Dagur - 31.03.1990, Blaðsíða 7
Laugardagur 31. mars 1990 - DAGUR - 7
Aðalfundur Akureyrardeildar KEA:
Ályktar um álver
við Eyjafjörð
Á aðalfundi Akureyrardeildar
KEA í fyrrakvöld var eftirfarandi
ályktun samþykkt af meginþorra
fundarmanna:
„Aðalfundur Akureyrardeild-
ar KEA, haldinn að Hótel KEA,
fimmtudaginn 29. mars 1990,
beinir þeim eindregnu tilmælum
til ríkisstjórnarinnar og Alþingis,
að beita sér fyrir því að væntan-
legt álver verði byggt við Eyja-
fjörð en ekki á suðvesturhorni
landsins.
Bygging álvers á suðvestur-
horninu myndi leiða til mestu
byggðaröskunar í sögu íslensku
þjóðarinnar og getur því ekki tal-
ist þjóðhagslega hagkvæm fram-
kvæmd.“
1
Hvað er að gerast
KA-heimilið:
Handknattleiksdeild
með kaffihlaðborð
Á sunnudaginn verður það hand-
knattleiksdeild KA sem sér um
kaffihlaðborð í félagsheimilinu
við Dalbraut. Ekki þarf að minna
félagsmenn og aðra velunnara á
mikilvægi alls stuðnings við deild-
ir félagsins en kaffihlaðborðin
eru einmitt mikilvægur liður í
fjáröflun deildanna.
Skíðafólki er sérstaklega bent
á að upplagt er að hvíla lúin
skíðabein yfir kaffibolla og rne'ð-
læti á sunnudögum eftir gott
trimm.
Möðruvallakjallari í dag:
Fyrirlestur á
vegum FÁLMA
í dag, laugardaginn 31. mars kl.
14.00 hefst í Möðruvallakjallara
á Akureyri fyrirlestur og skygni-
myndasýning á vegum FÁLMA
sem er Félag áhugaljósmyndara í
MA.
Fyrirlesturinn halda þrfr af
bestu Ijósmyndurum landsins,
þeir Ragnar Áxelsson, eða RAX,
Páll Stefánsson og Einar Falur.
Þeir munu flytja fyrirlestur um
ljósmyndun og mynduppbygg-
ingu auk þess sem þeir ætla að
sýna skyggnur. Þessi uppákoma
FÁLMA er í tengslum við Lista-
daga í MA sem standa yfir um
þessar mundir og eru allir sem
áhuga hafa, velkomnir á fyrirlest-
urinn í Möðruvallakjallara í
dag, en aðgangur er ókeypis.
Vetraríþróttahátíðin
rennur sitt skeið
Um helgina lýkur Vetrar-
íþróttahátíð ISI á Akureyri.
Heldur hefur glaðnað yfir
veðrinu og mótshöldurum síð-
ustu dagana og er ástæða til að
hvetja fólk til að fylgjast með
hátíðinni um helgina og taka
þátt í almenningsíþróttum.
Ýmislegt verður um að vera í
dag og á morgun, en hátíðinni
verður slitið síðdegis á sunnu-
dag og síðan er efnt til loka-
hófs um kvöldið.
Ðagskráin í dag, laugardaginn
31. inars, er í stórum dráttum á
þann veg að í Hlíðarfjalli verður
keppt í alpagreinum karla og
kvenna fyrir hádegi og skíða-
göngu eftir hádegi. Þá er „Ski-
Cross“ eða þrautabraut á dagskrá
fyrir karla, konur og unglinga.
Við Samkomuhúsið verða
hestaíþróttir í sviðsljósinu eftir
hádegi. Boðið verður upp á
vetrarþríþraut fyrir almenning í
Kjarna og skautatrimm á vél-
frysta svellinu. Allir sem taka
þátt í „íþróttum fyrir alla“ fá
viðurkenningu.
