Dagur - 09.03.1990, Síða 3

Dagur - 09.03.1990, Síða 3
Föstudagur 9. mars 1990 - DAGUR - 3 fréffir 99 Tillaga uppstillinganefndar veldur óróa meðal Sjálfstæðismanna á Akureyri: Tek ekki sæti á lista Sjálfstæðismanna - segir Jón Kr. Sólnes bæjarfulltrúi ,3Ég er búinn að taka afstöðu. Eg átti fund með Sigurði J. Sigurðssyni og tilkynnti honum að ég gæfi ekki kost á mér til setu á framboðslista Sjálf- stæðisflokksins á Akureyri til næstu sveitarstjórnarkosn- inga,“ segir Jón Kr. Sólnes, bæjarfulltrúi á Akureyri, en ágreiningur hefur komið upp í kjölfar skoðanakönnunar og tillögu uppstillingarnefndar flokksins um röðun á fram- boðslista. Þegar skoðanakönnunin, sem Veglegur bókamarkaður væntanlegur til Akureyrar - stendur yfir frá 23. mars til 8. apríl Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda gekk mjög vel í Reykjavík og nú geta Norð- lendingar farið að hugsa sér gott til glóðarinnar. Björn Eiríksson, framkvæmdastjóri Skjaldborgar, ætlar að starf- rækja bókamarkað á Akureyri dagana 23. mars til 8. apríl og hefur hann fengið flesta út- gefendur innan Félags íslenskra bókaútgefenda í lið með sér. „Þetta verður afskaplega veg- legur markaður og titlarnir senni- lega fleiri en nokkru sinni áður. Ég hef verið með um 2000-2500 titla á þessum mörkuðum en nú verða þeir væntanlega yfir 3000. Það verður meira um yngri bæk- ur en oft áður og verðlagið hefur sennilega aldrei veriö hagstæð- ara,“ sagði Björn. Tillögur framsoknarfulltrúanna í Bæjarstjórn Akureyrar: Gera ekki ráð íyrir hækkun útsvarsprósentu Degi hafa borist nokkrar fyrir- spurnir vegna breytingartil- lagna bæjarfulltrúa Framsókn- arflokksins í Bæjarstjórn Akureyrar við fjárhagsáætlun bæjarins. í frétt um þessar tillögur, sem birtist á miðvikudaginn, segir að gera hafi mátt ráð fyrir að útsvar yrði 12 milljónum króna hærra en ráð væri fyrir gert í frumvarpi meirihlutans. Þetta þarfnast nánari skýringar við. Úlfhildur Rögnvaldsdóttur, bæjarfulltrúi, segir að í þessari tillögu hafi ekki verið reiknað með hækkun á útsvarsprósent- unni. Allt benti til að þær for- sendur sem gerðar væru með til- liti til útsvarstekna í frumvarpi meirihlutans væru í lægri kantin- um, og vafalaust mjög vanáætl- aðar. Því hefði verið óhætt að reikna með hærri útsvarstekjum, sem kæmu til góða í því nauðsyn- lega verki að efla atvinnustarf- semi í bænum. EHB Bókamarkaðurinn verður að öllum líkindum á tveimur hæðum í Glerárgötu 32, þar sein Norður- fell var síðast til húsa. Ákveðnir flokkar bóka verða á hvorri hæð, viðskiptavinum til hægðarauka. „Ég vonast bara eftir góðu veðri svo fólk komist úr nágranna- byggðunum til að versla. Það var brjálað veður þegar markaðurinn var í fyrra og nokkur brögð voru að því að fólk kæmist ekki vegna þess,“ sagði Björn. SS vitnað er til var auglýst, var tekið fram að niðustaða hennar væri ekki bindandi fyrir uppstillingar- nefndina, en aðeins leiðbeinandi. Fulltrúaráðið hefur síðasta orðið um framboðslistann. Jón Kr. Sólnes staðfesti í sam- tali við Dag að í skoðanakönnun- inni meðal stuðningsmanna Sjálf- stæðisflokksins á Akureyri hefði Sigurður J. Sigurðsson fengið flest atkvæði, þá Björn Jósep Arnviðarson, Jón Kr. Sólnes og Guðfinna Thorlacius lenti í fjórða sæti. Uppstillingarnefndin mun hafa komið sér saman um að breyta þessari röð, þannig að hvorki Jón Kr. Sólnes né Guðfinna Thorla- cius yrðu í fjórum efstu sætunum. Samkvæmt tillögu hennar verður Sigurður J. í efsta sæti, Björn Jósep í 2. sæti, Birna Sigur- björnsdóttir í 3. sæti, Valgerður Hrólfsdóttir í 4. sæti og Hólm- steinn Hólmsteinsson í 5. sæti. „Þetta brýtur blað hjá mér, það er engin spurning. Þetta bar að með þeim hætti að furðu sætir. Hvað Guðfinnu Thorlacius snert- ir er mér kunnugt um að búið var að fara til hennar á hnjánum í þrígang og biðja hana