Dagur - 05.05.1990, Qupperneq 10
10 - DAGUR - Laugardagur 5. maí 1990
1-^ vær ungar konu
sér lítlð hús fyrir
.þar sem þær ætl:
framtíðinni við það se
til, önnur að kenna d
nudda þreytta vöðva,
heitir Svala Brynja P
vonandi eigum við ef
hana síðar, en I helgai
I>óra Erlingsdóttir, n
Þóra er frá Höfn í Hornafirði, cn á unglings-
árunum stundaði hún nám á heilsugæslu-
braut við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki í
eitt og hálft ár. Þá var hún ekki alveg ráðin
í hvað hún vildi taka sér fyrir hendur en
hjúkrun var inn í myndinni.
Fann að þetta var akkúrat ég
Þóra segir að það hafi verið skrýtið hvernig
það kom til að hún fór að læra nudd, en þá
var hún stödd í Reykjavík. „Allt í einu
þurfti ég að skoða símaskrána og opna
hana. Þá sá ég nafn - Snyrti- og nuddstofan
Paradís. - Ég sá þetta nafn, sem eins og lýsti
af, en allt var svart í kring. Það er nú ekki
algengt að ég lesi símaskrána en ég bara gat
ekki hætt að horfa á þetta nafn og það var
eins og ég fengi fiðring í fæturna. Mér
fannst ég verða að fara og eins og það væri
hönd á bakinu á mér til að ýta mér að fara á
þessa stofu. Ég var hissa því þetta var svo
ofsalega sterkt, ég bað samt frænku mína að
keyra mig þangað og þegar ég kom inn á
stofuna datt mér í hug að spyrja hvort ég
kæmist ekki á samning. Ég vissi samt að það
var mjög erfitt að komast á samning og vin-
kona mín hafði reynt það í tvö ár. Og ég
veit ekki hvað ég var að gera þarna því ég
vissi ekki einu sinni hvernig samning, því
þetta var snyrti-, nudd- og hárgreiðslustofa.
Mér var sagt að ein stúlka hefði verið að
hætta þarna daginn áður, en fjórar aðrar
væru búnar að biðja um vinnuna og mér var
sagt að hringja eftir svona hálfan mánuð.
Þegar ég hringdi var búið að ákveða að taka
mig. Ég spurði seinna af hverju, því ég bjó
ekki í bænum og það var svo lítið búið að
tala við mig, en þá sagði lnin að sér hefði
strax litist svo vel á mig.
Svo byrjaði ég að læra nudd og fann að
þetta var akkúrat ég. Ég var þatna í eitt ár.
en ætlaði alltaf út og lá svolítið á allt í einu.
Ég komst að við góðan skóla í Bandaríkjun-
um, BSMT nuddskóla í Boulder. Þetta var
alveg æðislega góður skóli og það var hrein-
lega allt kennt í honum, ég hefði aldrei lært
nema einn tíunda að þessu hér heima.
Þarna var frábært að vera, þetta var svona
heilsuræktarbær og maður sá hvað fólkið
var afslappað."
- Þóra Erlingsdóttir, nud