Dagur - 29.05.1990, Blaðsíða 1
73. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 29. maí 1990
100. tölublað
LACOSTE
Peysur • Bolir
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri ■ Sími 23599
j
Stjórn verkamannabústaða:
Samið um byggingu 52 íbúða
Metþátttaka var í Landsbankahlaupinu á Akureyri. Sjá nánar á íþróttasíðum blaðsins.
Mynd: KL
Stjórn verkamannabústaða á
Akureyri hefur samið við fimm
verktaka um byggingu fimmtíu
og tveggja íbúða. Heiidar-
kostnaður við byggingarnar
nemur rúmum 314 milljónum
króna á verðlagi í maí.
Gengið var frá samningum á
föstudagskvöld, á grundvelli
útboðs sem nýlega fór fram.
Erlingur Aðalsteinsson, tækni-
fræðingur hjá verkamannabú-
stöðum, segir að samiö hafi verið
við S.S. Byggi um byggingu nítján
íbúða við Tröllagil 14, við Fjöln-
ismenn um tuttugu íbúðir við
Vestursíðu 32-38, við Harald og
Guðlaug hf. um fimm raðhúsa-
íbúðir við Tröllagil 1-9, við Aðal-
geir Finnsson um sex íbúðir í
Melasíðu 1, en áður hafði verið
samið við Aðalgcir um níu íbúðir
í sama húsi, og við Fjölni hf. um
byggingu tveggja íbúða í Múla-
síðu 9, en áður hafði verið santið
við fyrirtækið um þrjár íbúðir í
K. Jónsson & Co. hf.:
Hugmyndir um nýjar framleiðslu-
vörur og Qölgun starfsfólks
K. Jónsson & Co. hf. hcfur
sótt um einfalda ábyrgö frá
Bæjarsjóði Akureyrar á allt aö
100 milljóna króna láni sem
fyrirtækið hyggst taka.
Atvinnumálanefnd hefur þeg-
ar tekið jákvætt í erindið en
óskar jafnframt eftir nánari
upplýsingum. Að sögn Bald-
vins Valdcmarssonar, aðstoð-
arframkvæmdastjóra KJ, eru
uppi hugmyndir um að fyrir-
tækið bæti við framleiðsluvör-
um og auki umsvif sín.
„Þetta er einungis hugmynd.
Við þyrftum að geta boðið upp á
fjölbreyttara vöruúrval til að
styrkja markaðsstöðuna, fjölga
störfum og auka atvinnuöryggi.
En þetta kostar allt peninga,“
sagði Baldvin.
Fyrirtækið er nýlega búið að
fjárfesta í frystibúnaði og leitar
nú eftir stuðningi bæjarins til að
Grímsey:
„Eggjavertíð“ stendur sem hæst
Sigmenn Grímseyinga eru í
björgum þessa dagana, því
alltaf þykja nýorpnu eggin
lostæti. Minna er sigið nú en á
árum áður og fuglinum fjölgar.
Að sögn Þorláks Sigurðssonar
í Grímsey þá er björgunum skipt
upp frá fyrri tíð. „Hér voru taldar
tíu jarðir, en nýting fugls og
eggja
áranna
en
hefur minnkað
ras
Nýting reka og bjargs fór sam-
an og áður fyrr nýttu eyjarskeggj-
ar sér þessi hlunnindi í ríkum mæli.
Fyrst á vorin eru fýlseggin tekin,
en fýllinn verpir fyrstur. Síðan
eru það álku- og langvíuegg sem
við tökum og þá ritueggin, en
þessar fjórar eggjategundir eru í
björgunum.
Varpið eykst alltaf ár frá ári,
því fuglinum fjölgar, enda ékki
óeðlilegt, hann er svo lítið
nýttur. Lítið er tekið af eggjum
og lítið er drepið af fugli. Atu-
eða fæðisleysi í náttúrunni svo og
drepsóttir gætu helst fækkað
honum. Hér eru miklir landvinn-
ingar á varpstöðvum,“ sagði Por-
lákur.
geta byggt viðbótarhúsnæði og
keypt vélar, en Baldvin sagði að
þessi mál væru enn á hugmynda-
stigi og aðeins væri verið að
kanna stöðuna með tilliti til þess
að hafa fjármagnskostnað í lág-
marki.
Að sögn Baldvins stendur K.
Jónsson vel, fyrirtækið er sterkt:
og fjárhagsstaðan góð. Framtíð-
arhugmyndir miða hins vegar að
því að auka atvinnuöryggi og
fjölga störfum í fyrirtækinu.
Aætlað er að ný stöðugildi gætu
orðið hátt í 40 ef ráðist verður í
frekari uppbyggingu og nýja
framleiðslulínu. Hann vildi ekki
upplýsa á þessu stigi urn hvaða
fratnleiðsluvörur er að ræða,
enda hafa engar ákvarðanir verið
teknar og málið hefur ekki verið
afgreitt í bæjarstjórn. SS
húsinu. Melasíða 1 er því öll
byggö á vegum verkamannabú-
staða.
