Dagur - 14.06.1990, Síða 12
Filmumóttaka- Kjörbúð KEA Byggðavegi
nimumUUdKd. Kjörmarkaður KEA Hrísalundi,
Akureyri, fímmtudagur 14. júní 1990
Dalvík:
Krístján Þór
einróma
endurráðinn
Kristján Þór Júlíusson var ein-
róma endurráðinn bæjarstjóri
á Dalvík til Ioka yfírstandandi
kjörtímabils á fyrsta fundi
nýkjörinnar bæjarstjórnar á
Dalvík sl. þriðjudag. Oddvitar
meirihlutans fluttu sameigin-
lega tillögu um endurráðningu>
Kristjáns, sem fékk stuðning
allra bæjarfulltrúa. Guðlaug
Björnsdóttir, fulltrúi H-lista,
kvaddi sér hljóðs og lýsti
stuðningi H-listafólks við
endurráðningú Kristjáns.
Á fundinum var kjörið í öll
þau embætti og nefndir sem kos-
ið er til eins árs. Forseti bæjar-
stjórnar var kjörinn Trausti Þor-
steinsson, fyrsti varaforseti Jón
Gunnarsson, annar varaforseti
Guðlaug Björnsdóttir. í bæjarráð
voru kjörin Jón Gunnarsson,
Svanhildur Árnadóttir og Valdi-
mar Bragason. Til vara Gunnar
Aðalbjörnsson, Trausti Þor-
steinsson og Guðlaug Björns-
dóttir.
Kjörnir voru tveir skoðunar-
menn reikninga Árni Björnsson
og Kristján Þórhallsson. í stjórn
Sparisjóðs Svarfdæla var kjörinn
Gunnar Aðalbjörnsson, til vara
Kristján Aðalsteinsson. óþh
Skólaslit MA:
Óðinshrafiiinn
aflijúpaður
Við skólaslit Menntaskólans
á Akureyri nk. sunnudag
verður afhjúpað listaverkið
Óðinshrafninn cftir Ás-
mund Sveinsson mynd-
höggvara í tilefni af 110 ára
afmæli skólans. Verkinu
hefur verið komið fyrir á lóð
skólans, norðan við gamla
skólahúsið, og afhjúpunin á
17. júní hefst að loknum
skólaslitum.
Vegna kaupa á Óðinshrafn-
inum fékk Menntaskólinn á
Akureyri framlög frá Menn-
ingarmálanefnd Akureyrar,
listskreytingasjóði ríkisins og
sérstökum skólasjóði MA.
Að sögn Jóhanns Sigurjóns-
sonar, skólameistara, er
Óðinshrafninn reistur til heið-
urs félagsstarfi nemenda við
skólann síðustu 60 ár, en sem
kunnugt er bera skólablað og
skólafélag nemenda nöfn
hrafna Óðins, þ.e. skólablaðið
Muninn og skólafélagið
Huginn. -bjb
, . . .
BÚHin Sunnuhlíð
„Starfið leggst vel í mig“
- segir nýráðinn bæjarstjóri á Siglufirði
Úr Austurdal í Skagafírði. Myndin er tekin frá landi Gilsbakka að Bústöðum
VÍð Merkigil. Mynd: EHB
„Starfíð leggst bara vel í mig,“
sagði Björn Valdimarsson,
nýráðinn bæjarstjóri á Siglu-
fírði, í samtali við Dag, en
Björn tók við af ísaki Ólafs-
syni og mætti fyrst til vinnu í
gær. Bæjarstjórn Siglufjarðar
kom fyrst til fundar sl. þriðju-
dag og sagði Björn að brýnasta
málið á dagskrá væri slæm
fjárhagsstaða Siglufjarðar-
kaupstaðar. „Mitt fyrsta verk
verður að fara í fjármálin,“
sagði Björn.
Björn hefur sl. ár verið verk-
efnisstjóri atvinnuþróunarátaks á
Siglufirði og þar áður var hann
framkvæmdastjóri prjóna-
stofunnar Drífu á Hvammstanga.
