Dagur - 11.05.1990, Blaðsíða 15
Föstudagur 11. maí 1990 - DAGUR - 15
íþróttir
Knattspyrna:
Meistaraslagur KA og Fram
- á gervigrasinu í Laugardal kl. 20 á þriðjudagskvöldið
Sigurður Matthíasson, íþróttamaður UMSE 1989, mundar spjótið.
Sigurður Matthíasson
íþróttamaður UMSE ’89
Sigurður Matthíasson var kjör-
inn íþróttamaður UMSE á árs-
þingi sambandsins sem haldið
var á Svalbarðseyri um síðustu
helgi. Sigurður náði mjög góð-
um árangri á síðasta ári, sigr-
aði m.a. í öllum kastgreinum í
2. deildinni og hlaut þar 24 stig
af 24 mögulegum, auk þess
sem hann stóð sig frábærlega á
alþjóðlegum vettvangi.
Daníel Hilmarsson var á þing-
inu valinn skíðamaður UMSE,
Eiríkur Helgason bridgemaður
UMSE, Rúnar Berg UMF-Reyni
skákmaður UMSE og Jóhann
Gylfason UMF-Reyni knatt-
spyrnumaður UMSE. Að auki
var afhentur svokallaður Sjóvá-
bikar fyrir besta árangur á helstu
mótum á vegum UMSE og kom
hann í hlut Dalvíkinga.
Jóhann Ólafsson á Ytra-Hvarfi
var endurkjörinn formaður
UMSE á þinginu.
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
Skosk, þýsk og dönsk
knatlspyma á seðilinn
- Slefán sló Sigurð Guðvarðarson út
Stefán Thorarensen sló Sigurð Guðvarðarson út úr getrauna-
leiknum í síðustu viku þegar hann fékk 8 rétta gegn 6 réttum
Sigurðar. Stefán skoraði á vin sinn Svein Stefánsson og mæt-
ast þeir í þessari viku.
Seðillinn að þessu sinni er nokkuð öðru vísi en menn hafa átt
að venjast upp á síðkastið. Á honum er að finna bikarúrslitaleik-
ina í Englandi og Skotlandi auk deildarleikja í Þýskalandi og
Danmörku.
í reglugerð um íslenskar getraunir segir að úrslit að lokinni
framlengingu gildi þegar um bikarleiki sé að ræða og jafnt eftir
venjulegan leiktíma. Þetta þýðir að þurfi vítaspyrnukeppni til að
knýja fram úrslit gildir X sem rétt tákn á seðlinum.
Stefán:
C. Palace-Man. Utd 2
Celtic-Aberdeen 1
Frankfurt-Köln 2
Stuttgart-Homburg 1
Uerdingen-M’Gladbach 1
Kaiserslautern-Nurnberg 1
Bayern M.-Dortmund 1
Leverkusen-Bremen 1
H.S.V.-Mannheim 1
K.B.-Frem 1
Lyngby-A.G.F. 1
O.B.-Brondby 2
Sveinn:
C. Palace-Man. Utd 2
Celtic-Aberdeen 2
Frankfurt-Köln X
Stuttgart-Homburg 1
Uerdingen-M’Gladbach 1
Kaiserslautern-Núrnberg X
Bayern M.-Dortmund 1
Leverkusen-Bremen X
H.S.V.-Mannheim 1
K.B.-Frem 1
Lyngby-A.G.F. , 1
O.B.-Brondby 1
1X21X21X21X21X21X21X21X21X2
KA og Fram mætast á þriðju-
dagskvöldið í Meistarakeppni
KSI í knattspyrnu. Hér er um
að ræða árlega viðureign ís-
landsmeistara og bikarmeist-
ara fyrra árs og fer hann að öll-
Ormarr Örlygsson:
„Stefimm að sjálf-
sögðu að sigri“
,Þetta gæti orðið skemmti-
legur leikur. Eg hef lítið séð
til Framaranna, við spiluðum
að vísu einn æfingaleik gegn
þeim en þá vantaði mikið af
mannskap og sá leikur segii
því lítið. Frammistaða þeirra .
Reykjavíkurmótinu bendir þó
til þess að þeir séu mjög
sprækir þessa dagana. En við
ætlum okkur að standa í
þeim,“ sagði Ormarr Örlygs-
son sem lék í nokkur ár með
5000 m hlaup:
Nýtt Akur-
eyrarmet hjá
Jóni Stefáns
Jón Stefánsson, frjálsíþrótta-
maður úr UFA, setti nýlega
Akureyrarmet í 5000 m hlaupi
í Bandaríkjunum þar sem hann
dvelur við nám og æfingar. Jón
hljóp vegalengdina á 15:30.05
mínútum. Gamla metið var
15:32.5 mínútur en það var í
eigu Sigurðar P. Sigmundsson-
ar sem setti það í fyrra.
Þessi tími er nokkuð góður og
að sögn Sigurðar P. Sigmunds-
sonar er mjög sennilegt að Jón
eigi eftir að bæta sig verulega á
næstu vikum og færast um leið
nær landsliðssæti. „Hann verður
farinn að volgna þegar hann
hleypur á 15:10 - 15:20,“ sagði
Sigurður. Þess má geta að
íslandsmetið í greininni er
14:13.81 en það er frá árinu 1983
og er í eigu Jóns Diðrikssonar.