Samkvæmt samningum eiga
S.S. Byggir. Haraldur og Guð-
laugur hf. og Fjölnismenn að
skila íbúðunum í ágúst á næsta
ári. Aðalgeir Finnsson og Fjölnir
eiga að skila íbúðum samkvæmt
verksamningi 15. desember á
þessu ári. EHB
Skagafjörður:
Minkur í
fjárhúsum
Minkur gerði sig heimakom-
inn í fjárhúsunum í Miðhús-
um í Blönduhlíð um daginn.
Það var luísfreyjan á bæn-
um, Sigríður Garðarsdóttir,
sem kom auga á hann að
kvöldi uppstigningardags.
Var minkurinn, sem var
læða, þá búin að ráðast á
lanib og auk þess gjóta sjö
hvolpum undir einum garð-
anum.
Sigríði brá heldur en ekki í
brún þegar luin kom til aö líta
eftir ánum og sá niink skjótast
um húsin. Einnig blasti viö
henni lamb sent oröið hafði
fyrir áreitni ntinksins, en sem
betur fer var þaö nær ómeitt.
Ekki leist heimilisfólki vel á
hinn óboðna gest og var nú
farið að gera ráðstafanir til að
gera útaf við hann. Það var
svo Garðar Páll Jónsson scm
skaut læðuna í greni sínu und-
ir garðanum um eittleytið á
aðfaranótt föstudags. Tókst
honum með einu haglaskoti að
granda allri fjölskyldunni
ncma livað að faöirinn var
ekki viðstaddur. Við athugun
fróðra manna reyndust hvolp-
arnir vera tvcggja daga gamlir.
Sjaldgæft er að minkar búi
svona um sig í fjárhúsum, en
þessari læðu hefur sjálfsagt
þótt það góður köStur þar sent
stutt er að fara til fæðuöflunar
á þessutn tíma árs. SBG
Skagfirðingur
Sauðárkróks í
SK-4
gær
kom
eftir
hafa gert góða sölu í Bremer-
haven á laugardaginn. Atlinn
var 151 tonn, mestmegnis
karfí en cinnig nokkuð af
grálúðu og ufsa. Meðalverð
fyrir kílóið var tæpar 97 krón-
ur sein er viðunandi.
Hegranes SK-2 er í slipp á
Akureyri og kemur væntanlega
til veiða fljótlega eítir helgina.
Skafti SK-3 er nú á veiðum fyrir
austan land en hann fór af grá-
lúðumiðunutn fyrir vestan
vegna lclegrar veiöi þar.
Frantnesið ÍS landar í dac
rúmum 100 tónnum a Sauðár-
króki vegna björgunarnám-
skeiðs sjómanna sem nú er
haldið á Sauðárkróki. „Við
ákváðum að kaupa afla til að
halda uppi vinnu í frystihúsun-
um. Sú ákvörðun var tekin strax
þegar við vissum hvenær ætti að
halda námskeiðið hcr,“ sagði
Gísli Svan útgerðarstjóri
útgerðarfélagsins Skagfirðings á
Sauðárkróki.
Þess niá geta að veiðar Skag-
firðings SK-4 gengu þaö vel fyr-
ir siglinguna að skipið fór í land
á Reyöarfirði og landaði þar 25
tonnum af ufsa áður en haldið
var til Bremerhaven. kg
íþróttahús KA í Lundahverfi:
Gengið til samninga er
teikningar liggja fyrir
Bæjarráð Akureyrar hefur far-
ið yfír drög að samningi milli
Akureyrarbæjar og Knatt-
spyrnufélags Akureyrar um
byggingu íþróttahúss í Lunda-
hverfi og samþykkt að gengið
verði til samninga við KA á
grundvelli samningsdraganna
þegar endanlegar teikningar
liggja fyrir. íþróttaráð hefur
einnig samþykkt drögin fyrir
sitt leyti.
Samkvæmt uppdrætti verður
íþróttahúsið byggt sunnan við
KA-heimilið og verður tengi-
byggingmilli húsartna. Skipulags-
nefnd hefur fallist á þessa stað-
setningu með fyrirvara um fjar-
lægð húss frá götu svo og fjölda
og fyrirkomulag bílastæða.
Sigmundur Þórisson, formaður
KA, sagðist gera ráð fyrir að
samþykktar teikningar ntyndu
liggja fyrir hjá bygginganefnd um
mitt sumarið og þá yrði skrifað
undir samninga við Akureyrar-
bæ. KA-menn vonast því til að
hægt verði að hefja framkvæmdir
fyrir haustið.
Áætlaður kostnaður við nýja
íþróttahúsið er áætlaður 120
milljónir króna, að sögn Sig-
mundar, enda er hér um stórt
mannvirki að ræða. Húsið verður
líklega 30x57 metrar að flatar-
máli og innanhúss verður stór sal-
ur fyrir handknattleik og knatt-
spyrnu, einnig júdósalur, þrek-
salur, áhaldaherbergi og fleiri
vistarverur.
Komið hefur til tals að leggja
gervigras á gólf hússins til að
bæta aðstöðu knattspyrnumanna,
en vallarskilyrði hafa verið léleg
á Akureyri á vorin og hafa þessar
aðstæður háð knattspyrnumönn-
um við æfingar.
„Það eru ekki áætlaðir neinir
peningar handa okkur í ár og við
tökum enga ákvörðun um þetta
fyrr en samningurinn liggur fyrir.
En menn hafa gælt við þessa
hugmynd,“ sagði Sigmundur. SS