Valbjörn Steingrímsson hefur
verið ráðinn verkefnisstjóri í stað
Björns, en eftir er 9 mánaða
vinna við átakið á Siglufirði, sam-
kvæmt áætlun. Valbjörn var ráð-
inn fyrir næstu 3 mánuði a.m.k.
Fyrsta, annað og þriðja mál á
dagskrá nýrrar bæjarstjórnar
Siglufjarðar verður að ráða bót á
fjármálum bæjarins og sagði
Björn að eftir þann tíma væri
hægt að huga að öðrum málefn-
um. „Hluti af því að ná niður
skuldastöðunni er að eiga sem
mest eftir af fjármunum frá
rekstrinum," sagði Björn Valdi-
i marsson. -bjb
Raufarhöfn:
Bygging íþróttahúss
næsta stórverkefiii?
Enn hefur ekki verið gengið
formlega frá myndun meiri-
hluta í Raufarhafnarhreppi en
fullvíst þykir að Framsóknar-
flokkur og Alþýðubandalag
muni sitja áfram við stjórnvöl-
inn á Raufarhöfn. Sigurbjörg
Jónsdóttir, sveitarstjóri og
oddviti framsóknarmanna,
sagði að menn væru ekkert að
æsa sig í meirihlutaviðræðum.
Aðspurð sagði Sigurbjörg ekki
Vafaatkvæðið fræga á Skagaströnd:
Boltinn hjá lögfróðum mönnum
- kjörstjórn Höfðahrepps hefur skilað umsögn
Eins og flestum er kunnugt
kærði G-Iistinn á Skagaströnd
talningu atkvæða í sveitar-
stjórnarkosningunum til sýslu-
manns vegna þess að eitt utan-
kjörstaðaratkvæði var dæmt
ógilt. Jón ísberg sýslumaður
skipaði nefnd þriggja lög-
fræðinga að sunnan til að
dæma í málinu. Fyrsta verk
hennar var að fara fram á
umsögn kjörstjórnar Höfða-
hrepps og sú umsögn fór af
stað í gær suður yfír heiðar.
Boltinn er því hjá þessum lög-
fróðu mönnum í Reykjavík.
Utankjörstaðaratkvæðið, sem
er erlendis frá, var dæmt ógilt
vegna þess að vitundarvotta vant-
aði á það. Samkvæmt heimildum
blaðsins var atkvæðið til handa
G-listanum. Það mjótt varð á
mununum í kosningunum á
Skagaströnd að ef atkvæðið verð-
ur dæmt gilt þarf að varpa hlut-
kesti á milli efsta manns G-lista
og annars manns D-lista um hvor
fær hreppsnefndarsæti. Það er
því rafmögnuð spenna á Skaga-
strönd þessa dagana.
Nefndin, sem Eggert Óskars-
son borgardómari í Reykjavík,
veitir forstöðu, hefur viku til að
úrskurða í málinu eftir að
umsögn kjörstjórnar berst. Eftir
það verður veittur vikufrestur til
áfrýjunar. Ekki er tekið fram í
sveitarstjórnarlögum hvað félags-
málaráðuneytið fær langan tíma,
en það kveður upp endanlegan
úrskurð, að fenginni niðurstöðu
lögfræðinganna.
Það verður því einhver bið á
því að hreppsnefnd Höfðahrepps
komi saman á ný. Eitt af þeim
Sauðárkrókur:
Stefiiir í metaðsókn í íjölbraut
Mikil aðsókn er að Fjölbrauta-
skólanum á Sauðárkróki fyrir
komandi haustönn og segir
Ólafur Arnbjörnsson, aðstoð-
arskólameistari, að aldrei hafí
verið komnar jafnmargar
umsóknir um miðjan júní og
núna.