Jón hljóp fyrir nokkru 10000
metra innanhúss á tímanum
33:25.05 og er það persónulegt
met. Aðstæður voru ekki með
besta móti og sagði Sigurður að
sennilega yrði Jón undir 33
mínútum næst er hann hlypi
þessa vegalengd. „Jón hefur æft
vel í vetur og bætir sig í hverju
hlaupi. Hann verður í fínu formi
á Landsmótinu í júlí og þáð verð-
ur gaman að sjá hvernig honum
gengur þar,“ sagði Sigurður.
Frömurum áöur en hann skipti
aftur yfir í KA á síðasta sumri.
Aðspurður um KA-liðið sagði
Ormarr það hafa leikið misjafn-
lega í æfingaleikjunum í vor.
„Við höfum átt til að detta niöur
Og orðið þreyttir og áhugalausir.
Þess á milli höfum við náð ágæt-
um köflum og spilað vel og við
þurfum að einbeita okkur að því
að halda því áfram. Við ætlum
okkur að vera í toppbaráttunni
og stefnum að sjálfsögöu að sigri
í þessum fyrsta alvöruleik. Eg
spái því að það takist og við vinn-
um 2:1,“ sagði Ormarr Örlygs-
son.
um líkindum fram á gervigras-
vellinum í Laugardal.
Leikur þessi vekur ætíð nokkra
athygli þar sem segja má að um
sé að ræða fyrsta alvöruleik
sumarsins. Framarar hafa sigrað
oftast allra félaga í keppninni, 6
sinnum alls, en hún var háð í
fyrsta sinn árið 1969. Ekki þarf
að efast um styrkleika liðsins,
það hefur verið stórveldi í
íslenskri knattspyrnu síðustu ár
og með því leika margir af bestu
knattspyrnumönnum landsins.
KA-menn hafa aldrei tekið
þátt í keppninni áður en ÍBA lék
í henni árið 1970. Liðið var geysi-
lega sterkt á síðasta tímabili og
þótt það hafi misst sterka leik-
menn hafa aðrir komið í staðinn
sem eiga áreiðanlega eftir að gera
góða hluti í sumar. Verður fróð-
legt að sjá hvað kemur út úr
undirbúningi liðsins fyrir titil-
vörnina.
Dagur hafði samband við Pét-
ur Ormslev, fyrirliða Fram, og
Ormarr Örlygsson, fyrrum
leikmann með Fram og nú með
KA, og kannaði hvernig leikur-
inn legðist í þá.
Pétur Ormslev:
„Alltaf erfitt að
eiga við KA-menn
„Þetta leggst alveg prýðilega í
mig. Leikir þessara liöa hafa
oft verið skemnitilegir og líka
leikirnir í Meistarakeppninni
og ég hef ekki trú á öðru en að
þessi verði það einnig,“ sagði
Pétur Ormslev, fyrirliði Fram.
Framarar hafa átt góðu gengi
að fagna í Reykjavíkurmótinu
eins og mönnum er kunnugt. Pét-
ur sagði þó erfitt að segja til um
hversu sterkt liðið væri þrátt fyrir
að það væri greinilega mun sterk-
ara en á sama tíma í fyrra.
„KA-liðið hefur misst sterka
menn en fengið aðra í staðinn
þannig að ég býst ekki við að
styrkleiki þess hafi breyst veru-
lega frá í fyrra. Það er alltaf erfitt
að eiga við þá, þeir berjast ævin-
lega til síðasta blóðdropa og spila
mjög skynsamlega. Þeir eru farn-
ir að þekkja hvern annan vel og
það er erfitt að brjóta þá niður.
Eg held ég spái engu um úrslitin
en ég hef trú á að bæði lið muni
leika stíft til sigurs og leikurinn
verði skemmtilegur," sagði Pétur
Ormslev.
Laugardagur kl.13: 25
19. LE m VIKA 12. m aí 1990 T m m
Lelkur 1 C. Palace - Man. Utd ‘tí,k,nirel^
Leikur 2 Celtlc - Aberdeen(Blkarúrslrt)
Lelkur 3 Frankfurt - Köln (pyskal')
Leikur 4 Stuttgart - Homburg (byskal J
Leikur 5 Uerdingen - M’Gladback(pyskal)
Leikur 6 Kalserslaut. - Núrnberq(bysl<al)
Leikur 7 Bavern M. - Dortmund ^skal >
Leikur 8 Leverkusen - Bremen (pyskal )
Leikur 9 H.S.V. - Mannhelm (Þyskal )
Leikur 10 K.B. - Frem (Danmork)
Lelkur11 Lyngby - A.G.F.(Uanmork)
Lelkur 12 O.B. - Br0ndbv(Danmork)
Allar upplýsingar um getraunir vikunnar hjá: LUKKULÍNUNNI s. 991002
* ( /ofaldu ir pottur! it *«