Dagur - 23.05.1990, Blaðsíða 2

Dagur - 23.05.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Miðvikudagur 23. maí 1990 fréttir Norðurland vestra: F Útboð opnuð í vegaframkvæmdir Nýlega voru opnuð útboð hjá Vegagerð ríkisins í nokkra vegakafla á Norðurlandi vestra. Vegakaflarnir sem boðnir voru út voru; kafli á Svínvetningabraut, tveir kaflar á Vatnsnesi og kafli við Laxá á Skaga. Lægstu tilboð voru sem hér segir. Svínvetningabraut; kostnaðar- áætlun 5.919.000. Lægsta tilboð, Jónas Skaftason og Æki hf. Blönduósi, 3.740.000 eða 62,6% af kostnaðaráætlun. Vatnsnessvegur; kostnaðar- áætlun 8.260.000. Lægsta tilboð, Valgeir Ágústsson og Pétur Daníelsson Hvammstanga, 5.371.000 eða 65% af kostnaðar- áætlun. Skagavegur um Laxá; kostnað- aráætlun 1.368.000. Lægsta tilboð, Þorvaldur Evensson 1.332.000 eða 97% af kostnaðar- áætlun Tilboðin verða yfirfarin af Vegagerðinni og tækjakostur útboðsaðila kannaður. Ákvörð- un um að hvaða tilboðum verður gengið verður tekin fljótlega. kg Glerárprestakall: „Hér er unnið við að koma krossi fyrir í kirkjuturninum og í júni eru kirkjuklukkurnar væntanlegar, en þær verða vígðar sunnudaginn 1. júlí,“ sagði sr. Pétur Þórarinsson, sóknarprestur. Þórshamar hf. færði VMA gjöf Bifeiðaverkstæðið Þórshamar hf. færði Verkmenntaskólanum á Akureyri að gjöf á dögunum sjálfskiptingu úr fólksbifreið til kennslu bifvélavirkja á Tækni- braut skólans. Um er að ræða sjálfskiptingu úr Daihatsu aplause. Að sögn forsvarsmanna VMA eru tæki til verklegrar kennslui mjög dýr og því er það ómetan- legt þegar fyrirtæki sýna hug sinn til skólans með gjöfum sem þess- ari. Gjöfinni veitti móttöku Svav- ar G. Gunnarsson, kennari, (til hægri) úr hendi Ellerts Guðjóns- sonar framkvæmdastjóra Pórs- hamars hf. Mynd: kl í skák i Hraðskákmót TK: Kári með fiillt hús Akureyringar fóru í árangurs- ríka heimsókn til Kópavogs 13. maí síðastliðinn. Þá var Hrað- skákmót Taflfélags Kópavogs haldið og gerðu félagarnir í Skákfélagi Akureyrar, Kári Elíson og Askell Örn Kárason, sér lítið fyrir og tóku tvö efstu sætin. Kári sigraði á þessu hraðskák- móti og hlaut 12 vinninga af 12 mögulegum, eða fullt hús. Áskell Örn varð í öðru sæti með 11 vinn- inga, tapaði aðeins fyrir Kára. í þriðja sæti varð Haraldur Baldursson, Taflfélagi Kópa- vogs, með 10 vinninga og félagi hans, Jörundur Pórðarson, varð fjórði með 8 vinninga. Þátttak- endur voru alls þrettán í þessu móti. SS Skákfélag Akureyrar: Uppskeruhátíð Uppskeruhátíð Skákfélags mótum. Akureyrar verður haldin á Verðlaun verða veitt og eflaust uppstigningardag, fimmtudag- verður glatt á hjalla í skákheimil- inn 24. maí, kl. 16.00. Hér er inu. Stjórn Skákfélags Akureyrar um að ræða uppskeruhátíð fyr- vonast til að sem flestir mæti og ir öll skákmót frá síðustu ára- þiggi veitingar. SS Aðalfundur verður haldinn fimmtudaginn 31. maí n.k. kl. 20.30 að Strandgötu 31, Akur- eyri. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Breytingar á samþykktum. Önnur mál. Stjórn Dagsprents hf. Að sögn prestsins í Glerár- prestakalli sr. Péturs Þórarins- sonar, vinna sjálfboðaliðar mikið við kirkjubygginguna. Ungir sem aldnir hafa málað fyrstu hæð byggingarinnar og aðstaða til fé- lagsstarfsemi verður tekin í notkun um næstu mánaðamót. Æskulýðsstarfsemin fær þar inni, en hún er mjög blómleg í Glerárprestakalli. Kirkjukórinn fær bætta aðstöðu, svo og Kven- félagið Baldursbrá, en það vinn- ur mikið fyrir kirkjuna. Á fyrstu hæð verður skrifstofa fræðslufull- trúa þjóðkirkjunnar, en henni gegna þrír prestar í hlutastarfi. Vinna við kirkjuskipið er hafin, en búið er að leggja í gólfið og fínpússa það. „Já, hér er unnið af kappi og sóknarbörnin eru mjög virk,“ sagði Pétur Þórarinsson, sóknar- prestur, að lokum. oj Akureyrarvöllur: Sett upp skýli, tölvu- klukka og girðing Á næstunni verður ráðist töluverðar framkvæmdir við íþróttavöllinn á Akureyri. Sett verður upp skýli frá vallarhúsi og út í leikvanginn, sett upp tölvustýrð klukka við völlinn og girt meðfram vellinum norður