Dagur - 23.05.1990, Side 16

Dagur - 23.05.1990, Side 16
Skógræktarfélag Eyfirðinga ★ Gróðrarstöðin í Kjama Opið virka daga kl. 9-18. Laugardaga kl. 10-17. Leitið upplýsinga simum 24047 og 24599. ★ Póstsendum um allt land. Þetta hús númer 84 við Hafnarstræti á Akureyri heyrir sögunni til. Það var rifíð í gær eftir áratuga dygga þjónustu. Húsið hefur staðið autt síðustu misseri. Á sínum tíma kom til tals að friða það og gera upp, en samkvæmt úttekt fróðra manna var talið að það væri of kostnaðarsamt. Ljósmyndari Dags var á vettvangi í gær þegar húsið var rifíð og festi atburðarrásina á fílmu. Myndir: kl Fyrirhugaðar miklar breytingar á lóð Sundlaugar Akureyrar: Steftit að vatnaparadís - segir formaður íþróttaráðs Ég held að megi segja að þarna sé stefnt að því að skapa einskonar vatnsparadís,“ sagði Sigbjörn Gunnarsson, for- maður íþróttaráðs Akureyrar- bæjar, þegar hann var inntur eftir fyrirhuguðum fram- kvæmdum við Sundlaug Akur- eyrar. Frá og með deginum í dag gefst fólki kostur á að kynna sér þrjár tillögur að framkvæmdum við laugina í húsakynnum Sundlaugar Akureyrar, en þær hefur Hall- dór Jóhannsson, landslagsarki- tekt, unnið í samráði við íþróttaráð og fleiri aðila. Að sögn Sigbjörns er stefnt að því að taka ákvörðun innan skamms um framkvæmdir á lóð Heldur dræm veiði í Mývatni: Kjamorkuvetur í lífríki Mývatns - segir Árni Halldórsson, bóndi í Garði sundlaugarinnar, en hann segir að með þeim sé horft til næstu áratuga með aðstöðu til sund- iðkunar á Akureyri. Hann sagði að gera mætti ráð fyrir að kostn- aður við fyrirhugaðar fram- kvæmdir yrði að minnsta kosti um 300 milljónir króna. Því yrði að dreifa framkvæmdum á 6-10 ár. „Við erum að tala um að endurskipuleggja alla lóð Sund- laugarinnar. Menn sjá þarna fyrir sér miklar breytingar, bæði hvað varðar hús og-sundaðstöðuna. í fyrirliggjandi hugmyndum er sem dæmi gert ráð fyrir sérstakri busl- laug, barnalaug, dýfingarlaug, rennibraut, pottum og veitinga- aðstöðu. í mínurh huga er hér um að ræða mjög spennandi verk- efni,“ sagði Sigbjörn. Hann sagði að strax árið 1986 hafi verið mörkuð sú stefna í íþróttaráði að hefja framvæmdir við Sundlaugina um og eftir 1990. „í mínum huga á að gera þetta mjög myndarlega. Sundlaugin er mikið sótt af almenningi hér á Akureyri og hún hefur aðdráttar- afl á ferðafólk,“ sagði Sigbjörn. óþh „Lífríkishrun hefur verið í Mývatni ár eftir ár og ekki sér fram úr því ennþá,“ segir Arni Halldórsson, bóndi í Garði í Mývatnsssveit. Mývatn var sá vitaðsgjafi sem aldrei brást og var alltaf fullt af silungi. Vatn- ið var lang besta veiðivatn landsins og rómað langt út fyr- ir landssteinana. Sumarið 1969 er síðasta almennilega veiði- sumarið. Eitt ár hefur náð meðaltali, en það var 1986. Flest hin hafa verið langt undir meðallagi. Aðspurður um veiðihorfur í sum- ar sagði Árni: „Mér sýnist á fugl- inum í vor, að sama sé upp á ten- ingnum. Hann var ekki á vatn- inu, heldur sat uppi á uppistöðu- lónum, við Grænalæk og uppi á Mýri, sem bendir til þess að ekki sé uppsveifla í vatninu. í Mývatni eru fjörutíu tegundir mýs. Ein- hver fluga verður í sumar, en þetta verður ekki sem var. Ég er ekki bjartsýnn. Hversvegna þessi dauði fer saman við aldur Kísiliðjunnar finnst mér alltaf dálítið undar- legt. Breytingin á vatninu er svo mikil, að til dæmis er vatnið hætt að vera tærblátt á grunnunum milli Kálfastrandar og Garðs. Hér áður fyrr þekkti maður botn- inn jafnvel betur en landið. Nú þarf að pota sig niður með stöng til að finna grunnföllin. Ef vatnið nær að verða grænt, þá er þetta eins og smit, það getur aldrei hreinsað sig. Slýþörungar eru farnir að koma í netin. Pabbi heitinn hafði aldrei séð þetta. Þetta er ekki árvisst, en komi slý- ár þá er öruggt að ördeyða er í vatninu árið eftir. Vatnið er grænt og sólarljósið nær ekki nið- ur til botns. Ég kalla þetta að kjarnorkuvetur sé genginn í garð í lífríkinu. Sjóndýpi hefur verið innan við metra og það þýðir að almyrkvi er við botn á stórum hluta vatnsins. Það er alveg hætt að hreinsa sig og mönnum ber saman um þetta. í fyrravetur var botninn hér á flóanum svartur, en áður hafði ég aldrei séð hann öðruvísi en slý- grænan. Þetta er vegna þörunga- gróðurs.