Dagur


Dagur - 31.03.1990, Qupperneq 11

Dagur - 31.03.1990, Qupperneq 11
Laugardagur 31. mars 1990 - DAGUR - 11 ur verið byggt á þessum árum, en margt er eftir og þegar framkvæmdum lýkur verðum við í stakk búin til að sinna meirihluta þeirr- ar endurhæfingarþjónustu sem íbúar hér- aðsins þurfa á að halda.“ Óttast ekki að sjúklingana muni vanta - Óttast þú ekki að sjúklingar af svæðinu leiti þrátt fyrir allt suður til Reykjavíkur- svæðisins, þegar aðstaðan á Kristnesi er loks tilbúin? „Nei, það geri ég ekki, því reynslan sýnir annað. Hér hefur verið sjúkraþjálfun frá árinu 1988, og á þeim tíma hafa komið fram mörg tilvik þar sem sjúklingar hafa þurft á endurhæfingu að halda en ekki getað leitað út fyrir svæðið. Þetta er stærri hópur en við reiknuðum með, og ég er bjartsýnn á að þetta muni ganga vel, eins og dæmin hafa þegar sannað. I drögum að heilbrigðisáætlun segir að endurhæfingarsjúkrahús skuli byggð upp á tveimur stööum á landinu, á Reykjavíkur- svæðinu og við Eyjafjörð. Ég tel að Krist- nesspítali eigi að þjóna síðarnefnda hlut- verkinu, og viljayfirlýsing hefur verið undir- rituð um samstarf á sviði læknisþjónustu milli Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri og Kristnesspítala. Þar er miðað aö því að endurhæfingarsjúklingar frá FSA geti fcng- ið þjónustu hér, t.d. fólk sem t'er í beina- aðgerðir, sjúklingar eftir hjartaáföll eða heilablæðingar og þarf á langtíma-endur- hæfingu að halda. Við Kristnesspítala myndu þá starfa sér- fræðingur í endurhæfingarlækningum, lyf- læknir og aðstoðarlæknar, sem myndu einnig sinna ákveðnum störfum á FSA, og gagnkvæmt. Ég vonast til að árið 1992 verði aðstæður þannig að við getum byrjað af full- um kröftum meðslíka þjónustu. I dagcrum við byrjaðir að veita hluta hennar, eins og ég minntist á áðan." Barátta við vindmyllur og þverhausa - Er ekki almennur vilji til þess í Eyjafirði að hrinda þessum áætlunum í framkvæmd? „Þar sem sólin skín skærast er skugginn dekkstur. Þegar Kristneshæli var byggt var mikil fjöldahreyfing á bakvið þá framkvæmd, og nærri allir íbúar sýslunnar auk margra íbúa nágrannasýslna tóku þátt í fjársöfnun vegna byggingarinnar. Eftir að berklunum var útrýmt var þessi fjöldahreyfing ekki lengur til staðar, og Kristnesspítali stóð í skugganum. Kven- félögin í Eyjafirði, nánar til tekiö Kven- félagið Hjálp í Saurbæjarhreppi, átti hug- mynina að byggingunni og flutti hana á kvennasambandsþingi. Konur áttu mikinn þátt í að hrinda hugmyndinni um berklahæli á þessum stað í framkvæmd. Það er þess vegna ein helsta von okkar að Kvenfélaga- samband íslands veiti okkur lið í baráttunni fyrir frekari uppbyggingu Kristnesspítala." - Var ekki mikið samstarf milli Kristnes- spítala og FSA á árum áður? „Jú, á tíma berklanna var það mun meira en seinna gerðist. Þá var oft náið samstarf milli sjúkrahúsanna um berklalækningar. Guðmundur Karl Pétursson gerði margar berklaaðgerðir, sérstaklega brjósthols- skurðaðgerðir, og sjúklingarnir fóru á milli stofnananna. En með tímanum datt þjón- ustan niður við Kristnesspítala, og stofnun- in fór að bera meiri keim af geymslustofnun eða vistunarhæli fyrir fyrrverandi berkla- sjúklinga og fólk með hina og þessa kvilla. Upp úr 1964 er varla hægt að tala um berklalækningar við Kristnes, og mörg ár liðu þar til hlutverk sjúkrahússins var skil- greint upp á nýtt. Eftir að nýtt hlutverk var fundið var sama sinnuleysið uppi á teningn- um, og hið opinbera gerðir ekkert til að fylgja hlutunum eftir. Þarna liðu tveir áratugir í tómarúmi, og afar erfitt er að koma sér upp á yfirborðið aftur eftir slíka forsögu. Ég vil að Kristnesspítali hafi jákvæða ímynd í huga fólks hér á svæðinu. Hér á að fara fram vönduð og kraftmikil endurhæf- ingarstarfsemi, þar sem hjúkrunarþjónusta er fyrsta flokks. Þeir sem þurfa á endurhæf- ingu að halda eiga að geta farið héðan mun hressari út í lífið, þar sem þeir geta tekist á við tilveruna. Hér á fólk að geta fengið lækningu meina sinna. En það hefur verið mikil barátta að fá athygli ráðamanna, og á erfiðum stundum spyr ég sjálfan mig þeirrar spurningar hvaða tilgang það hafi að berjast við kerfið. Vind- myllurnar í kerfinu eru óteljandi og þver- hausarnir í skúmaskotunum lygilega margir.