af neðra horni vallar- húss. Að sögn Sigbjörns Gunnars- sonar, formanns íþróttaráðs Akureyrarbæjar, hefur lengi staðið til að girða meðfram vell- inum og koma upp skýli frá vall- arhúsi út á völl. Hann segir að út af fyrir sig séu þessar framkvæmdir ekki nauðsynlegar fyrir heima- leik KA í Evrópukeppni meist- araliða í haust og Akureyrarvöll- ur hafi fengið góða einkunn eftir- litsmanns eftir landsleik íslend- inga og Finna á sl. hausti. „Að setja upp þetta skýli teng- ist vitaskuld Evrópuleiknum í haust, en hins vegar er þetta nokkuð sem búið er að trassa til fjölda ára. Á árunum í kringum 1970, þegar ég var sjálfur í bolt- anum, þá voru miklu fleiri áhorf- endur á leikjum en nú og þetta var oft stórkostlegt vandamál. Þess voru dæmi að leikmenn voru grýttir og jafnvel hrækt á þá,“ sagði Sigbjörn. óþh Samvinnulög: Neftid í málið Jón Sigurðsson, viðskiptaráð- herra, hefur skipað nefnd til að endurskoða lög um samvinnu- félög nr. 46/1937 og til að semja frumvarp til nýrra laga um það efni. í nefndinni eiga sæti Björn Friðfinnsson, ráðuneytisstjóri, formaður, Erlendur Einarsson, fyrrv. forstjóri, Hörður Zóphaníasson, skólastjóri, Ólaf- ur Sverrisson, stjórnarformaður SÍS, og Stefán Már Stefánsson, prófessor. óþh Akureyri: Myndhópurinn sýnir í Gamla Lundi Hin árlega sýning Myndhópsins verður opnuð á morgun, upp- stigningardag, klukkan 14.00 í Gamla Lundi á Akureyri. Sýn- ingin er opin í fjóra daga, henni lýkur sunnudaginn 27. maí. Sýn- ingardagana er opið milli kl. 14.00 og 20.00. Sýnd verða um fimmtíu myndverk að þessu sinni, allir sem áhuga hafa eru hjartanlega velkomnir á sýningu Myndhópsins. EHB Húsavík: Bæjarmála- ■ Bæjarráð hefur samþykkt launakjör í Vinnuskóla í sumar. Þau verða: 15 ára ungl- ingar 172 krónur, 14 ára ungl- ingar 149 krónur og 13 ára unglingar 133 krónur. Þá ákvað bæjarráð að þátt- tökugjald í Skólagörðum í sumar verði 2000 krónur pr. barn og aldursmörk verði 8-12 ára (börn fædd 1978-1982). Launakjör flokksstjóra og forstöðumanns Vinnuskólá verða óbreytt frá 1989, þ.e. óbreyttur launataxti (A-VH). ■ Tilboði Fjalars hf. í innrétt- ingar í veitingasal íþróttahall- arinnar hefur verið tekið. Til- boðið hljóðaði upp á 2.649.947 kr., en kostnaðar- áætlun Tækniþjónustunnar var 3.026.295 kr. Þrír aðrir gerðu tilboð í verkið, Borg hf., Daði Halldórsson og Jón- as og Eggert Húsavík. ■ Bæjarráð hefur samþykkt flutning á aflakvóta frá Siglu- nesi ÞH-60 til Ránar BA-57, sem Óskar Karlsson er að kaupa til Húsavíkur. Um er að ræða 9226 kg. af þorski, 600 kg. af ýsu og 300 kg. af grá- lúðu. ■ Bæjarráð héfur samþykkt erindi Stjórnar verkamanna- bústaða á Húsavík um bæjar- ábyrgð á bráðabirgðaláni sem hún hyggst taka hjá Bygg- ingarsjóði verkamanna, vegna innlausnar á tveimur íbúðum í félagslega kerfinu. Fjárhæð láns er 1,4 milljón króna. íbúðirnar eru að Garðarsbraut 83 og Grundargerði 5. ■ Hafnarstjórn hefur sam- þykkt erindi Húsvískra mat- væla hf. um afnot af lóð norð- an við Flókahúsið til að geyma aðföng á og nýta sem bílastæði fyrir starfsmenn Húsvískra matvæla hf. ■ Bygginganefnd hefur sam- þykkt að veita Búseta leyfi til að byggja fjögurra íbúða rað- hús á lóð nr. 51-57 við Stórhól. ■ Stjóm Framkvæmdalána- sjóðs samþykkti erindi Svart- hamars hf. um að Fram- kvæmdalánasjóður taki lán að fjárhæð 3 milljónir króna og endurláni fyrirtækinu gegn fullnægjandi tryggingum. Samþykki stjórnar Fram- kvæmdaiánasjóðs er háð því að fullnægjandi tryggingar fyr- ir láninu verði lagðar fram. ■ Sóknarnefnd Húsavíkur- kirkju hefur óskað eftir að heimilað vcrði að kirkjugarðs- gjöld megi vera 3% af útsvör- um og aðstöðugjöldum á Húsavík á árinu 1990. Bæjar- ráð hefur fallist á þetta erindi. ■ Kvenréttindafélag íslands hefur í erindi til bæjarráðs mælst til þess að í tilefni 75 ára afmælis félagsins 19. júní nk. verði ræðumenn 17. júní ár konur. Bæjarráð samþykkti að athuga málið við væntanlegan framkvæmdaaðila hátíðahald- anna 17. júní nk.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.