Dagur - 14.06.1990, Síða 3
Fimmtudagur 14. júní 1990 - DAGUR - 3
fréftir
SigluQörður:
Málefnasamningur Alþýðuflokks og óháðra
Málefnasamingur nys meiri-
hluta Alþýðuflokks og lista
óháðra í bæjarstjórn Siglu-
fjarðar var kynntur á fyrsta
fundi nýkjörinnar bæjarstjórn-
ar sl. þriðjudag. Til glöggvunar
fyrir lesendur birtum við mál-
efnasamninginn hér í heiid.
Endurskipulagning
fjármála
Reyndar verði allar leiðir til að
lækka skuldir bæjarins og fyrir-
tækja hans. í því sambandi verða
kannaðir möguleikar til eigna-
sölu. Unnið verði að skuldbreyt-
ingum til að lækka fjármagns-
kostnað.
Endurskipulagning
í rekstri
Unnið verði að hagræðingu og
Sauðárkrókur:
Olía í höfnina
Óvenjulegt slys átti sér stað
í Suuðárkrókshöfn sl. föstu-
dag þegar verið var að dæla
olíu í geyma Skagfirðings
SK 4. Slangan sem olían fór
eftir rifnaði og nokkur
hundruð lítrar fóru í höfn-
ina. Ekki var þetta þó það
mikið magn að til neinna
sérstakra aðgerða þyrfti að
grípa-
Ekki mun vera algengt að
svona lagað gerist og þegar
Dagur hafði samband við bíl-
stjórann á viðkomandi olíu-
flutningabíl; Ólaf Björnsson,
sagðist hann ekki vita til þess
að svona slys hefði átt sér stað
áður, að minnsta kosti ekki á
Sauðárkróki. Slangan sém
rifnaði var aðeins tveggja ára
gömul svo talið er að um galla
hafi verið að ræða. Skjót við-
brögð manna sem voru þarna
staddir björguðu því að ekki
fór meira magn í höfnina en úr
slöngunni, því dæling var strax
stöðvuð. Lögreglan mætti á
svæðið, en henni þótti ekki
ástæða til að taka skýrslu enda
sást olían ekki einu sinni í
höfninni þó að rýnt væri. Má
þakka fyrir að ekki fór verr
þarna því að nóg er mengunin
fyrir í heimsins höfurn. SBG
endurskipulagningu á rekstri
bæjarins og fyrirtækja hans. ítr-
ustu ráðdeildar og sparsemi verði
gætt við allt viðhald og allar
framkvæmdir. Bæjarstjóri fái
meira framkvæmdavald.
Endurskoðun á nefndum
Aðilar ætla að vinna að endur-
skoðun á nefndum og hlutverki
þeirra, m. .a til að sameina og/eða
samstilla nefndir þar sem það
hentar.
Atvinnumál
Unnið verði að því fjölga
atvinnutækifærum og sérstaídega
kannaðir möguleikar til að
byggja upp ferðaþjónustu. Stutt
verði við bakið á þeirri atvinnu-
starfsemi sem hér er fyrir með
öllum tiltækum ráðum.
Samgöngumál
Öllum ráðum verði beitt til að
snjómokstri á Siglufjarðarvegi
verði stjórnað héðan og leiðinni
haldið opinni 5 daga vikunnar.
Kannað verði hvort framlög fáist
úr opinberum sjóðum til endur-
bóta á veginum að skíðasvæðinu
í Skarðsdal. Unnið að því að fá
gerð varanlegs slitlags á Siglu-
fjarðarflugvöll flýtt.
Hafnarmál
í samvinnu við Hafnamálastofn-
un verði framkvæmdaáætlun
endurskoðuð.
Skólamál
Stefnt verður að því að efla allt
starf grunnskólans og áhersla
lögð á að hér starfi framhalds-
deild. Fullorðinsfræðsla verði
fastur liður í skólastarfi og unnið
að nýjungum í skólamálum, sér-
staklega með þarfir sjávarútvegs
í huga.
Félagsmál
Aðilar eru sammála um að
standa vörð um þá félagslegu
þjónustu sem til staðar er og að
efla félagslega íbúðakerfið á
Siglufirði.
Rekstur íþrótta-
mannvirkja
Rekstur íþróttamannvirkja verði
endurskoðaður með það fyrir
augum að efla þjónustu og bæta
nýtingu.