að taka 3. sætið á listanum, fyrir tilstilli for- manns kjörnefndar, og síðan hef- ur kjörnefndin sparkað til hennar í hvert einasta skipti, síðast um seinustu helgi,“ segir Jón Kr. Sólnes. - Þýðir þessi tilkynning þín til Sigurðar J. Sigurðssonar að þú munir fara fram á sérstökum lista? „Það hefur engin ákvörðun verið tekin um slíkt, því ég ætla að sjá hvernig þeir stilla listanum upp. Það verður engin uppstilling fyrr cn á fulltrúaráðsfundi, sem haldinn verður á miðvikudaginn í næstu viku,“ segir Jón Kr. Knútur Karlsson, formaður uppstillingarnefndarinnar og stjórnar fulltrúaráðsins, vill ekk- ert segja um málið á þessari stundu. Jón Kr. Sólnes segist ekki vita dæmi þess að tillaga frá kjörnefnd hefði ekki verið sam- þykkt á fulltrúaráðsfundi. EHB Vélsleðakeppnin „Mývatn ’90“ hefst í dag: „Aðstæður geta ekki verið betri“ - segir Þorlákur P. Jónsson „Undirbúningur er á loka- sprettinum, hér er besta veður sem hægt er að fá og aðstæður til sleðaaksturs geta ekki orðið betri,“ sagði Þorlákur P. Jónsson, einn þeirra sem undirbúa vélsleðakeppnina Mývatn ’90, þegar blaðið hafði samband við hann í Mývatns- sveit í gær. Keppnin byrjar í dag og voru sleðamenn byrjað- ir að streyma á svæðið seinni hluta dags í gær. Vélsleðamenn koma í stórum hópum yfir hálendið til Mývatns- sveitar. Þannig voru þrír tugir sleðamanna á Hveravöllum í fyrrinótt og spurnir hafði Þorlák- ur af sleðamönnum frá Stykkis- hólmi og Fáskrúðsfirði sem lögðu upp í gærmorgun. I Mývatnssveit var sólskin í gær og um 15 stiga frost. Þorlák- ur sagði að veðurspá boðaði svip- Taðan tuggin i f'rosthörkum. Mynd: KL að veður fram á sunnudag þannig að útlit væri fyrir úrvalsveður að þessu sinni. Kcppendur þjóta af stað í fyrstu keppnisgreinina eftir hádegi í dag en síðari keppnis- dagurinn er á morgun þegar fram fer brautarkeppni. JÓH Sjallinn: MM aðsókn á „Stöðuna í hálfleik“ Sýningin „Staðan í hálfleik“ sem flutt hefur verið í tvígang í Sjallanum á Akureyri hefur fengið góðar viðtökur. Sýnt er á laugardagskvöldum og er þegar uppselt á tvær sýningar í þcssum mánuði og mikið pant- að aðrar helgar. „Jú, þetta er hið besta mál,“ sagði Sigurður Thoroddsen, framkvæmdastjóri Sjallans, þeg- ar blaðið grennslaðist fyrir um aðsóknina á sýninguna. Byrjað er að taka á móti pöntunum fyrir næsta mánuð en Sigurður segir að það ráðist af aðsókn hve lengi þessi sýning verði í gangi í húsinu. Gert hafi verið ráð fyrir í upphafi að sýna allar helgar í apríl og ef marka megi af aðsókn gcti sýningar einnig orðið í maí. Sigurður segir að talsvert sé um pantanir frá hópum utan Akureyrar, bæði frá stöðum vítt um Norðurland og einnig úr Reykjavík. „Pálmi fær greinilega góðar viðtökur hjá fólki enda ekki að búast við öðru með þess- ar perlur," sagði Sigurður. JÓH Félag eggjaframleiðenda: Stendur fyrir söluátaki og verðlaunasainkeppm Félag eggjaframleiöenda hefur hafiö sérstakt söluátak og verða egg í verslunun seld í íslenskum endurunnum um- búðum frá Silfurtúni hf. í Garðabæ. Þá efnir félagið til verðlaunasamkeppni um bestu eggjaréttina 1990. í verðlaunasamkeppninni er ekki skilyrði að réttirnir séu úr eggjum cingöngu, þó ætlast sé til að þau séu megin uppstaðan í þeim. Skilafrestur er til 15. apríl 1990 og í 1. verðlaun er vikuferð til Parísar. Uppskriftirnar skulu sendar til: „Matur og menning" póstbox 1157, 121 Reykjavík. Ætlun Félags eggjaframleið- enda með þessu átaki, er að vekja athygli á gildi eggja við matargerð. Egg eru einföld í matreiðslu og innihalda flest þau næringarefni sem líkaminn þarfn- ast. Möguleikarnir til að nota egg í matargerð eru því sem næst óþrjótandi og í sérstökum bækl- ingi sem félagið hefur gefið út, eru uppskriftir af níu einföldum en fljótlegum, ljúffengutn eggja- réttum.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.