Dagur


Dagur - 31.03.1990, Qupperneq 12

Dagur - 31.03.1990, Qupperneq 12
12 - DAGUR - Laugardagur 31. mars 1990 matarkrókur Landbúnaðar/sjávar- pottréttur og ísbomba - Einar Sveinn Ólafsson „Matarkrókur“ vikunnar Einar Sveinn Ólafsson verksmiðju stjóri ístess hf. tók áskorun félaga síns Jakobs Björnssonar fjármála stjóra lönaöardeildar sambandsins og er því mættur í Matarkrókinn að þessu sinni. Þeir félagar sem starl'a m.a. saman í stjórn Lionsklúbbsins Hængs, eru miklir matmenn og njóta þess jafnan að borða góðan mat. „Ég er mikill kokkur og get gert margt annað en að steikja hamborgara og sjóða pylsur. Ég hef mest gaman af því að elda mat sem krefst mikillar fyrirhafnar. Konan veitir mér gott aðhald í eldhúsinu, þegar ég er að störf- um þar og kannski eins gott,“ sagði Ein- ar Sveinn. Ekki var Einar Sveinn alveg viss um hvað hann ætti að kalla rétt þann sem hann gefur lesendum uppskriít af að þessu sinni en ákvað að kalia þetta iand- búnaðar/sjávar-pottrétt. Um er að ræða veislu-pottrétt fyrir 8-I0 manns, borinn fram með snittubrauði og salati. í eftir- rétt er Einar Sveinn svo með ísbombu. En þá kemur hér uppskriftin af sjálf- um aðalréttinum, veislu-pottrétti fyrir 8-I0 manns: 200 g skelfiskur 200 g rœkjur 1 dós krcekliitgur 200 g frosnar baunir L. bakki nýir sveppir 2 bréf skinka 2 bréf beikon 1 kjúklingur 2 bollar hrísgrjón / rauð og I græn paprika 5 tómatar til skreytingar 5 humarhalar til skreytingar Smjör til steikingar Aðferð: Steikið niðursneidda sveppi í smjöri og bætið beikoni, skinku og paprikun- um út í og látiðkraumavið lítinn hita í smjörinu. Vökva af kræklingi bætt sam- an við hrísgrjónin og vatni bætt við soðið. 'h matskcið smjör sett út í meðan á suðu stendur. Skelfiskurinn hreinsaður vel. Takið nýrnabita og garnir frá (þær gefa slæmt bragð). Vatn sett í pott og saltaö og hit- að upp í suðu. Þá erskclfiskurinn settur úlí og látinn vera í pottinum í 2 min. Skelfiskurinn síðan tekinn upp úr og skorinn í tvennt. Því næst er kjötið skorið niður og blandað saman við sveppina, paprik- urnar, beikonið og skinkuna. Síðan er hrísgrjónunum, rækjunum, skelfiskin- um, kræklingnum og kjúklingnum, ásamt grænmetinu blandað saman. Skreytt með humarhölum og tómötum. Boriö fram með snittu'brauði og salati. Snittubrauð: 6 dl ylvolgt vatn 1 pk. ger 4 tsk. salt 2 msk. matarolía 1 kg hveiti Áðferð: Helmingi hveitisins, vatni og geri hrært saman og salti og afgangnum af hveitinu bætt út í. Látið lyfta sér um helming í u.þ.b. 1 klst. Ath. að hafa rakt stykki yfir skálinni og liafa hana á heitum stað. Síðan á að forma í mjótt og langt brauð og rakt stykki lagt yfirog látið lyfta sér í ca. 40 mín. Bakað i 15- 20 inín. við 200 gráður á C. Salat: 3 epli 3 appelsinur Sýrður rjótni, mayones ogstrásæta Ávextirnir afhýddir og skornir í bita og settir í skál. Sýrðum rjóma og mayonesi bætt í eftir smekk, ásamt strásætuefni. ísbomba: 6 eggjarauður 4 éggjahvítur 1 dl sykur 6 dl rjómi I pk. hraðfryst jarðarber 4-5 kiwi aldin / stórt Toblerone súkkulaði I stk. tertubotn Avaxtasafi eða líkjör (Buylis) Aðferð: Eggjahvíturnar stífþeyttar og rjóm- inn þeyttur. Eggjarauðurnar þeyttar með sykrinum, yfir heitum vatnspotti, uns kremið þykknar. Tekiö af hitanum og þeytt á meðan það kólnar. Þeyttum rjóma og stífþeyttum eggjahvítunum blandað varlega út í. Siðan er hrærunni skipt í þrennt. Jarðarberin söxuð og blandað saman við einn hlutann. Kivvi aldinið afhýtt og saxað og blandað saman við annan hluta af hrærunni. Toblerone súkkulað- ið brytjað og hrært saman við þriðja hlutann. Skálarnar settar í frost um stund. Tertubotninn vættur með ávaxtasafa eða líkjöri og skorinn í 16-20 jafnar sneiðar. Tertusneiðunum raðað í hvelfda skál (2-2'/> 1) og þrýst að brún- unum, (fleygur snúi niður í skálinni) þannig að þær sitji fastar. Hálffrosinni jarðarberjahrærunni snuirt yfir tertubit- ana og skálin látin í frysti þar til ísinn er alveg stirönaður. Þá er súkkulaði- hræran smurð yfir jaröarberjahræruna og skálin sett aftur í frysti. Þegar súkkulaðihræran er orðin stíf, er skálin fyllt upp með kiwihrærunni og fryst á ný; Jsinn er tekinn úr frysti V> klst. áður en bera á hann fram. Skálin sett í volgt vatn og síðan hvolft úr henni á fat. Þannig lítur þetta út og svo er bara að vona að þessi réttir bragðist vel. Einar