Umhverfísmál
Helstu verkefni á sviði umhverf-
ismála eru breytt skipulag á sorp-
brennslu til að minnka mengun,
uppgræðsla í Hólsdal og vinna
við opin svæði í bænum. Efld
Skólaslit Menntaskólans á Akureyri 17. júní:
Búist við miklu íjölmenni á
110 ára afinæfi skólans
- m.a. boðið upp á kaffi og bakkelsi í gamla skólahúsinu
Menntaskólanum á Akureyri
verður slitið við athöfn í
íþróttahöllinni á Akureyri
sunnudaginn 17. júní 1990.
Athöfnin í höllinni hefst kl. 10
að morgni á því að stúdents-
efni ganga í salinn eftir að hafa
farið fylktu liði undir fána
skólans frá skóladyrum.
Tveir nýstúdenta, Halldór
Björn Halldórsson og Helgi Þor-
björn Svavarsson, hefja dag-
skrána með stuttum tónleikum.
Að þeim loknum er ræða skóla-
meistara, Jóhanns Sigurjónsson-
ar, en við þessi skólaslit lýkur
hann tímabundnu starfi sínu við
stjórn Menntaskólans á Akur-
eyri.
Að lokinni ræðu skólameistara
flytja gestir, fulltrúar afmælisár-
ganga, stutt ávörp. Hér er um að
ræða þá sem heimsækja skólann
á stúdentsafmæli sínu, 10 ára, 25
ára, 40 ára og 50 ára.
Að ávörpum loknum flytur
skólameistari yfirlit um skólastarf
vetrarins, brautskráir stúdenta,
113 að tölu, og flytur þeim síð-
ustu kveðju skólans.
Um hádegisbilið, að lokinni
athöfninni í íþróttahöllinni,
verður afhjúpuð höggmynd eftir
Ásmund Sveinsson, Oðinshrafn-
inn, á túninu norðan við gamla
Menntaskólahúsið. Þessi mynd
er meðal annars hingað fengin
vegna þeirra tímamóta sem skól-
inn stendur á, en nú eru liðin 60
ár síðan hann varð menntaskóli
og 110 ár síðan skólastarf á
Norðurlandi var endurvakið á
Möðruvöllum í Hörgárdal.
í tengslum við skólaslit
Menntaskólans á Akureyri er
I myndlistarsýning í Möðruvalla-
'kjallara, en þar sýnir Þorvaldur
Þorsteinsson, 10 ára stúdent,
verk sín. Sýningin verður opnuð
kl. 20 í kvöld, 14. júní, og verður
opin kl. 14-20 alla daga og lýkur
Vegagerðin:
Fyrsti hálendisvegurinn opnaður í gær
- áætlun gefin út um opnanir vega
Vegagerð ríkisins hefur gefið
út áætlun yílr opnunardaga
hálendisvega og jafnframt birt
lista yfir opnanir á þessum veg-
um síðastliðin 10 ár. Eins og
sést á meðfylgjandi korti eru
flestir vegir enn lokaðir en inn-
an tíðar verða nokkrar leiðir
opnaðar. Fyrsti hálendisvegur-
inn var opnaður í gær þegar
umferð var leyfð á Oskjuleið í
Drekagil.
Áætlaðir opnunardagar á há-
lendisvegum eru eftirtaldir:
Lakagígar 7. júlí, á Fjallabaks-
leið nyrðri er áætlað að opna
leiðirnar Sigalda-Landmanna-
laugar 1. júlí, Landmannalaugar-
Eldgjá 11. júlí og Skaftártunga-
Eldgjá 24. júní. Opnun á leiðum
á Fjallabaksleið syðri eru áætlað-
ar Keldur-Hvanngil 12. júlí,
Fljótshlíð-Hvanngil 13. júlí og
Hvanngil-Skaftártunga 11. júlí.
Landmannaleið verður væntan-
lega opnuð 1. júlí en á Kjalvegi
er áætlað að opna leiðina Gull-
foss-Kerlingafjöll þann 24. júní
og Kerlingafjöll-Blönduvirkjun
þann 28. júní.
