Dagur - 31.03.1990, Blaðsíða 16

Dagur - 31.03.1990, Blaðsíða 16
16 - DAGUR - Laugardagur 31. mars 1990 dagskrá fjölmiðla EmbýBshús á Akureyri tíl sölu Til sölu einbýlishúsið að Oddagötu 3b, Akureyri. Húsið er 5 herbergja 104 fm og kjallari. Timburhús, klætt með ryðfríu stáli. I mjög góðu ástandi. Upplýsingar gefur Ragnar Pálsson í síma 96-22175. BH===H5!=!^ Búsáhalda- markaðurinn r Indíáninn er á dagskrá Sjónvarpsins á sunnudagskvöld. Þetta er nýleg þýsk sjónvarpsmynd byggð á sjálfsævi- sögu Leonhards Lentz. Maðurfær vitneskju um að hann sé með illkynjað mein í hálsi og fylgst er með viðbrögð- um hans eftir þá greiningu. Óseyri 4 opnaður í dag laugardaginn 31. mars Mikið úrval af búsáhöldum, leirtaui, gler- og gjafavörum. Handklæði og sokkar á alla fjölskylduna. Ath. Leirtau til fermingarinnar á einstöku verði. Opið virka daga kl. 13-18 og laugardaga kl. 10-16 Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, FJÓLA EGEDÍA HJALTALÍN, Norðurgötu 35, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri aðfaranótt föstudags- ins 30. mars. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Randver Karlesson. Eiginmaður minn, GUTTORMUR BERG, Akureyri, sem lést 28. mars, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 3. apríl kl. 13.30. Þórlaug Baldvinsdóttir. Gleymið ekki að gefa smáfuglunum. Sjónvarpið Laugardagur 31. mars 13.30 íþróttaþátturinn. 14.00 Enska knattspyrnan: Liverpool- Southampton. Bein útsending. 16.00 Meistaragolf. 17.00 íslenski handboltinn. Bein útsend- ing. 18.00 Endurminningar asnans (9 og 10). Lokaþáttur. 18.25 Fiskimaðurinn og kona hans. (Storybreak Classic.) 18.50 Táknmálsfréttir. 18.55 Fólkid mitt og fleiri dýr (4). 19.30 Hringsjá. 20.30 Lottó. 20.35 '90 á stödinni. 20.55 Allt í hers höndum. 21.20 Fólkið í landinu. Frá Saigon í Kringluna. Sigmar B. Hauksson ræðir við Ara Huynh. Ari er víetnamskur flóttamaður sem kom hingað til lands með tvær hendur tómar en á nú, ásamt fjölskyldu sinni, veitinga- stað í borginni. 21.45 Einkamáladálkurinn. (Classified Love.) Bandarísk bíómynd frá 1986. Aðalhlutverk: Michael McKean, Stephan- ie Faracy and Dinah Manoff. Þrír framagosar í New York treysta á einkamáladálka dagblaðanna til þess að komast í kynni við hitt kynið. 23.15 í sjálfheldu. (To Kill a Clown.) Bandarísk bíómynd frá árinu 1972. Aðalhlutverk: Alan Alda, Blythe Danner, Heath Lamberts og Eric Clavering. Ung hjón taka á leigu hús fjarri manna- byggðum. Leigusalinn, sem er fyrrver- andi hermaður, reynist vera þeirra eini nágranni. Hann virðist við fyrstu kynni indælismaður en ekki er allt sem sýnist. 00.35 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. Sjónvarpið Sunnudagur 1. apríl 14.20 Heimsins besti hundur. (Verdens bedste hund.) Heimildamynd um alþjóðlega hundasýn- ingu í Kaupmannahöfn. 15.10 Veðurnornin. (Frau Holle.) Nýleg ævintýramynd byggð á sögu úr Grimms ævintýrum. Leikendur: Giulietta Masina, Valerie Kaplanova, Sona Valentova og Pavol Mikulik. Jakob litli bjargast úr snjóflóði og er það ekki síst að þakka veðurnorninni sem stjórnar árstíðunum. 16.40 Kontrapunktur. Áttundi þáttur af ellefu. Að þessu sinni keppa lið Svía og Norð- manna. 17.40 Sunnudagshugvekja. 17.50 Stundin okkar (23). 18.20 Litlu Prúðuleikararnir (4). 18.50 Táknmálsfréttir. 