Dagur - 12.05.1990, Blaðsíða 13
tómstundir
Laugardagur 12. maí 1990 - DAGUR - 13
i
Áhugasvið nianna eru af ýms-
um toga. í þjóðfélagi okkar,
hvar flestir vinna mvrkranna á
milli, gefst lítill tími til tóm-
stunda. Vinnuálag þjóðarinnar
er mikið enda kröfur til lífs-
þæginda miklar. Hver fjöl-
skylda gerir kröfur til þess að á
heimilinu sé sjónvarp og
myndbandstæki og það er
raunar mjög eðlilegt á öld
myndvæðingar og fjölmiðlun-
ar. Áhrifa sjónvarps gætir í æ
ríkara mæli, en margur hefur
þó áhyggjur af sjónvarpsglápi
barna sinna.
Þegar við sem erum á rniðjum
aldri nú, vorum á unga aldri, var
eitt af áhugamálum okkar að fara
í kvikmyndahús. Drjúgum tíma
var varið í bíóferðir á skólaárun-
urn og margur gerir það enn.
Kvikmyndaklúbbar voru stofnað-
ir og menningarvitar skólaáranna
,Þetta er mitt tómstundagaman,
Þetta er mitt áhugamál:
Kvikmyndir og kvikmyndun eru
heillandi listgreinar
voru vel fróðir um kvikmyndun
og kvikmyndalist.
Með nýrri tækni, myndbands-
tækninni, sem er ekki svo ýkja
gömul, getum við horft á sígild
listaverk kvikmyndanna heima í
stofu í sjónvarpinu okkar
Kvikmyndasagan er ekki svo
löng og því er mjög áhugavert
tómstundagaman að safna sígild-
um og góðum verkum kvikmynd-
anna og þróa þannig og magna
áhuga sinn á hinu fagurfræðilega
og jákvæða í kvikmyndalistinni.
Einn safnar bókunt, annar safnar
málverkum og sá þriðji kvik-
myndum og myndböndum allt til
að gleðja augað og hugann.
Fáir eru þeir sem safna mynd-
böndum og kvikmyndum hér á
landi, en þó cru þeir til. Úti í hin-
urn stóra heimi þá er þessi söfnun
mjög algeng.
Viðntælandi minn, Edward
Kiernan læknir á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri, er einn
þeirra manna sem hefur söfnun
Sóknarprestur Húsavíkurpresta-
kalls sr. Sighvatur Karlsson og
Kirkjukór Húsavíkurkirkju
munu sækja Akureyrarkirkju
heim n.k. sunnudag, 13. maí.
Munu þau sjá um messuhald í
Akureyrkirkju kl. 14.
Organisti Húsavíkurkirkju
David Thompson mun leika á
myndabanda að tómstunda-
gamni.
„í gamla daga, þegar ég var
smá naggur í Hlíðunum í
Reykjavík, voru kvikmyndahetj-
urnar mínar í fyrstu eins og allra
barna, Tarsan, Gö og Gokke,
Chaplín, Roy Rogers og hestur-
inn hans Trigger og margar fleiri.
Við söfnuðum prógrömmum eins
og það var kallað og sökktum
okkur í heim kvikmyndanna. Við
keyptum kvikmyndablöð og síð-
ar þeg'ar árin færðust yfir okkur
blöð með kvikmyndadómum
merkra erlendra fræðimanna í
listgreininni. Á menntaskóla-
árunum þá var ég í kvikmynda-
klúbbi og drakk í mig sígild verk
kvikmyndasögunnar. Kvikmynda-
húsin voru vettvangur tómstunda
minna, sem og margra, enda hef-
ur mín kynslóð skilað nokkrum
fjölda kvikmyndagerðarmanna,
sem nú síðustu árin hafa hafið
íslenska kvikmyndagerðarlist til
nokkurar virðingar.
orgelið og eiginkona hans, Shar-
on Thompson sem er kórstjóri,
mun syngja stólvers.
Sálmarnir sem sungnir verða
eru nr. 478, 223, 30, 476, 42 og
56. Kirkjukórinn syngur Ave
Verum eftir Mozart í guðsþjón-
UStunnÍ. (Fréttatilkynning.)
Mitt hlutskipti varö læknis-
fræðin þrátt fyrir að hugur minn
stæði til mennta í kvikmyndalist.
