Dagur - 08.03.1990, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Fimmtudagur 8. mars 1990
Skiptar skoðanir um
lausagöngu hrossa
Mikil umræða hefur verið að undanförnu um lausa-
göngu hrossa og umferð reiðmanna við akbrautir bif-
reiða. Ákeyrslur á hross hafa verið óvenju tíðar það
sem af er árinu og frá áramótum hafa fimm óhöpp orð-
ið í Skagafirði. Sitt sýnist hverjum í máli þessu. Bændur
og aðrir eigendur hrossa eru óhressir með að verða
bótaskyldir fyrir þær skemmdir sem skepnur þeirra
valda. Bíleigendur eru á hinn bóginn langþreyttir á að
þurfa að bera kostnað af viðgerðum bíla sinna eftir
ákeyrslur á hross og aðrar skepnur. Nú bíður dóms mál
þeirra Magnúsar Svavarssonar og Magnúsar Sigmunds-
sonar. Eins og kunnugt er gerir Magnús Svavarsson
bóta- og refsikröfu á hendur nafna sínum Sigmundssyni
fyrir skemmdir þær sem urðu á bíl hans við ákeyrslu á
lausagönguhross sem átti að vera í vörslu Magnúsar
Sigmundssonar. Hvernig dómur fellur í máli þeirra
nafna kemur til með að gefa fordæmi í málum sem
þessu í framtíðinni. Nefnd sú sem landbúnaðarráð-
herra skipaði fyrir rúmu ári hefur nýlega skilað áliti.
Hlutverk nefndarinnar var að koma með tillögur um
hvernig mætti minnka umferð lausagöngu búfjár á
þjóðvegum. Eftir árs umhugsun komst nefndin að
þeirri niðurstöðu að besta leiðin væri að banna umferð
hrossa og annarra stórgripa. Nefndin leggur til að eig-
endur stórgripa verði skyldaðir til að hafa þá í vörslu
allt árið. Nái tillögur nefndarinnar fram að ganga verða
gripaeigendur væntanlega bótaskyldir ef gripir þeirra
valda tjóni í lausagöngu. Til að fá skoðanir beggja aðila
hitti blaðamaður Dags að máli bæði hestamenn og
atvinnubílstjóra.
- Hvað um svæði þar sem eng-
ar girðingar eru meðfram
vegum?
„Við lítum þau svæði allt öðr-
um augum. Við kvörtum heldur
ekki yfir hrossum sem eru á veg-
inum uppi á Vatnsskarði eða
fram hjá Kotum. Þar sem girð-
ingar eru finnst mér hins vegar
alveg sjálfsagt að lausaganga
hrossa sé bönnuð."
- Hvaða svæði eru verst hvað
þetta varðar?
„Ástandið er einna verst milli
Sauðárkróks og Varmahlíðar,
þótt öll sú leið sé girt. Einnig eru
hross oft upp á VatnsskarðL en
þar er ekki girt. Vegagerðin
verður að girða meðfram öllum
vegum ef á að vera hægt að
banna lausagöngu hrossa alveg.“
- Lítur þú lausagöngu sauð-
fjár öðrum augum en lausagöngu
hrossa?
„Það er allt annað mál að tala
um lausagöngu sauðfjár að sumri
til, þegar vegir eru auðir og birtu-
tími miklu lengri. Það er líka
staðið öðruvísi að rekstri á sauð-
fé. Til þess þarf sérstök leyfi en
það virðist alltaf mega reka
hross, bæði að nóttu og degi.
Það er svolítið öfugsnúið að ef
hross eru á vegum, ber eiganda
Magnús Svavarsson
vöruflutningabflstjóri
Sauðárkróki
- Hvað finnst þér um þá tillögu
að lausaganga búfjár verði
bönnuð?
„Mér líst mjög vel á þá tillögu.
Það er kominn tími til að fara að
gera eitthvað í þessum málum.“
- Finnst þér ekki að bændur
eigi það mikilla hagsmuna að
gæta að þeim sé treystandi til að
passa sínar skepnur?
„Þeir bændur, sem láta skepn-
urnar ganga á veginum, segja að
þeir fái aldrei meira fyrir skepn-
urnar en þegar keyrt er á þær. Ef
bændur aftur á móti passa sín
hross, verða þau ekki fyrir bíl.
Svo einfalt er það.“
Hross á Strandgötunni á Sauðárkróki. Til tals hefur komið í bæjarstjórn
Sauðárkróks að banna þar umferð hrossa. Myndir: kg
Þetta er algeng sjón á vegum í Skagafirði. Reiðmenn eru misjafnlega tillits-
samir við ökumenn.
Algengt er að menn stundi tamningar á og við þjóðvegi. Af þessu getur staf-
að hætta, sérstaklega þegar um er að ræða lítið tamin hross.
Hér kemur girðing að litlum notum þar sem hrossin eru öfugu megin við liana. Margir hafa bent á að á snjóþungum
svæðum sé erfitt að halda hrossum frá vcgum þar sem allar girðingar fari á kaf í snjó.
engin skylda til að fjarlægja þau.
Ef bíl er á hinn bóginn lagt ólög-
lega er hann fjarlægður á kostnað
eigandans."
Magnús Sigmundsson
bóndi Gýgjarhóli
- Hvað finnst þér um bann við
lausagöngu hrossa?
„Það sjá það allir sæmilega
réttsýnir menn að svona bann er
tilgangslaust og óréttlátt gagnvart
bændum. Það reyna auðvitað all-
ir að passa sínar skepnur því það
vill enginn hafa sínar skepnur á
vegum.“
- Hvers vegna eru þá skepnur
á vegum?
„Skepnur geta alltaf sloppið úr
girðingum. Menn geta t.d. litið á
girðingarnar meðfram vegunum
hér núna. Þær eru allar á kafi í
snjó. Hvernig eiga menn að geta
tryggt að skepnurnar fari ekki á
vegina þegar girðingarnar eru
gagnslausar? Hver á svo að
ábyrgjast ógirt svæði?“
- Þér finnst að verið sé að gera
menn ábyrga fyrir hlutum sem
þeir ráða ekki við?
„Einmitt, það er verið að því
og allir sjá hvaða réttlæti felst í
slíku. Einnig ber að athuga að
þegar ekið er á skepnur er orsök-
in lang oftast of mikiil hraði mið-
að við aðstæður. Menn keyra á
ofsahraða í myrkri og hálku og
það er sama hvað er á veginum
þegar svona er keyrt. Hættan á
slysum er alltaf fyrir hendi.“
- Hvernig heldur þú að þetta
vandamál verði best leyst?
„Með sameiginlegu átaki hlut-
aðeigandi. Menn reyni að passa
skepnur sínar eins vel og þeir
geta. Ökumenn verða að gera sér
grein fyrir að skepnur geta alltaf
verið á vegum, síðan verða þeir
að haga akstri eftir aðstæðum.
Það vill enginn lenda í því að
keyra á hross og enginn vill held-
ur vita af sínum hrossum á veg-
unum. Þess vegna er best að hafa
kerfið eins og það er, að menn
séu samábyrgir gegnum trygging-
ar. Það að fara að gera annan
aðilann ábyrgan fyrir öllu tjóni
sem báðir eiga sök á, er hreinlega
fáránlegt." kg