18.55 Fagri-Blakkur. 19.30 Kastljós á sunnudegi. 20.35 íslandsmyndir. í tilefni 60 ára afmælis Ríkisútvarpsins mun Sjónvarpið sýna á sunnudagskvöld- um næstu mánuði stuttar yfirlitsmyndir af stórbrotinni náttúru íslands. 20.40 Frumbýlingar. (The Alien Years.) Þriðji þáttur. 21.30 Umhverfis Vikivaka. Fylgst er með upptöku óperunnar Viki- vaki haustið 1989 og rætt við Atla Heimi Sveinsson, tónskáld, Thor Vilhjálmsson, höfund texta, Hannu Heikinheimo, leik- stjóra og fleiri aðstandendur verksins. 22.ÖÖ Indiáninn. (Der Indianer.) Nýleg þýsk sjónvarpsmynd byggð á sjálfsævisögu Leonhards Lentz. Maður fær vitneskju um að hann sé með illkynjað mein í hálsi, og fylgst er með við- brögðum hans eftir þá greiningu. Myndin gerist að mestu á sjúkrahúsi og er vistin þar séð með augum sjúklingsins. 23.35 Listaalmanakið - Apríl. Svipmyndir úr listasögunni. 23.40 Útvarpsfréttir í dagskrárlok. Sjónvarpið Mánudagur 2. apríl 17.50 Töfraglugginn (22). 18.50 Táknmálsfréttir. 18.55 Yngismær (82). 19.20 Leðurblökumaðurinn. 19.50 Bleiki pardusinn. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Roseanne. 21.00 Litróf. Meðal efnis: Litið inn á sýningu hjá íslenska leikhúsinu á Hjartatrompeti eftir Kristínu Ómarsdóttur, ung skáld lesa úr verkum sínum og norræn samsýning á Listasafni íslands skoðuð. Umsjón Arthúr Björgvin Bollason. 21.45 íþróttahornið. Fjallað verður um íþróttaviðburði helgar- innar. 22.05 Að stríði loknu (9). (After the War.) Á því herrans ári ... 23.00 Ellefufréttir. 23.10 Þingsjá. Umsjón Árni Þórður Jónsson. 23.30 Dagskrárlok. Stöð 2 Laugardagur 31. mars 09.00 Með afa. 10.30 Jakari. 10.35 Glóálfarnir. 10.45 Júlli og töfraljósið. 10.55 Denni dæmalausi. 11.20 Perla. 11.45 Klemens og Klementína. 12.00 Popp og kók. 12.35 Á ferð og flugi. (Planes, Trains and Automobiles.) Þrælgóð gamanmynd með Steve Martin í aðalhlutverki. Aðalhlutverk: Steve Martin, John Candy, Laila Robbins, Michael Mckean og Kevin Bacon. 14.05 Frakkland nútímans. (Aujourd’hui en France.) 14.35 Fjalakötturinn. Hvarfið við Gálgaklett. (Picnic at Hanging Rock.) Saga þessi gerist um aldamótin síðustu og segir frá þremur skólastúlkum sem fara í skógarferð ásamt kennara sínum. Á þessum sólríka sunnudegi gerast margir yfirnáttúrulegir atburðir sem erfitt er að henda reiður á. Aðalhlutverk: Rachel Roberts, Dominic Gurad og Helen Morse. 16.25 Kettir og húsbændur. (Katzen Wandler auf Traumpfaden.) 17.00 Handbolti. 17.45 Falcon Crest. 18.35 Bílaþáttur Stöðvar 2. 19.19 19.19. 20.00 Sérsveitin. (Mission: Impossible.) 20.50 Ljósvakalíf. (Knight and Daye.) Lokaþáttur. 21.20 Kvikmynd vikunnar. Illa farið með góðan dreng.# (Turk 182.) Ungur Brooklynbúi grípur til sinna ráða er slökkvilið New York borgar neitar að styðja við særðan bróður hans vegna hetjudáðar sem sá síðarnefndi vann undir áhrifum áfengis á frívakt sinni. Aðalhlutverk: Timothy Hutton, Robert Urich, Kim Cattrall og Robert Culp. 23.00 Hver er næstur?# (Last Embrace.) Roy Scheider, sem hér leikur starfsmann bandarísku leyniþjónustunnar, verður, ásamt konu sinni, fyrir óvæntri skotárás sem grandar eiginkonunni. Eftir að hafa jafnað sig i nokkra mánuði á taugahæli heldur hann aftur út í lífið en verður fljót- lega var við að setið er um líf hans. Þegar hann fer að grennslast fyrir um orsökina kemst hann að því að hann er síðasti maðurinn á lista yfir afkomendur hór- mangara frá aldarbyrjun, en hópur manna hefur komið þeim fyrir kattarnef hverjum á fætur öðrum. Aðalhlutverk: Roy Scheider, Janet Marg- olin, John Glover og Christopher Walken. Stranglega bönnuð börnum. 