Dagur - 21.03.1990, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 21. mars 1990 - DAGUR - 7
Frá Skógrækt ríkisins á Hallormsstað. Búnaðarþing telur að skipting á verkefnum Landgræðslu ríkisins og Skóg-
ræktar ríkisins milli tveggja ráðuneyta verði til þess að auka kostnað og lama starfsemi stofnananna.
Verkefni nýs umhverfisráðuneytis:
lings 1990
r-------------------\
Trésmíðavinna
hýsmíði — Wiðhald
Tilboð — TTmavinna
Fagvinna
Baldvin, sími 21977.
Jóhannes, sími 24-851.
V___________________/
Vélstjórafélag Islands
Vélstjórar sem starfa á frystihúsa-
samningum á Norðurlandi.
Féiagsfundur um
nýgerða kjarasamninga
verður haldinn miðvikudaginn 21. mars kl.
20.00 að Skipagötu 14, 4 hæð.
Verslunarhúsnæði
Alþingi vandi betur undir-
búning og val á verkeftium
„Búnaðarþing skorar á
Alþingi að vanda betur undir-
búning og val á þeim verkefn-
um, sem umhverfisráðuneyti
er ætlað að vinna. Þingið legg-
ur ríka áherslu á að atvinnu-
vegirnir beri ábyrgð á starf-
semi sinni gagnvart umhverf-
inu undir eftirliti umhverfis-
ráðuneytis eða stofnana sem
lúta stjórn þess. Þar sem þess-
ara grundvallarsjónarmiða
hefur ekki verið gætt og mikill
ágreiningur er um málið í
þjóðfélaginu leggur Búnaðar-
þing eindregið til að málið
verði athugað nánar og reynt
að ná um það sátt,“ segir í
umsögn Búnaðarþings um fyr-
irhugaðar breytingar á ýmsum
lögum er varða yfirstjórn um-
hverfismála í tengslum við
stofnun umhverfísráðuneytis.
í greinargerð með ályktun
Búnaðarþings kemur fram að í
skýrslu fyrrum forsætisráðherra
Noregs um reynslu af umhverfis-
ráðuneytum sé varað við að taka
ákveðin framkvæmdaverkefni frá
viðkomandi fagráðuneyti til um-
hverfisráðuneytis. Farsælla sé að
umhverfisráðuneyti sé fyrst og
fremst til eftirlits. Á þetta bendir
þingið þar sem samkvæmt laga-
frumvarpi er ráð fyrir gert að
færa verkefni frá landbúnaðar-
ráðuneyti til umhverfisráðuneyt-
is.
Gagnrýni Búnaðarþings á
frumvarpið varðar hvað mest
Landgræðslu ríkisins og Skóg-
rækt ríkisins. „Skipting á verk-
efnurn Landgræðslu ríkisins og
Skógræktar ríkisins milli tveggja
ráðuneyta væri til þess fallin að
auka kostnað og lama starfsemi
stofnananna . . . Sú grundvallar-
regla hefur ríkt í stjórnsýslu hér á
landi að atvinnuvegir hafi forræði
yfir þeim auðlindum sem þeir
byggjast á. Með lögum er Land-
græðslu ríkisins og Skógrækt
ríkisins veitt heimild til að grípa
inn, ef alvarleg gróðureyðing á
sér stað. Allt, sem gert er í því
efni getur haft áhrif á stöðu land-
búnaðar. Því er rökrétt að yfir-
stjórn framkvæmda sé í höndum
landbúnaðarráðherra. Fað er
einnig í samræmi við nýtingu og
vernd auðlinda í sjávarútvegi og
iðnaði,“ segir í greinargerð með
ályktun Búnaðarþings. JÓH
Sauðprbaðanir:
Breyting í vændum?
Margir bændur telja eðlilegt
að fram fari endurskoðun á því
lagaákvæði sem skyldar bænd-
ur til reglubundinna baðana á
sauðfé. I erindi Búnaðarsam-
bands Suður-Þingeyinga um
þetta mál er lagt til að við
endurskoðun þessara laga
verði metið hvort ekki sé hægt
að breyta þessu formi á þann
hátt að hvergi sé baðað nema
héraðsdýralæknir hafí staðfest
óþrif í fé á viðkomandi svæði.
í greinargerð með ályktun
Búnaðarþings kemur fram að vit-
að hafi verið um undanfarin ár og
áratugi að í ýmsum fjárskipta-
hólfum sé sauðfé laust við lús og
kláða. Bændur hafi unað því illa
að þurfa að baða og jafnvel þurfa
að færa sönnur á að svæðið væri
hreint en það er skilyrði fyrir
undanþágu.
„Búnaðarþing telur að vand-
lega beri að skoða hvort betur
þjóni tilgangi laganna, að sönn-
unarbyrði í málinu liggi á
bændum, eins og nú er, eða heil-
brigðisyfirvöldum, eins og verði
með þeirri tilhögun sem nefnd er
í erindi Búnaðarsambands Suð-
ur-Þingeyinga. JÓH
Búnaðarsamband Suður-Þingeyinga vill að lög um sauðfjárbaðanir verði
endurskoðuð og hvergi verði baðað ncma héraðsdýralæknir hafi staðfest
óþrif í fé á viðkomandi svæði.
Til sölu 72 fm verslunarhúsnæði á góðum
stað í miðbænum, því fylgir 3ja-4ra her-
bergja íbúð í sama húsi. Eignarlóð.
Allar nánari upplýsingar gefnar á Fasteignasölunni hf.
Símsvari tekur við skilaboðum allan sólarhringinn.
Opið frá kl. 10-12 og 13-19.
Fasteignasalan hf.
Gránufélagsgötu 4,
efri hæð, sími 21878.
Hermann R. Jónsson, sölumaður
heimasími utan skrifstofutíma er 25025.
Hreinn Pálsson, lögfræðingur.
Guðmundur Kr. Jóhannsson, viðskiptafræðingur.
f urvali
Hrisalundur
kjallari