“ Árni sagðist setja þetta í sam- band við dælinguna hjá Kísiliðj- unni. Mývatn væri gamalt vatn og auðugt af fosfór. Fosfór myndaði auðgi í vötnum og gengi í sam- band við kísilskeljarnar og þær féllu til botns. Síðan væri farið að gramsa í setinu, sem er nánast eintómur kísilbyngur, áburðar- haugur. „Þessu er dælt upp í verksmiðjuna, sumt fer aftur í vatnið. Við þetta kemur aukin áburðargjöf á vatnið. Þörunga- gróðurinn eykst. Við það mynd- ast laust set á botninum og vind- urinn hrærir í því einnig. Þessi áburðargjöf er eyðileggjandi. Bændum á bökkum Mývatns er nánast barinað að bera tilbúinn áburð á tún sín. Nú, þegar vitað er hvert skolið í Kísilverksmiðj- unni er, þá jafngildir það í fosfór eins og við bærum þrjá poka af tilbúnum áburði á hvern hektara. Þetta er athyglisvert og menn ættu að hugleiða þessa hluti. Hér áður fyrr var alltaf nóg að éta fyrir fugl og fisk. Allt í kring- um vatnið var löðrandi í mýgrasi, því mýið flaug svo mikið upp, en nú er þetta allt horfið. Lífríkis- hrun blasir við, keðjan er brostin.“ ój Hótel Húsavík: Tölvuvætt hótelið tilbúið í slagiim Útlitið er bjart hjá Hótel Húsavík í sumar og segir Þór- dís Hrönn Pálsdóttir, hótel- stjóri, að mikið sé um bókanir fyrir næstu mánuðina. Sumar- vertíðin í ferðaþjónustunni er halin og búist er við að fjöldi Verkmenntaskólinn á Akureyri: Þýskan varð þjófimum dýr - tveir nemendur reknir úr skóla fyrir innbrot Klukkan 03.30 aðfaranótt þriðjudags fékk lögreglan á Akureyri tilkynningu um inn- brot í Verkmenntaskólanum á Eyrarlandsholti. Þegar lög- reglan kom á staðinn voru tveir ungir menn komnir í bíl og í þann veginn að leggja á flótta þegar lögreglan hand- samaði þá. Samkvæmt upplýsingum frá rannsóknarlögreglunni fundust verkfæri og prófverkefni í fórum mannanna og höfðu þeir tekið þetta ófrjálsri hendi úr Verk- menntaskólanum. Engar skemmdir'voru unnar á skólahús- inu eða innanstokksmunum. Samkvæmt heimildum blaðsins voru hér tveir nemendur í VMA á ferð. Þeir munu hafa átt upp- tökupróf í þýsku í vændum og haft áhuga á að komast yfir verk- efni sem átti að leggja fyrir þá á prófinu. Starfsmaður skólans mun hafa komið þeim að óvörum og tilkynnt lögreglunni um ferðir tveggja hettuklæddra manna í skólanum. „Þeim hefur verið vikið úr skóla og málið er leyst,“ sagði Bernharð Haraldsson, skóla- meistari VMA, þegar Dagur innti hann álits á þessum atburði. Hann vildi ekkert frekar um mál- ið segja, það væri úr sögunni frá bæjardyrum skólans séð. SS erlendra sem innlendra ferða- manna staldri við á Húsavík í sumar. Að sögn Þórdísar gekk rekstur hótelsins nokkuð vel í vetur þrátt fyrir erfið skilyrði að mörgu leyti. „Veðrið setti náttúrlega strik í reikninginn og var mikið um afpantanir vegna samgönguörðug- leika. Þetta gekk samt ágætlega og það var t.d. töluvert um ráð- stefnur á hótelinu," sagði Þórdís. Til stóð að hótelið auglýsti sér- stakar skíðaferðir til Húsavíkur sl. vetur en ekkert varð úr því vegna þess að snjótroðarinn kom seinna en áætlað hafði verið. Þegar troðarinn var síðan kom- inn var hótelið fullbókað næstu vikur fyrir ráðstefnuhald og annað. Að sögn Þórdísar eru engar sérstakar nýjungar á döfinni hjá Hótel Húsavík. Unnið hefur ver- ið við viðhald og þá er búið að tölvuvæða hótelið þannig að það er betur í stakk búið til að sinna ferðamannastraumi sumarsins. SS Akureyri: Bylgja búðar- þjófnaða Mikið hefur verið um það rætt að búðarhnupl hafi færst í vöxt í Reykjavík, ekki síst í Kringlunni. Nú virðist sem þessi bylgja hafi borist til Akureyrar því þjófnaðir í verslunum eru óvenju tíðir um þessar mundir. Þær upplýsingar fengust hjá rannsóknarlögreglunni á Akur- eyri að búðarþjófnaðir væru nú mjög áberandi í málabunkanum á borði lögreglunnar. Svo virtist sem einhver alda búðarþjófn- aða hafi skoilið yfir Akureyri. Rannsóknarlögreglan vill hvetja foreldra til að vera sér- staklega vel á verði því það eru aðallega börn og unglingar sem verða uppvís að búðarhnupli, en lítið ber á þessari iðju meðal þeirra sem eldri eru. SS Þjótoaður í heimavist MA Rannsóknarlögrcglan á Akureyri hcfur lagt fram gæsluvarðhaldskröfu á mann sem fór inn í heimavist Menntaskólans á Akureyri og stal þar peningum, úri og öðr- um verðmætum. Að sögn rannsóknarlögregl- unnar átti atburðurinn sér stað aðfaranótt sunnudags. Maður- inn fór um heimavistina í leit að verðmætum, stal peningum og úri og krækti sér einnig í eitt- hvað af matvælum. í ljósi rannsóknar málsins hefur þess verið krafist að mað- urinn verði úrskurðaÓur í gæsluvarðhald. SS

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.