Sveinn hefur þegar skorað á næsta þátt- takanda, sem er Helga Magnúsdóttir fóstra á Akureyri og mun hún mæta með uppskrift af einhverju góðgæti í Matarkrókinn að hálfum mánuði liðnum. -KK Stýrimannanemarnir í einni brú nýja siglingahermisins. Þessi brú er nákvæm eftirlíking af brú flutningaskipsins „Atlantic Star“. Oll stjórntök verða að vera hin sömu og ef nemarnir sætu við stjórnvöl hins 75 metra langa og 2.700 tonna vöruflutningaskips. Stýrimannadeildin á Dalvík: Vel heppnuð kennslu- og kynningarferð til Reykjavíkur Nemar við stýrimannadeild- ina á Dalvík fóru fyrir skömmu í kennsluferð til Reykjavíkur. Höfuðtilgangur ferðarinnar var að sækja tíma í nýjum sigl- ingahermi við Stýrimannaskól- ann í Reykjavík. I slíkum hermi stjórna nemendur hin- um ýmsu stærðum af skipum við hinar fjölbreytilegustu aðstæður. Hér er um nýtt tæki að ræða sem kostar um 40 milljónir króna. Fullyrða má að öll siglingafræði og siglinga- reglukennsla gjörbreytist með tilkomu hermisins, þar sem nemendur verða að takast á við siglingu skipa eins og þeir væru í raun og veru um borð í skipi. í herminum er tekist á við skipaumferð, erfiðar siglingaleið- ir, staðsetningar, strauma og vind. Þá þarf að taka fullt tillit til allra kringumstæðna, svo sem að leggja að bryggju og þess háttar, sem hingað til hefur ekki verið hægt að kenna nemendum öðru- vísi en bóklega. Hin nýja aðstaða gerir alla stýrimannafræðslu mun athyglisverðari og eftirsóknar- verðari, og er þessi kennsla á við það besta sem þekkist í heimin- um í dag. Auk þess sem nemendur „sigldu“ á þurru landi við hinar erfiðustu aðstæður, notuðu þeir tímann til að heimsækja ýmsar stofnanir og fyrirtæki sem tengj- ast sjómennsku og sjávarútvegi. Meðal viðkomustaða stýrimanna- nemanna í suðurferðinni má nefna Slysavarnafélag Islands, Landhelgisgæsluna, Vita- og hafnamálastofnun, Veðurstofu íslands, Hafrannsóknastofnun, Siglingamálastofnun, Hampiðj- una og Sjómælingar íslands. Mjög vel var tekið á móti þeim á öllum þessum stöðum. Það var samdóma álit allra nema stýrimannadeildarinnar á Dalvík að ferð sem þessi væri geysilega mikilvægur þáttur í skólastarfinu. Það væri ekki ein- ungis námið í herminum sem kæmi að ómetanlegu gagni, held- ur sköpuðu heimsóknirnar í fyrir- tæki og stofnanir góð tengsl milli þeirra sem starfa á sjó og þjón- ustuaðilanna í landi. Nemarnir sögðust vilja nota tækifærið og koma á framfæri innilegu þakk- læti til þeirra fjölmörgu aðila sem þeir heimsóttu í suðurferðinni. Því er hér með komið til skila. SJ./BB. Farið í siglingu í Reykjavíkurhöfn með Ásgrími Björnssyni, formanni, á björgunarskipi SVFÍ, Henry Hálfdánarsyni. A myndinni eru talið frá vinstri: Friðbjörn Benediktsson, Sævaldur Gunnarsson, Sigurbjörn Sigurðsson, Valgarður Jökulsson, Finnur Sigurbjörnsson, Egill Guðjónsson (fremst), Sigfús Jónsson, Haukur Hauksson og Þröstur Jóhannsson. Ásgrímur for- inaður er að sjálfsögðu í brúnni. Á inyndina vantar Steingrím Friðriksson og Ómar Örvarsson. Myndir: SJ. Listahátíð: Verðlaunasamkeppni á sviði lista meðal ungs fólks - skilafrestur að renna út Frestur til að- skila verkum í Verðlaunasamkeppni á sviði lista meðal ungs fólks rennur út 31. mars. Það er Listahátíð í Reykja- vík sem stendur að keppninni með stuðningi íslandsbanka, sem kostar framkvæmd hennar og leggur til verðlaunafé, að upp- hæð 400 þúsund krónur. Eins og áður hefur komið fram er keppni þessi mjög frjálsleg í sniðum; þátttakendur mega skila inn nánast hverju sem er, svo fremi sem það með nokkru móti getur talist einhvers konar list. Þannig hafa þegar borist í keppn- ina á þriðja hundrað verk; ljóð, sögur, myndverk af ýmsu tagi, tónsmíðar, kvikmyndir og dans- verk. Þó hefur stjórn Listahátíð- ar lýst sérstökum áhuga á verkum sem eru samin út frá grunnhug- myndinni „íslendingur og haf“, en það er einungis ábending, ekki skilyrði fyrir þátttöku. Þátttakendur skulu vera 19 ára og yngri og er þá miðað við skila- dag. Verk má senda eða skila á skrifstofu Listahátíðar, Gimli við Lækjargötu, 101 Reykjavík. Þegar skilafrestur rennur út mun dómnefnd undir forsæti Brynju Benediktsdóttur, for- manns Bandalags íslenskra lista- manna, setjast á rökstóla. Úrslit verða síðan kunngerð við opnun Listahátíðar í júní í sumar.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.