður
haldinn sunnudaginn 11. mars, kl. 13.30 í
Skeifunni.
Dagskrá:
Inntaka nýrra félaga.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Tillögur til lagabreytinga.
Tillaga um inngöngu Léttis í L.H.
Önnur mál.
Veitingar - Félagar fjölmennið.
Stjórn Hestamannafélagsins Léttis.