Systur mínar og bræður eru
myndlistarmenn, annaðhvort í
frjálsri myndlist eða húsagerðar-
list. Minni fullnægju til mynd-
rænu fullnægi ég við að horfa á
kvikmyndir og myndbönd góðra
og listfengra verka. Söfnunar-
áráttan er mikil og þær fáu tóm-
stundir sem ég á sem læknir ver
ég til þessa áhugamáls.
Lengi vel var þvælingur á mér
og fjölskyldunni. Ég var í námi í
Reykjavík, síðan að lænisstörf-
um úti á landsbyggðinni, í Sví-
þjóð í sérnámi og að störfum, en
alltaf reyndi ég að komast yfir
kvikmyndir og myndbönd sí-
gildra og góðra kvikmyndalcik-
stjóra og geri enn.
Núna, þegar við erum komin
heim aftur og búin að koma okk-
ur fyrir, hef ég getað skipulagt
safnið þannig að þetta er allt
mjög aðgengilegt og ég get t'und-
ið hverja mynd fljótt og vel eftir
skrá. Drjúgur tími tómstunda
minna hefur farið í að koma
þessu öllu fyrir og nú er því lokið
og þá er að nýta tímann og njóta
þessara verka bæði nýrra og eins
gamalla kunningja æskuáranna.
Margt rifjast upp frá gamalli tíð
þegar ég horfi á þessa gömlu
kunningja. Ég ber saman gamla
og nýja strauma í kvikmyndalist-
inni. Kvikmyndir segja mikla
sögu. Ekki aðeins sögu hverrar
myndar, heldur svo margt annað.
Tískan kemur þar inn í og tíðar-
andinn og aðferðir við kvik-
myndatöku. Þróunin er svo ör og
breytingar tímans miklar og
stöðugt eru að koma á markað-
inn ný verk sem áhugavert er að
sjá og eignast.
Margur myndi ætla að til tóm-
stundagamans sem þessa þyrfti
sérvitring. Líklega er ég ntjög
sérvitur, en hvaö um það. Þetta
er mitt áhugamál og mínar tóm-
stundir og ég nýt þeirra. Kvik-
myndir og kvikmyndun eru heill-
andi listgreinar," sagði Edward
aö lokum. ój
^rurj
ARABIA
Hreinlætistæki
DRAUPNISGÖTU 2 AKUREYRI
SÍMI (96)22360
Akureyrarkirkja:
Húsvíkmgar
með messuhald
Nýtt á
söluskrá
LANGAHLÍÐ: 3ja herb. raðhúsaíbúð
á einni hæð. Góð eign.
HJALLALUNDUR: 3ja herb. ibúð i
fjölbýlishúsi. Laus eftir samkomu-
lagi.
LANGAMÝRI: Góð efri hæð í tvibýl-
ishúsi. Laus eftir samkomulagi.
SKARÐSHLÍÐ: 4ra herb. endaíbúð á
3. hæð í svalablokk. Laus eftir sam-
komulagi.
GRUNDARGERÐI: 5 herb. raðhúsa-
íbúð á tveimur hæðum. Góð eign.
HOLTAGATA: Gott einbýlishús á
tveimur hæðum. Allt endurnýjað.
Mjög falleg eign.
ODDEYRARGATA: Eldra einbýlis-
hús, kjallari, hæð og ris. Rúmgott.
AÐALSTRÆTI: 3ja herb. ibúð á mið-
hæð í þríbýlishúsi ásamt bílskúr.
TIL LEIGU: Hverfisverslun á góðum
stað. Nánari uppl. á skrifstofunni.
Vantara
söluskra:
4ra herb. ibúð í einlyftu raðhúsi í
Lundahverfi. Skipti á fallegri 4ra
herb. rúmgóðri íbúð, á góðum stað
i Reykjavik, koma til greina. Nánari
uppl. á skrifstofu.
Opið alla daga frá kl. 9-19.
Laugardaga frá kl. 14-16.
Fasteigna-Torgið
Glerárgötu 28, Akureyri
Sími: 96-21967
F.F. Félag
Fasteignasala
Sölumaður: Björn Kristjánsson.
Heimasími 21776.
Ásmundur S. Jóhannsson, hdl.
Hestamenn:
Verið vel á verði, þar sem öku-
tæki eru á ferð. Haldið ykkur
utan fjölfarinna akstursleiða.
Stuðliö þannig að auknu umferð-
aröryggi.
Ökumenn:
Forðist allan óþarfa hávaða, þar
sem hestamenn eru á ferð. Akið
aldrei svo nærri hesti að hætta
sé á að hann fælist og láti ekki
að stjórn knapans.