Dagur - 09.03.1990, Síða 12
Akureyri, föstudagur 9. mars 1990
Haldið veisluna eða fundinn
í elsta húsi bæjarins
Afmælisveislu ★ Giftingarveislu ★
★ Erfidrykkju ★ Kaffisamsæti ★
Fundi og hvers konar móttökur.
Allar nánari upplýsingar gefa Hallgrímur eða Stefán í síma 21818.
Farfuglaheimili við Bjarmastíg:
Erindinu synjað miðað
við óbreyttar forsendur
- íbúar við götuna mótmæltu hugmyndinni
Bæjarstjórn Akureyrar hefur
hafnað erindi frá Bandalagi
íslenskra farfugla um að breyta
húsinu Bjarmarstíg 5 í fimmtíu
manna farfuglaheimili. Áður
hafði erindinu verið hafnað í
bygginganefnd en síðan vísað
þangað aftur. Allt fór á sömu
lund, erindinu var synjað og sú
afgreiðsla síðan staðfest á
fundi bæjarstjórnar sl. þriðju-
dag.
I bókun bygginganefndar kem-
ur fram að ekki sé gerð grein fyrir
því hvernig leysa má vandamál
varðandi aðkomu og bílastæði og
að ekki verði séð að möguleikar
séu á lausn í næsta nágrenni.
Fram kemur að ef um stærri gist-
istað en 10 rúma er að ræða þá
gilda öryggisreglur um hótel og
þarf hönnun að miðast við þær.
Þá telur nefndin að grenndar-
kynning þurfi að fara fram ef nýj-
ar teikningar berast, en þar sem
aðstæður séu óbreyttar ítrekar
nefndin fyrri afstöðu sína.
Á fundi bæjarstjórnar lagði
Sigurður J. Sigurðsson, forseti
bæjarstjórnar, fram undirskrifta-
lista sem hann hafði nýlega feng-
ið í hendur frá íbúum við Bjarma-
stíg. Þar mótmæla 39 íbúar við
Hestamenn oft í stór-
hættu við Breiðholt:
Þijú slys á
fjórum dögum
Reynsla síðustu daga sýnir að
hestamenn eru í stórhættu á
hrossum sínum í og við Breið-
holt, hesthúsahverfið ofan
Akureyrar. Einu færu reiðveg-
irnir eru norður úr hverfinu og
niður með fjölförnum vegi að
bænum þar sem hestamenn
segja að bílaumferðin taki lítið
tillit til umferðar ríðandi
manna. Þrjú slys hafa orðið á
síðustu dögum þar sem ekið
hefur verið á reiðmenn og
verður að teljast mikil mildi að
ekki hefur orðið stórslys á
fólki.
Síðast varð slys í Breiðholti í
gær þegar ekið var á mann á
hesti. Manninn sakaði ekki en
hesturinn skarst og skemmdir eru
á bílnum. Nokkrir hestamenn
hafa haft samband við blaðið og
gagnrýnt að ekki hafi verið mok-
að snjó af leiðinni suður úr
Breiðholti en með því þyrftu
hestamenn ekki að fara út á leiðir
þar sem umferð er mikil og tillits-
laus.
Hilmar Gíslason, yfirverkstjóri
Akureyrarbæjar, sagði í samtali
við blaðið að vegurinn fyrir sunn-
an Breiðholt verði ruddur fyrir
helgina. Hann hafi verið ruddur í
nokkur skipti að undanförnu en
lokast nánast jafnharðan aftur.
Ætlunin hafi verið að nota næt-
urnar til að opna þessa leið en
flestar nætur verið mikill skaf-
renningur og því lítið hægt að
athafna sig. JÓH
götuna þessari breyttu starfsemi í
húsinu.
Ætla mætti að þar með sé
grenndarkynning óþörf en að
sögn Heimis Ingimarssonar, full-
trúa í bygginganefnd, er þó enn
ástæða til að gera íbúum við
götuna fulla grein fyrir þessu
máli. Ekki sé enn loku fyrir það
skotið að farfuglar fái að breyta
Bjarmastíg 5 en þá verði þeir í
fyrsta lagi að leggja fram þær
hugmyndir sem bygginganefnd
hefur óskað eftir. Hann sagði að
ef nefndin fengi nýjar teikningar
í samræmi við reglugerðir og
aðstæður við götuna þá væri
ástæða til að láta grenndarkynn-
ingu fara fram. SS
IMokað út við heldur erfiðar aðstæður, eða hvað?
Mynd: KL
Sparisjóðir á Dalvík, Ólafsfirði og Árskógsströnd:
Hafa ákveðið að greiða niður
verð á skíðaöryggishjálmiim bama
Sparisjóður Svarfdæla a
Dalvík, Sparisjóður Árskógs-
strandar og Sparisjóður Ólafs-
fjarðar hafa ákveðið að styrkja
kaup barna og unglinga í þess-
um byggðarlögum á skíða-
hjálmum. Sjóðirnir munu
leggja fram eitt þúsund krónur
til að greiða niður verð hvers
hjáims.
„Sparisjóðirnir í landinu hafa
lengi stutt vel við bakið á æsku-
lýðs- og íþróttastarfsemi í land-
inu. Varðandi styrk sjóðanna til
kaupa á öryggishjálmunum má
segja að það sé gert af gefnu
tilefni. Á sl. vetri varð mjög
alvarlegt slys í Böggvisstaðafjalli,
þegar lítið barn lenti á staur og
hlaut mikið höfuðhögg. Þetta slys
varð til þess að menn fóru að gefa
öryggismálunum meiri gaum en
áður og sem betur fer eru æ fleiri
sem bera hjálma hér í fjallinu.
