Dagur - 11.05.1990, Blaðsíða 2

Dagur - 11.05.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 11. maí 1990 -1 fréttir F Gert er ráð fyrir metsumri í komu erlendra ferðamanna til Akureyrar: Útlendingum boðið upp á þjóðar- kvöld, miðnætursól og kampavín Aðilar í ferðaþjónustu á Akur- eyri búast við góðu sumri í sumar. Ferðamannavertíðin hefst ekki af alvöru fyrr en í byrjun næsta mánaðar en allir hlutaðeigandi aðilar eru í við- bragðsstöðu og búa sig undir Ef að líkum lætur verða margir bak- pokamennirnir á Akureyri og ná- grenni í sumar. metsumar í komu erlendra ferðamanna. Fjórtán skemmti- ferðaskip eru væntanleg til Akureyrar í sumar og er það fyrsta væntanlegt 12. júní nk. Að sögn Gísla Jónssonar, framkvæmdastjóra Ferðaskrif- stofu Akureyrar, er mikill hugur í mönnum og mikill fjöldi ferða- manna er væntanlegur. Fyrstu erlendu ferðamennirnir eru þeg- ar komnir og þetta fer allt stig vaxandi fram í júlí, en þá er toppnum náð. Júlímánuður verð- ur mikill annamánuður og mikið er bókað hjá Ferðaskrifstofunni. Aðspurður um nýmæli í móttöku ferðamanna, sagði Gísli: „Við erum að berjast við að gera Leirutjörnina að stangveiðipara- dís og sleppum fiski í hana. Þetta er áhugavert og lofar vonandi góðu. Við verðum með sérstök þjóðarkvöld með þjóðlegum mat og drykk og þjóðlegum skemmti- atriðum. Sannkölluð íslands- kvöld.“ Ferðaskrifstofa Akureyrar starfar að öðru leyti hefðbundið í móttöku ferðamanna. Fólks- flutningabílar fara með ferða- menn vítt og breitt um Norður- Lambakótelettur 11/2.2 kg i poka,656 kr. kg Blanda 6 í pakka, 180 kr. ÝSUflÖk 5 kg í kassa, 1.450 kr. kassinn Rækjur 500 g í poka, kr. pokinn ökómiólk'» "s68 Nautahamborgarar 10 í pakka, 530 kr. pakkinn KEANETTO land og skrifstofan tekur á móti fjórtán skemmtiferðaskipum, það fyrsta verður hér 12. júní. „Sumarið verður gott og anna- samt það er mín vissa,“ sagði Gísli Jónsson, framkvæmdastjóri. Helena Dejak er framkvæmda- stjóri Ferðaskrifstofunnar Nonna á Akureyri, sem hóf starfsemi sína fyrir einu ári og að hennar sögn verður sumarið annasamt. „Hér hjá okkur verður mikið um að vera og margt að gerast. Sjö flugvélar koma til Akureyrar frá Sviss. Sú fyrsta kemur 3. júlí og síðan vikulega til 13. ágúst. Með þeirri fyrstu kemur hestafólk á leið á Landsmót hestamanna á Vindheimamelum í Skagafirði. Sumarið hlýtur að verða metsum- ar í móttöku erlendra ferða- manna,“ sagði Helena. Hvað gerir Ferðaskrifstofan Nonni fyrir ferðamennina? „Svo eitthvað sé nefnt, þá skipuleggj- um við ferðir til Grímseyjar og Hríseyjar. Tvær til Grímseyjar í viku og eina til Hríseyjar. Mið- nætursólarferðir verða farnar út Eyjafjörð með kampavíni og til- heyrandi og farkosturinn í öllum þessum ferðum er nýja ferjan Sæfari. Við bjóðum uppá hesta- ferðir frá Grýtubakka með Pólar- hestum og einnig stuttar hesta- ferðir frá Pétursborg. Gönguferðir eru á dagskrá hjá okkur. Fimm daga gönguferðir um Tröllaskaga og eins þriggja daga á svipuðum slóðum. Eins dags gönguferðir verða farnar um Glerárdal, Þorvaldsdal og víðar og fjallaklifur fyrir vant fólk kemur inn í myndina. Sumarið verður vonandi gott og veðurguðirnir í góðu skapi. Þá fara allir ánægðir til síns heima,“ sagði Helena Dejak. ój 55 Dauft hljóð í skagfirskum grásleppuveiðimönnum: Hefur verið hálfgert kropp segir Bjarni Egilsson, Hvalnesi á Skaga <6 „Veiðarnar hafa ekki gengið nógu vel. Þetta hefur verið hálfgert kropp eins og maður segir. Það vantar allan kraft í grásleppuna enn