Umsóknarfresturinn rann út
10. júní en ennþá berast umsókn-
ír. Heimavistin er orðin fullsetin,
þó að ný álma verði tekin í
notkun í haust og nokkrir eru
komnir á biðlista. Á haustönn
síðasta árs voru um 320 nemend-
ur í F. á S. og höfðu þá aldrei ver-
ið fleiri í skólanum. Núna stefnir
þó í nýtt met, enda 35 rúm sem
bætast við á vistinni. Flestar þess-
ara umsókna berast af Norður-
landi vestra, en þó er, að sögn
Ólafs, slæðingur af fólki úr öðr-
um landshlutum og þá aðallega
að vestan og austan. Ölafur sagði
jafnframt að þó að umsóknir
væru orðnar svona margar, þá
væru alltaf einhverjir sem dyttu
út svo enn væri von að komast
að í Fjölbraut á Sauðárkróki.
SBG
málum sem bíða hennar er að
ráða nýjan sveitarstjóra á Skaga-
strönd. Úr nógu verður að moða
því alls bárust 11 umsóknir um
starfið. -bjb
nein stórmál liggja fyrir hjá sveit-
arfélaginu á næstunni og engin
pressa á mönnum að ganga form-
lega til viðræðna urn myndun
meirihluta.
Ýmsar framkvæmdir eru þó á
döfinni á Raufarhöfn, s.s. í
tengslum við gatnagerð. Þá sagði
Sigurbjörg að áhugi væri á staðn-
um fyrir því að kanna möguleika
á nýjum atvinnutækifærum.
„Við höfum verið að gæla við
þá hugmynd að koma á fót öðr-
um atvinnurekstri en þeim sem er
í gangi. Atvinnulífið er einhæft
hjá okkur. Við höfum ekkert
nema fisk og þótt hann sé ágætur
þá er allt í lagi að sjá eitthvað
annað Iíka,“ sagði Sigurbjörg.
Hún upplýsti líka að Raufar-
hafnarbúar hefðu mikinn áhuga á
því að koma upp íþróttahúsi.
Þegar lokið verður við að'byggj a
þjónustuíbúðir fyrir aldraða er
fyrirhugað að bygging fþrótta-
húss verði næsta stórverkefnið á
Raufarhöfn. SS
Árskógsströnd:
Laxeldi hjá Rauðavík hf.
líklega lagt af í haust
- stöðin varð fyrir miklu tjóni í vor
Vegna mjög slæmrar rekstrar-
fjárstöðu og tjóns í vor er tæp
7 tonn af laxi sluppu úr einni
kvínni er hún brotnaði, eru
verulegar líkur á að laxeldis-
stöðin Rauðavík á Árskógs-
strönd verði lögð niður í haust
eftir að slátrun lýkur.
Rauðavík hf. hefur verið með
lax í þremur kvíum í vetur sem
hefðu átt að gefa af sér tæp 30
þetta tjón verður slátrun ekki
nema um 20 tonn, en nettósölu-
verðmæti þess er um 4,4 milljónir
á núgildandi markaðsverði. Að
sögn Jóns Sigurðssonar hjá
Rauðavík hf. er ekki hægt að
endurnýja kvíar eða kaupa seiði í
sumar vegna hinnar slæmu stöðu
nema til komi aukið hlutafé, en
mikill meirihluti hluthafa vill
hætta rekstrinum og því líkur á
að rekstrinum verði hætt í haust
eftir sláturtíðina. Tvær af þremur
kvíunum eru fengnar að láni frá
Ölni hf. á Dalvík, en þeim þarf
að skila í sumar.
Stærstu hluthafar í Rauðavík
hf. eru Óslax hf. í Ólafsfirði,
Sveinn Jónsson bóndi í Kálf-
skinni og Ingvi Jón Einarsson
tannlæknir, en alls eru hluthafar
urn 20 talsins.
í vetur og vor hefur verið seld-
ur matfiskur innanlands og í
reykingu til Ólafsfjarðar sem
þaðan fer á markað víðs vegar
um landið, en þær tekjur sem af
því fást skipta ekki sköpum varð-
andi reksturinn.
Eitthvað hefur fengist af laxi á
stöng og í net í vor við utanverð-
an Eyjafjörð, og má líklegt telja
að eitthvað af þeim laxi sé úr
kvíum Rauðavíkur hf. GG