Sparisjóðirnir þrír ákváðu að
koma til móts við börn og for-
eldra við kaup á hjálmunum með
ákveðinni niðurgreiðslu á verði
hvers hjálms,“ sagði Friðrik
Friðriksson, sparisjóðsstjóri
Sparisjóðs Svarfdæla á Dalvík.
Stjórn Skíðafélags Dalvíkur
mæltist til þess strax í haust að
börn festu kaup á skíðahjálmum
til að bera í skíðabrekkunum í
Böggvisstaðafjalli.
Öryggi af notkun hjálmanna er
ótvírætt. Þess eru mörg dæmi um
allt land að alvarleg höfuðmeiðsli
hafi orðið í hörðum brekkunum
og þá hefur komið fyrir að lyftu-
diskar hafi slegist aftan í hnakka
fólks og rotað það samstundis.
Að sögn Jóns Halldórssonar,
verslunarmanns í Sportvík á
Dalvík, kostar góður öryggis-
hjálmur á bilinu 4300-4600
krónur. Hjálmarnir eru á boð-
stólum í Sportvík á 1000 krónum
lægra verði og greiða sparisjóð-
irnir það sem upp á vantar.
„Friðrik sparisjóðsstjóri Spari-
sjóðs Svarfdæla stendur fyrir
þessum styrkjum, en sá spari-
sjóður hefur stutt mjög dyggilega
við íþróttalíf hér á Dalvík og
mættu fleiri taka hann til fyrir-
myndar í því,“ sagði Jón. óþh
Undirbúningur fyrir þriöju
Vetraríþróttahátíð ÍSÍ, sem
haldin veröur á Akureyri 23.
mars til 1. apríl nk., er nú á
lokastigi. Á blaðamannafundi
sem vetrarhátíðarnefnd hélt í
gær kom m.a. fram að margir
góðir gestir munu heimsækja
Akureyri meðan á hátíðinni
stendur og er í þeim hópi að
finna heimsfrægt íþróttafólk,
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri:
Aðstoðarlæknar ekki með
í mótmælaaðgerðum
Aðstoðarlæknar á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri tóku
ekki þátt í mótmælaaðgerðum
við hækkun stjórnvalda á
gjaldskrá yfir lækningaleyfi og
starfsleyfi til sérfræðinga sem
stóðu yfír í gær. Því varð engin
röskun á starfsemi stofnunar-
innar eins og víða gerðist á
sjúkrahúsum í Reykjavík.
Á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri starfa 11 aðstoðarlækn-
ar. Samkvæmt upplýsingum
Undirbúningur fyrir Vetraríþróttahátíð á lokastigi:
Heimsfrægir íþróttamenn í heimsókn
glæsilegasta hingað til enda verð-
ur boðið upp á ótrúlegt úrval
íþróttagreina og skemmtana af
ýmsu tagi. Hátíðin hefur þegar
vakið nokkra athygli erlendis og
hefur borist mikið af fyrirspurn-
um um hana víðsvegar að úr
heiminum. Nánar verður sagt frá
hátíðinni og dagskrá hennar í
blaðinu á næstunni. jhb
Loðnan:
Loks lát
á mokinu
Dregið hefur úr loðnuveiðinni
síðustu daga en loðnusjómenn
segja ekki óalgengt að hlé
komi í veiðina inn á milli.
Jöfn og miki) veiði hefur verið
frá áramótum og nánast ekkcrt
lát verið á fyrr en nú.
Aðeins höfðu tveir bátar til-
kynnt um afla frá miðnætti í
fyrrakvöld og þar til síðdegis í
gær. Afli þeirra var 1070 tonn en
í fyrradag var tilkynnt um 1150
tonn til Loðnunefndar. Líflegra
var á miðunum á þriðjudaginn en
þá tilkynntu loðnuskipin um
rösklega 3700 tonn. JÓH
blaðsins fengu læknarnir ekki
upplýsingar um þessar aðgerðir
fyrr en seint í fyrradag og þótti
þeim ekki rétt gagnvart stofnun-
inni að fara út í aðgerðir með svo
stuttum fyrirvara.
Alls eru um 130 aðstoðarlækn-
ar starfandi í landinu en flestir
þeir sem lögðu niður vinnu í gær í
mótmælaskyni starfa á höfuð-
borgarsvæðinu. Röskun á starfi
sjúkrastofnana varð því mest
þar. JÓH
skcmmtikrafta og forystumenn
íþróttamála á alþjóðavett-
vangi. Þá kom fram á fundin-
um að hugmyndir eru nú uppi
um að gera hátíð af þessu tagi
að árvissum viðburði á Akur-
eyri í framtíðinni en það gæti
orðið veruleg lyftistöng fyrir
ferðamannaiðnaðinn í bænum
og næsta nágrenni.
Eins og áður hefur verið greint
frá í blaðinu munu heimsmeistar-
ar unglinga í listdansi á skautum,
Marina Anisina og Iliia Aver-
bukh, koma til Akureyrar og
halda þrjár sýningar á svæði
Skautafélags Akureyrar. Áhuga-
menn um hestamennsku hafa
einnig ástæðu til að hlakka til því
hingað koma heimsineistarar í
hestaíþróttum, Andreas Trappe
og Berndt Widh. Enska landslið-
ið í skíðagöngu mun taka þátt í
landskeppni í boðgöngu og lík-
legt er að Hollendingar sendi lið í
þá keppni. Af öðrum gestum má
nefna snjalla skíðamenn frá
Júgóslavíu, Austuríki og
Svíþjóð, forystumenn frá alþjóða
ísknattleikssambandinu og
þekkta austuríska jóðlara sem
troða munu upp í Sjallanum
meðan á hátíðinni stendur.
Hátíðin í ár verður án efa sú