Dagur - 31.03.1990, Síða 13

Dagur - 31.03.1990, Síða 13
Laugardagur 31. mars 1990 - DAGUR - 13 Að reykja gegn betri vitimd Nú eru um þrír áratugir síðan sannaðist sterkt samband milli reykinga og lungnakrabbameins. Síðan hefur listinn um skaðleg áhrif sígarettureykinga stöðugt lengst og fjöldi sjúkratilfella og dauðsfalla af þeirra völdum orðið óþolandi mikill. Allir íslending- ar vita um skaðsemi reykinga. Þeir sem reykja, sjá á hverjum sígarettupakka afdráttarlausa viðvörun. Rannsóknir sýna, að langflesta reykingamenn langar til að hætta. Samt reykja menn margir hverjir áfram gegn betri vitund. Hvaða áþján er svo þung að menn halda áfram að reykja þvert um vilja sinn. Það er niko- tínávaninn, nikotínfíknin sem veldur. Sú gleðilega þróun hefur orðið síðustu árin, að færra ungt fólk byrjar reykingar. Þeir sem hins vegar byrja af fikti og ung- æðishætti, verða fljótt margir fastir í nikontínávananum og losa sig ekki þaðan svo auðveldlega. Árangur á námskeiðum fyrir þá sern hafa lýst sig viljuga að reyna að hætta reykingum, er ekki betri en svo, að 6-7 af 10 eru byrjaðir að reykja ári síðar. Og enn á ný gegn betri vitund og þrátt fyrir þær upplýsingar sem gáfust á námskeiðinu. Hvernig má þetta verða? Við hvert sog úr sígarettunni fer nikotín með reyknum í lungun og frásogast leifturhratt. Á örfáum sekúndum hefur nikotínið borist með blóðinu til heilans. Nokotín- ið vinnur sér sess í boðkerfum heilans og þegar að því kemur að reykingamaðurinn vill hætta, minnir nikotínið hressilega á að það vantar. Reykingamaðurinn fær fráhvarfseinkenni, óstyrk og óróleika, sem eru það erfið mörgum reykingamönnum, að þeir finna sig knúna til að byrja að reykja aftur og losna þannig við óþægindin. Það er þetta vald fráhvarfseinkennanna, sem held- ur fólki í greipum reykinganna. Vissulega koma hjá mörgum ein- staklingum aðrar ástæður til fyrir reykingum, en ekkert af því hef- ur eins nístandi tak og nikotín- ávaninn. Sá sem reykir, sogar í sig hvern reykinn eftir annan, 10 sinnum úr hverri sígarettu, 200 sog á dag, liðlega 70 þúsund sinnum á einu ári, ef reyktur er pakki á dag. Allt til þess að fá jafnmarga skammta af nikotíni fyrir mið- taugakerfið. Með nikotíninu í reyknum er ótal fjöldi efna og stór fjöldi þessara efna er krabbameinsvaldandi. Enn önn- ur efni valda bólgu í loftvegum, og skemmdum á þeim og lungna- blöðrunum, þar sem loftskipti fara fram. Langvinn berkjubólga og lungnaþan verða afleiðingar þessa. Skemmdirnar byrja fljótt, en verða ekki þeim sem reykir ljósar fyrr en hann hefur reykt af dugn- aði í nokkur ár. Eftir nokkurra áratugi reykingar er hins vegar svo komið fyrir fjölmörgum reyk- ingamönnum, að þeir geta ekki slitið sig frá nikotínávananum, jafnvel þótt heilsubrestur sé þeim hörð áminning um skaðsemi reykinganna. Það má koma í veg fyrir nteira en 80% af öllu lungnakrabbameini. Það þýðir að af þeim 90 sjúkling- um, sem greinast með lungna- krabbamein á ári hverju, eru 72 tilfelli að minnsta kosti reyking- um að kenna. Lungnakrabba- mein er með verstu krabbamein- um viðureignar. Og því er besta vörnin hér, að reykingar verði sem allra minnstar og að við þurf- um ekki í byrjun næstu aldar að horfa á eftir nær þúsund manns uppskera lungnakrabbamein á hverjum áratug. Fyrir reykingamann eru lík- urnar á að fá lungnakrabbamein miklu meiri en líkurnar að vinna stóran vinning í einhverju þeirra happdrætta, sem við vongóð kaupum miða af aftur og aftur. Vinningar reykingahappdrættis- ins eru alltof ógnvænlegir til þess að nokkur spili með til