Sprengisandsleið verður opnuð
væntanlega 7. júlí, Skagafjarðar-
leið 13. júlí, Eyjafjarðarleið 22.
júlí, Uxahryggjavegur 23. júní,
Kaldadalsvegur 2. júlí, Öskjuleið
í Öskju 28. júní og Kverkfjalla-
leið 24. júní. JÓH
Eins og sjá má eru flestir fjallvegir enn lokaðir en Vegagerð ríkisins hefur
birt lista yfir áætlaðan opnunartíma leiða.
að kvöldi 17. júní.
í gamla skólahúsinu verður
opið hús frá hádegi fram til
klukkan 16 þann 17. júní og
þangað er gestum boðið að
koma, skoða hús, hittast og
spjalla og þiggja kaffisopa og
kökubita.
Fjöldi fólks sækir skólann heim
17. júní ár hvert, jafnt gamlir
nemendur og aðrir velunnarar
skólans. Þannig hafa skólaslit
Menntaskólans á Akureyri sett
sterkan svip á þjóðhátíðardag-
inn. Þess er að vænta að aðsókn
verði nú meiri en oft áður, bæði
vegna tímamótanna og þeirrar
veðurblíðu sem hér ríkir þessa
daga. Auk þess fer hin mikla
rækt sem nemendur leggja við
skólann sinn stöðugt vaxandi.
verður samvinna við bæjarbúa í
fegrun og snyrtingu bæjarins.
Samvinna við sveitar-
félög í kjördæminu
Samstarf við sveitarfélögin í kjör-
dæminu verði endurskoðað með
það fyrir augum að bæta það og
efla hlut Siglufjarðar.
Helstu framkvæmdir
Aðilar eru sammála um að brýn-
ustu stórframkvæmdir þegar fjár-
hagsstaðan leyfir eru: Bygging
barnaheimilis, verklok við dval-
arheimilið og gerð gangstétta.
Fulltrúar meirihlutans von-
ast til að hafa sem best sam-
starf og samvinnu við stéttar-
félög, fulltrúa atvinnulífsins,
bæjarfulltrúa minnihlutans og
bæjarstarfsmenn sem og alla
aðra bæjarbúa.
Leiðrétting
í grein Alice J. Sigurðsson í blað-
inu í gær, misritaðist orð sem
gerði merkingu einnar setningar
illskiljanlega. Nafn hvalategund-
arinnar mjaldurs varð að lýsing-
arorðinu miðaldra. Rétt er setn-
ingin svona: „Fyrir um það bil
einum áratug fór að bera á því að
dauða hvali, einkum mjaldra,
ræki á land við ósa St. Lawrence-
fljótsins í Kanada."
Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum.
Göngugatan
á Akureyri:
Kökusalaámorgun
Á morgun stendur Kvenfélag
Hörgdæla fyrir brauð- og köku-
sölu í göngugötunni á Akureyri.
Þessi sala hefur verið árviss við-
burður í starfi kvenfélagsins síð-
astliðin þrjú ár og hefur þeim
kvenfélagskonum alltaf verið tekið
vel. Byrjað verður að selja eftir
hádegið en ágóði af þessari sölu
rennur til líknarmála. JÓH
/i
bridds
Bikarmeistarar í bridds 1990, sveit Grettis Frímannssonar. Frá vinstri: Frí-
mann, Grettir, Pétur og Anton.
Sveit Grettis bikar-
meistari árið 1990
Bikarkeppni Bridgesambands
Norðurlands, sveitakeppni, er
nýlega iokið. Alls tóku rúm-
lega 20 sveitir þátt í keppninni
víðsvegar af Norðurlandi, allt
frá Hvammstanga til Ilúsavík-
ur.
Til úrslita spiluðu tvær sveitir
frá Akureyri, sveit Grettis Frí-
mannssonar og sveit Dags, alls 64
spil í fjórum lotum sem hver var
16 spil. Sveit Grettis sigraði í öll-
um fjórum lotunum, hlaut 141
stig gegn 122 stigum Dags-
manna. Auk Grettis eru í sveit-
inni Frímann Frímannsson, Ant-
on Haraldsson og Pétur Guð-
jónsson.
Bikarkeppnin er með útslátt-
arfyrirkomulagi, sem vill segja að
sú sveit sem tapar er úr leik. í
undankeppninni bar sveit Grettis
sigurorð af sveit Ásgríms Sigur-
björnssonar Siglufirði, sveit Arn-
ar Einarssonar Akureyri (sem
vann bikarkeppnina árið 1989)
og sveit Kristjáns Guðjónssonar
Akureyri. óþh