þá,“ sagði Bjarni Egilsson Hvalnesi á Skaga. Fleiri grásleppusjó- menn hafa sömu sögu að segja og svo virðist að rauðmaga- veiðin hafi brugðist einnig. Að sögn Bjarna hafa grá- sleppukarlar ekki áhyggjur af að grásleppuhrognin seljist ekki. „Við Skagabændur höfum nægan markað fyrir okkar hrogn. Við höfurn ekki áhyggjur af sölumál- um þegar veiðarnar ganga ekki betur,“ sagði Bjarni. Skaginn ætlar að koma vel undan vetri. Snjór hefur verið mikill í vetur og því lítill klaki í jörð. Á Útskaganum er snjór far- inn að minnka verulega en á Mið- skaganum er mikil fönn enn þá. „Tún eru orðin auð og ekki mikill snjór í byggð. Ef tíðarfarið heldur áfram eins og verið hefur þurfa menn ekki að örvænta,“ sagði Bjarni Egilsson að lokum. kg Sumaráætlun flugfélaganna gengin í gildi: Færri ferðir til Reykjavíkur Flugfélögin Flugleiðir h.f. og Flugfélag Norðurlands h.f. fljúga nú samkvæmt sumar- áætlun og ekki eru miklar breytingar frá fyrra ári. Að sögn Bergþórs Erlingsson- ar, vaktstjóra, hjá Flugleiðum h.f. á Akureyrarflugvelli, eru farnar fimm ferðir dag hvern, alla daga vikunnar, milli Akureyrar Dalvík: Nýtt íbúðarsvæði upp með Brimnesá Skipulagsnefnd Daivíkurbæjar hefur samþykkt tillögu að deiliskipulagi af íbúðabyggð upp með Brimnesá. Bæjar- stjórn á eftir að staðfesta skipulagið endanlega. „Þarna er gert ráð fyrir 47 íbúða hverfi,“ sagði Sveinbjörn Steingrímsson, bæjartæknifræð- inugur. Hann sagði mögulegt að byrjað yrði strax í sumar að byggja raðhús á þessu nýja svæði upp með ánni. óþh Fundur útvegsmanna á Norðurlandi: Sjávarútvegsráðherra ræðir ný lög um stjóm fiskveiða Halldór Ásgrímsson, sjávar- útvegsráðherra, mun koma á fund Útvegsinannafélags Norð- urlands sem haldinn verður á Akureyri á mánudag. Þar mun ráðherra ræða um ný- samþykkt lög um stjórn fisk- veiða og svara fyrirspurnum um þau. Auk laganna um stjórn fisk- veiða verður á fundinutn rætt um afkomuskýrslu bátaflotans. Gestir fundarins verða auk Halldórs þeir Kristján Ragnars- son, formaður L.Í.Ú. og Sveinn Hjörtur Hjartarson. Fundurinn verður haldinn á Hótel KEA á mánudag kl. 14.00. JÓH Ilalldór Ásgrímsson. og Reykjavíkur. A tímabilinu 6. júlí - 31. ágúst er sjöttu ferðinni bætt við á föstudögum kl. 11,45. Þetta er fækkun ferða úr 40 ferð- um í 36 ferðir á viku, jafnframt sem ferðununi er þjappað meir saman á daginn, þannig að ekki er flogið eins langt fram eftir kvöldi. Friðrik Adolfsson, afgreiðslu- stjóri Flugfélags Norðurlands, sagði að ferðafjöldi félagsins væri sá sami sem fyrr til áætlunarstaða félagsins, aðeins breyttar tíma- setningar. ój Athugasemd: Ekki lánsloforð heldur lánshæfiii Sigfús Karlsson vill gera athuga- semd við frétt um fasteignamark- aðinn og húsbréfakerfið sem birt- ist í Degi 9. maí. Þar segir að þeir sem fengu lánsloforð fyrir 1. mars á síðasta ári hafi komist inn í húsbréfakerfið, en það mun vera misskilningur. Þeir sem fengu lánsloforð fá lán frá Hús- næðisstofnun en hins vegar kom- ust þeir inn í húsbréfakerfið sem höfðu fengið úrskurð um láns- hæfni fyrir ákveðið tímabil á síð- asta ári. Hitt er rétt að kerfið verður opnað öllum 15. maí nk. fyrir kaup á eldri íbúðum. Leiðrétting í grein um vorkomu í Skagafirði í Degi í gær var farið rangt með föðurnafn bóndans á Gilsbakka í Austurdal í undirfyrirsögn. Eins og réttilega er skrifað í greininni heitir hann Hjörleifur Kristins- son en ekki Kristjánsson. Beðist er velvirðingar á þe^u.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.