00.40 Á elleftu stundu.# (Deadline U.S.A.) Ritstjóri dagblaðs og starfsfólk hans ótt- ast að missa vinnuna með tilkomu nýrra eigenda þar sem núverandi eigendur blaðaútgáfunnar sjá sér ekki fært að halda útgáfustarfseminni áfram. Um þær mundir sem verið er að ganga frá sölu fyrirtækisins er ritstjórinn að rannsaka feril Rienzi sem talinn er vera forsprakki glæpahrings. Þegar betur er að gáð teng- ist Rienzi einnig óupplýstu morðmáli. Takist ritstjóranum að koma upp um glæpahringinn í tæka tíð er blaðinu og starfsfólkinu ef til vill borgið. Aðalhlutverk: Humphrey Bogart, Ethel Barrymore, Kim Hunter og Ed Begley. 02.05 Hausaveiðarar. (The Scalphunters.) Þetta er alvöru vestri með fullt af hörku- áflogum, gríni og indíánum. Aðalhlutverk: Burt Lancaster, Shelley Winters, Telly Savalas og Ossie Davis. Bönnuð börnum. 03.45 Dagskrárlok. Stöð 2 Sunnudagur 1. apríl 09.00 í Skeljavík. 09.10 Paw, Paws. 09.30 Litli folinn og félagar. 09.55 Selurinn Snorri. 10.10 Þrumukettir. 10.30 Mímisbrunnur. 11.00 Skipbrotsbörn. (Castaway.) 11.30 Sparta sport. 12.00 Nánar auglýst síðar. 12.35 Listir og menning. Heimur Peter Ustinovs. 13.30 íþróttir. 16.55 Fréttaágrip vikunnar. 17.15 Umhverfis jörðina á 80 dögum. (Around The World In Eighty Days.) 18.45 Viðskipti í Evrópu. (Financial Times Business Weekly.) 19.19 19.19. 20.00 Landsleikur. Bæirnir bítast. 21.00 Lögmál Murphys. (Murphy's Law.) 21.55 Fjötrar. (Traffik.) Lokaþáttur. 22.45 Listamannaskálinn. (The South Bank Show.) William Golding. 00.05 Þrír vinir. (Three Amigos.) Sannkallaður vestri í léttari kantinum. Aðalhlutverk: Steve Martin, Chevy Chase, Martin Short og Patrice Martinez. Bönnuð börnum. 01.45 Dagskrárlok. Stöð 2 Mánudagur 2. mars 15.20 Tim. Hálf fertug kona verður ástfangin af sér yngri manni sem er þroskaheftur. Kynni þeirra takast þegar hún ræður Tim til garðyrkjustarfa, en upp frá því fer vinátta þeirra að þróast. Aðalhlutverk: Piper Laurie og Mel Gibson. 17.05 Santa Barbara. 17.50 Hetjur himingeimsins. 18.15 Kjallarinn. 18.40 Frá degi til dags. 19.19 19.19. 20.30 Skiðastjörnur. Fjölskyldan komin í plóginn? Þá er bara að byrja með skíðastjörnunum okkar fjór- um þeim Lindu, Hemma, Rósu og Ómari. 20.40 Dallas. 21.35 Tvisturinn. 22.20 Morðgáta. (Merder, she wrote.) 23.05 Óvænt endalok. (Tales of the Unexpected.) 23.35 Geymt en ekki gleymt. (Good and Bad at Games). Myndin gerist í byrjun áttunda áratugar- ins í byrjun áttunda áratugarins í drengjaskóla í London og svo tíu árum síðar þegar leiðir þriggja nemenda liggja aftur saman eftir heldur misjafna skóla- göngu. Þetta eru þeir Niles og Mount, sem báðir nutu vissra forréttinda í skólanum, og Cox sem var einfari og hafði verið í leiksoppur skólafélaga sinna. Þeg- ar fram líða stundir fær Cox tækifæri til þess að hefna sín og gerir það svo um munar. > Aðalhlutverk: Martyn Standbridge, Ant- on Lesser, Laura Davenport og Dominic Jephcott. Bönnuð börnum. 01.00 Dagskrálok.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.