Dagur - 15.06.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Föstudagur 15. júní 1990
4
fréffir
í
Reglugerð um breytingu á virðisaukaskatti:
Sveitarfélögum verður eftirleiðis
endurgreiddur skattur af snjómokstri
Ólafur Ragnar Grímsson,
fjármálaráðherra, hefur undir-
ritað nýja reglugerð um virðis-
aukaskatt af skattskyldri starf-
semi opinberra aðila og tekur
hún bæði til ýmissa ríkisstofn-
ana og ríkisfyrirtækja svo og
sveitarfélaga. Með þessari
reglugerð er ákveðið að endur-
greiða sveitarfélögum og ríkis-
stofnunum virðisaukaskatt
sem leggst á t.d. sorphreinsun,
snjómokstur og ræstingu.
Samkvæmt lögum um virðis-
aukaskatt er sveitarfélögum,
stofnunum sveitarfélaga og fyrir-
tækjum, ríkisfyrirtækjum og
ríkisstofnunum, skylt að inn-
heimta virðisaukaskatt að því
leyti sem þessir aðilar selja vöru
eða skattskylda þjónustu í sam-
keppni við atvinnufyrirtæki.
Önnur starfsemi þessara aðila er
undanþegin virðisaukaskatti.
Petta á meðal annars við um
flesta hefðbundna þætti opin-
berrar starfsemi til dæmis heil-
brigðisþjónustu, skólastarf,
félagslega þjónustu á borð við
rekstur barnaheimila og upp-
tökuheimila, menningarstarfsemi,
rekstur íþróttamannvirkja o.fl.
Með þessari reglugerð er skor-
ið úr um hvaða starfsemi á vegum
sveitarfélaga og ríkisins er virðis-
aukaskattskyld og hver er undan-
þegin skattinum. Reglugerðin
hefur verið unnin í samráði við
sveitarstjórnarmenn og er, sam-
kvæmt upplýsingum fjármálaráð-
uneytisins, reynt að taka eins
mikið tillit og mögulegt er til hag-
kvæmnisatriða við rekstur í sveit-
arfélögum og hjá ríkisstofnun-
um.
Skattskyld starfsemi sveitar-
félaga og ríkisstofnana telst m.a.
byggingarstarfsemi, vegagerð og
samgöngubætur, holræsagerð og
vatnslagnir, bygging íþrótta-
mannvirkja, viðhald mannvirkja
af ýmsu tagi og þjónusta sem
byggir á iðnmenntun.
Auk fyrrnefndra atriða sem
ákveðið er að endurgreiða sveit-
arfélögum og ríkisstofnunum
virðisaukaskatt af, eru björgun-
arstörf og öryggisgæsla, þjónusta
ýmissa sérfræðinga sem einnig
þjóna atvinnulífinu, svo sem
verkfræðinga, tæknifræðinga
arkitekta, lögfræðinga og endur-
skoðenda undanþegin virðis-
aukaskatti. Einriig starfsemi
vinnuskóla nemenda undir 16 ára
aldri og sumarvinna skólafólks á
aldrinum 16-25. JÓH
Skagafjörður:
„Nægur kvóti
eftir í þorski,
grálúðu og karfa“
„Við ráðgerum að halda uppi
vinnslu í allt sumar. Við erum
á sóknarmarki og nógur kvóti
eftir í þorski, grálúðu og
karfa. Skipin hafa verið að
veiða dálítið af fiski utan
kvóta, ýsu og ufsa,“ sagði
Gísli Svan Einarsson, útgerð-
arstjóri hjá Fiskiðju Sauðár-
króks.
Skip eru nú að halda til veiða
aftur eftir að hafa verið inni á
sjómannadaginn. Hegranesið
SK 2 er á leið austur fyrir land,
þar sem frést hefur af ufsa og
Skagfirðingur SK 4 ætlar að
reyna fyrir sér hér norðan við.
Töluvert verður um stopp hjá
togurunum í sumar því að þeir
rnega ekki sækja nema 68 daga
af 123 á komandi tímabili. Gísli
sagði þó að reynt yrði að halda
uppi vinnslu og útlitið væri ekki
slæmt ef skipin gætu hætt að
sækja á fjarlæg mið, austur og
vestur fyrir land. SBG
17. júní á Vopnafirði:
Útidansleikur
og grillveisla
Það verður mikið um dýrðir á
17. júní á Vopnafirði. Hefð-
bundnir dagskrárliðir verða í
boði og þá verður skemmtilegt
nýmæli um kvöldið, útidans-
Ieikur og grillveisla í miðbæn-
um.
Það er íþróttafélagið Einherji
sem að vanda stendur fyrir 17.
júní hátíðarhöldum á Vopna-
firði.
Hátíðarhöldin hefjast með því
að fólk kemur saman við félags-
heimilið Miklagarð og gengur
undirfánum á íþróttavöllinn. Þar
verður fjölbreytt skemmtidag-
skrá, leikir, knattspyrna og
fleira. Að því búnu, kl. 16, verð-
ur kaffisala í Miklagarði og
þráðurinn verður tekinn upp kl.
22 um kvöldið með útidansleik í
miðbænum. Að sögn Ólafs Ár-
mannssonar, formanns Einherja,
hefur ekki verið áður efnt til úti-
dansleiks á 17. júní á Vopnafirði.
Ólafur segir að ætlunin sé að efna
til grillveislu samhliða dansleikn-
um. Það er hljómsveitin Nefndin
sem sér um tónaflóðið á útiball-
inu. óþh
Hagkvæm innkaup!
á Júnáfilboði kjörfoúða KEA
bamableiur
9-18 kg (28 stk)
7-11 kg (30 stk)
Tuc-saHkex 40
Tuc-piÆxakex 40
Baconkex 40
WC pappír
QrúUur
reo
Kjörbúðir á félagssvæðinu