Dagur - 09.05.1990, Qupperneq 6
6 - DAGUR - Miövikudagur 9. maí 1990
Forsetinn afhendir Óttari Kjartanssyni merki sitt.
Framan við kirkjuna að athöfn lokinni.
Myndir: EHB
Akureyrarkirkja:
Forsetamerki
skáta afhent
Sunnudaginn 29. apríl kom frú
Vigdís Finnbogadóttir, forseti
íslands, í heimsókn til Akureyr-
ar. Pá afhenti forsetinn dróttskát-
um forsetamerki skáta við hátíð-
lega athöfn í Akureyrarkirkju.
Forsetamerkið er staðfesting
þess að almennri þjálfun skátans
er lokið. Afhendingin markar
einnig upphaf nýs tímabils í starfi
viðkomandi skáta, því eftir það
tekur við sérþjálfun, svo sem for-
ingjaþjálfun, þjálfun í björgunar-
störfum og fleiri þáttum.
Forsetamerkið var fyrst afhent
árið 1965, og hefur afhending
þess farið árlega fram í Bessa-
staðakirkju. Að þessu sinni var
ákveðið að afhendingin færi fram
í Akureyrarkirkju, og var það
skáturn á Akureyri mikið fagn-
aðarefni að fá að taka á móti
forsetanum og gestum við þetta
tækifæri.
Margir skátar komu í Akureyr-
arkirkju af þessu tilefni, og var
gaman að sjá mörg kunnugleg
andlit eldri skáta, sem hafa helg-
að skátahreyfingunni og hugsjón
hennar krafta sína. Skátar á
Akureyri geta litið með stolti yfir
farinn veg, og var þess m.a.
minnst við athöfnina að skáta-
starfið á sér djúpar rætur í
bænum.
Ávörp fluttu frú Vigdís Finn-
bogadóttir, Gunnar Eyjólfsson,
skátahöfðingi, og Ólafur Ásgeirs-
son, handhafi forsetamerkis
skáta númer eitt. Lýsti Ólafur
m.a. ferð skáta frá Ákureyri til
Bessastaða árið 1965, og ræddi
um hugsjón skátastarfsins.
Hér eru birtar nokkar myndir
sem teknar voru við athöfnina í
kirkjunni. EHB
Rúmfatalagerinn
Rýmum
fyrir
nýjum
tegundum!
Fremst á myndinni sjást nokkrir forsvarsmenn skáta á Akureyri o.fl. gestir.
Sendum í
póstkröfu
Óseyri 4
6 603 Akureyri
ST 96-26662
Auðbrekku 3
200 Kópavogur
•SS- 91-40460