Á sunnudaginn verður alþjóða-
mót í alpagreinum og lands-
keppni í boðgöngu í Hlíðarfjalli.
Hestaíþróttir og sýning neðan við
Samkomuhúsið. Verðlauna-
afhending kl. 17 í göngugötunni
og Vetraríþróttahátíðinni slitið
hálftíma síðar. Um kvöldið verð-
ur lokahóf í Sjallanum. Pennan
dag verða almenningsíþróttir
einnig í sviðsljósinu, s.s. skauta-
trimm og fjölskylduskíðaganga.
Skátarnir efna til úrslitakeppni
í sleðakeppninni í Fjallinu á laug-
ardag og úrslit í snjómynda-
keppninni verða ljós um helgina.
Það er því nóg að gera fyrir alla
sem vilja njóta útivistar um helg-
ina. SS
Furulundur: 5 herbergja raðhús
á tveimur hæðum, 122 fm.
Heiöarlundur: 5 herb. raðhús á
tveimur hæðum, 122 fm í góðu
standi.
Skarðshlfð: 2ja herb. íbúð á 2.
hæð, rúmgóð og falleg eign.
Núpasíða: Góð 4ra herb. íbúð í
raðhúsi.
Smárahlfð: 2ja herb. íbúð á 2.
hæð í fjölbýlishúsi, 45 fm. Góð
eign.
Fjölnisgata: 130 fm iðnaðar-
húsnæði, góð lofthæð.
Fjölnisgata: 67 fm iðnaðarhús-
næði, góð lofthæð.
Vantar á skrá:
3ja herb. íbúð í Melasíðu.
3ja herb. íbúð í Lundunum.
4ra herb. íbúð í raðhúsi m/bíl-
skúr á einni hæð.
Opið alla daga frá kl. 9-19.
Laugardaga frá kl. 14-16.
Fasteigna-Torgið
Glerárgötu 28, Akureyri
Sími: 96-21967
íy-I—y Fasteignasala
JT Lögmaður
Ásmundur S. Johannsson.
Félag málmiðnaðarmanna,
Akureyri.
Fundarboð
Félag málmiðnaðarmanna Akureyri heldur
félagsfund þriðjudaginn 3. apríl 1990 kl. 17.00 í
Alþýðuhúsinu.
Fundarefni
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Kosning fulltrúa á 14. þing M.S.I.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
„Fermingar
og áfengi
eiga ekhi samleið
Eyðileggjum ekki hátíðleika fermingar-
innar með neyslu áfengra drykkja.
Munum að bjór er einnig áfengi.1’
Vímulaus æska, Áfengisvarnarráð,
húsmæðrafélag Reykjavíkur, Átak til ábyrgðar,
Prestafélag íslands, Í.U.T.
Gói ráö eru til aó
fm eftír þeim!
Eftíreinn
-ei aki neinn
Bridge Ðridge
Minningarmót
Næstu þrjá þriðjudaga þ.e. 3., 10. og 17. apríl n.k. verður
hraösveitakeppni til minningar um Alfreð Pálsson. Mótið
verður með eftirfarandi fyrirkomulagi: Pörtilkynni þátttöku
í mótið en síðan verða stigahæstu pörin skv. nýjustu stiga-
skrá tekin út og látin draga pör úr potti til liðs við sig.
Keppt verður eftir nýju fyrirkomulagi sem er óþekkt inn-
an félagsins.
Keppt verður um farandbikar auk eignarbikara um 1., 2. og
3. sætið sem gefnir eru af afkomendum Alfreðs Pálssonar.
Skráning keppenda verður að liggja fyrir i siðasta lagi
fyrir sunnudagskvöld kl. 20 i síma 24624 (Ormarr).
Stjórn Bridgefélags Akureyrar.
TIL SÖLU
Stórglæsilegt 224 m2 einbýlishús í
byggingu að Stapasíðu 24.
Hentar einnig sem tvær íbúðir.
Allar upplýsingar í síma 21255.