vinnings. Virkjum þá vitund sem við höf- um um skaðsemi reykinga til þess herða þá enn einu sinni, sem Friúrik E. Yngvason. ekki hafa byrjað reykingar að halda þá ákvörðun og hina sem enn hafa ekki hætt, að gera það áhlaup sem dugar til að komast undan ógnum reykinganna. Krabbameinsfélagið hefur gef- ið út bæklinginn „Ut úr kófinu" þeim til halds og trausts sem vill hætta og virða fyrsta heilsuboð- orðið: „Reykjum ekki og forð- umst reyk frá öðrum. Notum ekki neftóbak eða munntóbak." Sá sem hættir reykingum og heldur þaö, vinnur umtalsverðan sigur. Meiri og merkilegri sigur en þann sern unnin er í margs- kyns keppnum. Að brjótast und- an valdi nikotínsávanans, er að auka persónulegt frelsi sitt, höggva á hlekki þá sem stýra reykingunum og búa í haginn til bættrar heilsu og betra umhverf- is. Friðrik E. Yngvason. Höfundur er sérfraðingur í lungnalækn- ingum á L-deild FSA. vsk^? Reifur A: Skattskyld velta, þ.m.t. úttekttil eigin nota, sala rekstrar- fjármunaog innborganir fyrir afhendingu. Fjárhæðin færist án virðisaukaskatts. Reitur B: Undanþegin velta. Hér er m.a. átt við útflutning, sölu dagblaða og aðra sölu sem ber „núllskatt". Ekki skal færa hér upplýsingar um undanþegna starfsemi. Reitur C: Útskattur, sáskattur sem á upþgjörs- tímabilinu hefurfallið á skattskylda veltu, þ.e. reiknaður útskattur af allri sölu eða afhendingu skv. reitA. xjir&isaukaskaús skýrs'a w t05-OA \Kíantw'» ’n A3A309 . þeim'"' P -6669 tF-r II! j ' .•mcaveai 3°° 8 y- \ 0.4»«^"— \ jl ' \ ^ ,a fuma Gtnö-ss6/ Reitur D: Innskattur, sá skattur sem á uppgjörs- tímabilinu hefurfallið á kaup eðaeigin innflutning á vörum eða þjónustu til nota í rekstrinum, þ.e. aðföng sem varöa sölu á vöru, vinnu eöa þjónustu skv. reitum Aog B. • Reitur E: Fjárhæð til greiðslu eða inneign. Ef útskattur, skv. reitC, er hærri en innskattur, skv. reit D, skal merkjavið í reitinn „Til greiðslú' en ef innskattur er hærri en útskattur skal merkjavið í reitinn „Inneign". Athygli skal vakin á því að ef skilafjárhæð er núll eöa engin starfsemi hefur farið fram á tímabilinu ber samt að fylla skýrsluna út og skila henni. fiumtW twlK 5. apríl er gjalddagi virðisaukaskatts! Fyrirfram áritaðir gíróseðlar irðisaukaskattsskýrslan er í formi g í róseðils. Gjaldanda ber að nota þá skýrslu sem honum berst árituð. Berist skattskyldum aðila ekki árituð skýrsla skal hann nálgast hana hjá skattstjóra eða innheimtumanni í sínu umdæmi og árita hana. Hvenær á að skila skýrslu? jalddagi virðisaukaskatts er 5. apríl. Til að komast hjá álagi þarf greiðsla að hafa borist á gjalddaga. Athygli skal vakin á því að ekki nægir að póstleggja greiðslu á gjalddaga. Hvar má greiða? kýrslum til greiðslu, þ.e. þegar útskattur er hærri en innskattur, og núllskýrslum má skila til banka, sparisjóða eða pósthúsa. Einnig má greiða hjá innheimtumönnum ríkissjóðs en þeir eru tollstjórinn í Reykjavík, sýslumenn og bæjarfógetar í kaupstöðum, bæjum og sýslum, og lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli. Athygli skal vakin á því að bankar, sparisjóðir og pósthús taka aðeins við skýrslum sem áritaðar hafa verið af skattyfirvöldum. Ef aðili áritar skýrsluna sjálfur eða breytir áritun verður að skila henni til innheimtumanns ríkissjóðs. Inneignarskýrslur Mm f innskattur er hærri en útskattur, þ.e. gjaldandi á að fá endurgreiðslu á virðisaukaskatti, skal skila skýrslunni til skattstjóra í viðkomandi umdæmi. Upplýsingasími RSK vegna virðisaukaskatts er 91-624422 RSK RÍKiSSKATTSTJÓRI

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.