Dagur - 31.03.1990, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - Laugardagur 31. mars 1990
ia fyri
u útg;
;ami
s eru a
lutverk
■ Suthe
i/voosie
i/lark Rc
tck. - Ai
)5 Dufla<
idarísk I
'4. - Dem
. af Ch;
imsins st
öö, sem
aldrifjaða c
Umsjón: Hlynur Hallsson ieecham,st
og Hildigunnur Þráinsdóttir nyríme?;
Það eru ekki
alltaf jólin
Thelma Matthíasdóttir á íþróttir fyrir aðalóhugamól.
Gott að losna að heiman
í eldhúskróknum á farfugla-
heimilinu sátu þrír skíðakappar,
nefnilega þeir Ólafur /ígisson
15 ára, Sigurður Gunnarsson 17
ára og Eggert Óskarsson 16
ára.
- Strákar, þið hafið ekkert
getað keppt vegna veðurs?
„Nei, en við erum vanir
þessu.“
- Hvað hafið þið verið að
gera?
„Hanga f leti, rífa niður kex-
pakka, spila og svoleiðis. Það
er svo oft vont veður þegar við
förum í keppnisferðalög að
þetta venst. Þetta er að vísu
fyrsta ferðalagið í vetur. Það var
keppni heima á Ólafsfirði og
þá var auðvitað toppveður.
- Gekk ykkur vel á því móti?
„Ja, ekki alveg nógu vel. Við
unnum samt til tveggja verð-
launa.
- Hafið þið œft lengi?
Þeir Bjarni, Sigurður og Dagur frá
Siglufirði voru nokkuð ánœgðir
með árangurinn.
„Já frá 4ra ára aldri og við
œtlum að halda áfram.
- Hvað er svona gaman við
að keppa?
„Að vinna verðlaun auðvitað,
það er eini tilgangurinn. Haldiði
að við séum í þessu bara til að
vera með?
- Hvernig eru ferðalögin?
„Þau eru misjöfn, sum eru
hundleiðinleg t.d. þegar ekki er
einu sinni hœgt að fara á skfði."
- Er gaman að eiga heima f
Ólafsfirði?
„Já, það er toppurinn á tilver-
unni, alveg rosalega gaman."
- Hvað gerið þið ykkur til
skemmtunar?
„Förum á skíði og í bíó. Svo
erum við líka f skóla."
- Hvað œfið þið oft í viku?
„Sex daga vikunnar."
- Hvað gerið þið þá á
sumrin?
„Þá hlaupum við sex daga
vikunnar. Svo œfum við fót-
bolta, með Leiftri að sjálfsögðu."
- Hvað á svo að gera nœsta
vetur?
„Vera á skíðum! Við tveir kom-
um sennilega hingað til Akur-
eyrar f skóla, og við œtlum allir
að halda áfram að keppa."
- Hafið þið nokkurn tíma til
að lœra?
„Við þurfum ekkert að lœra,
við erum svo klárir."
- Viljiði segja eitthvað að
lokum?
„Það eru ekki alltaf jólin sko!"
„Duga eða drepastr
„Ég er að hugsa um að drep-
ast bara.“
Nœst fórum við og heilsuðum
uppá Ólafsfirðingana, en þeir
gistu á farfuglaheimilinu Lónsá
rétt norðan við Akureyri. Fyrst hitt-
um við Thelmu Matthíasdóttur,
14 ára, en hún hreppti einmitt 2.
verðlaun í 3,5 km göngu
stúlkna.
- Ertu búin að œfa skíði
lengi?
„Já ég byrjaði 7 ára.“
- Stundarðu aðrar skfða-
íþróttir?
„Ég leik mér oft á svigskíðum
en œfi hins vegar göngu á‘
hverjum degi. Þetta tekur samt
ekki svo mjög mikinn tíma.“
- Er búið að vera gaman
hér?
„Já, já. Að vfsu höfum við
aðallega bara verið hér á
Lónsá. Á laugardaginn keppt-
um við þó.“
- Var keppnin erfið?
„Nei, hún var ekkert erfið. Það
munaði að vísu frekar miklu á
mér og stelpunni sem var í
fyrsta sœti. Hún er frœnka mín
en býr á Siglufirði."
- Er skíðaíþróttin kannski vin-
sœl í fjölskyldunni?
„Já, það eru margir sem eru
eða hafa verið á skíðum."
- Hvað gerir þú nú annað en
að vera á gönguskfðum?
„Ég œfi allar mögulegar
íþróttir, körfubolta, fótbolta, o.fl."
- Áttu önnur áhugamál en
þessar fþróttir?
(Löng þögn.) „Nei örugglega
ekki."
- Hvað er skemmtilegast við
að fara í keppnisferðir?
„Að losna að heiman það er
svo leiðinlegt á Ólafsfirði."
tekur nœr allan frítíma okkar
Skíðagangan
Þeir Sigurður Sverrisson 16 ára,
Dagur Gunnarsson 13 ára og
Bjarni Jóhannesson 13 ára voru
staddir á verðlaunaafhendingu
þegar við gómuðum þá. Þeir
sögðust vera Siglfirðingar í húð
og hár og hingað komnir til að
keppa f skíðagöngu. Sigurður
hafði krœkt sér í verðlaun en
þeir Bjarni og Dagur lent í 4. og
5. sœti í sfnum flokki. Við byrjuð-
um á að spyrja þá hvenœr þeir
hefðu komið til Akureyrar.
„Við komum á föstudaginn
rétt fyrir setninguna og það er
búið að vera gaman. Við gist-
um samt á frekar vondum stað,
frammi f Hrafnagili. Það er dálít-
ið langt frá mótssvœðinu."
- Hafið þið eitthvað getað
verið á skíðum?
„Já, já, við keþþtum klukkan
5 á laugardaginn. Það var að
vísu búið að fresta mótinu
mörgum sinnum svo veðrið
eyðilagði daginn eiginlega fyrir
okkur.“
' - Eruð þið búnir að œfa
skíðagöngu lengi?
„Við byrjuðum svona ellefu
ára. Við cefum núna fimm sinn-
um í viku og maður reynir að
œfa alla daga vikunnar."
- Tekur þetta ekki mikinn
tíma?
„Jú þetta tekur dálítið mikinn
tíma, Ifka frá skólanum. Það má
segja að skíðagangan taki
nœr allan okkar frítíma."
- Hvað hafið þið svo gert
annað en að vera á skíðum á
Akureyri?
„Bara hanga og spila billi-
ard.“
- Eruð þið mörg héðan frá
Siglufirði?
„Við erum átta í göngunni en
tuttugu og sjö alls. Við erum
búin að fá tvenn verðlaun."
- Hafið þið kynnst mörgum
krökkum á þessu móti?
„Alveg fullt og við hittumst
náttúrlega á öllum mótum og
höldum þannig sambandi."
- Hvernig skemmta ungling-
ar á Siglufirði sér?
„Það er œskulýðsheimili þar-
sem við hittumst í og svo förum
við á „billann", þar er 16 ára
aldurstakmark. Svo eru stundum
haldin böll."
- Hvernig lýst ykkur á Akur-
eyri?
„Þetta er ágœtis staður, ör-
ugglega fínt að búa hér."
Strákarnir voru nú ekki alveg
sammála um hvort það vœri
nokkur ástœða til að búa frekar
á Akureyri en Siglufirði.
Að loknum þessum umrœð-
um um gœði bœjanna tveggja
skildum við við strákana og
þökkuðum spjallið.
„Ekki einu sinni hœgt að fara á skfði" sögðu þeir Ólafur, Sigurður og
Eggert alpahefjur Ólafsfjarðar.