“ EHB ,Ég vil að hér fari fram vönduð, fyrsta flokks þjónusta, og að Kristnesspítali fái að gegna því hlutverki er ekki ánægður með framgöngu sumra þeirra í málefnum Kristnesspítala, svo ég tali hreint út. Einstaka menn hafa þó staðið sigvel, þegar til þeirra hefur verið leitað. Sjúkrahús sveitarfélaganna um landið virðast eiga auðvelt uppdráttar, þau hafa byggst upp því þau hafa þrýstihópa á bakvið sig. f skýrslu frá 1988, sem unnin var að til- hlutan heilbrigðisráðuneytisins, er Kristnes- spítali talinn einn af fjórum spítulum þar sem ástand húsnæðis sé slæmt. Hinar stofn- anirnar þrjár eru sjúkrahúsin á Egilsstöð- um, Seyðisfirði og ísafirði, og á öllum stöðunum hafa miklar úrbætur verið gerðar undanfarin tvö ár.“ - Hvaða afstöðu hefur Stjórnarnefnd ríkisspítala til Kristness? „Við eigum hljómgrunn og samúð þar, en þegar kemur að því að fylgja málum eftir gerist lítið, því miður.“ Þörfín fyrir endurhæfíngardeild viö Kristnesspítala Bjarni hefur mikinn hug á að Kristnesspítali verði sem fyrst í stakk búinn til að þjóna hlutverki endurhæfingarsjúkrahúss, sem gert er ráð fyrir í drögum að heilbrigðisáætl- un. „í tillögum að heilbrigðisáætlun, sem nú liggur fyrir, er mikil áhersla á endurhæf- ingu, langlegurými fyrir aldraða og fyrir- byggjandi aðgerðir gegn sjúkdómum. Krist- nesspítali getur boðið upp á þessa þætti, og heilbrigðismálaráð norðurlandshéraðs eystra hefur ýtt mjög á eftir uppbyggingu hér. Þetta er í raun eini aðilinn sem hefur haldið Kristnesspítala fram og stutt við okkur. Stjórnarnefnd ríkisspítala hefur tek- ið mörg verkefni fram yfir þessa stofnun, þrátt fyrir að áætlanir um uppbyggingu Kristnesspítala hafi hlotið samþykki nefnd- arinnar. Áætlanirnar, sem ég minntist á, miða að því að á efri gangi verði rekin langlegudeild, ekki eingöngu fyrir aldraða heldur einnig yngra fólk sem þarf á slíku að halda vegna sjúkdóma og slysa. Hér er um að ræða 24 rúm. Á neðri gangi verða 34 rúm eða svo fyrir endurhæfingarsjúklinga af ýmsu tagi. Ég gerði könnun á því hversu mikil þörf væri fyrir endurhæfingardeild í þessu lækn- ishéraði. Þá fékk ég m.a. uppiýsingar um hversu margir sjúklingar af svæðinu væru að meðaltali á endurhæfingardeild Borgar- spítalans og á Heilsuhæli N.L.F.Í. í Hvera- gerði og á Reykjalundi. 28,6 sjúklingar úr umdæminu lágu inni á þessum stofnunum að meðaltali, árið um kring. í sambandi við slíka endurhæfingardeild á Kristnesi munu starfa sjúkraþjálfari, iðju- þjálfari og sérmenntaðir íþróttakennarar sem þekkja vel til íþróttaiðkunar fatlaðra. Þeir síðastnefndu munu starfa með sjúklingun- um þann hluta dagsins sem ekki er notaður til beinnar endurhæfingar eða hvíldar. Lóðin og landareignin gefa góða möguleika - og spítalinn stækkar Landareign Kristnesspítala gefur góða möguleika á margvíslegum íþróttaiðkunum og tómstundastarfi, hér er t.d. 26 hektara skógarreitur, gönguleiðir sem henta jafnt að sumri og vetri, aðstaða til gönguskíðaiðkun- ar þá mánuði sem snjór er góður og svo sem hann er skilgreindur til.“ Mymiir: EHB mætti lengi telja. Náttúrufegurðin heillar flesta sem hér dvelja og gefur starfseminni skemmtilega umgjörð. Hvað húsakost snertir þurfum við að byggja endurhæfingarsal sem yrði 300 fermetrar, húsnæði fyrir iðjuþjálfun er til- búið, búið er að byggja sundlaug sem er 5x12 metrar, svo aðstaða ætti að vera ákjós- anleg. Hátíðasalur, sem hér er, var innrétt- aður fyrir þremur árum og búinn tækjum til sjúkraþjálfunar, og í sumar vonumst viö til að geta sett upp lyftu sem á að tengja gömlu og nýju byggingarnar saman. Auk þess er verið að byggja nýjar setustofur og borðsali fyrir sjúklingana. Við höfum ekki haft boð- legar setustofur hingað til en vonumst til að á þessu ári verði hægt að taka nýju aðstöð- una í notkun. Hér er um kostnaðarsamar framkvæmdir að ræða. Við þurfum að breyta hvorum sjúkragangi fyrir 25 til 27 milljónir króna, og verðum að dreifa þeirri upphæð á tvö ár. í dag er staðan sú að ef þær fjárveitingar standast sem ég hef munnleg loforð fyrir, erum við tveimur árum á eftir áætlun, miðað við upprunalegar tímasetningar. Mikið hef- Málverk af Kristneshæli, eins og það hét áður. Myndin er frá 1927, máluð af Freymóði Jóhannes- syni, þjóðkunnum listamanni.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.